Morgunblaðið - 27.09.1996, Side 26

Morgunblaðið - 27.09.1996, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. NESJAVALLA- VIRKJUN HAG- KVÆMUR KOSTUR SAMNINGUR Hitaveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar gerir Hitaveitunni kleift að reisa gufuaflsvirkjun á Nesjavölium til framleiðslu raforku í tveimur áföngum og verður hvor áfangi 30 megavött. Framkvæmdin nemur 5,2 milljörðum króna og er þetta fyrsta sinni síðan 1937 að Reykjavíkurborg stendur ein að virkjun, en þá var Ljósafoss- virkjun tekin í notkun. Síðast tók borgin þátt í raforkuvirkj- un árið 1960, er Steingrímsstöð var reist. Landsvirkjun framleiðir nú um 93% þeirrar raforku, sem til er í landinu. Með þessum samningi er því brotið blað, en hann er háður samþykkt iðnaðarráðherra, sem getur veitt Hitaveitunni heimild til framkvæmda á Nesjavöllum samkvæmt sérstöku ákvæði laga frá 1980. Með þessari framkvæmd má því segja að kominn sé fyrsti vísir að sam- keppni í orkusölu innanlands, þar sem Landsvirkjun stend- ur ekki lengur svo til ein að raforkuframleiðslunni. Raunar hafa lagaákvæði, sem skylda Landsvirkjun til þess að selja raforku á sama verði hvar sem er á landinu, komið í veg fyrir að samkeppni geti orðið í verði raforku hér á landi. Það er hagkvæmni virkjunar á Nesjavöllum, sem veldur því að sá kostur er nú valinn. Hann er sá eini, sem býður upp á þá möguleika að unnt sé að framleiða raforku innan tímamarka fyrir nýjan álframleiðanda, sem sýnt hefur áhuga á að setjast að á íslandi, Columbia Ventures. Svo arðbær er þessi virkjunarkostur að áætlanir sýna að miðað við 7,5% arð verður búið að greiða virkjunarkostnaðinn upp árið 2018 og á borgin þá virkjunina skuldlausa. HÆPNAR REGLUR MEGN óánægja er meðal fiskverkenda, sem kaupa fisk til vinnslu í nágrannahöfnum, með nýsetta reglu- gerð, sem bannar flutning á óslægðum fiski milli byggðar- laga, jafnvel stuttar leiðir. Framkvæmd reglugerðarinnar gæti rýrt gæði fisksins, segja verkendur, þar eð bið getur orðið eftir slægingu í löndunarhöfnum og fiski „yrði um- hent mun oftar á milli kara“. Það gefi betri afurð að keyra með hráefnið beint í verkunarhús, einkum þegar um styttri leiðir er að ræða, en það tekur um 15 mínútur að flytja fisk frá Sandgerði til Grindavíkur og 40 til 50 mínútur frá Sandgerði á höfuðborgarsvæðið. Það er að sjálfsögðu kappsmál þeirra, sem vinna fisk í salt eða á annan hátt, að meðhöndla hráefnið á þann veg að afurðin verði sem bezt söluvara. Opinbert gæðaaðhald er og nauðsynlegt að vissu marki. Það verður á hinn bóg- inn að forðast að opinberar reglur flæki vinnsluferlið eða vinni jafnvel gegn tilgangi sínum, eins og verkendur full- yrða að raunin sé í þessu tilfelli. Óþörf afskipti af atvinnu- lífinu ber að forðast. P APRIKU OKUR ENN einu sinni berast fréttir af verðlagi innlends græn- metis sem gera það að verkum að mönnum blöskrar. í Morgunblaðinu í gær kemur fram að kílóverð íslenskrar papriku í helstu stórmörkuðum þessa dagana sé 795 krónur. Engar hömlur eru á innflutningi á papriku en ofurtollar gera að verkum að innflutt paprika yrði ekki ódýrari en sú innlenda út úr verslun þrátt fyrir mun lægra innkaups- verð. í raun er því lokað fyrir innflutning. Svo virðist hins vegar sem vandinn liggi ekki hjá garð- yrkjubændum einum. í Morgunblaðinu í gær kemur fram að bændur fái greiddar 340-390 