Morgunblaðið - 27.09.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996 19
ERLENT
Skriðdrekar á
götum Jerevan
Jerevan. Morgunblaðið.
ELDSNEMMA í gærmorgun
komu skriðdrekasveitir akandi inn
í miðborg Jerevan og hermenn
tóku sér stöðu við helstu opinberu
byggingar og samkomustaði fólks.
Þar með varð ljóst að Levon Ter-
Petrosyan, forseti ætlar sér ekki
að gefa þumlung eftir gagnvart
stuðningsmönnum Vazgens
Manukyans, mótframbjóðanda
síns í forsetakosningunum. A hót-
eli íslenska skáklandsliðsins
heyrðu menn einhveija skothríð
en gátu ekki gert sér grein fyrir
hvort skotið væri upp í loftið eða
í átt að einhverjum stuðnings-
mönnum Manukians.
Liðsmenn Manukyans láta lítið
á sér kræla, enda miða aðgerðir
hersins greinilega að því að koma
í veg fyrir að þeir geti safnast
saman til þess að ítreka kröfur
sínar um að Ter-Petrosyan segi
af sér vegna víðtækra kosninga-
svika í forsetakosningunum á
sunnudaginn var.
Hermenn vart af barnsaldri
Hermennirnir sem nú eru á
vappi i miðborg Jerevan skiptast
nokkuð í tvö horn. Annars vegar
eru bardagareyndir dátar úr átök-
unum við Azerbajdshan með vél-
byssur sem ekki fór á milli mála
að hafa verið notaðar oft og lengi,
en hins vegar eru kornungir menn
og virðast sumir vart af barns-
aldri. Allir eru þeir gráir fyrir járn-
um og standa sinn vörð af stakri
samviskusemi en gera sér jafn-
framt far um að skelfa fólk ekki
með návist sinni.
Enda virðast menn svo sem
ekki skelfingu lostnir. Nokkrum
sinnum sá ég hermenn verða fyrir
aðkasti óbreyttra borgara, en aðal-
lega voru það samt nokkrir vopn-
aðir menn í borgaralegum klæð-
um, sem tilheyra sjálfsagt öryggis-
sveitum innanríkisráðuneytisins
eða einhveijum álíka hópum, sem
urðu fyrir reiði fólks.
Móðurlegar umvandanir
Sú reiði var hófstillt en ekki fór
milli mála að ýmsir höfðu margt
við þá opinberu skýringu Ter-Pet-
rosyans að athuga að hermennirn-
ir væru þarna komnir einungis til
að standa vörð um lýðræðið í land-
inu. Athyglisvert var að það voru
helst miðaldra konur sem létu
byssumennina heyra það, rétt eins
og um væri að ræða móðurlegar
umvandanir.
Áberandi færri voru á ferli í
miðborg Jerevan en venjulega.
Bílaumferð var líka bönnuð meira
og minna og stæðilegum skrið-
drekum hafði verið lagt yfir helstu
umferðargötur í miðborginni.
Það er erfitt að ræða þessi mál
við Armena, enda eru skoðanir svo
skiptar um ástæður ástandsins að
þar er enginn millivegur. Annað-
hvort er Ter-Petrosyan vaidaræn-
ingi, eða Manukyan tapsár valda-
sjúklingur sem getur ekki horfst
í augu við að hafa tapað kosning-
unum.
Reuter
CHAN og félagar hans voru dregnir aftur um borð I skip sitt
en Chan, sem var lítt syndur, var þá látinn.
Deilur Kína og
Japans um eyjaklasa
Lét lífið í
mótmæla-
aðgerð
Hong Kong. Reuter.
JAPANAR sögðust í gær harma
að 45 ára gamall Hong Kong-mað-
ur, David Chan, skyldi láta lífið
er hann tók þátt í mótmælum við
umdeildan eyjaklasa sem Japan
og Kína gera tilkall til. Varðbátar
Japana hindruðu skip mótmælend-
anna í að sigla í höfn á eyjunum.
Eyjarnar sem nefnast Senkaku
á japönsku en Diaoyu á kínversku
eru óbyggðar en talið er að í land-
grunni þeirra geti verið olíulindir.
Chan og félagar hans, alls 18
menn, hugðust reisa hinn rauða
fána Kínverska alþýðulýðveldisins
á eyjunum en Hong Kong verður
hluti Kína á næsta ári. Mennirnir
sigldu á gömlu og ryðguðu tank-
skipi, Kien Hwa 2, til eyjanna en
þar voru varðbátar Japana á vakki
og flugvélar sveimuðu yfir skipinu.
Ekki reyndist unnt að sigla til
hafnar vegna hafróts og Japanar
bönnuðu auk þess skipstjóranum
að fara nær en tvær sjómílur. Til-
boði Japana um að að fara í land
á gúmmífleka var hafnað.
Chan stakk sér í sjóinn ásamt
nokkrum félögum sínum til að
leggja áherslu á mótmælin og voru
þeir bundnir við skipið með línu.
Eitthvað fór úrskeiðis og Chan
drukknaði auk þess sem einn
mannanna slasaðist. Japanskir
læknar veittu hinum slasaða aðstoð
en tókst ekki að lífga Chan við.
