Morgunblaðið - 05.10.1996, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
Landsleikjamet
Atla jaf nað
íVilníus
ÞEGAR flautað verður til leiks í dag í Vilnius,
í leik Litháa og íslendinga i undankeppni HM
í knattspyrnu, jafnar Guðni Bergsson, fyrirliði
landsliðsins, landsleihjamet Atla Eðvaldssonar
- leikur sinn sjötugasta landsleik. Ólafur
Þórðarson, sem er varamaður, á einnig mögu-
leika á að að jafna metið og þeir félagar geta
bætt um betur f leiknum gegn Rúmeníu á Laug-
ardalsvellinum á miðvikudaginn kemur. Guðni
og Ólafur, sem hafa leikið 69 landsleiki sf ðan
þeir léku sinn fyrsta fandsleik í Færeyjum 1984.
Voru þá tveir af tfu nýliðum sem léku, nær
allir hinna hafa nú lagt skóna á hilluna, en
þeir félagarnir eru enn að.
HANDKNATTLEIKUR / SJONVARP
Valur, KA og Afturelding hafa ákveðið að kljúfa sig út úr samningi Samtaka 1. deildarfélaga
og HSÍ við RÚV og Stöð 3 og hafa samið til fjögurra ára við Stöð 2 og Sýn
hótar að reka félög-
in úr íslandsmótinu eða
setja í heimaleikjabann
KNATTSPYRNA
Æ Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ásthildur best
ÁSTHILDUR Helgadóttir úr Breiðabliki varð markahæst í 1.
deild kvenna í sumar með 17 mörk í 13 leikjum og í gær var hún
einnig útnefnd besti leikmaður deildarinnar.
■ Ásthildur / C2
Handknattleikshreyfíngín er í uppnámi
vegna ákvörðunar Vals, KA og Afturelding-
ar um sjónvarpssamningana. Formenn allra
1. deildarliðanna tólf hafa verið boðaðir á
fund hjá HSÍ fyrir hádegi í dag og þar ætti
framhaldið að skýrast.
ÍSLANDSMEISTARAR Vals, bik-
armeistarar KA og Afturelding hafa
klofið sig út úr samningi sem HSÍ
og Samtök 1. deildarfélaga gerðu á
dögunum við ríkissjónvarpið og Stöð
3 um einkarétt stöðvanna á sýning-
um frá leikjum allra félaga í 1. deild
til fjögurra ára. Félögin þijú hafa
þess í stað samið við Stöð 2 og Sýn
í jafn langan tíma.
Stjóm HSÍ fundaði um málið í
gær og lýtur það „mjög alvarlegum
augum," eins og einn forráðamanna
HSI orðaði það við Morgunblaðið í
gær, en að öðru leyti hafa stjórnar-
menn ekki viljað tjá sig um málið.
Forráðamenn 1. deildarliðanna hafa
verið boðaðir á fund til HSÍ í dag
og þar verður tilkynnt að stjórn HSI
sjái aðeins tvær leiðir í stöðunni,
rifti félögin þrjú ekki samningnum
við Stöð 2 og Sýn; annaðhvort að
félögin þrjú verði rekin úr íslands-
mótinu eða þau sett í heimaleikja-
bann. Þetta var niðurstaða stjórnar-
fundar HSÍ í gær, skv. heimildum
Morgunblaðsins.
„KA ekkl aðill að samnlngnum
vlð RÚV og Stöð 3“
Samningur félaganna og HSÍ við
RÚV og Stöð 3 var um einkarétt
stöðvanna tveggja á sýningum frá
leikjum í íslandsmóti og bikarkeppni
næstu §ögur ár. Valur, KA og Aftur-
elding hafa nú samið á sömu nótum
við Stöð 2 og Sýn og stöðvarnar
hafa að auki forkaupsrétt að leikjum
liðanna í Evrópukeppni.
Hvorki náðist í formann hand-
knattleiksdeildar Vals né Aftureld-
ingar í gær en Páll Alfreðsson, for-
maður handknattleiksdeildar KA
segir félagið ekki hafa verið aðila
að samningi 1. deildarfélaganna og
HSÍ við Ríkissjónvarpið og Stöð 3.
„Fulltrúi okkar var ekki á formanna-
fundi þegar fjallað var um þann
samning og aldrei var haft neitt sam-
band við okkur um hann. Við vorum
reyndar boðaðir á fund þar sem átti
að fjalla um samninginn en komumst
ekki og það næsta sem við vissum
var að samningurinn var tilbúinn.
En við höfum ekki gefið HSÍ leyfi
til að versla með húsið okkar.“
í tilkynningu frá íslenska útvarps-
félaginu í gær er sagt frá því að
Stöð 2 og Sýn hafi sameiginlega
keypt einkarétt á sjónvarpsútsend-
ingum frá heimaleikjum áður-
nefndra liða og sagði Páll að KA
væri búið að semja við stöðvarnar
„með ákveðnum skilyrðum," sem
hann vildi reyndar ekki útskýra nán-
ar að svo komnu máli. „En ég sé
ekki annað en allt liggi ljóst fyrir
frá okkur hálfu. HSI er ekki aðili
að okkar húsi, við erum ekki að selja
neitt annað en það sem þar fer fram.
Þeir hafa ekki leyfi til þess og hafa
reyndar ekki óskað eftir leyfi til
þess.“
En skyldi KA fá meiri peninga
fyrir þennan samning en þann fyrri?
„Ég veit það ekki. Við höfum
ekki fengið neina peninga úr þeim
samningi sem HSÍ hefur áður gert
við Sjónvarpið," sagði Páll Alfreðs-
son.
HSÍ hefur boðað formann allra
1. deildarfélaganna á fund í dag og
þar ætti að skýrast hvert framhald
málsins verður.
„Kemur ekkl ð óvart“
„Það kemur mér í sjálfu sér ekk-
ert á óvart að þetta hafi gerst, því
ég hef kynnst vinnubrögðum Stöðv-
ar 2 og Sýnar undanfarið á ymsum
vettvangi og veit að búast má við
hveiju sem er,“ sagði Ingólfur Hann-
esson, íþróttastjóri RÚV við Morg-
unblaðið í gær. „Það kemur mér
reyndar á óvart að fulltrúar þessara
þriggja félaga skuli tefla allri upp-
byggingu handbolta í landinu í tví-
sýnu með þessum hætti; að þeir
skuli ganga jafn augljóslega gegn
heildarhagsmunum og raun ber
vitni. Ég hins vegar lít svo á að hér
sé um innanhússmál handknattleiks-
hreyfingarinnar að ræða sem hún
ljúki á eigin vettvangi og finni niður-
stöðu. Hvað okkur varðar er alveg
skýrt og afgreitt mál að Ríkisúvarp-
ið og Stöð 3 hafa fullgildan samning
sem unnið verður eftir, undirskrifað-
an af til þess bærum aðilum," sagði
Ingólfur Hannesson.