Morgunblaðið - 05.10.1996, Blaðsíða 50
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
imiJM’s
Jogginggallar, joggingpeysur,
flauelsbuxur, margir Iitir,
gallabuxur, úlpur.
ítöls gæðavara á góðu verði.
Mikið úrval á stráka.
BARNASTÍGUR
02-14
Skólavörðustíg 8. S.5521461
Arfur horfinna kynslóða
Jurtasmyrsl Erlings grasa-
læknis fást nú í apótekum
og heilsubúðum um land
allt.
• Græðismyrsl
• Handáburður
• Gylliniæðaráburður
Framleiðandi: Islensk lyfjagrös ehf.
Dreifing: Lyfjaverslun Islands hf. á
■ Hljómsveitin
Neistar
Léttsveitir
Harmonikufélagsins I
Harmoniicuba/I
Hótel Hveragerði í kvöld
20 ára aldurstakmark Miöaverö kr. 1000
Ella Baché
PARIS - REVKJAVlK - NEW YORK
Franski snvrtí-
fræðingurinn Naaéqe
Dupin mun kynna Ena
Baché snyrtivörurnar
sem hér segir í
Snyrtivörudeild Hagkaups,
Kringlunni: Laugardaginn
5. október kl. 10.00 til 18.00
Sunnudaginn ó. október
kl. 12.00 til 18.00
Snyrtistofunni Greifavnjan,
Árbæ, mónudaginn 7. október
kl. 12.00 til 18.00
ÞriSjudaginn 8. október
kl. 12.00 til 18.00
Kynningarafslóttur 15%
Komið og reyniS Ella Baché
snyrtivörurnar
6
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
^Langur laugardagur
Stærðir: 36-41
Litur: Svart
Verð áður:
Verð nú kr:
2.495,-
Póstsendum samdægurs
STEINAR WAAGE ^
SKÓVERSLUN
sími 551 8519 ^
V__________________________________________J
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
ÍDAG
SKAK
llmsjón Marjjeir
Pétursson
HVÍTUR léikur og vinnur
STAÐAN kom upp á
Ólympíumótinu í Jerevan
sem lauk á þriðjudaginn.
Frakkinn Joel Lautier
(2.620) hafði hvítt og átti
leik, en Ivan Sokolov
(2.670) var með svart. Hann
stóð vel að vígi en lék síð-
ast afar óheppilegum leik,
32. - Bf8 - g7??, yfirsást
hótun hvíts:
33. Hxf7! - Hxf7 34. Bxc4
- Dd7 35. Hxd7 - Hxd7
36. Bxa6 og þar sem hvít-
ur hefur fengið þijú peð
og drottningu fyrir tvo
hróka er staða hans unnin.
Sokolov gaf eftir 36. —
Bxa6 37. Dxa6 — Hdl 38.
Rf3 - Hed8 39. Kh2 -
Hbl 40. Db7 - Rf6 41.
Bh4 - Hd7 42. Dc6 -
g5 43. Rxg5! — hxg5 44.
Bxg5.
Haustmót Taflfélags
Reykjavíkur hefst á
sunnudaginn kl. 14 í fé-
lagsheimili TR Faxafeni 12.
Mótið er með hefðbundnu
sniði, tefldar verða ellefu
umferðir í flokkum. Loka-
skráning er í dag 5. október
frá kl. 14—19 og er mótið
öllum opið.
Farsi
// SENPVR. i 8AÐ. HA ? "
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Áminning
til vagnstjóra
HANSÍNA hringdi, en
hún hafði verið að lesa
greinar í blaðinu þar sem
fólk kvartar sáran yfir
breyttu leiðakerfí SVR.
Hún sagðist ekki geta
kvartað yfir því, en vildi
minnast á að bílstjórarnir
tækju ekki af stað fyrr
en fólk væri almennilega
sest niður. Sjálf sagðist
hún ekki vera of lipur og
þetta kæmi sér illa fyrir
gamalt fólk og fólk með
börn.
