Morgunblaðið - 05.10.1996, Blaðsíða 2
2 C LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996 C 3
KÖRFUKNATTLEIKUR
KNATTSPYRNA
Kötturinn og músin
LEIK Njarðvíkurog Breiðabliks
á heimavelli þeirra fyrrnef ndu
i gærkvöldi verður ekki lýst
öðruvísi en sem leik kattarins
að músinni. Kötturinn, Njarð-
vík, lék sér að músinni, Breiða-
bliki, en þegar kötturinn slak-
aði á klónni átti músin góða
spretti. Örlög músarinnar voru
þó ráðin í upphafi og lokatölur
100:73. Það gladdi einna helst
augað þegar Torrey John tróð
boltanum með tilþrifum.
ÚRSLIT
UMFN - Breiðab. 100:73
íþróttahúsið i Njarðvik, íslandsmótið í
körfuknattleik, úrvalsdeild - fyrsta umferð,
föstudaginn 4. október 1996.
Gangur leiksins: 6:0, 12:3, 16:9, 28:13,
31:17, 31:22, 49:24, 51:28, 55:35, 63:41,
74:43, 91:52, 98:64, 100:73.
Stig UMFN: Torrey John 24, Kristinn Ein-
arsson 22, Páll Kristinsson 12, Rúnar Áma-
son 8, Ragnar Ragnarsson 8, Friðrik Ragn-
arsson _7, Jóhannes Kristbjömsson 7, Jón
Júiíus Ámason 6, Ægir Gunnarsson 6.
Fráköst: 15 í sókn - 21 í vöm.
Stig Breiðabliks: Andre Bovain 34, Einar
Hannesson 12, Eggert Baldvinsson 11,
Agnar Olsen 8, Pálmi Sigurgeirsson 5, Erl-
ingur Erlingsson 3.
Fráköst: 14 í vöm - 29 í vöm.
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson og
Bergur Steingrimsson vora ágætir en duttu
stundum niður á sama plan og leikmenn.
yillur: UMFN 21 - Breiðablik 15.
Áhorfendun 130.
Skallagrímur - KFÍ 87:85
íþróttahúsiö í Borgamesi:
Gangur leiksins: 2:0, 2:2, 2:7, 12:17,
22:29, 25:35, 35:39, 42:45, 46:45, 50:59,
60:54, 69:59, 72:62, 79:74, 81:76, 87:85.
Stig Skallagríms: Bragi Magnússon 22,
Tómas Holton 16, Grétar Guðlaugsson 12,
Wayne Mulgrave 11, Curtis Raymond 10,
Sigmar Egilsson 10, Ari Gunnarsson 4,
Þórður Helgason 2.
Fráköst: 6 i sókn - 14 í vöm.
Stig KFÍ: Evan Roberts 33, Friðrik E. Stef-
ánsson 13, Baldur I. Jónsson 9, Guðni
Guðnason 9, Magnús Gíslason 8, Hrafn
Kristjánsson 7, Andrew Vallejo 5, Ingimar
Guðmundsson 1.
Fráköst: 19 í sókn - 23 í vöm.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Jón Bend-
er sem vora ákveðnir og góðir í dómum
sínum.
Villur: Skallagrímur 23 - KFÍ 24.
Áhorfendun 417.
Njarðvíkinar byijuðu af krafti
fyrstu tíu mínútumar en þá
fór á örla á kæruleysi sem Blikar
nýttu s®r ve' uns
Stefán heimamenn tóku
Stefánsson völdin á ný. Síðari
skrifar hálfleikur var nán-
ast formsatriði og
Njarðvíkingar áttu fullt í fangi með
að halda einbeitingu sinni á meðan
Blikar áttu góða spretti og skoruðu
fjórum stigum minna en Njarðvík-
ingar.
