Morgunblaðið - 04.10.1996, Page 1
BLAÐ ALLRA
LANDSMANNA
Sigurður
áfram með Val
ÞJÁLFARI Valsliðsins, Sigurður Grétarsson,
sem náði nyög góðum árangri með liðið í 1.
deild í sumar, þjálfar það áfram. Valsmenn
voru ánægðir með störf Sigurðar og buðu
honum tveggja ára samning, sem hann skrif-
aði undir. Sigurður tók við Valsliðinu fyrir
sl. keppnistimabil og gerði þá eins árs samn-
ing, sem var útrunninn.
Guðmundur
áfram með
Grindavík
GUÐMUNDUR Torfason verður áfram þjálf-
ari Grindavíkurliðsins í 1. deildarkeppninni
í knattspyrnu. Grindvíkingum var spáð falli
fyrir deildarkeppnina, þar sem liðið missti
marga leikmenn frá árinu áður. Guðmundur
og félagar blésu á þá spádóma og tryggðu
tilverurétt sinn á ævintýralegan hátt í Olafs-
firði á elleftu stundu. Guðmundur gerði
þriggja ára samning fyrir ári, sem var upp-
segjanlegur af beggja hálfu að ári liðnu,
þ.e.a.s. honum og stjórn Grindavíkurliðsins.
Samingurinn stendur áfram.
Öflugt lið Rúm-
eníu til íslands
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER
BLAÐ
1996
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
LÚKAS Kostic, þjálfarl KR, og Þórhallur Dan Jóhannsson eftir að sá síðarnefndi samdl vlð Vesturbæjarfélagið.
Þórhallur Dan í KR
Þórhallur Dan Jóhannsson
knattspymumaður, sem leik-
ið hefur með Fylki alla sína tíð,
skrifaði í gær undir tveggja ára
samning við KR. Eins og sagt var
frá í blaðinu í gær hafði hann
rætt við íslandsmeistara ÍA en
ákvað í gær að halda kyrru fyrir
í höfuðborginni. Þórhallur Dan er
23 ára og lék í sumar í fyrsta
skipti með A-landsliðinu.
„Þetta er skemmtilegt verkefni
sem gaman verður að takast á
við. Það tók ekki langan tíma að
ákveða sig, við hittumst og kom-
umst fljótlega að samkomulagi.
Ég talaði líka við Skagamenn og
vissulega hefði líka verið mjög
skemmtilegt verkefni að leika
með þeim. Segja má að það hafi
ráðið úrslitum að ég er kominn
með fjögurra manna fjölskyldu
og það er auðveldara að vera
áfram hér í bænum. Hér eru vin-
irnir og vinkonurnar. Svo eru
Akurnesingar búnir að vinna mik-
ið síðustu ár þannig að segja má
að það sé enn stærra og meira
spennandi verkefni að reyna að
vinna eitthvað með KR,“ sagði
Þórhallur Dan við Morgunblaðið
í gær.
Hann skrifaði undir tveggja ára
samning við Vesturbæjarfélagið,
sem endurskoðaður verður að ári.
„Ég hefur verið 20 ár í Fylki.
Byijaði að spila með félaginu á
fjórða og nú er ég á tuttugasta
og fjórða aldursári," sagði Þór-
hallur Dan og sagði því hafa ver-
ið kominn tíma til að breyta til.
Lúkas Kostic, þjálfari KR, var
ánægður er samningur við Þór-
hall Dan var í höfn. „Hann er
maður að mínu skapi, fljótur og
mjög duglegur. Hann hefur náð
góðum árangri hjá Fylki, er kom-
inn í A-landslið, og er leikmaður
sem KR vantar. Við höfum verið
of fáliðaðir í fremstu línu og fyrst
Gummi [Guðmundur Benedikts-
son] fer í aðgerð og verður sex
mánuði frá og Andri Sigþórsson
má hvorki æfa á gervigrasi né
innanhúss vitum við ekki í hvaða
ástandi þeir tveir verða þegar ís-
landsmótið byijar aftur næsta
vor. Þórhallur verður því mikil-
vægur fyrir okkur,“ sagði þjálfar-
inn.
IONUT Lupescu, miðvallarspilari hjá Mönc-
hengladbach, getur ekki leikið með Rúmeníu
gegn íslandi á Laugardals vellinum á miðviku-
daginn kemur, þar sem hann meiddist á fæti
i leik með liðinu um sl. helgi og mun ekki
leika með þvi næstu sex vikurnar. Anghel
Iordanescu, þjálfari Rúmeniu, tiikynnt i gær
landsliðshóp sinn, sem kemurtil íslands.
Margir snjallir leikmenn koma hingað með
rúmenska landsliðinu, sem er eitt sterkasta
landslið sem hefur leikið á Laugardalsvellin-
um í fjölmörg ár.
Markverðir eru Floria Prunea, Dinamo
Búkarest og Bogdan Stelea, Steaua Búkar-
est. Varnarmenn eru ekki ófrægari leikmenn
en Dan Petrescu, Chelsea, sem hefur leikið
55 landsleiki, Daniel Prodan, Steaua Búkar-
est, Corneliu Papura, Stade Rennais, sjálfur
Gheorghe Popescu, Barcelona, sem hefur
leikið 66 landsleiki, Tibor Selymes, And-
erlecht og Julian Filipescu, Steaua Búkarest.
„Hershöfðinginn" Gheorghe Hagi, Galatas-
aray, sem hefur leikið 101 landsleik og skor-
að 27 mörk, stjórnar miðvallarspilinu, við
hans hlið verða Constantan Galca, Mallorca,
Ioan Sabau, Reggiana, Dorinel Munteanu,
Köln, Gabriel Popescu, Craiova og Bie Dumi-
trescu, West Ham, sem hefur
leikið 55 landsleiki.
Kunnustu sóknarleikmenn-
irnir eru Viorel Moldovana,
Grasshoppers, sem lék leik-
menn Ajax sem drátt á dögun-
um, Adrian Die, Steaua Búkar-
est, og Ion Vladoiu, Köln.
Sigurður Lárusson þjálfar KA
Ætlum okkur að
fara beint upp
SIGURÐUR Lárusson, fyrrum leikmaður og þjálfari Þórs á
Akureyri, var í gær ráðinn þjálfari 2. deildarliðs KA i knatt-
spyrnu - skrifaði undir eins árs samning. „Það er skemmti-
legt að fara upp á Brekku til að starfa. Mikill hugur er hjá
mönnum í KA, við ætlum okkur að endurheimta 1. deildar-
sæti liðsins - ætlum beint upp,“ sagði Sigurður við Morgun-
blaðið í gær. Sigurður er annar þjálfarinn til að þjálfa knatt-
spyrnulið beggja Akureyrarfélaganna. Jóhannes Atlason hefur
gert það áður, en fór aðra leið - þjálfaði KA fyrst, síðan
Þór. Jóhannes þjálfaði einnig ÍBA-liðið á árum áður.
KÖRFUKIMATTLEIKUR: HAUKAR BYRJUÐUÁAÐ SIGRA ÍSLANDSMEISTARANA / C2