Morgunblaðið - 06.10.1996, Page 4

Morgunblaðið - 06.10.1996, Page 4
4 B SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Ég vinn mikið út frá handritinu sem slíku. Ég skoðaði myndir af fyrirmyndinni, Bóbó á Holtinu, en mér finnst hæpið að fara að eltast við persónuna sem stuðst er við. Mér finnst ekki að Bóbó hafi orðið eins ógæfulegur og Baddi svona fljótt. Það ætti að vera nokkuð ljóst að það er ekki mikil framtíð fyrir þennan mann í lok myndar- innar. Við ræddum mikið um það, við Friðrik Þór. Við vildum sýna þetta vonleysi og hvert hann stefndi. Baddi er svona dekraður róni í algjöru uppáhaldi hjá ömmu sinni og ég fitaði mig svolítið fyr- ir hlutverkið, um nokkur kíló til að vera þéttur. Þetta er karakter sem borðar mikið kökur og mjólk. Baddi var maður sem smakkaði á ávöxtunum úti í Bandaríkjunum, sá Elvis og flotta bíla og öðruvísi líf. Meðal annars þess vegna á hann hvergi heima þegar hann snýr aftur, hvorki hér né úti. Hann er ekki vondur maður, ekki ill- menni, en hann er ruglaður og veiklundaður. Karakterinn er Friðriki mjög hugleikinn og við vorum mjög samstiga í að búa hann til. Sagan nær aftur í tímann og við ræddum mikið um rokktímabilið. Málið var ekki að leika ofboðslega stæla heldur nálgast persónuna eins og Marlon Brando í „The Wild One.“ Þetta situr í honum. Hann er bara töffari en er ekki með neina stæla. Ég skoðaði nokkrar kvikmyndir frá þessum tíma eins og hana og kynnti mér aðallega Brando. Horfði á „Grease“ til að sjá öfgana í hina áttina þar sem stælarnir eru allir á yfirborðinu. En sumsé sól- gleraugu, leðuijakki og brilljantín: Eg var að verða vitlaus á þessari hárgreiðslu.“ „Fyrír mér var enginn Baddi til nema Balti, “ segir Fríðrík Þór. „Ég hefði líklega faríð út í amatör ef ég hefði misst hann. Ég hefði held- ur aldrei gert þessa mynd án Gísla Halldórssonar. Leikaramir eru framar í þessari mynd en öðrum myndum mínum. Éghefoft spilað á landslag sem umgjörð en nú eru leikararnir settir framar í mynd- flötinn. Vægi þeirra og frammi- staða skapa myndina. Hún veltur á leik og ég er mjög ánægður með útkomuna." Óskar Jónasson leikstjóri og galdramaður fer með hlutverk eins af vinum Badda, Lúí Lúí. „Það var mjög gaman að leika í Djöflaeyj- unni. Eg fékk ágætis týpu að kljást við, gegnsýrðan skíthæl, aumingja og fant. Það er alltaf skemmti- FÓLKIÐ í Karolínubragga fylgist með hamförum Hreggviðs sterka í Thulekampi. legra að leika skíthælana en góða fólkið. Ég hafði lesið sögurnar í den tíð og fletti aftur uppá köflun- um þar sem persónan kemur við sögu. Þannig hefur maður góðan bakgrunn og hann staðfesti þá stefnu að Lúí Lúí ætti að vera algjör skíthæll og vesalingur. Það var létt mál að leika hann. Persón- an stendur mér glettilega nærri: Ég sýð ýmis karaktereinkenni úr ættingjum og kunningjum saman í einn graut. Eg ætla ekki að nefna nein nöfn. Svo var ágætlega nota- legt að geta mætt á tökustað og látið segja mér fyrir verkum en skipa ekki öðrum fyrir. Friðrik leyfði okkur að fíflast eins og við vildum. Hann sá um að segja brandarana. Ég held að Friðrik sjái til þess að undirbúningurinn og vinnan fari fram annars staðar en á tökustað." Hlutverk fjárhundsins „Ég reyni að hafa fjaríægð á milli mín og leikaranna,“ segir Friðrik Þór. „Það er munurínn á sviðsleikstjóra og kvikmyndaleik- stjóra. Leikstjórinn er alltaf ofan í leikurunum í leikhúsinu. Starf kvikmyndaleikstjórans verður eins og hlutverk fjárhundsins. Ef ein kindin skilur sig frá hjörðinni eða styggð kemur að hjörðinni, róa ég hana og leiðrétti. Ég treysti alveg gáfum leikaranna og vel þá eftir gáfum. Ég er líka með mjöggóðan