Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
VINNINOSTOLUR
MIDVIKUDAOINN
25. 09.1996
KNATTSPYRNA
Ánægjulegur sólar-
hringur hjá Haraldi
Eg er í skýjunum. Síðasti sólar-
hringur hefur veitt mér mikla
hamingju, það hálfa væri nóg,“
sagði Haraldur Ingólfsson, lands-
liðsmaður á Akranesi, eftir að hafa
verið viðstaddur fæðingu sonar síns
í gær. Strákurinn, sem var tæpar
sextán merkur og 54 sm, er annað
barn hans og Jónínu Víglundsdótt-
ur, eiginkonu hans, sem eiga fyrir
Islandsbikarinn á sunnudag, sonur í gær
tveggja ára stúlku, Unni Ýr.
Haraldur átti mjög góðan leik með
Skagamönnum og fagnaði fimmta
meistaratitli sínum á jafn mörgum
árum. Það getur svo farið að hann
yfirgefi herbúðir Skagamanna, þar
sem danska liðið Lyngby hefur sýnt
áhuga að fá hann til sín. „Ég get
ekkert sagt um þetta mál að svo
stöddu,“ segir Haraldur, sem hefur
áhuga að breyta til, víkka sjóndeild-
arhringinn og leika knattspyrnu í
útlöndum. „Það er draumur allra
knattspyrnumanna hér á landi að
leika með liði í útlöndum." Haraldur
sagðist ekki koma til með að breyta
um iið verði hann áfram hér á landi.
„Það er gott að vera á Akranesi."
Stefán til Öster
Stefán Þórðarson, annar meistari
Skagamanna, hefur fengið boð frá
sænska liðinu Öster að koma til liðs-
ins. Stefán mun fara til Svíþjóðar
eftir leik ÍA og ÍBV í Meistara-
keppni KSÍ.
Fylkismenn
ræða við Ólaf
Þórðarson
ÓLAFUR Þórðarson, fyrirliði
íslandsmeistara ÍA, sem hefur
áhuga að snúa sér að þjálfun,
ræddi við forráðamenn Fylkis
í gærkvöldi. Fylkir féll niður í
2. deild á elleftu stundu á
laugardagmn. Skagamenn
ræða við Ólaf í dag, þeir vilja
hafa hann áfram í sínum her-
búðum.
Vanda
með
landsliðið
VANDA Sigurgeirsdóttir, sem
hefur leikið með og þjálfað
kvennalið Breiðabliks undanfar-
in ár, verður samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðins næsti
landsliðsþjálfari kvenna í knatt-
spyrnu. Kristinn Björnsson hef-
ur verið með landsliðið sl. tvö
ár stjórnaði liðinu í síðasta sinn
á móti Þjóðverjum á sunnudag-
inn. Vanda, sem hefur náð frá-
bærum árangri með Breiðablik,
er nú í Þýskalandi í fríi og er
reiknað með að gengið verði
endanlega frá ráðningu hennar
þegar hún kemur heim.
Morgunblaðið/Golli
ADAI TOLUn
Heiidarvlnnlnus upphft>ó.
44.101.886
1.001.886
UPPLÝSINGAR
• Bónusvinningamlr í laugnrdagslottoinu
voru scldir á eftlrfarandi sölustöö-
um: Effolturninum viö Leirubakka.
Söluturninum Örnólfi við Snorra-
braut. Söluturninum í Glæslbœ og
Gerplu i Roykjavik. Hornlnu a Sel-
lossi og Essóskálanum á Grundar-
firði.
„Við erum meistarar!"
AKURNESINGAR urðu Islandsmeistarar í knattspyrnu fimmta árið í röð er þeir sigruðu KR-inga 4:1 í síðustu
umferð 1. deildarinnar á Akranesi á sunnudag. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn, KR-ingar með liagstæð-
ara markahlutfail þannig að þeim dugði jafntefii en Vesturbæingarnir náðu sér aldrei á strik og áttu ekki
möguleika gegn kraftmiklum Skagamönnum. Kári Steinn Reynisson og Bjarni Guðjónsson taka hér siguriag að
leik loknum, en KR-ingarnir Guðmundur Benediktsson, í baksýn og Hilmar Björnsson, til hægri, eru niðurlút-
ir. Suðurnesjaliðin Keflavík og Grindavík björguðu sér bæði með eftirminnilegum hætti frá falli á laugardag
en leikmenn Fylkis og Breiðabliks urðu að bíta í það súra epli að falla.
■ íslandsmótið / B2, B4-B13 og B18.
5
Vertu viðbúin(n) vinningi
Lmrwm
v\\ mikfis að v-,ne®
1. vinningur er áætlaður 40 milljónir kr.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR: VALA SETTIHEIMSMET UNGLIIMGA / B20