Morgunblaðið - 04.10.1996, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
1.047 notaðir fólksbílar fluttir inn í ár
Innflutningur-
inn nær fjórfalt
meiri en í fyrra
VIÐSKIPTI
Morgunblaðið/Hallur
SALTFISKVERKSMIÐJAN La Bacaladera í borginni Irún í Baskahéruðum Spánar.
Sala spænsku saltfiskverksmiðjunnar La Bacaladera
til norska fyrirtækisins Troms Fisk
SIF reynir að fá kaup-
samninginn ógiltan
LÖGMENN á vegum Sölusambands
íslenskra fiskframleiðenda, SIF,
reyna nú að fá ógiltan fyrir dómstól-
um á Spáni kaupsamning sem gerður
var á milli norska fyrirtækisins
Troms Fisk og seljenda spænsku
saltfiskverksmiðjunnar La Baealad-
era í borginni Irún í Baskahéruðum
Spánar. Aður en Troms Fisk keypti
verksmiðjuna nú í haust hafði SIF
undirritað samning um kaup á verk-
smiðjunni og stóð til að SÍF tæki við
rekstri hennar 1. september síðastlið-
inn. Troms Fisk tók hins vegar við
rekstri verksmiðjunnar um það leyti
og er fulltrúi seljenda hennar orðinn
sölustjóri hjá fyrirtækinu.
Róbert Agnarsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri SÍF, sagði í samtali
við Morgunblaðið að erfítt væri að
segja til um það hvemig gengi að
fá kaupsamninginn ógiltan, en talið
væri að það gæti tekið 4-6 mánuði
að fá niðurstöðu í málinu. Hann sagði
að samkvæmt öllum eðlilegum rétt-
arfarsreglum væri ljóst að SÍF væri
með gögn þess efnis að norski kaup-
andinn hafi ekki verið í góðri trú
þegar hann gerði kaupin.
„Að sjálfsögðu er spænski seljand-
inn það klárlega ekki því hann er
að selja þarna í annað sinn sömu
eignina. Að öllu jöfnu ættum við því
að hafa vinninginn í þessu máli, en
það er ekkert nema tíminn sem sker
úr um það. Við erum ekki dómarar
í þessu máli,“ sagði Róbert.
Hann sagði samninginn sem SÍF
undirritaði um kaupin á La Baealad-
era vera fullgildan kaupsamning.
„í rauninni var einungis verið að
uppfylla ákvæði samningsins um
skoðun á ýmsum atriðum sem þurfti
TOR Krane, sem nú er fram-
kvæmdastjóri La Bacaladera,
í stærsta vinnslusal verk-
smiðjunnar.
að skoða til að áætla virði fyrirtækis-
ins og hvað ætti að borga mikið fyr-
ir það. Menn voru komnir nokkuð
langt á veg með það og voru á und-
an áætlun þegar þetta dundi yfir,“
sagði Róbert.
Yfirlýsingar að vænta
á næstu vikum
Hvorki fulltrúar seljenda La Bac-
aladera né Troms Fisk vildu tjá sig
um þátt SÍF í kaupum á La Bacalad-
era þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins heimsótti verksmiðjuna á dögun-
um. Santiago Fuertes, fulltrúi Fuert-
es-fjölskyldunnar sem stofnaði La
Bacaladera, starfar nú sem sölustjóri
fyrirtækisins, en framkvæmdastjóri
þess er Tor Krane frá Troms Fisk.
Hann sagði að yfirlýsinga frá þeim
um málið gæti verið að vænta á
næstu vikum.
„Við munum tjá okkur um þetta
þegar við höfum tíma til þess. Helsta
markmið okkar er að reka verksmiðj-
una, en hér er í mörg hom að líta.
Þetta er ný verksmiðja og við erum
að kynnast starfsfólkinu," sagði Tor
Krane.
Áherslan á tilbúna rétti
Um 40 manns starfa hjá La Bac-
aladera og sagði Tor Krane að í þess-
ari viku yrði starfsfólki fjölgað um
helming og byrjað að vinna á tví-
skiptum vöktum. La Bacaladera hef-
ur selt mikið af framleiðslunni til
Frakklands auk Spánar, og nýlega
hófst hjá fyrirtækinu mikil fram-
leiðsla á þurrkuðum fiski. Helsti
markaðurinn fyrir þurrkaðan físk er
í Portúgal og munu um 70% fram-
leiðslunnar fara þangað en afgang-
urinn til Afríku og S-Ameríku.
La Bacaladera er með 33 mismun-
andi framleiðsluvörur úr saltfiski
sem seldar eru undir vöruheitinu Don
Salado, og þar er m.a. niðursuðu-
verksmiðja þar sem framleiddir eru
fimm mismunandi fískréttir. Að sögn
Tor Krane eru uppi áætlanir um að
hefja í auknum mæli framleiðslu á
tilbúnum fiskréttum í neytenda-
pakkningum þar sem framtíðin væri
fólgin í því að framleiða vöru sem
bæði væri bragðgóð og fljótieg í
matreiðslu.
ALLS voru fluttir inn 1.047 notaðir
fólksbílar fyrstu níu mánuði ársins,
skv. bráðabirgðatölum Bifreiðaskoð-
unar íslands hf. Á sama tímabili í
fyrra voru fluttir inn 292 bílar og
hefur þessi innflutningur því nær
fjórfaldast á milli ára.
Notaðir fólksbílar eru nú um 14%
af heildarinnflutningi fólksbíla, en
fyrstu níu mánuðina voru fluttir inn
6.413 nýir fólksbílar eða um fjórð-
ungi fleiri en í fyrra.