aðstoðaríeikstjóra, Maríu Sigurð- ardóttur, sem kemur úr leikhúsi og þeir leikarar sem finna til ör- yggisleysis geta þá leitað til. Eins ogLars von Tríer segir: Leikararn- ir byrja á að leita ráða hjá þér en fá engin ráð og gefast upp á að ná sambandi við þig. Þá gefa þeir þér besta leikinn. Hin vinnubrögð- in birtast á tjaldinu í tilgerðaríeg- um leik og stundum ofvinnslu. “ „Sumum finnst hann kannski of rólegur leikstjóri,“ segir Magnús Ólafsson sem leikur Hreggvið sterka, kúluvarparann sem svindlar á heimsmetinu. „Friðrik Þór er ekki að leikstýra mönnum til að fólk haldi að hann sé að vinna ofsa mikið. Þetta er oft spurning um val á leikurum og svo að beina þeim á rétta braut. Ég hitti Einar Kárason fyrir tveimur eða þremur árum og skáldið sagði við mig og þeir Friðrik Þór báðir að það kæmi enginn annar til greina í þetta hlut- verk en ég. Ég vissi alltaf að von var á þessu og notaði það sem afsökun að ég átti að leika Hreggv- ið og mátti ekki breyta matarvenj- um mínum. Ég hefði ekki viljað vera í sporum þessa manns. Hann er aumkunarverður, áfengið er búið að skemma hann mikið. Hann er mikill skapmaður og lætur það bitna á fjölskyldunni og sínum nán- ustu. Svo er hann alger engill þess á milli. Það var mjög gaman að stemmningunni í kringum atriðin á Melavellinum. Ég var sjálfur stráklingur á þessum tíma og var á vellinum og það var ótrúlegt hvað þeir gátu náð þessari stemmn- ingu og tíðaranda með Þjóðminja- safnið í bakgrunni. Maður fann fyrir því að maður var að fara inní eitthvert alvöru verkefni sem er alltof sjaldan á Íslandi.“ Blokkin Hreggviösbraggi: Hreggviður, Gréta, Hveragerbur Karólínubraggi: Karólína, Tommi, Gógó, Dollí, Grettir, Baddi, Danni Fangar Djöflaeyjunnar PERSÓNURNAR í bíómyndinni Djöflaeyjunni eru margar og fjölbreytilegar. Einar Kárason höfundur bókanna um fólkið í Thulekampinum segir frá tilurð þeirra og tilvist „ÉG VEIT nú ekki hvað ég get verið að lýsa þessu liði mikið,“ segir Einar Kárason rithöfundur um braggafólkið sitt. „Fyrir ára- tug eða svo hjálpaði ég strák í menntaskóla með ritgerð sem átti að vera um persónulýsingar í braggasögunum. Við settumst niður og skrifuðum ritgerðina í sameiningu en hann fékk algera falleinkunn fyrir hana, tvo held ég, og með þeim athugasemdum frá kennaranum að hann léti ekki bjóða sér svona þvaður framar." Karólína og Tommi Engu að síður veit Einar mest um persónurnar í Djöflaeyjunni og við settumst niður og ræddum heila galleríið, tilurð þeirra og tilvist. „Karólína spákona er hluti af þessari spákellingatradisjón sem er mikið fyrir bí. Kveikjan að henni er ákveðin spákona úr braggahverfi vestur í bæ. Það var manneskja sem ég þekkti ekki neitt og sá aldrei og er ekki að skrifa um. Karólina er sterk persóna sem gín yfir fjölskyldu sinni og deilir og drottnar. Þegar ég var að byrja að skrifa Þar sem Djöflaeyjan rís las ég Hundrað ára einsemd eftir Gabriel Garcia Marquez og brá dálítið því hann er með sama kerfi, ein kerling ævaforn er hrygglengjan í sögu margra kynslóða." Tommi er maðurinn hennar. „Hann gerir ekkert nema vinna fyrir fjölskyidunni sem þykir ómerkileg rulla. Gagnrýnendur hafa séð í honum tákn fyrir hinn vinnandi mann. Hann er for- . Morgunblaðið/Ásdls BÓBÓ þakkaði mér fyrir að gera sig frægan; Einar Kárason rit- höfundur á tökustað sl. vetur með Guðmundi Ólafssyni, sem leik- ur Gretti, uppáhaldspersónu Einars í braggasögunum. smáður og afskiptur, en það var ekki þaulhugsað þannig af minni hálfu. Tommi hefur líka ambi- sjónir fyrir hönd hverfisins. Þar fara menn í hundana og leiðast út i afbrot en hann vil beina mönnum á rétta braut. Hann fær Hreggvið til að æfa aftur kúlu- varp og hjálpar Gijóna vini Badda, en eins og er með marga góðviljaða hugsjónamenn er lítið mark tekið á honum.