krónur fyrir kílóið af papr- iku en jafnframt að skráð heildsöluverð af litaðri papriku hjá Sölufélagi garðyrkjumanna sé 749 krónur fyrir utan virðisaukaskatt! Þetta er ótrúlegur munur. Getur það verið að paprikuverð hækki um helming vegna milliliða milli fram- leiðenda og verslana? Fulltrúar dreifingaraðila hljóta að gera grein fyrir því hvað liggi að baki þessari verðmyndun. Það er hlutverk stjórnvalda að standa vörð um hags- muni neytenda, fólksins í landinu, ekki síður en framleið- enda og annarra hagsmunaaðila. Öruggasta leiðin til að koma í veg fyrir óeðlilega verðmyndun á innlendu græn- meti er að afnema ofurtollana og opna fyrir heilbrigða samkeppni í sölu á grænmeti. ÞEGAR rætt er um Emmu Bonino er iðulega vitnað til skaphita þjóðar hennar og sjálfri hefur henni verið líkt við hvirfílbyl. Bonino er fulltrúi ítala í framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins (ESB), þar sem hún fer með sjávarútvegs-, mannúðar- og neytendamál. Hún hefur oft far- ið ótroðnar slóðir til að vinna bar- áttumálum sínum fylgi og það eru engar ýkjur að segja að gustað hafí um hana. Bonino er stödd hér á landi í boði Þorsteins Pálssonar sjávarút- vegsráðherra en hún mun halda aðalræðuna á ráðstefnu ráðuneytis- ins og ESB sem ber yfirskriftina „íslenskur sjávarútvegur og Evr- ópusambandið" sem haldin verður á Hótel Sögu í dag. í framhaldi af því heldur hún erindi á vegum Mann- réttindaskrifstofu Islands og aðild- arfélaga hennar um stefnu ESB í neyðarhjálp og um alþjóðleg lög er varða mannréttindi. Ferill Bonino er litríkur og hún er sögð vön því að heyja erfiða bar- áttu. í heimalandi sínu hefur hún það orð á sér að vera einstaklega viljasterk, enda hefur hún verið fangelsuð vegna skoðana sinna auk þess sem hún hefur farið í hungur- verkfall til að leggja áherslu á þær. Einna mest bar á Bonino í grá- lúðudeilu ESB og Kanada á síðasta ári en Bonino var nýsest í stól sjávar- útvegsstjóra ESB þegar deilan upp- hófst. Þótti hún sýna hörku og vera stóryrt, hikaði t.d. ekki við að saka Kanadastjórn um „skipulagða sjó- ræningjastarfsemi", um að halda uppi „ógnarstjóm“ og „ræna bátum okkar og halda borgurum okkar þar til gjald verður greitt“. Hungurverkföll og fangavist Sú staðreynd að Bonino er fædd í fiskamerkinu réð því tæpast að henni var úthlutað sjávarútvegsmál- um en sjálf hefur hún sagt það vera örlög sín. Eftirlætismatfiskur Bon- ino veiðist í Miðjarðarhafi og kallast spigola en hann er sagður líkjast blendingi af makríl og þorski. Bonino fæddist 9. mars árið 1948 í ítalska bænum Bra, skammt frá Tórínó, og ólst upp í harðgerðu lág- stéttarumhverfi. Hún útskrifaðist úr Boccino-háskólanum í Mílanó með gráðu í tungumálum og bókmenntum árið 1972 en á háskólaárunum tók hún nokkurn þátt í stúdentapólitík. Árið 1975 stofnaði hún við annan mann samtökin CISA - Upplýs- ingamiðstöð um ófrjósemisaðgerðir og fóstureyðingar, sem tóku virkan þátt í umræðunni um lögleiðingu fóstureyðinga og aðstoðuðu konur við að verða sér úti um hana. Þetta var nokkrum árum áður en slíkt var heimilt og voru talsmenn samtak- anna, þar á meðal Bonino, hand- teknir. Sat hún þrjár vikur í fang- elsi vegna baráttu sinnar. Þegar hún losnaði úr fangelsi hóf hún að starfa fyrir Róttæka flokkinn og ári síðar var hún kjörin á þing fyrir hann. Árið 1981 var hún kjör- in leiðtogi róttækra á þingi