Morgunblaðið - 27.09.1996, Síða 9

Morgunblaðið - 27.09.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996 9 FRÉTTIR Felix-verðlaunin afhent í Berlín í desember AÐALLEIKARI myndarinnar, Japaninn Masatoshi Nagase. * A köldum klaka Frið- riks Þórs útnefnd MYND Friðriks Þórs Friðriks- sonar, Á köldum klaka, er í hópi tíu mynda sem tilnefndar eru til Felix-verðlaunanna sem besta kvikmynd ársins í Evrópu 1996. Þrjár myndir úr þessum hópi verða síðan tilnefndar í byrjun næsta mánaðar tíl að keppa um verðlaunin sem af- hent verða á verðlaunahátíð í Berlín 8. desember næstkom- andi. Friðrik Þór sagði í samtali við Morgunblaðið að útnefning- in væri ákaflega ánægjuleg en hafi ekki komið sér mikið á óvart þar sem gengi hennar hefur verið gott að undanförnu. „Myndin hefur meðal annars verið sýnd fyrir fullu húsi í Ástralíu undanfarnar fjórar vikur og hefur fengið mjög góða dóma í Bretlandi og Bandaríkjunum," sagði Friðrik. Þetta er í fyrsta skipti sem mynd eftír hann er útnefnd til Felix-verðlaunanna en Hilmar Örn Hilmarsson fékk þau árið 1991 fyrir tónlist sína í mynd Friðriks Þórs, Börn náttúrunn- ar. „Keppi viðmikla hákarla“ Friðrik segir slaginn um verðlaunin verða harðan því meðal mynda sem keppt er við eru „Trainspotting“ eftir Danny Boyle, „Secrets and Lies“ eftir Mike Leigh sem fékk Gullpálm- ann í Cannes í vor og „Breaking the Waves eftir Lars von Trier. „Þetta eru miklir hákarlar og þetta er hálfvonlaust. Við erum mjög ánægðir með að hafa kom- ist í hóp þessara tíu mynda og það er mikill sigur fyrir mynd- ina. ítalski kvikmyndaleikstjórinn Ettore Scola er formaður dóm- nefndar og hann er mikill vinur minn þannig að ef myndin kæm- ist í úrslit yrði það í gegnum klíku," sagði Friðrik Þór. Rafiðnaðar- sambandið Slíta öll tengsl við VMSÍ ÚTLIT er fyrir að allt að 12% fjölgun félaga geti orðið í Rafiðn- aðarsambandinu um áramótin. Um 250 símvirkjar og símsmiðir starfa hjá Pósti og síma sem verð- ur gerður að hlutafélagi um ára: mótin. Nú eru félagsmenn í RSÍ um 2.000. Einhugur var með ræðumönn- um á kjaramálaráðstefnu Rafiðn- aðarsambands íslands um síðustu helgi að slíta öllum samskiptum við Verkamannasamband íslands í tengslum við gerð næstu kjara- samninga. Þetta kom fram í máli Guðmundar Gunnarssonar, for- manns RSÍ, á fundi sem samband- ið gekkst fyrir í Keflavík í fyrra- kvöld. Við gerð síðustu kjara- samninga komu landssambönd ASÍ sameiginlega fram gagnvart vinnuveitendum. „Við erum yfir okkur saddir á því hvernig menn haga sér þar. Við höfum í nánast hverjum ein- ustu kjarasamningum verið sakaðir um að skerða rétt Verka- mannasambandsins þegar við setjum fram okkar kröfur. VSI setur okkur þá aftast í goggunar- röðina. Við sitjum úti í horni með okkar kröfugerð og enginn vill tala við okkur. Verkamannasam- bandið gengur síðan frá sínum samningum og er þá í raun búið að semja fyrir okkur,“ sagði Guð- mundur. WOTZahI» í glugga SÓLBEKKIR Þola fyrirliggjandi vatn ÞÞ &co SENDUM I PÓSTKRÖFU Þ. ÞORGRÍMSSON &CO Ármúla 29 • Reykjavik • Slmi 553 8640 Sunnusalur er glæsilegur salur sem hentar sérstaklega vel fyrir árshátiðir, afmæli, brúðkaup og önnur veislusamsæti. Kynnið ykkur góð kjör, athugið sérstakt árshátíðartilboð á föstudagskvöldum. Allar nánari upplýsingar eru veittar í söludeild í síma 552 9900. -þín saga! OROBLU KYNNING AFSLÁTTUR af öllum OROBLU sokkabuxum föstudaginn 27. september og laugardaginn 28. september kl. 13.00-18.00. ■ CHIC 30 Frábærar lycra sokkabuxur - 30 den. Venjulegt verð 495 kr. - kynningarverð 396 kr. BREIÐHOLTS APOTEK Álfabakka 12 - Sími 557 3390 Elizabeth Arden Kynning í dag frá kl. 14-18. Snyrtistofa Sigríðar Guðjóns. Eiðistorgi 13, sími 561 1161 ____MaxMara___________ Ný sending frá MARJNA RIN^LDÍ Hverfisgötu 6, Reykjavík, sími 562 2862 Fólk er alltaf að vinna íGullnámunni: milljón Vikuna 19. - 25. september voru samtals 81.695.880 kr. greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þar bar hæst Gullpottinn en einnig voru greiddir út veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öðrum vinningum. Gullpottur í vikunni: Dags. Staður Upphæð kr. 25. sept. Ölver....................... 5.447.143 Silfurpottar í vikunni: 19. sept. Blásteinn..................... 134.852 20. sept. Blásteinn..................... 169.120 21. sept. Kringlukráin.................. 218.177 21. sept. Háspenna, Hafnarstræti.... 90.407 22. sept. Catalína, Kópavogi........ 135.423 23. sept. Háspenna, Hafnarstræti.... 138.947 23. sept. Næturgalinn................... 132.845 24. sept. Háspenna, Laugavegi....... 85.901 24. sept. Háspenna, Laugavegi....... 152.227 Staða Gullpottsins 26. september, kl. 8.00 var 2.050.000 krónur. Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr. og hækka síðan jafnt og þétt þar til þeir detta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.