Morgunblaðið - 29.09.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 29.09.1996, Síða 1
DUBLIN ►FERÐASKRIFSTOFAN Samvinnuferðir-Landsýn efnir til skemmtiferðar fyrir konur til Dublinar 6.-10. október næstkomandi. Edda Björgvinsdóttir og Sóley Jóhannsdóttir stýra ferðinni. Ferðir af þessu tagi hafa áður verið farnar á vegum S/L við góðar undir- tektir, en þetta er í fyrsta sinn sem farin er sérstök kvennaferð til Dublinar. Edda og Sóley eiga að sjá um að stemmningin verði góð meðal kvennanna og leiða þær um Dublin, sem sögð er ein af gleðiborgum Evrópu. ■ Grísk eyja ►Hvernig er best að komast á notalega gríska eyju eftir að hafa unnið einhver afrek í vinnu eða námi? Folegandros er í Kýladaeyjaklasanum og þar rættist draumur hins þreytta námsmanns. Sigrún Sigurðar- dóttir segir frá eyjunni og lýsir meðal annars hreinni og óspilltri ströndinni. SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER1996 BLAÐC FERÐA- STEFNA OG MENNING ►FERÐAMÁLARÁÐSTEFNAN 1996, sem Ferðamálaráð íslands stendur fyrir, verður haldin i Reykjanesbæ dagana 3. og 4. októ- ber. Ráðstefnan er opin áhuga- fólki um ferðaþjónustu og gefst öllum kostur á þátttöku í umræðu- hópum. Einar Om Benediktsson fjöl- miðlafræðingnr og Jónas Krist- jánsson ritsljóri flytja erindi um ferðaþjónustu og menningu og Halldór Blöndal samgönguráð- . herra um stefnumótun til framtíð- ar. Á eftir ræðu ráðherra verða flutt erindi með tilvísun til ein- stakra þátta stefnumótunar; for- maður Ferðamálasamtaka höfuð- borgarsvæðisins fjallar um upp- byggingu afþreyingar til framtíð- ar, forstöðumaður Byggðastofnun- ar á Akureyri um nýtingu lands í þágu ferðaþjónustu og ferðamála- fræðingur um gæði til framtíðar. Haidin verður kynning á mögu- leikum ferðaþjónustu á alneti og samgönguráðherra afhendir umhverfis- verðlaun Ferða- málaráðs. ■ Flugleiðir með átak til að styrkja sig sem leiðandi flugfélag á Norður-Atlantshafsleiðum Flogið tvisvar á dag til London Auglýsingaherferð í Glasgow FLUGLEIÐIR byija að fljúga níu sinnum í viku til London frá og með 31. október næstkomandi, en fimmtudaga og sunnudaga eru tvær ferðir milli Keflavíkur og Englands. London verður önnur borgin sem Flugleiðir fara til tvisvar á einum degi, hin er Kaupmannahöfn. „Þetta skapar farþegum mögu- leika á að koma á hádegi til Lond- on, reka erindi sín um daginn og fljúga aftur heim um kvöldið," seg- ir Símon Pálsson, sölustjóri Flug- leiða. Hann segir að þessar nýju flug- ferðir verði markaðsettar í Banda- ríkjunum, Englandi og á íslandi. Nýju ferðirnar gefa nefnilega ný tækifæri með millilendingum í Keflavík til að fara milli borga í USA; New York, Boston og Bolti- more annars vegar og London hins vegar. Ferðir milli Keflavíkur og London eru á kynningarverði til 15. desember á 19.900 fram og til baka, með skatti. Fiugleiðir eru einnig með annað markaðsátak á Bretlandseyjum, því 27. október fjölgar flugferðum milli Keflavíkur og Glasgow úr þremur í sex eins og Ferðablaðið hefur greint frá. Sigurður Skag- fjörð Sigurðsson hjá Flugleiðum í London segir að 11 vikna auglýs- ingaherferð í Skotlandi standi nú yfir vegna þessa. „Auglýst er í öllum helstu fjöl- miðlum í Skotlandi og á stórum, 3X6 metra, veggspjöldum,“ segir Sigurður. „Einnig er 40 þúsund bæklingum dreift til fólks í við- skiptalífinu." Markhópurinn sem höfðað er til telur þrjár og hálfa milljón og auglýs- ingaátakið á að leiða til þess að væntanlegir ferðamenn yfir Atlantshafið sjái auglýsing- arnar alls níu sinnum. Átak Flugleiða í Skotlandi er liður í því að vera leiðandi flugfé- lag á Norður-Atlandshafi. Sigurð- ur segir að yfir vetrartímann í Skotlandi séu aðeins tvö önnur fyrirtæki sem fljúgi þaðan til Bandaríkjanna, British Airways og Air Canada. Svar Flugleiða er því að bjóða sex ferðir frá Skotlandi á meðan til dæmis British Airways er að fækka þeim í fjórar. „Þetta er leið okkar inn á Skot- landsmarkað og fyrirtækið bindur miklar vonir um árangur við átak- ið,“ segir Sigurður. Símon Pálsson og Sigurður Skagfjörð segja að bæði fleiri ferð- ir til og frá Keflavík, London og Glasgow opni marga möguleika Leikfanga- og módelsafnið í London Strumpar og stjörnustríd Saffnið er í 20 her- bergjum og hvert hefur sitt þema. ÞAÐ er auðvelt að ganga fram í tveimur samliggjandi húsum sem hjá Leikfanga- og módelsafninu í eru mjög svipuð öllum nærliggj- London, þar sem það er staðsett andi húsum í rólegu íbúðahverfi. En það er þess virði að leita, þar sem þetta safn inni- heldur í 20 her- bergjum sem hvert hefur sitt þema, yfir sjö þúsund leikföng og líkön, sum aldagömul og önnur ekki enn komin á markað- inn. Safnið byijar á líkani af kola- námu sem námu- verkamður í Wales smíðaði í frístundum sínum með hjálp eigin- konunnar. Það lýsist upp og allt fer af stað þegar ýtt er á takka og svo gera mörg önnur líkön og spil en í sum þarf að borga nokkur pence. Yfírskrift annarra herbergja eru m.a. Gufu- vélar, Umferðarherbergi, Spil og leikir og Framtíðarherbergi. Ferð- in endar í leiktækjasal þar sem hægt er að sjá gamlar handsnúnar kvikmyndir af berum konum og sjá inn í framtíðina með hjálp ótrú- lega nákvæmrar lófalestrarvélar. Þaðan er gengið inn í gjafaversl- un, kaffíhús og garð. Hvort sem það eru prúðuleikararnir eða post- ulínsdúkkur sem kalla fram bern- skuminningarnar, ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í þessu skemmtilega safni; ekki síst barnafjölskyldur. The London Toy and Model Museum, 21/23 Craven Hill, W2 (0171-402-5222). ■ Sólveig Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.