„Okkar leikur var frekar köflótt-
ur þar sem skiptust á góðir og slak-
ir kaflar en það var ekki óeðlilegt
því við erum sterkari og í svona
leik er auðvelt að missa einbeiting-
una,“ sagði Hrannar Hólm, þjálfari
Njarðvíkinga, eftir leikinn. „Við
vissum að við myndum vinna og
þurftum bara að klára það. En það
var gott að fara svona af stað en
næst er KR og þá verðum við leika
betur því mótspyrnan verður meiri,“
bætti hann við. Það er erfitt að
dæma liðið út frá þessum leik en
Torrey lék vel ásamt Kristni Einars-
syni, Páli Kristinssyni og Friðriki
Ragnarssyni auk þess sem Ragnar
Ragnarsson sýndi góða hluti.
Blikar áttu erfitt uppdráttar en
þegar slaknaði á kló Njarðvíkinga,
fengu þeir að láta ljós sitt skína.
Andre Bovain, nýr erlendur leik-
maður liðsins, var góður og Eggert
Baldvinsson og Einar Hannesson
ágætir.
Naumur sigur Skallagríms
Lið nýheijanna frá ísafirði sýndi
að það á fullt erindi í úrvals-
deildina í vetur. Skallagrímur vann
nauman sigur 87:85
Theodó^ á Ísfírðingunum
Þóröarson sem eiga örugglega
skrifar eftir að velgja fleiri
liðum undir uggum
í vetur. Leikurinn var jafn og spenn-
andi og höfðu ísfirðingarnir yfír-
höndina lengi framan af en í seinni
hlutanum sagði leikreynsla heima-
manna til sín og þeir náðu yfirhönd-
inni og sigruðu naumt.
„Við lékum ekki nógu góða vöm
framan af,“ sagði Terry Robert
Upshow, nýi þjálfari liðs Skalla-
gríms. Okkur gekk mun betur þeg-
ar við tókum upp maður á mann
vömina rétt fýrir leikhlé. Curtis
Raymond lenti fljótlega í villuvand-
ræðum í þessum leik, ef svo hefði
ekki verið hefði okkur gengið mun
betur. Ég kem til með að leggja
mikla áherslu á vamarleikinn, ég
hef aðeins verið með liðið á æfíng-
um í 4 daga en þetta er allt á réttri
leið að mínu mati.“
„Ég er náttúmlega óánægður
með að tapa leiknum, en við vomm
samt að gera ýmsa góða hluti,“
sagði Guðni Guðnason þjálfari ís-
firðinga. „Við sýndum það í þessum
leik að við erum komnir til þess að
spila körfubolta en ekki bara til
þess að horfa á leiki í úrvalsdeild-
inni. Mér fínnst það góður áfangi
að koma hingað á besta heimavöll
í deildinni og tapa naumt, við emm
á réttri leið að mínu mati. Borgnes-
ingarnir spiluðu góða vörn er á leið
og unnu þannig þennan leik.
Nýliðarnir frá Ísafírði byrjuðu
leikinn af miklum krafti og öryggi
og náðu strax yfírhöndinni. Heima-
menn virtust framan af slegnir út
af laginu og virkuðu óákveðnir og
ráðvilltir. Um 5 mínútum fyrir leik-
hlé tóku heimamenn upp maður á
mann vöm og eftir það var allt
annað að sjá til liðsins. Borgnesing-
amir jöfnuðu 42:42 þegar 30 sek-
úndur voru eftir af fyrri hálfleiknum
en Baldur I. Jónsson skoraði 3ja
stiga körfu fyrir ísfírðinga rétt áður
en flautað var til leikhlés.
Heimamenn komu mun ákveðn-
ari til leiks eftir leikhlé og náðu
fljótlega yfírhöndinni. Leikurinn var
hraður og skemmtilegur, heima-
menn sigu fram úr og komust í 12
stiga forskot. En þegar 7 mínútur
vom eftir misstu heimamenn Curtis
Raymond út af með 5 villur og
sneri það leiknum ísfírðingum í hag
og þeim tókst að saxa á forskot
Skallagríms. ísfírðingar misstu síð-
an Friðrik E. Stefánsson út af með
5 villur er 3 mínútur voru eftir. En
á síðustu mínútunum var það leik-
reynsla liðsmanna Skallagríms sem
réð úrslitum.
