Morgunblaðið - 27.09.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996 13
GYLFI Arnbjörnsson, hagfræðing-
ur ASÍ, segir að deilur um túlkun
á nýju vinnulöggjöfinni eigi eftir
að flækja gerð nýrra kjarasamn-
inga. Alþingi hafí valdið mikilli
óvissu á vinnumarkaðinum með
samþykkt laganna og í sumum til-
vikum viti menn hreinlega ekki til
hvers löggjaflnn ætlaðist með
breytingunum.
Eitt af því sem ágreiningur er
um milli talsmanna vinnuveitenda
og verkalýðshreyfingarinnar er
hvað gerist um áramót þegar
samningar renna út hafi samning-
ar ekki tekist. Þórarinn V. Þórar-
insson, framkvæmdastjóri VSÍ,
sagði í Morgunblaðinu sl. sunnu-
dag að sáttasemjari gæti ekki lagt
fram sáttatillögu um áramót eins
og formaður Rafiðnaðarsam-
bandsins telur eðlilegast. Hann
Sendi álit í
bundnu máli
Lúxemborg'. Morgunblaðið.
•EKKI alls fyrir Iöngu var greint
frá því í lúxemborgíska dagblaðinu
Tageblatt að Halldór Steinarsson,
20 ára nemi í Lycée de Garcons
Luxembourg, hlaut ásamt Carole
Stefanetti, fyrstu
verðlaun í sam-
keppni þar sem
nemendum á lista-
braut 10. og 13.
bekkjar auk 1. og
2. bekkjar
menntaskóla var
gert að skila inn
áliti sínu á mynd-
listasýningunni
„Main Stations"
hvar 13 listamenn sýndu verk sín.
Álit sitt skrifaði Halldór í bundnu
máli og samdi hann eina vísu um
hvern listamann. Sagði Tageblatt
svo frá að ljóð Halldórs hefðu verið
glettin heimspeki um listamennina
ogverk þeirra.
í verðlaun hlaut Halldór síðan
alfræðiorðabókina Encyclopedia
Britannica í 32 bindum.
Halldór er sonur hjónanna
Steinars Halldórssonar og Lill-
ian Nielsen. Hefur Halldór verið
búsettur í Lúxemborg alla tíð en
fjölskylda hans hefur búið þar frá
árinu 1973. Stundar hann nám í
menntaskólanum Lycée de Gar-
?ons, Lúxemborg.
17% fjölgun
farþega hjá
Islandsflug'i
FARÞEGUM í áætlunarflugi
íslandsflugs hefur fjölgað um
17% á árinu miðað við sama
tímabil í fyrra. Met var sett í
áætlunarflugi þegar íslands-
flug flutti 31,2% fleiri farþega
í ágúst sl. en í ágúst í fyrra.
Mest hefur fjölgunin orðið
í flugi til og frá Vestfjörðum.
íslandsflug flýgur allt að þijár
ferðir á dag til Vestfjarða.
Farþegum hefur einnig
Qölgað mjög í leiguflugi bæði
innanlands og utan, að því er
segir í fréttatilkynningu. Þeg-
ar hefur t.d. orðið 56% fjölgun
farþega í ferðum til Græn-
lands.
Arfur horfinna kynslóöa
Jurtasmyrsl Erlings grasa-
læknis fást nú í ajiótekum
og heilsuhúðum um land
allt.
• Græðismyrsl
• Handáburður
• Gylliniæðaráburður
Kranil<‘i<Saii(li: Islrnsk lyíjagnis <»hf.
Hagfræðingur ASÍ segir margt óljóst í vinnulöggjöfinni
Samningagerð flókin
sagði það ennfremur misskilning
að þá skylli á verkfall hafi samn-
ingar ekki tekist.
Gylfl sagði ljóst að ekkert í lög-
um bannaði sáttasemjara að leggja
fram sáttatillögu á gamlársdag.
Meginatriðið væri hins vegar að
með breytingum á vinnulöggjöfínni
hefði Alþingi verið að setja leikregl-
ur í þeim tilgangi að flýta samn-
ingaferlinu. Menn ættu að setjast
fyrr að samningaborði og samn-
ingsstaðan ætti einnig að skýrast
fyrr. Þetta væri beinlínis tekið fram
í greinargerð með frumvarpinu og
hefði margoft komið fram í umræð-
um um það.