og for- maður flokksins 1993. Arið 1979 var hún endurkjörin á þing og til setu á Evrópuþingið þar sem hún sat til 1984 og svo aftur á árunum 1986-89. Hún þekkir því vel til starfa þingsins og er sögð njóta vin- sælda í röðum þingmanna þar. Bon- ino hefur gegnt íjölmörgum trúnað- arstörfum á ítalska þinginu og á alþjóðavettvangi. Bonino hefur verið hörð baráttu- kona gegn kjarnorkuvopnum og af- vopnun og orðið nokkuð ágengt í þeim efnum. Þá hefur hún látið til sín taka í málefnum þriðja heims- ins, gegn hungursneyð og menntun- arskorti, barist fyrir mannréttinda- ’málum í Austur-Evrópu, gegn dauðarefsingum, fyrir því að komið yrði á fót stríðsglæpadómstól vegna atburðanna í lýðveldum gömlu Júgó- slavíu og barist fyrir banni við fram- leiðslu jarðsprengja, svo fátt eitt sé nefnt. Einna umdeildust er sú skoð- un hennar að milda eigi stefnu stjórnvalda gegn eiturlyfjum. Hefur hún farið í hungurverkfall til að leggja áherslu á baráttumál sín og verið fangelsuð vegna þeirra í Var- sjá og Prag. Reuter EMMA Bonino: Ötul baráttukona sem vill láta verkin tala. Kjarnakon- an Bonino Emma Bonino, sem fer með sjávarútvegs-, mannúðar- og neytendamál í framkvæmda- stjóm Evrópusambandsins, þykir litríkur og viljasterkur stjómmálamaður og hefur um áratugaskeið verið áberandi í baráttunni gegn vígbúnaði, fyrir auknum mannréttindum og aðstoð við þá sem minna mega sín. Bonino er stödd hér á landi til að ræða stefnu sam- bandsins í sjávarútvegsmálum og neyðarhjálp. Hefur burði til að breyta hlutum til hins betra EMMA Bonino hefur verið um- deild fyrir hörku sína. Hún hef- ur krafizt mikils niðurskurðar á fiskveiðiflota Evrópusam- bandsins og lagt ofuráherzlu á nauðsyn skynsamlegrar nýting- ar auðlinda hafsins og veiði- stjórn á úthöfunum. Spánverj- inn Alfonso Paz-Andrade, for- stjóri eins stærsta sjávarútvegs- fyrirtækis veraldar, Pescanova, er hins vegar mikill stuðnings- maður Bonino. Anægja hans með ESB og framkvæmd sjávar- útvegsmála hefur reyndar lengst af verið takmörkuð, en nú sér hann fram á betri tíma: „Staðreyndin er sú, að vanda- mál og hagsmunamál sjávarút- vegsins eiga sér fremur lítinn hljómgrunn innan sambandsins. Reyndar er að verða breyting þar á. í fyrsta sinn í sögu Evr- ópusambandsins er komin manneskja, sem fer með sjávar- útvegsmál þess, sem er staðráð- in í því að koma reglu á hlutina og það er Emma Bonino. Fyrir mig er það nokkurs konar trygging fyrir framtíðina að Bonino skuli fara með sjávarút- vegsmálin innan ESB. Eg veit að hún þekkir vel til mála og hefur burði til að breyt hlutunum til hins betra. Henni er vel ljóst að auðlindin er tak- mörkuð og margt þarf að gera, en starfsbræður hennar hafa fremur iítinn á huga á sjávarút- veginum. Ég er bjartsýnni en áður á að á þessum málum verð tekið af þeirri skynsemi sem fram kemur í skoðunum og vilj: Emmu Bonino." MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996 27 RÆKJURISI AÐ FÆÐAST Stjómir fjögurra sjávarútvegsfyrírtækja á Vestíjörðum hafa samþykkt áætlun um sammna félaganna. Fáfnir á Þingeyri er ekki þar með og er ekki vitað hvenær fískvinnsla þar hefst á nýjan leik. Nýja félagið verður eitt af stærri sjávarútvegsfyrirtækjum landsins, sannkallaður rækjurisi, með alls 5.500 lesta kvóta. Helgi Bjamason kynnti sér atvinnumálin fyrir vestan. • • Otul bar- áttukona „EMMA Bonino er einstök