Morgunblaðið - 27.09.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996 15
AKUREYRI
Barna-
starf haf-
ið í Gler-
árkirkju
FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓN-
USTA sem verður í Glerár-
kirkju næstkomandi sunnu-
dag, 29. september kl. 11,
markar upphaf barnastarfs-
ins í vetur, en það verður á
sama tíma á sunnudögum í
vetur. Aðalsteinn Þorsteins-
son hefur umsjón með barna-
starfinu.
Tilgangurinn með fjöl-
skyiduguðsþjónustum er að
gefa foreldrum og börnum
tækifæri til að eiga saman
stund í kirkjunni, þannig að
guðsþjónustur verði unga
fólkinu aðgengilegar og það
kynnist helgihaldi kikijunnar
betur.
Barnaefni vetrarins verður
kynnt í guðsþjónustunni, en
yfirskrift efnisins er „Örkin
hans Nóa“ og er ásamt mynd-
um sem fylgja unnið af Elínu
Jóhannsdóttur kennara.
Markmið efnisins er að börnin
læri helstu sögur Gamla og
Nýja testamentisins og boð-
skap þeirra og stigi þannig
fyrstu skrefin í því að öðlast
nokkra heildarsýn yfir Bibl-
íuna og kristna trú.
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
Fjórir með fé í Ólafsfirði
Ólafsfirði. Morgunblaðið.
FJÁRBÆNDUM í Ólafsfirði hef-
ur fækkað ár frá ári og eru þeir
nú aðeins fjórir með um 700 fjár.
Mikill fjöldi barna og fullorðinna
fylgdist með þegar bændur
drógu fé í dilka í Reykjarétt á
dögunum. Margir voru einnig
boðnir og búnir að aðstoða þá
við göngur. Á myndinni eru þær
Júlíanna Ingvadóttir og Agnar
Víglundsson að losa gaddavír úr
lambi.
Helgi Hjaltalín
sýnir í Gallerí+
HELGI Hjaltalín Eyjólfsson opnar
sýningu í Gallerí+ í Brekkugötu 35
á Akureyri á morgun, laugardaginn
28. september kl. 16. Hún stendur
til 13. október næstkomandi.
Helgi Hjaltalín er Reykvíkingur,
fæddur árið 1968. Hann hefur sótt
listmenntun sína víða, byijaði á
listabraut Fjölbrautaskólans í
Breiðholti 1984, þá stundaði hann
nám við Myndlista- og handíða-
skóla íslands en hélt árið 1991 til
ársdvalar í Kunstakademie í Duss-
eldorf í Þýskalandi. Þá stundaði
hann nám í Hollandi í tvö ár áður
en hann hélt vestur um haf til árs-
dvalar í San Francisco Art Inst-
itute.
Listaverk hans eru afar sér-
stök, bæði í efnisvali og meðferð
þess, þar sem eiturefni eru m.a.
notuð til að auka skynjunina og
pólitíska hugsun. Verkin eru lit-
sterkir veggskúlptúrar, þar sem
lokuð tilraunaglös eru hluti verks-
ins, fyllt af eitri sem fáanlegt er
út í búð og almenningur dælir
niður í klósett og eldhúsvaska í
stórum stíl, segir í frétt af sýning-
unni.
Helgi hefur sýnt list sína í Hol-
landi, Þýskalandi, Englandi og
Bandaríkjunum og hér heima.
Gallerí+ er opið laugardaga og
sunnudaga frá kl. 14 til 18 þegar
sýningar eru.
Halli og Laddi
á Hótel KEA
NÚ Á haustdögum býður Hótel
KEA upp á skemmtun með Halla
og Ladda, sem fá til sín í heim-
sókn ýmsa góðkunningja, eins og
Stefán frá Utistöðum, Skúla raf-
virkja og Magnús bónda frá Ytri-
Hnjáskeljum og þá mun hinn sívin-
sæli Eiríkur Fjalar troða upp.
Skemmtunin ásamt þriggja
rétta glæsilegum kvöldverði og
dansleik kostar 3.450 krónur. í
tilefni af þessari skemmtun býður
Hótel KEA sérstakt hausttilboð á
gistingu.
Fyrsta sýningin verður annað
kvöld, laugardagskvöldið 28. sept-
ember, og mun hljómsveitin Mið-
aldamenn frá Siglufirði leika fyrir
dansi að skemmtun lokinni. Næstu
sýningar verða 19. og 26. október.
Einstakt tœkifœri fyrir
handhafa Far- og
Gullkorta VISA.
22. - 28. október.
Einstök og glæsileg skoðunarferö um
höfuðborg Bandaríkjanna. Gist verður
ó State Plaza sem er fyrsta flokks hótel
staðsett beint á móti Virginia Avenue ó
milli 21. og 22. Street. Öll herbergin eru
með eldhúskróki, sjónvarpi, sima og
minibar. í hótelinu er veitingastaður,
setustofa og æfingasalur.
Verð aðeins 49.900 kr.
m.v. 2. i herbergi.
> 10 mánaða raðgreiðslur!
InnifaliS: Flug, gisting akstur til og frá flugvelli
hálfs dags skoSunarferS um Washington DC,
flugvallarskattar og íslensk fararstjórn.
Bókanir fara eingöngu fram hjá Dísu,
Hörpu og Guðrúnu Dagmar í Hóp-
ferðadeild Flugleiða á Laugavegi 7
í símum 5050 486, -534 eða -491.
Fararstjórn:
Sigurveig Jónsson.
FLUGLEIÐIR JS
Traustur (slenskur ferðafélagi Mí
9ZllAV)S/NIMUOY