Morgunblaðið - 04.10.1996, Side 1

Morgunblaðið - 04.10.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA Sigurður áfram með Val ÞJÁLFARI Valsliðsins, Sigurður Grétarsson, sem náði nyög góðum árangri með liðið í 1. deild í sumar, þjálfar það áfram. Valsmenn voru ánægðir með störf Sigurðar og buðu honum tveggja ára samning, sem hann skrif- aði undir. Sigurður tók við Valsliðinu fyrir sl. keppnistimabil og gerði þá eins árs samn- ing, sem var útrunninn. Guðmundur áfram með Grindavík GUÐMUNDUR Torfason verður áfram þjálf- ari Grindavíkurliðsins í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu. Grindvíkingum var spáð falli fyrir deildarkeppnina, þar sem liðið missti marga leikmenn frá árinu áður. Guðmundur og félagar blésu á þá spádóma og tryggðu tilverurétt sinn á ævintýralegan hátt í Olafs- firði á elleftu stundu. Guðmundur gerði þriggja ára samning fyrir ári, sem var upp- segjanlegur af beggja hálfu að ári liðnu, þ.e.a.s. honum og stjórn Grindavíkurliðsins. Samingurinn stendur áfram. Öflugt lið Rúm- eníu til íslands FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER BLAÐ 1996 Morgunblaðið/Jón Svavarsson LÚKAS Kostic, þjálfarl KR, og Þórhallur Dan Jóhannsson eftir að sá síðarnefndi samdl vlð Vesturbæjarfélagið. Þórhallur Dan í KR Þórhallur Dan Jóhannsson knattspymumaður, sem leik- ið hefur með Fylki alla sína tíð, skrifaði í gær undir tveggja ára samning við KR. Eins og sagt var frá í blaðinu í gær hafði hann rætt við íslandsmeistara ÍA en ákvað í gær að halda kyrru fyrir í höfuðborginni. Þórhallur Dan er 23 ára og lék í sumar í fyrsta skipti með A-landsliðinu. „Þetta er skemmtilegt verkefni sem gaman verður að takast á við. Það tók ekki langan tíma að ákveða sig, við hittumst og kom- umst fljótlega að samkomulagi. Ég talaði líka við Skagamenn og vissulega hefði líka verið mjög skemmtilegt verkefni að leika með þeim. Segja má að það hafi ráðið úrslitum að ég er kominn með fjögurra manna fjölskyldu og það er auðveldara að vera áfram hér í bænum. Hér eru vin- irnir og vinkonurnar. Svo eru Akurnesingar búnir að vinna mik- ið síðustu ár þannig að segja má að það sé enn stærra og meira spennandi verkefni að reyna að vinna eitthvað með KR,“ sagði Þórhallur Dan við Morgunblaðið í gær. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Vesturbæjarfélagið, sem endurskoðaður verður að ári. „Ég hefur verið 20 ár í Fylki. Byijaði að spila með félaginu á fjórða og nú er ég á tuttugasta og fjórða aldursári," sagði Þór- hallur Dan og sagði því hafa ver- ið kominn tíma til að breyta til. Lúkas Kostic, þjálfari KR, var ánægður er samningur við Þór- hall Dan var í höfn. „Hann er maður að mínu skapi, fljótur og mjög duglegur. Hann hefur náð góðum árangri hjá Fylki, er kom- inn í A-landslið, og er leikmaður sem KR vantar. Við höfum verið of fáliðaðir í fremstu línu og fyrst Gummi [Guðmundur Benedikts- son] fer í aðgerð og verður sex mánuði frá og Andri Sigþórsson má hvorki æfa á gervigrasi né innanhúss vitum við ekki í hvaða ástandi þeir tveir verða þegar ís- landsmótið byijar aftur næsta vor. Þórhallur verður því mikil- vægur fyrir okkur,“ sagði þjálfar- inn. IONUT Lupescu, miðvallarspilari hjá Mönc- hengladbach, getur ekki leikið með Rúmeníu gegn íslandi á Laugardals vellinum á miðviku- daginn kemur, þar sem hann meiddist á fæti i leik með liðinu um sl. helgi og mun ekki leika með þvi næstu sex vikurnar. Anghel Iordanescu, þjálfari Rúmeniu, tiikynnt i gær landsliðshóp sinn, sem kemurtil íslands. Margir snjallir leikmenn koma hingað með rúmenska landsliðinu, sem er eitt sterkasta landslið sem hefur leikið á Laugardalsvellin- um í fjölmörg ár. Markverðir eru Floria Prunea, Dinamo Búkarest og Bogdan Stelea, Steaua Búkar- est. Varnarmenn eru ekki ófrægari leikmenn en Dan Petrescu, Chelsea, sem hefur leikið 55 landsleiki, Daniel Prodan, Steaua Búkar- est, Corneliu Papura, Stade Rennais, sjálfur Gheorghe Popescu, Barcelona, sem hefur leikið 66 landsleiki, Tibor Selymes, And- erlecht og Julian Filipescu, Steaua Búkarest. „Hershöfðinginn" Gheorghe Hagi, Galatas- aray, sem hefur leikið 101 landsleik og skor- að 27 mörk, stjórnar miðvallarspilinu, við hans hlið verða Constantan Galca, Mallorca, Ioan Sabau, Reggiana, Dorinel Munteanu, Köln, Gabriel Popescu, Craiova og Bie Dumi- trescu, West Ham, sem hefur leikið 55 landsleiki. Kunnustu sóknarleikmenn- irnir eru Viorel Moldovana, Grasshoppers, sem lék leik- menn Ajax sem drátt á dögun- um, Adrian Die, Steaua Búkar- est, og Ion Vladoiu, Köln. Sigurður Lárusson þjálfar KA Ætlum okkur að fara beint upp SIGURÐUR Lárusson, fyrrum leikmaður og þjálfari Þórs á Akureyri, var í gær ráðinn þjálfari 2. deildarliðs KA i knatt- spyrnu - skrifaði undir eins árs samning. „Það er skemmti- legt að fara upp á Brekku til að starfa. Mikill hugur er hjá mönnum í KA, við ætlum okkur að endurheimta 1. deildar- sæti liðsins - ætlum beint upp,“ sagði Sigurður við Morgun- blaðið í gær. Sigurður er annar þjálfarinn til að þjálfa knatt- spyrnulið beggja Akureyrarfélaganna. Jóhannes Atlason hefur gert það áður, en fór aðra leið - þjálfaði KA fyrst, síðan Þór. Jóhannes þjálfaði einnig ÍBA-liðið á árum áður. KÖRFUKIMATTLEIKUR: HAUKAR BYRJUÐUÁAÐ SIGRA ÍSLANDSMEISTARANA / C2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.