„Öll umræðan gekk út á að
breytingarnar miðuðu að því að
koma í veg fyrir að kjarasamningar
drægjust á langinn. Tímafrestirnir
í sambandi við viðræðuáætlanirnar
miða að því að nýir kjarasamningar
taki gildi um leið og eldri renna
út. Það skellur ekki sjálfkrafa á
verkfall ef það tekst ekki, en það
er ljóst að þetta ýtir undir að samn-
ingaferillinn taki styttri tíma,
ágreiningur komi fram fyrr og
miðlun sáttasemjara komi fyrr til.
Þetta finnst okkur löggjafarvaldið
hafa verið að leggja upp með,“
sagði Gylfi.
Vinnulöggjöfin er sniðin að
danskri fyrirmynd og sagði Gylfi
að verkföll í Danmörku hefðu oftar
en ekki hafist um leið og kjara-
samningar runnu úr gildi. Þá væru
aðilar vinnumarkaðarins búnir að
vera í viðræðum í nokkra mánuði
og fullreynt hvort menn næðu
samningum án átaka.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins,
sagði að ummæli framkvæmda-
stjóra VSÍ bæru með sér að hann
vildi halda í gömul vinnubrögð sem
viðgengist hefðu við gerð kjara-
samninga hér á landi í áratugi.
„Viðræðuáætlun nær aldrei
lengra en gildandi kjarasamningur.
Hún miðar að því að menn hafi náð
saman um nýjan samning áður en
gildandi samningur rennur út. í lok
viðræðuáætlana verða menn að
meta hvað þeir ætla að gera. Eru
samningar að nást; eru samnings-
aðilar komnir það nálægt hvor öðr-
um að sáttasemjari leggur fram
miðlunartillögu eða er staðan sú
að samningstilraunir hafa engu
skilað? Þegar þetta mat liggur fyr-
ir grípa menn til viðeigandi ráðstaf-
ana,“ sagði Guðmundur.
r
Sumir hlutir eru
meira virði en þeir kosta!
er glæsilegt dæmi um það
Ef þú vilt ekki eyða peningunum í dýran og
glæsilegan bfl, geturðu þess í stað varið þeim
til kaupa á ódýrum og glæsilegum bfl. Elantra
er vel búinn og vekur athygli í umferðinni fyrir
straumlínulagað og sportlegt útlit. En kostirnir
eru ekki bara á ytra borðinu. Ríkuleg áhersla er
lögð á öryggisatriði, vélin er kraftmikil,
hljóðeinagrun er góð og innrarými er
þaulhugsað og þægilegt. Öll þessi atriði koma
glögglega í ljós við reynsluakstur.
Hyundai Elantra
...mikils virði!
HYUnDRI
til framtídar
Vél búin: C£
1.6 lítra rúmmáli 3
16 ventlum Q
tölvustýrðri innspýtingu ^
116hestöflum ^
•••••••••••••• ^
Rafknúnar rúður ____I
Rafknúnir hliðarspeglar
Samlæsing í hurðum Q
Vökva- og veltistýri ^
Tveir styrktarbitar í hurðum i/l
Útvarp/kassettutæki ££
með 4 hátölurum
Litað gler <£
Statif fyrir drykkjarmál p
Hólf milli framsæta yj
Stafræn klukka £L
Snúningshraðamælir |—
Barnalæsingar ^
o.m.fl. <£
VERÐDÆMI Elantra
Verð 1.395.000
Uppítðkubifreiö 450.000
Peninqar 150.000
Útborgun samtals 600.000
Bílalán (Glltnir/Sjóvá AlmTVlS) 795.000
Meöalafborgun 48 mán 20.353
36 mán 26.011
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 568 1200
BEINN SÍMI: 553 1236
B&L útveqar bilalán hjá Glitni. Sjóvá Almennum og VtS. Lágnwkiutborgun miðast vlö 25H af veröi bitslns. Hámarkstíml bflatáns er 60 máa er þá lágmarksútborgun 35H. Verödaemiö getur breyst án fyrinrara Aukabúnaður á mynd álfelgur.