MorgunblaðiðAIalur Benedikt Jónatansson
Tveir sterkir
ÓLAFUR Þórðarson og Guðni Bergsson hafa verlð félagar með landsliðlnu síðan 1984, er þeir léku slnn
fyrsta landsleik í Þórshöfn í Færeyjum. Fyrir leikinn gegn Litháen hafa þelr báðlr leiklð 69 landslelki,
þurfa einn lelk tll að Jafna met Atla Eðvaldssonar og geta gert betur á Laugardalsvelllnum á miðvlkudag-
Inn kemur þegar lelkið verður gegn Rúmeníu í helmsmeistarakeppnlnnl.
Atli er bjartsýnn í Viiníus
Atli Eðvaldsson, þjálfari ungmennaliðs íslands, er
bjartsýnn fyrir leikinn gegn Litháen og sannfærður
um gott gengi. „Við lékum vel gegn Makedóníu og
Möltu í sumar og ég hef trú á að strákarnir nái settu
marki og fagni sigri hér.“ Atli valdi í gær lið sitt, sem
er skipað leikmönnum undir 21 árs aldri: Markvörður er
Árni Gautur Arason, aðrir eru: Arnar Halldórsson, Guðni
Rúnar Helgason, Brynjar Gunnarsson, Bjarki Stefánsson,
öftustu menn og á miðjunni eru Sigurvin Ólafsson, fyrir-
liði, Gunnar Einarsson, Bjarnólfur Lárusson, Ólafur Stígs-
son og fremst leika Bjarni Guðjónsson og Þorbjörn Atli
Sveinsson.
Utháar segja íslend
inga auðvelda bráð
„VIÐ gerum okkur grein fyrir
því að þetta verður erfiður róð-
ur, en við mætum Lithátum
fullir sjálfstrausts," sagði Logi
Ólafsson, landsliðsþjálfari ís-
lands. Það var létt yfir leik-
mönnum íslenska liðsins í gær,
þrátt fyrir að Litháar hafi sett
á svið „sálarstríð" - þeir sögð-
ust aðeins stefna að einu; sigri.
skrifar frá
Vilníus
Íslenski hópurinn kom til Vilníus
á fímmtudagskvöld, í hópflugi
með Fokker-flugvél Flugleiða, sem
millilenti i Bergen.
Steinþór „Þessi ferðamáti
Guðbjartsson þjappaði hópnum
enn frekar saman.
Það var enginn
utanaðkomandi í flugvélinni til að
trufla einbeitingu hópsins,“ sagði
Logi.
Logi sagði að Lithár yrðu erfiðir
viðfangs. „Þeir eru sterkastir
Eystrasaltsþjóðanna og náðu til
dæmis jafntefli við Króatíu [0:0]
og töpuðu með einu marki fyrir ítal-
íu [0:1] í undankeppni Evrópu-
keppni landsliða.“
Það er sama hvar borið er niður
hér í Vilníus, það virðist aðeins eitt
koma til greina - auðveldur sigur
á íslendingum. Mikil bjartsýni er
hjá aðstandendum landsliðs Litháen
og íbúum hér í Vilníus sem eru um
600 þúsund. Blöð hafa fjallað mikið
um leikinn og segja að landslið Lit-
háens eigi að vinna auðveldan sigur
- að íslendingar eigi að vera auð-
veld bráð.
„Leikum ekkl stífan
varnarleik“
Logi segir að íslensku landsliðs-
mennimir geti ekki bókað sigur
gegn Litháum á þeirra heimavelli.