per- sóna, lífleg, hreinskilin, opinská og djörf,“ segir Olafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, sem kynntist Bonino árið 1983 er þau störfuðu bæði í alþjóðlegum þing- mannasamtökum. Olafur Ragnar segir Bonino eina af áhrifamestu stjórnmálakonum Evrópu og kveðst telja að það muni koma íslendingum til góða að hitta hana og fá tækifæri til að kynna henni málstað sinn. Olafur Ragnar segir sjaldgæft að hitta fyrir jafn ötular baráttu- konur og Bonino. „Hún hefur til að bera hugrekki, þrek og úthald og hefur lagt mikið á sig fyrir þau málefni sem henni eru mikil- væg. Hún veiktist t.d. alvarlega í einni af fjölmörgum ferðum sín- um til Afríku fyrir nokkrum árum og var lengi að jafna sig.“ Olafur Ragnar segir það hafa verið ánægjulegt að fylgjast með því hversu vel hún hafi staðið sig hjá framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins og getið sér gott orð. „Henni fylgdi ferskur and- blær, hún var ófeimin við að viðurkenna að hún hefði litla þekkingu á sjávarútvegsmálum, hún spurði grundvallarspurninga þegar hún var að setja sig inn í málefni og var óhrædd við ýmsa hagsmunaaðila, sem höfðu verið frekir í stefnumótuninni.“ Litríkur stjórnmálamaður Bonino þykir hafa litríka fram- komu og hefur svo sannarlega skor- ið sig úr hópi gráu jakkafatakarl- anna sem ráða ríkjum í embættis- mannakerfinu í Brussel. Sem dæmi um það er skrifstofa hennar, þar sem mest ber á feiknastórum tusku- krókódíl, sem hún fékk að gjöf frá sjávarútvegsráðherra Kúbu í kjölfar grálúðudeilunnar en Kúbumenn studdu Kanadamenn gegn ESB. Ætlunin var að Norðmaðurinn Thorvald Stoltenberg tæki við sjáv- arútvegsmálunum við inngöngu Norðmanna í ESB en þegar þjóðin hafnaði aðild í þjóðaratkvæða- greiðslu, komu þau í hlut Bonino. Hún viðurkenndi þá að hún hefði litla þekkingu á þeim, svo og neyt- endamálum. Hún hét því hins vegar að bæta það upp með því að fara að ráðum sérfróðra manna. Bonino er þeirrar skoðunar að auðlindir hafsins séu sameiginleg eign þjóða heims og segir afstöðu sinna til sjávarútvegsmála vera „til- finningaþrungna" vegna þessa. Hún leggur áherslu á að vernda verði fiskistofnana til að koma í veg fyrir ofveiði og að verulegur niðurskurður í sjávarútvegi verði að eiga sér stað. Olli tillaga hennar í maí sl. um 40% niðurskurð fiskveiðigetu aðildar- þjóða ESB miklu fjaðrafoki. Þegar Bonino tók sæti í fram- kvæmdastjórninni á síðasta ári, lýsti hún því yfir að hún vildi fara til flestra þeirra staða sem kæmu upp á hennar borð, og þá ekki síst í tengslum við mannúðarmál. Kvaðst hún miklu fremur vilja fara til þeirra staða sem hlutirnir gerðust, en að lesa langar skýrslur um málin. Hún hefur viljað láta verkin tala og sem dæmi um það má nefna að í túnfiskdeilu Spánvetja, Frakka og Breta í fyrra, hótaði hún því að fara um borð til að koma skoðunum framkvæmdastjórnarinnar til skila. Þessi annálaða baráttukona lagði hins vegar áherslu á það í samtali við Morgunblaðið á síðasta ári að tilgangurinn helgi ekki meðalið þeg- ar tekist sé á um mál, heldur verði að beita löglegum aðferðum við að ná sínu fram. Aðferðir Machiavellis ættu ekki upp á pallborðið hjá sér. Byggt á: The Daily Telegraph, European Voice, Reuter, The European og Dagens Næringsliv, STJÓRNIR fyrirtækjanna fjögurra á ísafirði og Þing- eyri sem Olíufélagið hf. hefur haft forgöngu um að