“ Baddi Uppáhaldsbarnið á heimilinu er dóttursonur Karólínu, Baddi. „Menn hafa talið sig vita að ógæfumaðurinn Bóbó á Holtinu sé fyrirmynd Badda og það er rétt að útlínurnar í þeirra ævi Sveinn Geirsson leikur Danna bróður Badda og hann segir að það hafi komið sér á óvart hve allt var vel skipulagt og gekk smurt eins og hann tekur til orða. „Þetta var miklu tilkomumeira en ég hafði gert mér í hugarlund.“ Sveinn útskrifaðist úr Leiklistar- skólanum vorið 1995 og hafði heyrt að hann kæmi til álita í hlut- verk Danna, sem aldrei fær neitt af því sem dekurbarnið Baddi fær en finnur skjól hjá Tomma. Friðrik Þór hafði svo samband við Svein og um jólaleytið var hann ráðinn í myndina. Pálínu Jónsdóttur, sem leikur Hveragerði er fellur fyrir töffaranum Badda, var áður boðið hlutverk í Á köldum klaka en hafði ekki tækifæri til að leika í henni. Hún segist heppin að hafa verið með í Djöflaeyjunni. „Það var stór- kostleg upplifun að koma út á nesið,“ segir hún, „og ég lít til þessa tímabils með miklum sökn- uði. Þar var valinn maður í hveiju rúmi og mikil fagmennska í fyrir- rúmi, leikmyndin góð og skemmti- legt fólk að vinna með og mikið um að vera.“ Utangarðsmenn Eitt af yrkisefnum Friðriks Þórs í gegnum tíðina er fólk sem er utangarðs í samfélaginu og sög- urnar af braggafólkinu virðist koma í beinu framhaldi þess. Hann jánkar því. „Braggahverfið passar vel inní þetta. Mér var bent á það í pallborðsumræðum á Edinborg- arhátíðinni að ég værí líka alltaf að fjalla um brostin fjölskyldu- bönd. Éghafði ekki gert mérgrein fyrír því en það er alveg til íþessu. Ég hef alltaf verið hrifinn af utan- garðsmanninum og hann er líka í heimildarmyndunum mínum; Hall- björn ogpönkararnir. Égerhrifinn af hrópi hans, hvernig hann nær athygli í þjóðfélaginu. Það er eng- in tilviljun að þegar við Einar ákváðum að gera þessa kvikmynd vorum við að vinna handrítið að Skyttunum. Persónur þeirrar myndar eru af sama meiði. Það er áhugaverðara, fólkið, sem er ekki eins og fólk er flest. Samt er núna kannski meiri áhugi hjá mér að gera mynd um algeríega venjulegt fólk. Næsta mynd verður byggð á sögu Einars Más Guð- mundssonar, Englum alheimsins, sem fjallar um geðsjúkling oggeð- sjúklingar eru kannski mestu ut- angarðsmenn sem til eru. En mig langar að gera mynd um alveg rosalega venjulegt fólk.“ Ari Kristinsson og Friðrik Þór eru samskonar. Bóbó var líka alinn upp af ömmu sinni, fór til Ameríku á rokkárunum og kom heim sem helsti töffari bæjarins en spilaði illa úr því. Ég held að þegar spurðist út að Bóbó væri fyrirmynd Badda hafi frægðar- sól hans fyrst farið að skína. Ég kynntist honum aðeins og þegar ég hitti hann þakkaði hann mér fyrir hvað ég hafði gert hann frægan. Nú vildu allir rétta hon- um 500 kall og rifja upp með honum hvað þeir höfðu gert margt skemmtilegt í gamla daga. Það er til helvíti góð saga um fyrirmyndina Bóbó og söguper- sónuna Badda. Þegar Djöflaeyj- an ris var sett upp í Skemmunni á vegum Leikfélags Reykjavíkur var náð í Bóbó og hann fenginn til að sitja á sýningu. Eftirá var honum boðið baksviðs og leikar- arnir voru mjög spenntir að heyra viðbrögðin. Þegar Bóbó birtist vatt hann sér strax að söngvaranum Bödda Billó og sagði: Helvíti náðirðu mér vel maður.“ Bróðir Badda er Danni. „Hann er Hinn í bókunum og þar er farið nær honum en í myndinni. Hann líður fyrir að falla alltaf í skuggann af bróður sínum. Hann er uppburðarminni lengi vel en

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.