Gæludýr
Baldur er týndur
BALDUR, brúnn oriental-
köttur, hvarf frá Laufengi
156 að kvöldi föstudags-
ins 27. september. Hann
er mjóleitur og grannur
(ekki ósvipaður siams-
köttum) og einstaklega
gæfur. Hafir þú orðið
hans var ertu vinsamlega
Baldur
beðin(n) að hafa samband
í síam 586-1237.
Týndur köttur
FYRIR u.þ.b. mánuði tap-
aðist læða úr Engjahverfí
í Grafarvogi. Hún er fín-
gerð og hálfsíðhærð, hvít,
og grábröndótt á höfði,
baki og rófu. Hafi einhver
orðið hennar var er hann
beðinn að hringja í síma
586-1485.
Með morgunkaffinu
mir
JÚ, pabbi minn, ég veit
hvers virði hundrað
krónur voru þegar þú
varst á mínum aldri.
Þess vegna bað ég þig
aðra stofu.
Víkverji skrífar...
STUNDUM gleðst Víkverji yfir
því að búa í timburhúsi þegar
hann horfir upp á raunir þeirra, sem
búa í steinhúsum þar sem steypu-
skemmdirnar hafa fengið að grass-
era. Úrræði þeirra, sem búa við
steypuskemmdimar, virðast stund-
um ekki vera önnur en þau að klæða
steinhúsin að utan til að veija þau
veðrun. Þetta spillir hins vegar oft-
ast byggingarstílnum herfilega.
Sorglegl dæmi um slíkt er hús
Guðspekifélagsins á horni Ingólfs-
strætis og Spítalastígs, þar sem
hinn sérkennilegi stíll, sem Einar
Erlendsson arkitekt gaf húsinu með
stöllóttum göflum og bogagluggum,
hefur verið gjöreyðilagður með því
að skella blikkklæðningu utan um
húsið - og þar með arkitektúrinn.
Ofar á Spítalastígnum er hús, sem
lætur minna yfir sér en hefur ekki
grætt á nýju Steni-klæðningunni,
sem gleypir nú hvert gamla stein-
húsið á fætur öðru. Getur bygging-
ariðnaðurinn virkilega ekki fundið
aðrar lausnir til bjargar gömlu
steinhúsunum í Reykjavík en að
klæða þau?
xxx
SÉRHVERT hús í borginni er
barn síns tíma og oft getur
þurft að kosta nokkru til að varð-
veita sérkenni gamalla húsa. Á
steinhúsum, sem byggð voru á ár-
unum 1930-1950, er oft steyptur
þakkantur, sem um leið gegnir hlut-
verki þakrennu. Kanturinn setur
mikinn svip á þessi hús en vegna
ágangs vatnsins hefur hann viljað
springa og molna. Víkveiji frétti
af húseigendum, sem létu gera upp
hús af þessari gerð og áttu í heil-
miklu stríði við byggingameistara,
sem vildu bara bijóta niður þak-
kantinn og setja þakrennu úr plasti
í staðinn. Einn af þeim, sem gerðu
tilboð í viðgerðina, var þó annarrar
skoðunar og það vildi reyndar svo
til að hann átti líka lægsta tilboðið.
Byggingameistarinn steypti þak-
kantinn upp að nýju, en húðaði
hann með vatnsveijandi efnum, sem
eiga að koma í veg fyrir að hann
skemmist aftur. Þetta dæmi sýnir
að það er hægt að halda í sérkenni
gamalla húsa og það þarf ekki einu
sinni að vera dýrara en „billegu
lausnirnar". Hins vegar þurfa hús-
eigendur að átta sig á ábyrgð sinni
gagnvart byggingarsögunni og
hafa sjálfstæðar skoðanir á því,
hvernig húsið þeirra eigi að líta út,
en láta ekki iðnaðarmennina vaða
yfír sig.