sameina í eitt samþykktu í gær og fyrradag tillögu um sameiningu. Ganga þarf frá ýmsum formsatrið- um og bera sameininguna síðan undir hiuthafafundi þannig að nýja félagið, sem gengur undir vinnu- heitinu Útgerðarfélag ísafjarðar, verður ekki til fyrr en í nóvember. Fyrirtækin eru Togaraútgerð ísa- ijarðar sem gerir út rækjutogarann Skutul, rækjuverksmiðjumar Bása- fell og Ritur á ísafirði og Sléttanes hf. á Þingeyri sem gerir út sam- nefndan togara. Upphaflega voru uppi hugmyndir um þátttöku físk- vinnslufyrirtækisins Fáfnis á Þing- eyri en það lenti utan garðs í sam- einingarferlinu. Valdabarátta Nokkur valdabarátta hefur verið bak við tjöldin vegna fyrirhugaðrar sameiningar. Gunnvör hf. og Ishús- félag ísfirðinga eiga stóran hluta í Togaraútgerð ísafjarðar og Rit. Stjórnendur þessara fyrirtækja og fleiri minni hluthafar hafa haft efa- semdir um að leggja þessi félög, sérstaklega Togaraútgerðina, inn í hið sameinaða fyrirtæki og telja þeir sem vinna að sameiningu að þeir hafí beinlínis unnið gegn sam- einingunni. Þessir hluthafar hafa þó ekki stöðvunarvald einir og sér, til þess þarf meira en þriðungs eign- arhluta. Staðan er sérkennileg að því leyti að Magnús Reynir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Togaraútgerðar- innar, er stjórnarformaður Gunn- varar og íshúsfélagsins. Hann hefur ekki komið að undirbúningi máls- ins, heldur hefur það verið unnið á vegum Olíufélagsins hf. sem er hlut- hafi í öllum félögunum og á m.a. tæpan helming hlutafjár í Togaraút- gerðinni. Eigendur Básafells hf. hafa einnig unnið að málinu ásamt fleiri hluthöfum í þessum félögum og sameiningin hefur notið stuðn- ings ísafjarðarbajar sem á hlut í Togaraútgerðinni og Sléttanesi hf. Tveir sátu hjá Samrunaáætlunin var samþykkt á stjórnarfundum í Sléttanesi og Básafelli í fyrradag. Athygli vekur að fulltrúi heimamanna á Þingeyri samþykkti tillöguna í stjórn Slétta- ness. Samruninn var samþykktur í stjórn Rits þar sem íshúsfélagið á tvo stjórnarmenn af fímm. Síðast var málið borið upp í stjórn Togara- útgerðar Ísaíjarðar. Það fyrirtæki er lykillinn að samrunanum vegna þess hvað útgerðin hefur hagnast vel og á góðan rækjukvóta. Tillagan var samþykkt með atkvæðum Olíufé- lagsins og Ísafjarðarbæjar en full- trúar Gunnvarar og Verkalýðsfé- lagsins Baldurs sátu hjá. Pétur Sigurðsson, formaður verkalýðsfélagsins og fulltrúi í stjórn Togaraútgerðarinnar, vildi leita álits félaga sinna í trúnaðar- mannaráði Baldurs áður en hann tæki afstöðu til málsins fyrir hönd félagsins. Sá fundur er fyrirhugaður á sunnudag og óskaði hann eftir frestun á afgreiðslu málsins fram yfir þann tíma en fulltrúar meiri- hlutans töldu sig ekki geta orðið við því, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, vegna tímasetn- inga í samrunaferlinu og felldu það. Sameiningin miðast við efnahag félaganna 31. maí sl. Kristján G. Jóhannsson, framkvæmdastjóri Gunnvarar, óskaði eftir nýrri upp- lýsingum um stöðu félaganna og lýsti yfir þeirri skoðun sinni að staða Togaraútgerðarinnar væri betri í dag miðað við stöðu hinna fyrir- tækjanna. Þeir sem hafa lýst yfír andstöðu við sameininguna segja einmitt að með því að taka ekki nýrri upplýsingar sé verið að nota fé Togaraútgerðarinnar til að greiða niður tapið af rækjuverksmiðjunum síðustu mánuði. Meirihlutinn hafn- aði þessu. Eftir ítarlegar