Hallgrímur Gunnarsson, formaður
Bílgreinasambandsins og forstjóri
Ræsis hf., segir að nokkrar ástæður
séu fyrir þessari aukningu. „Efna-
hagsástandið í þjóðfélaginu hefur
verið að batna þannig að fleiri hafa
verið að kaupa bæði nýja og notaða
bíla en áður. Gjaldastefna ríkisins
hefur verið þannig undanfarin ár að
hlutfallslega hærri gjöld leggjast á
stærri bíla en þá minni þó það hafi
aðeins verið lagfært. Þetta hefur
skapað uppsafnaða þörf, sérstaklega
fyrir stærri bíla sem menn hafa ver-
ið að uppfylla vegna breytta efna-
hagsforsendna.
Reikningur viðmiðun
Þá urðu breytingar á reglum um
innflutning notaðra bíla eftir að
GATT-samningurinn tók gildi á
miðju síðasta ári. Hann fól í sér að
nota verður reikning sem viðmiðun
við álagningu gjalda í stað verðlista-
verðs. Yfirvöld voru hins vegar ekki
búin undir þessa breytingu og því
skapaðist ákveðið tómarúm. Þau áttu
í erfiðleikum með að rengja reikninga
þeirra sem stóðu í braski og voru
jafnvel að fara á svig við lög og regl-
ur. Núna hafa tollayfírvöld komið sér
upp erlendum verðviðmiðunum sem
hægf er að nota til að bera saman við
reikninga."
Til viðbótar nefndi Hallgrímur að
töluvert hefði verið flutt inn af tjóna-
bílum af mönnum sem vildu skapa
sér atvinnu við viðgerðir á þeim.
Skort hefði á eftirlit með þessum
innflutningi þannig að engar trygg-
ingar hefðu verið fyrir því að eðlilega
væri staðið að viðgerðum. „Núna er
búið að setja þetta í fast kerfi þann-
ig að bíllinn fer í skoðun hjá fag-
manni ef tollurinn sér minnstu vís-
bendingar um tjón eða þörf fyrir við-
gerðir. Bíllinn er síðan merktur í
tollskránni þannig að tryggt sé að
skilað verði gjöldum eins og lög og
reglur gera ráð fyrir. Þetta kerfi er
búið að vera í gangi frá því nú í haust.
Ég sé fyrir mér að um leið og
mismunur á innflutningsgjöldum
stærri og minni bíla hverfur muni
nýir bílar í stærri og eftirsóttari
flokkunum koma eðlilega inn á mark-
aðinn. Þeir verða síðan á markaðnum
fyrir notaða bíla nokkrum árum
seinna. Ef þetta gengur eftir verður
svindlið það lítið að það skiptir engu
máli fyrir heildina og á þennan hátt
verður tryggt að frelsi ríki í innflutn-
ingi á bílum. Aðalatriðið er það að
allir sem flytja inn bíla lúti sömu
leikreglum."
Hallgrímur kvaðst aðspurður ekki
hafa staðfestar upplýsingar um að
t.d. Merceded Benz-bílar sem Ræsir
hefur umboð fyrir hefðu verið fluttir
inn á óeðlilega lágu verði, heldur
hefðu einungis heyrst sögur um slíkt.
„Tilfínning mín er sú að meirihluti
af notuðum Benz-bílum sé fluttur inn
á eðlilegum forsendum. Menn flytja
ekki inn bíla nema fá þá á tiltölulega
góðu verði.“
Morgunblaðið/Kristinn
Prentsýning
hefst í dag
SÝNINGIN Prentmessa 96 verður
opnuð I dag í Laugardalshöll en
þar er til sýnis ýmis búnaður sem
tengist prentiðnaði og margmiðl-
un. Rúmlega þrjátíu aðilar taka
þátt í sýningunni, en meðal þeirra
má nefna prentsmiðjur og tölvu-
fyrirtæki.
Hjörtur Guönason, fram-
kvæmdastjóri Prenttæknistofnun-
ar segir að margmiðlun og tölvur
setji svip sinn á sýninguna, enda
hafi verksvið útgáfu- og prentiðn-
aðar víkkað mjög mikið á undan-
förnum árum.
Sýningin verður opin frá klukk-
an 17-22 í dag, en í gær voru
menn í óða önn að undirbúa hana.
Laugardag og sunnudag er sýn-
ingin opin frá klukkan 10-18
hvorn dag en henni lýkur á sunnu-
dag.
Samvinnuháskólinn
H.
valdi B.T. tölmir
Pentium 133 K-'
• • I £££
"Samvinnuháskólinn leggur áherslu
á raunhæfa verkefnavinnslu I tengslum við
atvinnulifið. Traustur og öfiugur tölvubúnaður
gegnir lykilhlutverki i skólastarfinu."
"Við völdum Peacock Pentium frá BT tölvum
við endumýjun á tölvukerfi okkar."
Jónas Guðmundsson
rektor Samvinnuháskólans
Intel Triton móðurborð
133 Intel Pentium örgjörvi
256kb Pipeline burst cache
16 mb EDO innra minni
15" lággeisla SVGA skjár
1280 mb Quantum haröur diskur
3.5" Disklingadrif
Diamond Stealth 1mb skjákort
Windows '95 lyklaborö
3 hnappa Dexxa mús
16 bita BTC hljóðkort
8 hraöa Acer geisladrif
12 watta Juster hátalarar
Leikur fylgir af tilboðsborð
136.900.-
Http://www.mmedja.is/bttolvur
BlSlöluur
Grensásvegur 3,108 Reykjavi
Simi: 5885900, Fax : 5885905
Netfang : bttolvur@mmedia.is