Morgunblaðið - 27.09.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER
BLAD
Pressens Bild
KNATTSPYRNA
Robert Parish
til Chicago
ROBERT Parish, einn lykilmanna hins sigursæla
liðs Boston Celtics í bandarísku NBA körfubolta-
deildinni á níunda áratugnum, hefur gert tveggja
ára samning við meistara Chieago Bulls. Þessi
stóri, sterki miðherji er orðinn 43 ára og er hon-
um ætlað að vera varamaður fyrir Ástralann Luc
Longley.
„Eg geng nó til Hðs við frábært lið,“ sagði
Parish eftir að gengið hafði verið frá samningn-
um. „Ég hef verið í frábærum Uðum fyrr,“ bætti
hann við og kvaðst enn hafa ýmislegt fram að
færa sem gæti stuðlað að því að Chicago yrði enn
og aftur meistari.
„Foringinn“, eins og Parish er oft kallaður,
hefur leikið INBA deildinni í 20 ár, þar af 14
með Boston-iiðinu, þar sem hann varð þrívegis
meistari. Eftír að hann fór frá Boston lék Parish
í tvö ár með Charlotte Hornets en var Iaus þaðan
nú. Parish á flesta NBA-leiki allra að baki, fór
fram úr Kareem Abdul-Jabbar á síðustu leiktíð
og leikir hans eru nú orðnir 1.568. Hann er í
þrettánda sæti yfir stígahæstu menn allra tíma
með 23.173 stíg og fráköst hans í NBA-deiidinni
eru orðin 14.626.
Merson, Matteo
og Platt valdir
PAUL Merson, leikmaður Arsenal, var í gær
valinn aftur í enska landsUðshópinn. Hann lék
síðast með enska landsliðinu á móti Grikkjum
fyrir tveimur árum. Merson hefur verið að leika
vel með Arsenal að undanf örnu og því valdi
Glenn Hoddle hann í 23 manna hópinn fyrir vin-
áttuleik á móti Pólveijum.
Tony Adams, fyrirliði enska liðsins á EM s.l.
sumar er ekki í hópnum að þessu sinni. Adams,
sem hefur átt við dryklguvandamál að stríða, lék
fyrsta heila Ieik sinn fyrir Arsenal í átta mán-
uði sl. miðvikudag. Hann hefur einnig verið
meiddur á hné og það er ástæðan fyrir því að
hann er ekki hópnum núna. í hópinn kemur hins
vegar Dominic Matteo, ungur varnarmaður Liv-
erpool, sem hefur leikið vel með toppliði deild-
arinnar var valinn í hópinn I fyrsta sinn.
Enski landsUðshópurinn er annars þannig. Mark-
verðir: David Seaman (Arsenal), lan Walker (Totten-
ham) og David James (Liverpool). Varnarmenn:
Gareth Southgate (Aston Villa), Stuart Pearce (Nott-
ingham Forest), Gary Neville (Man. Utd.), Gary
PalUster (Man. Utd.), Sol Campbell (Tottenham) og
Dominic Matteo (Liverpool). Miðvallarleikmenn:
Paul Ince (Inter Milan), Paul Gascoigne (Rangers),
David Beckham (Man. Utd.), Steve McManaman (Liv-
erpool), David Batty (Newcastle), Andy Hinchcliffe
(Éverton), David Platt (Arsenal) og Paul Merson
(Arsenal). Sóknarmenn: Nick Barmby (Middles-
brough), Alan Shearer (Newcastíe), Les Ferdinand
(Newcastle), Matt Le Tissier (Southampton), Teddy
Sheringham (Tottenham) og Robbie Fowler (Liv-
erpool).
KORFUKNATTLEIKUR
Tveir erlendir leikmenn
í viðbót til Tindastóls
KR úr leik
eftir
jafntefli
KR er úr leik í Evrópukeppni
bikarhafa í knattspyrnu eftir 1:1
jafntefli gegn sænska liðinu AIK
í Solna, útborg Stokkhólms, í
gærkvöldi. Fyrri leik liðanna á
Laugardalsvelli lauk með sigri
Svíanna, 1:0. Það var Guðmund-
ur Benediktsson sem gerði mark
KR í gær; jafnaði á stórglæsileg-
an hátt á lokasekúndum leiksins.
Á myndinni eru Sigurður Örn
Jónsson, til vinstri, og Þormóður
Egilsson, fyrirliði KR, sem báðir
Iéku vel, ásamt einum af fram-
herjum AIK á Rásunda-leikvang-
inum í Solna í gærkvöldi.
■ Leikurinn / C2
STJÓRN körfuknattleiksdeildar
Tindastóls á Sauðárkróki hefur
ákveðið að fá tvo erlenda leik-
menn til félagsins en fyrir er
einn Bandaríkjamaður. Þar
með er Ijóst að fjórir útlending-
ar verða hjá félaginu í vetur,
því nýráðinn þjálfarinn er einn-
ig erlendur.
i%jálfari Sauðkrækinga í vetur
er Ungveiji og með honum
kom á sínum tíma ungverskur leik-
maður sem síðan var látinn fara
þar sem hann stóð ekki undir þeim
væntingum sem gerðar voru til
hans. Tindastóll fékk annan leik-
mann í hans stað, Kanadamann
með breskt vegabréf en sá er farinn
á ný til síns heims eftir að hann
meiddist á fingri og ljóst að hann
yrði ekki leikfær fyrr en eftir átta
vikur. í stað þessa leikmanns kom
svo Bandaríkjamaðurinn Jeffrey J.
Johnson, sem æft hefur með Tinda-
stóli í fáeina daga og Sauðkræking-
ar eru ánægðir með.
Johnson er miðheiji, en þeir tveir
sem bætast senn við, sem báðir eru
Kanadamenn að upplagi en með
evrópsk vegabréf eru framheijar.
Annar þeirra getur reyndar einnig
leikið sem bakvörður. Annar er með
ítalskt vegabréf og heitir Cassere
Pizzini og hinn, Park Yoreike, hefur
breskt vegabréf.
Eftir Bosman málið svokallaða í
fyrra, þar sem Evrópudómstóllinn
úrskurðaði að sömu reglur giltu um
íþróttamenn og annað vinnuafl, sem
sé að leyfi verði ótakmarkaðan fjölda
útlendinga í íþróttaliðum, svo fremi
útlendingamir séu frá Evrópusam-
bandslöndum eða EFTA-löndum.
Páll hættur?
Páll Kolbeinsson, sem þjálfaði og
lék með Tindastóli síðastliðið
keppnistímabil, hefur ekkert æft í
haust vegna anna í vinnu og sú var
raunar ástæða þess að hann þjálf-
aði liðið ekki áfram. Hann leikur
því ekki með - „ég á að minnsta
kosti ekki von á að hann verði neitt
með fyrir jól. En það aldrei að vita
hvort hann byrjar að æfa aftur,“
sagði Halldór Halldórsson, formað-
ur körfuknattleiksdeildar Tinda-
stóls við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Tindastóll missti tvo góða leik-
menn eftir síðasta keppnistímabil.
Hinrik Gunnarsson er farinn í KR
og Pétur Guðmundsson aftur heim
til Grindavíkur.
HANDKNATTLEIKUR: ÞORBJÖRN VELUR HÓPINN GEGN GRIKKJUM / C4