umræður var samrunaáætlunin samþykkt og þó tveir hafí setið hjá skrifuðu allir stjórnarmenn undir áætlunina. Hafa því allir stjórnarmenn í félögunum fjórum ritað nöfn sín undir. Ver kalýðsfélagið í oddaaðstöðu Nú þegar samrunaáætlun hefur verið samþykkt verða sérfróðir matsmenn fengnir til að gera skýrslu um hana og síðan sendir hvert félag fyrir sig tilkynningu til hlutafélagaskrár. Tilkynning verður send til Lögbirtingablaðsins og loks verður málið borið upp til endan- legrar ákvörðunar á hluthafafund- um í félögunum sem áætlað er að halda 15. nóvember. Tveir þriðju hluthafa í öllum félögunum verða að greiða atkvæði með sameining- unni til þess að hún nái fram að ganga. Tryggur meirihluti virðist vera í Sléttanesi, Básafelli og Rit. Verkalýðsfélagið Baldur er hins vegar í oddaaðstöðu í Togara- útgerðinni. Ef það leggst á sveif með Gunnvöru verður ekkert úr þessari samein- ingu. En taki það afstöðu með meirihlutanum er málið í höfn. Pétur Sigurðsson seg- ist ekki geta gefið upp endanlega afstöðu sína, hann þurfí að kanna vilja trúnaðarmanna félagsins. „Nei, ég á ekki von á því,“ segir Pétur þegar hann er spurður beint að því hvort hann reikni með að félagið muni greiða atkvæði á móti sameiningunni. Hann segir að ef félagið vildi líta eingöngu á pen- ingalega hagsmuni sína í Togaraút- gerðinni myndi hann fella samein- inguna en ekki sé hægt að líta svo þröngt á málið. „Ég tel að við verð- um að nota skynsemina. Ég hefði viljað sjá stærri sameiningu en þetta er skref í áttina og betra er lítið skref en ekkert,“ segir hann. Heildareignir hins nýja félags verða 3,7 milljarðar kr. og eigið fé 1.070 milljónir kr. Hlutafé verður tæpar 500 milljónir kr. Olíufélagið hf. verður stærsti hluthafinn með um 33%. Aðrir stærri hluthafar verða ísafjarðarbær með 13%, Gunnvör með 9%, Útsam með 6% og Verkalýðsfélagið Baldur með 4%. Aðrir eiga minna, alls um 150 hlut- hafar. Félagið mun eiga fjögur skip með alls um 5.500 tonna kvóta í þorskí- gildum reiknað og er rækja stór hluti kvótans. Skipin eru Skutull, Sléttanes, Hafrafell og Guðmundur Péturs. Upplýst var á fundi Togara- útgerðarinnar í gær að fyrirhugað væri að sækja kvótann á færri skip- um. Félagið mun vera með pillun og frystingu í tveimur rækjuvinnsl- um og niðursuðu í annarri eins og verið hefur. Áætlað er að fyrirtækið velti 2,5 tii 3 milljörðum á ári. Nýja félagið verður almennings- hlutafélag og stefnt er að skráningu þess á hlutabréfamarkaði. Fram hefur komið hjá fyrirsvarsmönnum að þeir vilji auka hlutafé félagsins með almennu útboði. Vonbrigði á Þingeyri Kaupfélag Dýrfírðinga og Fáfnir sögðu upp öllu starfsfólki sínu i vor vegna rekstrarerfíðleika Fáfnis. Vinnslu var hætt í frystihúsinu sem er langmikilvægasti vinnuveitandi staðarins og hefur ekki hafíst aft- ur. Þingeyringar bundu miklar von- ir við sameiningartillögurnar, að hið nýja fyrirtæki myndi reisa við fyrir- tækið. Það urðu mönnum því mikil vonbrigði þegar í ljós kom að Fáfn- ir yrði ekki hafður með í sameining- unni. Fáfnir er kvótalaust fyrirtæki og hefur ekkert til samein- ingar að leggja nema mikil húsakynni og gott starfsfólk. Eftir mis- heppnaða endurreisn í byrjun síðasta árs á Fáfn- ir ekki margra kosta völ. Fyrirtæk- ið er rekið með miklu tapi og skuld- ir hrannast upp. Forsvarsmenn fyr- irtækjanna sem stefna að samein- ingu segja að