Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 4
~N HNEFALEIKAR Eric Cantona ætlar að enda ferilinn í Englandi Eric Cantona, fyrirliði Manchester United, var í París í vikunni, þar sem hann sagði í sjónvarpsvið- tali að hann ætlaði sér að enda knatt- spyrnuferil sinn í Englandi, jafnvel að snúa sér að þjálfun. „Ég mun ekki leika aftur með liði í Frakk- landi. Ég ætla að enda knattspymu- feril í Englandi og það gæti vel far- ið að ég settist þar að,“ sagði Can- tona. Cantona sagðist vera tilbúinn að Jeika á ný með franska landsliðinu. „Þeir sem hafa deilt á mig hafa átt þá ósk, að ég myndi segja að ég gæfi ekki kost á mér framar í lands- liðið. Þeim verður ekki að ósk sinni. Ég er tilbúinn að leika ef eftir því verður leitað." Þessi umdeildi knattspyrnumaður, sem hefur leikið 45 landsleiki fyrir Frakkland, síðustu leikina sem fyrir- liði, sagðist hafa áhyggjur af þróun knattspyrnunnar í Frakklandi, þar sem heimsmeistarakeppnin fer fram 1998. „Það er eins komið fyrir okk- ur og Dönum og Norðmönnum, að bestu leikmenn okkar leika með lið- um utan Frakklands. Áhorfendur mæta á völlinn til að sjá einn til tvo mjög góða leikmenn leika, enda er það hluti af leiknum að lið séu með snjalla leikmenn. Flestir landsliðs- mann Frakklands leika með liðum á Ítalíu og Spáni, þannig að þeir gleðja ekki augu knattspyrnuunnenda í Frakklandi, sem mæta á völlinn," sagði Cantona. FOLK ■ GUÐMUNDUR Benediktsson og Kristján Finnbogason, knatt- spymumenn úr KR, eru í búnir að stofna keilulið ásamt tveimur öðr- um. Þeir kalla liðið C-lið KR og leikur það í 3. deild íslandsmóts- ins í vetur. ■ BOBBY Robson, þjálfari Barc- elona, er ekki ánægður með hugs- unarhátt sinna leikmanna, sem urðu að sætta sig við jafntefli við Tene- rife, 1:1. Robson sagði að það væri eins og leikmennirnir treystu á að Ronaldo gerði út um leikina fyrir þá. ■ „RONALDO er aðeins tuttugu ára. Þó að hann sé góður, á hann ekki einn að vera lykilinn að velgengni liðsins," sagði Robson. ■ RONALDO fékk mann á sig strax í upphafi leiksins og náði ekki að skora, eins og hann hefur gert í þremur fyrstu leikjum Barcelona. ■ JOHANN Cruyff, fyrrum þjálf- ari Barcelona, sem var rekinn sl. keppnistímabil, hefur verið að setja út á leik liðsins. Joan Gaspart, varaforseti Barcelona, ver Robson og segir að það sýni hve Cruyff sé lítill persónuleiki, að vera með stöð- ugar árásir á sitt gamla lið. ■ MARK Fish, landsliðsmaður Suður-Afríku, sem leikur með Lazíó á Ítalíu, fær fá tækifæri með liðinu. Hann kemst ekki að fyrir Alessandro Nesta og Jose Cha- mot, sem eru miðheijapar liðsins. „Nesta og Chamot eru mjög góðir íeikmenn. Deildarkeppnin hér er sterk. Ég er ekki nema 22 ára og er hér til að læra,“ segðir Fish. ■ FISH lék frábærlega þegar S- Afríka vann Afríku-keppnina sl. sumar og þá höfðu lið eins og Man. Utd., Everton og Bordeaux áhuga á að fá hann, Fish valdi Lazíó. ■ MANUEL Amoros, fyrrum landsliðsmaður Frakklands, hefur lagt skóna á hilluna, þar sem hann er með liðagigt. Amoros, sem lék 82 landsleiki — fleiri en nokkur annar Frakki, er 34 ára, leikmaður með Marseille. ■ ENZO Scifo, miðvallarleikmað- ur hjá Mónakó, og fyrirliði belgíska landsliðsins, mun ekki leika með lið- inu gegn San Marínó í næstu viku, vegna meiðsla á fæti. ■ CARLOS Alberto Silva var í gær ráðinn þjálfari brasilíska liðs- ins Guarani. Það er kannski ekki í frásögur færandi, en aftur á móti er ráðning hans söguleg, því hann er tíundi þjálfari liðsins á árinu. „ÉG mun ekkl lelka aftur meö liði í Frakklandi. Ég ætla að enda knattspyrnuferilinn í Englandl og það gæti vel farið svo að ég settlst þar að,“ sagðl Eric Cantona, sem hér er í barðttu um boltann vlð Dean Saunders, IMottingham Forest. Hoddle setur nýj- ar reglur Glenn Hoddle, landsliðsþjálfari Englands, hefur ákveðið að setja sínum mönnum nýjar starfs- reglur fyrir landsleiki. Hann hefur tilkynnt leikmönnum að þeir fái ekki frí til að fara heim um helgar fyrir leiki og þeim sé bannað að tjá sig við fréttamenn fyrir leiki. Þetta ger- ir hann til þess að leikmenn geti einbeitt sér að verkefninu. Undir stjórn Terry Venables, fengu leik- menn helgarfrí og þá mátti oft sjá ýmis ummæli þeirra um væntanlega landsleiki í blöðum. Eins og menn muna þá endaði ferð enska landsliðsins til Kína og Hong Kong, fyrir EM í Englandi, á sögulegan hátt. Leikmenn voru myndaðir í næturklúbbi með ölkrús- ir í hendi og unnu síðan skemmdir á flugvél á leiðinni heim. Hoddle er nú með landsliðið í æfingabúðum fyrir leikinn á móti Pólveijum sem verður á Wembley á miðvikudaginn. „Ég veit að sumir eru ekki ánægðir með þessa ákvörð- un mína, en ég tel að þessar reglur komi á réttum tíma fyrir okkur. Við höfum verk að vinna og þurfum að einbeita okkur að einu, það er að leggja Pólveija að velli," sagði Hoddle. Þeir mætast í hringnum 9. nóvember MIKE Tyson (t.v.) og Evander Holyfleld mætast í hnefalelkahringnum í Las Vegas 9. nóvem- ber. Don Klng umboðsmaður stendur hér é milll hnefalelkakappanna á blaðamannafundl þar sem hann tllkynnti bardagann sem marglr bíða eftlr. Tyson mun fá 1.600 mllljénlr króna í slnn hlut fyrlr bardagann en Holyfíeld 780 mllljónlr króna. KNATTSPYRNA KNATTSPYRNUSAMBAND Evrópu, UEFA, tílkynnti á fundi sínum í Antalya í Tyrkiandi í gær, að búið væri að ákveða að fjölga liðum í Meistaradeild Evr- ópu úr 16 i 24, frá og með næstu leiktíð, 1997-1998. Þessi hug- mynd kom fyrstfram þjá UEFA í maí sl. og sett á laggirnar sér- stðk nefnd tíl að koma hug- myndinni í framkvæmd. liða riðlum. Efsta liðið í hverjum riðli kemst áfram i 8-lÍða úrsiit árangri í öðru sæti komast í útsláttarkeppnina. Meistara- keppnin var sett á stofn 1992- 1993 og þá voru aðeins átta lið þetta nýja fyrirkomulag komi mein ía, Spánn, Holland, England, Frakkland, þjóðum í forkeppni Evrópu- mótsins þurfa að fara fram í júfi. Þau 16 iið sem komast í möguleika á að koma tveiraur liðum inn í deildina með breyttu fyrirkomulagi. ír og fara þau beint í Meistara- fyrrgreindum þjóðum sem yálf- krafa ððlast keppnisrétt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.