Aðgerðir gegn kynlífsánauð án samþykktar
Umboð Europol
verður víkkað út
Dublin. Reuter.
DÓMSMÁLARÁÐHERRAR Evr-
ópusambandsins samþykktu í gær
að víkka út umboð Europol, lög-
reglusamvinnustofnunar ESB,
þannig að stofnunin geti tekið á
málum glæpamanna, sem flytja
konur og börn milli landa og selja
í kynlífsánauð.
Dora Owen, dómsmálaráðherra
Irlands, sagði að ráðherrarnir
hefðu á fundi sínum, sem lauk í
Dublin í gær, náð pólitísku sam-
komulagi um að fela fíkniefnadeild
Europol að fást við glæpi af þessu
tagi.
Formlega verður gengið frá
samkomulaginu síðar. Það felur
meðal annars í sér að lögreglulið
aðildarríkja ESB munu skiptast á
sérfræðingum í kynlífsglæpum og
*★★★*
EVRÓPA^
setja upp sérstakar miðstöðvar
lögreglumanna, sem fylgjast með
sölu barna og kvenna.
Yfirleitt hefur aðildarríkjum
ESB gengið illa að ná samkomu-
lagi um að auka völd Europol á
kostnað eigin lögregluembætta.
Yfirmaður Europol, Jiirgen
Storbeck, sagðist mjög ánægður
með ákvörðun ráðherranna. „I þau
tuttugu ár, sem ég hef starfað að
þessum málum, hef ég aldrei vitað
menn taka ákvörðun jafnskjótt,"
segir hann. Barnaklámsmálið í
Belgíu hefur valdið stórauknum
þrýstingi á stjórnmálamenn að
grípa til aðgerða.
Upplýsingaskipti og
samræmdar aðgerðir
Storbeck segir að með hjálp
Europol geti lögreglumenn í aðild-
arríkjum ESB aukið mjög hraða
upplýsingaskipta og samræmt að-
gerðir sínar gegn glæpamönnum
betur. Upplýsingar um týnd börn
og fólk, sem grunað er um að
hafa rænt þeim, geta að sögn
Storbecks borizt á milli lögreglu,
landamæraeftirlits og tollgæzlu á
innan við klukkustund.
Brussel. Reuter.
NIÐURSTÖÐUR nýrrar Euro-
haromeíei^skoðanakönnunar
staðfesta það, sem lengi hefur
verið vitað, að áhrifamenn og
ákvarðanatakendur í aðildar-
ríkjum Evrópusambandsins
hafa mun jákvæðari afstöðu
gagnvart sambandinu en allur
almenningur.
Eurobarometer skilgreinir
sem „ákvarðanatakendur“
kjörna stjórnmálamenn, hátt
setta embættismenn, leiðtoga
samtaka vinnumarkaðarins,
yfirmenn á fjölmiðlum og áber-
andi fræði-, lista- og mennta-
menn. Tekið var úrtak 4.000
manna úr þessum hópi og lagð-
ar fyrir hann sömu spurningar
og lagðar hafa verið fyrir borg-
Ákvarðana-
takendurjá-
kvæðari en
almenningur
ara ESB-ríkjanna í könnunum
undanfarið.
Niðurstöðurnar sýna að 94%
ákvarðanatakenda telja aðild
lands síns að ESB jákvæða, en
aðeins um helmingur almenn-
ings. Þá töldu 90% ákvarðana-
takenda að land þeirra hefði
notið góðs af aðildinni, en ekki
nema 45% almennings.
Ákvarðanatakendur og al-
menningur hafa þó svipaðar
skoðanir á því hvaða mál ESB
beri að leggja áherzlu á næsta
áratuginn; trygging friðar, að- -
gerðir gegn atvinnuleysi og
barátta gegn glæpum og fíkni-
efnum eru mál, sem báðir hópar
telja að eigi að vera á oddinum.
Aftur á móti eru 85% ákvarð-
anatakenda „afar hlynntir“ eða
„fremur hlynntir“ upptöku sam-
eiginlegrar myntar ESB-ríkj-
anna en aðeins 54% almennings.
Skoðanir ákvarðanatakenda á
þessu máli eru ólíkar eftir lönd-
um; í Bretlandi eru 60% áhrifa-
manna hlynntir EMU, en 93% í
Lúxemborg.
Bíll fyrir vandláta: BMW 520i station ‘96.
svartur, 5 g., ek. 25 þ. km., rafm. í öllu, álfelgur.
Sem nýr. V. 3.280 þús.
Plymouth Voyager Grand ‘93, hvítur, ek. 81 þ.
km., 7 manna, 6 cyl. (3,3). V. 1.890 þús. Sk. ód.
Grand Wagoneer Ltd. ‘93, grænn, m/við arkl.,
sjálfsk., ek. 100 þ. km., rafm. í öllu, leðurkl., sól-
lúga, álfelgur o.fl. V. 3,1 millj.
Nissan Sunny 2.0 GTi ‘91, rauður, 5 g., ek. 81
þ. km., sóllúga, ABS bremsur, álfelgur, rafm. í
öllu. V. 980 þús.