ekki sé hægt að taka Fáfni inn í sameininguna nema ein- hver fáist til að borga mínusinn á fyrirtækinu og hægt verði að reka þar arðbæra vinnslu. Byggðastofnun lýsti sig reiðubúna til að greiða fyrir sameiningu með þátttöku Fáfnis, með því að leggja fram 70 milljónir í ýmsu formi, eftir ítarlega úttekt rekstrarráðgjafa á fyrirtækinu. Þetta virðist ekki hafa dugað hinum fyrirtækjunum eða þau ekki séð grundvöll fyrir þessum rekstri á Þingeyri. Einn af þeim sem stuðlað hafa að sameiningu fyrir- tækjanna fjögurra segir að ekki hafi komið til greina að taka Fáfni með eins og rekstur þess sé. Nýja félagið verði að sýna arðsemi í rekstri, annars sé ekkert unnið við sameiningu. „Við áttum nógu erfitt með að halda Rit inni þó við bættum ekki Fáfni við,“ segir annar samein- ingarsinni. Sigurður R. Ólafsson, formaður bæjarráðs ísafjarðarbæj- ar, segir að þó bærinn eigi hlut í Fáfni, Sléttanesi og Togaraútgerð ísafjarðar hafi hann engin völd til að skipa þeim mönnum fyrir sem vinna að sameiningunni. Fyrirtækin sjálf ráði því hvaða fyrirtækjum þau vilji sameinast. Lítil hreyfing hjá íshúsi og Frosta Erfiðleikar bolfískvinnslunnar eru að sjálfsögðu ekki bundnir við Þingeyri. Bæði stóru frystihúsin á ísafírði, Hraðfrystihúsið Norður- tanginn og íshúsfélag ísfirðinga, eiga í rekstrarerfiðleikum enda eru þau rekin með halla. Vilja sumir viðmælendur vestra fá annað hvort þeirra inn í nýju samsteypuna. „Ég sakna þess að hvorugt frystihúsið. hér á ísafirði er inni í þessari sam- steypu," segir Pétur Sigurðsson. „Ég hefði viljað sjá stærri samein- ingu. Það er vonandi að frystihús verði þar með og ég held að það hljóti að verða,“ segir Sigurður R. Ólafsson. í maí náðu stjórnir íshúsfélags ísfírðinga og Frosta hf. í Súðavík samkomulagi um að láta kanna hagkvæmni þess að sameina fyrir- tækin. Framkvæmdastjórum félag- anna var falið að skila drögum að samrunaáætlun innan sex vikna. Síðan hefur lítið frést af málinu og svo virðist sem það hafi fljótlega strandað og ekki hefur tekist að koma því aftur á flot í haust. Á stjórnendum fyrirtækjanna er ekki að heyra að mikill áhugi sé nú á sameiningu þó hvorugur hafí bein- línis slitið viðræðunum. Norðurtanginn til sölu Eigendur 80% hlutafjár í Norð- urtanganum hafa boðið hlutabréf sín til sölu. Bréfin hafa verið boðin völdum fjárfestum, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu. ísfírðingar hafa töluverðar áhyggjur af þróun mála. Kunnugir menn telja að „slát- urverð“ fyrirtækisins sé enn það mikið, þrátt fyrir langvarandi halla- rekstur og skuldasöfnun, að fjársterk fyrirtæki í' öðrum landshlutum hefðu áhuga á bréfunum til að ná til sín kvóta fyrirtæk- isins og skipi. Norður- tanginn á töluverðan kvóta, eða um 3.000 þorskígildistonn og frystitog- arann Orra. Með því að meta kvót- ann á markaðsverði telja menn sig sjá að hann dugi fyrir skuldum Norðurtangans og vel það. Því gæti kaupandinn skrifað niður verðmæti mikilla fasteigna fyrirtækisins eða jafnvel fengið út á þær úreldingar- styrk. „Við horfum upp á það að fyrir- tækin sem standa undir öllu hér eru veikari en menn hafa ætlað. Það er uggur í mönnum enda atvinnu- öryggið í voða,“ segir Pétur Sig- urðsson, formaður Verkalýðsfélags- ins Baldurs. Verkalýðsfé- lagið í odda- aðstöðu Byggðastofn un bauð 70 milljónir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.