„Við stefnum að sjálfsögðu á sigur,
„Erum ákveðnir að mæta út á völlinn, til
að sýna hvað við getum best,“ sagði
Guðni Bergsson, fyrirliði íslands
eins og heimamenn. Þeir mæta okk-
ur með sterkara lið en þeir tefldu
fram í Rúmeníu, þar sem þeir voru
heppnir að tapa aðeins 3:0. Við vit-
um að hveiju við göngum og reynum
að koma þeim á óvart með gagn-
sóknum. Það er ekki ætlunin hjá
okkur að leika stífan varnarleik. Við
reynum að halda knettinum vel á
öftustu svæðunum og gera það sem
við getum til að sækja hratt.“
Ætla aö sýna hvaö
þelr geta best
Guðni Bergsson, fyrirliði lands-
liðsins, sagði að íslenska liðið rynni
blint í sjóinn. „Við vitum ekkert
hvað þeir geta, reynum að sjálf-
sögðu að leika knattspymu eins og
hún hentar okkur best. Við náðum
að leika vel í Tékklandi á dögunum
og búum að þeirri reynslu sem við
fengum í Tékklandi. Við erum
ákveðnir að mæta út á völlinn, til
að sýna hvað við getum best,“ sagði
Guðni.
Leikurinn fer fram á Zalgiris-
vellinum í Vilníus sem tekur 15.000
áhorfendur. Þar hafa Lithár náð
góðum árangri og það er ekki langt
síðan þeir lögðu Grikki að velli, 2:1.
Kunnasti leikmaður liðsins er Vald-
as Ivanauskas miðvallarspilari sem
leikur með Hamburger SV.
■ „Sðlarstríö'* / C4
ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ
Sigurður
Birkir Kristinsson
fittíni
,2 Bergsson Sfi Rúnar
Olafur Kristinsson
Adolfsson Eyjólfur
Sverrisson
Heimir
Landsliðið í
„einangrun“
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu er í „einangrun“ fyrir
utan Vilníus í Litháen. Leik-
menn liðins dveljast á hóteli
fyrir utan Vilníus, þar sem
fátt hefur trufiað þá. Logi
Ólafsson, landsliðsþjálfari, er
mjög ánægður með dvalar-
staðinn og segir að leikmenn
fái frið til að einbeita sér að
verkefninu - leiknum gegn
Litháen.
Arnór í stöðu
Bjarka
LOGl Ólafsson landsliðsþjálf-
ari hefur gert eina breytingu
á liði sinu frá leiknum gegn
Tékkum á dögunum. Arnór
Guðjohnsen kemur í stað
Bjarka Gunnlaugssonar sem
er meiddur. Leikið verður
með fimm manna vörn, Rúnar
Kristinsson á að taka virkan
þátt í sóknarleiknum á vinstri
vængnum þar sem hann á að
brjótast fram til að aðstoða
Heimi Guðjónsson og Ríkharð
Daðason sem leikur fremst
með Arnóri. Fyrir aftan þá
leikur Þórður Guðjónsson,
sem á að vera „sprengjukraft-
urinn“ í sóknarleiknum.
Guðni Bergsson leikur sem
aftastí varnarmaður, fyrir-
stöður fyrir framan hann eru
Ólafur Adolfsson og Eyjólfur
Sverrisson.
Knattspyrna
Þýskaland
Bochum - Dortmund...............1:0
(Waldoch 63.) Áhorfendur: 36.334.
VfB Stuttgart - Freiburg.........4:2
(Bobic 12., Schneider 39., Elber 64. og 68.)
- (Decheiver 17. og 52.) 53.000.
Leverkusen - Hansa Roscock......4:1
(Sergio 45. og 49., Feldhoff 57., Meijer
78.) - (Beinlich 8.) 23.000.
Efstu lið:
VfB Stuttgart.....9 7 1 1 26:8 22
Bayer Leverkusen..9 7 0 2 24:13 21
BayemMúnchen......8 5 2 1 14:8 17
l.FCKöln..........8 5 1 2 13:7 16
Borassia Dortmund.9 5 13 17:14 16
Bochum............9 4 3 2 12:12 15
Werder Bremen.....8 4 1 3 18:10 13
Karlsrahe.........8 4 1 3 16:11 13
Dússeldorf........8 4 1 3 6:10 13
Reuter
tvö mörk, er til vinstrl.
tandsliðinu á sama tíma og Franz
Beckenbauer.