Citroen XM 2.0i ‘91, leöurinnr., sjálfsk., ek.
aðeins 84 þ.km. Rafm. í rúðum, álfelgur o.fl.
Toyota Coroila XL Sedan ‘92, brúnsans., sjálf-
sk., ek. 66 þ. km., grjótagrind o.fl. V. 790 þús.
Mazda 626 GTi 16 v Coupé ‘88, 5 g., ek. 97 þ.
km., spoiler, álflegur o.fl. V. 690 þús.
Nissan Micra LX 5 dyra ‘94, 5 g., ek. 43 þ. km.
V. 740 þús.
V.W Golf CL1.4 ‘94, 3ja dyra, ek. 30 þ. km., vín-
rauður. V. 930 þús.
Tilboðsverð á fjölda
bifreiða Ath. eftirspurn eftir
árg. ‘93-’97.Vantar slíka bíla
á skrá og á staðinn.
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, simi
567-1800 ^
Löggild bflasala
Verið velkomin.
Við vinnum fyrir þig
Opið laugard. kl.10-17
og sunnud. kl. 13-18
Subaru Justy 4x4 ‘87, 5 dyra, ek. 127 þ. km. V.
220 þús. (Visa, Euri raðgr.).
Nýr bfll: VW Golf 2.0i ‘96, 5 dyra, 5 g., vínrauðir.
Álfelgur o.fl. V. 1.385 þús.
Grand Cherokee Laredo V-6 ‘93, græns ans, 5
gíra, ek. aðeins 59 þ.km. m/öllu. V. 1.390 þús.
Hyundai Accent GSi ‘95, grænsans., 5 g., ek. 9
þ. km., 15” álfelgur, loftpúðar o.fl. V. 990 þús.
Ford Explorer XLT ‘92, hvítur, sjálfsk., ek. 97 þ.
km., sóllúga, álfelgur o.fl. Top peintak. V. 2.150
þús.
(c upptalning:)
MMC Colt GLX ‘90, 5 g., ek. 66 þ. km.
Nissan Sunny SLX Sedan ‘92, sjálfsk., ek.
aðeins 55 þ. km., rafm. í rúðum, spoil er, álflegur,
2 dekkjag. o.fl. V. 890 þús.
Hyundai Elantra 1.8 GLSi ‘96, blágræns ans., 5
g., ek. 5 þ. km. Rafm. í öllu, fjarst. læsingar.
Spoiler o.fl. V. 1.390 þús.
Forf Aerostar 4x4 ‘94, hvítur, ekinn að eins 5
þ.km. m/gluggum, sem nýr. V. 1.600 þús. Ath.
sk. ód.
Dodge Shadow ES Turbo‘88, ek. 100 þ.km. 4
dyra, svartur, sjálfsk., mikið yfirfar inn.
Tilboðsverð 560 þús. Ath. Sk. ód.
Volvo 740 GL ‘89, 4 dyra, gylltur, sjálfsk., ek.
aðeins 86 þ.km. 2 eigendur. Mjög fall egur bíll. V.
1.050. Ath. sk. ód.
Bílar á tilboðsverði
Honda Civlc GL Sedan ‘88, hvítur, sjálfsk.,
ek. 94 þ. km. V. 540 þús. Tilboð 420 þús.
Fallegur bíll.
Mazda 323 LX ‘89, rauður, 3ja dyra, ek. 150
þ. km., álfelgur, 5 g., mikið yfirfarinn. V. 380
þús. Tilboð 280 þús.
Nissan King Cap m/húsi 4x4 ‘83, svartur, 5
g., 2000 vél. V. 390 þús. Tilboð 270 þús.
Mazda E-2200 ‘87, sendibíll með kassa,
diesel, ek. 135 þ. km., bíll í toppstandi. V. 690
þús. Tilboð 540 þús.
Honda Civic Shuttle ‘84, rauður, 5 g., ek. 70
þ. km. á vél, bíll í góðu standi. V. 240 þús.
Tilboð 150 þús.
Toyota Carina 2000 GLi Executive ‘90,
hvítur, ek. 110 þ. km., 4ra dyra. sjálfsk., rafm.
íöllu. V.920 þús. Tilboð 810 þús.
Hyundai Pony LS ‘93, 3ja dyra, 5 g., grænn,
ek. aðeins 63 þ. km. V. 620 þús. Tilboö 500
þús.
Ford Scorpion 2000 GL ‘86, drapplitur, 5 d.,
5 g., ek. 124 þ. km. mikið yfirfarinn. V. 590
þús. Tilboð 460 þús.
Ford Lincoln Continental ‘90, blásans., ek.
83 þ. km., V-6 (3.8). Einn með öllu. Verö
1.490 þús. Tilboð 1.290 þús.
Renault Clio RN ‘92, rauður, 5 g., ek. 120 þ.
km. (vél uppt.). V. 540 þús. Tilboð 470 þús.
MMC Lancer 4x4 GLX station ‘87, gott ein-
tak. V. 490 þús. Tilboð 390 þús.