Bochum, lið Þórðar Guðjónssonar
(sem reyndar var fjarri góðu gamni
í gær), gerði sér lítið fyrir og sigr-
aði meistara Borussia Dortmund á
heimavelli. Þetta var fyrsti sigur
Bochum á þessu sterka nágrannaliði
sínu síðan 1989. Það var vamarmað-
urinn Thomasz Waldoch sem tryggði
sigur nýliða Bochum, 1:0, með
glæsilegu marki.
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild karla
Sunnudagur:
Njarðvík: Njarðvík - KR............16
Seljaskóli: IR - Þór Ak............16
Akranes: ÍA - Haukar...............20
Grindavík: Grindavík - Keflavík....20
Sauðárkrókur: Tindastóli - Skallagrímur20
Smárinn- Bneiðahlik.-.KFÍ__________20
Handknattleikur
2. deild karla:
Laugardagur:
Höllin Akureyri: Þór - Hörður...13.30
Seltjamanes: KR - Fylkir........16.30
Mánudagur:
Austurberg: Ármann - HM............20
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ
VÍKINGUR
KNATTSPYRNUDEILD
óskar eftir aö ráöa þjálfara fyrir nokkra af yngri flokkum félagsins
Reynsla af knattspyrnuþjálfun æskileg.
Umsóknir Perist til afgreiöslu MorgunPlaðsins
merktar „V-888,“ fyrir 10. október.
Stuttgart hefur nú 22 stig eftir níu leiki, er stigi
á undan Leverkusen og verður í efsta sæti eftir
umferð helgarinnar, alveg sama hvemig fer hjá Bay-
ern Munchen í dag gegn Hamborg, en Bayem er í
þriðja sætinu.
Sigur Stuttgart í gær var mikið afrek þvi eftir að-
eins 29 mínútur var hollenski vamarmaðurinn Frank
Verlaat rekinn af velli fyrir að brjóta á landa sínum
Harry Decheiver sem var að sleppa einn í gegnum
vöm heimamanna. Leikmenn Stuttgart mótmæltu
rauða spjaldinu ákaft, en það var auðvitað til einskis
að vanda. Enda kom í ljós á sjónvarpsmyndum að
dómarinn hafði rétt fyrir sér; Verlaat togaði Decheiver
niður.
Búlgarski leikstjómandinn Krassimir Balakov var
aftur í liði Stuttgart í gær eftir
fjarveru vegna meiðsla og það
hafði greinilega góð áhrif á sam-
heijana. Liðið lék geysilega vel,
eins og það hefur gert í flestum
leikjum haustsins til þessa. Áður
en rauða spjaldið fór á loft hafði
Fredi Bobic komið Stuttgart yfir
en Decheiver jafnað. Thomas
Schneider kom þeim Stuttgart
mönnum svo yfir aftur með glæsi-
legu skallamarki eftir hornspyrnu
FREDI Boblc fagnar marki sínu í gær. Brasllíumaöurinn Glovane Elber, sem
á 39. mín. en Decheiver jafnaði
aftur á 52. mín.
Balakov lagði svo upp fyrra mark
Elbers á 64. mín. - átti góða þver-
sendingu inn á vítateig vinstra meg-
in, þar sem Brasilíumaðurinn snéri
sér snöggt við og sendi knöttinn
með vinstra fæti í fjærhomið. Hann
var aftur á ferðinni fjórum mín. síð-
ar er hann skoraði af harðfylgi eftir
mikla baráttu við tvo vamarmenn í
vítateignum. Joachim Loew, hinn
ungi þjálfari VfB Stuttgart, var him-
inlifandi að leikslokum, og lýsti yfír
sérstakri ánægju með Brasilíu-
manninn Elber, sem hefur leikið
afar vel í haust. „Elber hefur verið
frábær. Hann er betri en Gerd
Muller var,“ sagði þjálfarinn og
vísaði til mesta markaskorara sem
Þjóðveijar hafa eignast. Miiller er
goðsögn í lifanda lífí, eins og knatt-
spyrnuunnendur vita en hann var
í liði Bayern Munchen og þýska
UM HELGINA
Þjálfari Stuttgart ánægður
Elber betri
en Miiller
BRASILÍSKI framherjinn Giovane Elber gerði
tvö mörk fyrir Vf B Stuttgart þegar liðið sigraði
nágrannanna frá Freiburg, 4:2, í þýsku 1. deild-
inni í knattspyrnu í gærkvöldi á heimavelli sín-
um. Stuttgart er því enn á toppi deildarinnar
og Leverkusen í öðru sæti eftir að hafa burst-
að Hansa Rostock, 4:1.
Ásthildur best
og markahæst
ÁSTHILDUR Helgadóttir, Breiðabliki, var í
gær valin besti leikmaður fyrstu deildar
kvenna á lokahófi hagsmunasamtaka knatt-
spyrnukvenna, sem haldið var í Stjörnuheim-
ilinu í Garðabæ en hún var einnig marka-
hæst í sumar og hlaut að
Stefán launum gullskó Mizuna, sem
Stefánsson var styrktaraðili fyrstu deild-
skrifar ar kvenna. Á hófinu var var
Kristín Ósk Halldórsdóttir frá
Akranesi valin efnilegasti leikmaður deildar-
innar og tilkynnt var lið ársins, sem inni-
hélt tíu leikmenn frá Breiðabliki og einn frá
ÍA. _
„Ég átti þess vegna ekki von á þessu því
við erum með svo sterkt lið og þó að ég
hafi leikið vel í sumar, voru aðrar að gera
það líka,“ sagði Ásthildur í gærkvöldi.
„Kvennaknattspyrnan er alltaf á uppleið en
ég varð fyrir vonbrigðum með hin liðin í
sumar og það þarf að breyta fyrirkomulag-
inu því það er alltof mikill munur á efsta
og neðsta liðinu. Mesta spennan var um
hvort við í Breiðablik töpuðum leik en svo
varð ekki. Með meiri spennu í deildinni feng-
ist eflaust meiri umfjöllun og ég geri mér
grein fyrir að við þurfum að gera betur til
þess,“ bætti Ásthildur við en hún er að öllum
líkindum á leið í verkfræðinám til Þýska-
lands eða Bandaríkjanna og því ekki ljóst
hvort hún muni spila með Blikum næsta
sumar.
í lið ársins völdust Sigfríður Sophusdóttir
markvörður, Helga Osk Hannesdóttir,
Vanda Sigurgeirsdóttir, Sigrún Óttarsdóttir,
Inga Dóra Magnúsdóttir, Magnea Guðlaugs-
dóttir, Áshildur Helgadóttir, Margrét Ólafs-
dóttir, Erla Hendriksdóttir, Stojanka Nikolic
og Katrín Jónsdóttir.
Morgunblaðið/J6n Svavarsson
Frá lokahófi knattspyrnukvenna í gærkvöidi. Efri röö frá vinstri: Halldór S. Kjartansson frá
Mizuno-umboðinu, Kristín Ósk Halldórsdóttir efnilegasti leikmaður sumarslns, Sigfríöur Sop-
husdóttlr, Helga Ósk Hannesdóttir, Ásthildur Helgadóttlr, Katrín Jónsdóttir, Ólöf Ragnarsdótt-
Ir er tók viö verðlaunum fyrir hönd dóttur slnnar Margrétar Ólafsdóttur og Goran Nikollc sem
tók vlö verðlaunum fyrir hönd konu sinnar, Stojönku. í neðri röö frá vlnstri: Áslaug Ragna
Ákadóttir er hlaut silfurskó Mizuno, Vanda Sigurgeírsdóttir, Inga Dóra Magnúsdóttir, Erla
Hendriksdóttir og Sigrún Óttarsdóttlr.