Morgunblaðið - 06.10.1996, Blaðsíða 8
8 E SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1996
KSI
MORGUNBLAÐIÐ - AUGLÝSING
HÉR að ofan má sjá teikningu af nýju stúkunni, eins hún sést úr gömlu stúkunni og á neöri teikingunnl má sjá hvernig hún liggur á Laugardalsvellinum.
KSÍyfirtekurframkvæmdirog rekstur Laugardalsvallar
Ný yfirbyggð
stúíca fyrir 3.500
áhorfendur
L
Grunnm'^id" M.1:500
„MÖRG spennandi verkefni eru framundan hjá okkur á knattspyrnu-
vellinum og einnig erum við byrjaðir að glíma við spennandi verk-
efni við framkvæmdir á Laugardalsvellinum, að endurbæta alla að-
stöðu þar,“ sagði Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusam-
bands Islands. KSÍ mun yfírtaka rekstur vallarins 1. janúar og sjá
um þann rekstur næstu 15 árin. Reykjavíkurborg og KSÍ gerðu sam-
komulag um yfirtöku KSÍ á rekstrinum 3. júní I sumar.
Eggert sagði að fljótlega hefjist
framkvæmdir við nýja yfirbyggða
stúku fyrir 3.500 áhorfendur. „Þá
verða bekkimir teknir úr gömlu
stúkunni og gert verður við hana.
Eftir þær framkvæmdir verður kom-
ið fyrir nýjum sætum fyrir allt að
3.500 manns í núverandi stúku. Þá
verður allt tekið í gegn undir gömlu
stúkunni, búningsherbergi, böð og
annað. Frjálsíþróttaaðstaðan verður
lagfærð í Baldurshaga. Við munum
reisa stóra tölvuklukku við norðu-
renda Laugardalsvallar, upplýsinga-
töflu fyrir knattspymu og fijáls-
íþróttir.
Við ætlum að ljúka þessum fram-
kvæmdum fyrir 1. júní á næsta ári
eða fyrir leik okkar gegn Litháen
í heimsmeistarakeppninni 11. júní.
Þá eiga sjö þúsund áhorfendur að
komast í sæti,“ sagði Eggert.
Eftir að alþjóða knattspymusam-
bandið, FIFA, herti kröfur um ör-
yggi á knattspyrnuvöllum 1989, lá
fyrir að nauðsyniegt yrði að ráðast
í umfangsmiklar framkvæmdir á
áhorfendaaðstæðum Laugardal-
svallar en einungis er heimilt að
selja í sæti á leikjum í heimsmeist-
arakeppni og Evrópukeppni lands-
liða. Frá og með árinu 1998 verða
þessar reglur teknar upp fyrir Evr-
ópukeppni félagsliða.
„Við höfum lengi barist fyrir
endurbótum á Laugardalsvelli, eða
síðan undankeppni heimsmeistara-
keppninnar 1992 hófst. Þessari bar-
áttu er nú lokið. Nú
er það okkar að bretta
upp ermamar og hefja
framkvæmdir. Fram-
tíðarsýn okkar er að
loka vellinum, þannig
að áhorfendastúka
verði allan hringinn.
Með því væri komið
gott skjól fyrir veðri
og vindum. Þegar
verkinu er lokið emm
við komnir með glæsi-
legan keppnisvöllur
fyrir knattspymu-
menn og frjálsíþrótta-
menn, sem tekur tíu
til tólf þúsund áhorf-
EGQERT Magnússon,
formaður KSÍ
endur í sæti. Einnig em
möguleikar á að vera
með ýmsar aðrar uppá-
komur á Laugardals-
vellinum, eins og til
dæmis tónleika," sagði
Eggert.
KSI heldur upp á 50
ára afmæli sitt á næsta
ári. Margir góðir gestir
koma þá í heimsókn,
eins og EM-meistarar
Þjóðverja og hér á landi
fer fram sextán liða
úrslitakeppni í Evrópu-
keppni unglingalandsl-
iða, skipað Ieikmönnum
18 ára og yngri.
íþróttadeild
Samvinnuferða Landsýnar
BRUSSEL
25. okt.-27 okt.
Verð 25.470 kr. staðgreitt á mann í tvíbýli
Innifalið er flug, flugvallarskattur, ferðir til og frá
flugvelli og fyrsta flokks hótel.
Möguleiki að sjá:
PSV Eindhoven - Roda JC
Vhesse- Ajax
■Miðar hafa ekki verið teknir frá.
LONDON
21. nóv. - 24. nóv.
FERÐ 1
Arsenal-Tottenham
Verð 39.800 kr.
staðgreitt á mann
í tvíbýli.lnnifalið er fiug, flug-
vallarskattur, ferðir tíl og frá
flugvelli, gisting,míðiáleik-
inn og fararstjóm.
FERÐ2
Arsenal-Tottenham
Chelsea - Newcastle
Verð 44.650 kr.
staftgreitt á mann
í tvibýli. Innifalið er flug,
flugvallarskattur, ferðfr til
og frá flugvelli, gisting, mið-
ar á leikina og fararstjórn.
MANCHESTER
Dagsferð 12. október
Everton - West Ham
Verð 16.300 kr. staðgrertt.
innrfalið er flug, flugvallarskattur, ferðir til
og frá Liverpool, miði á leikinn og fararstjórn.
Vid sjáum um að skipu-
leggja allar íþrottaf eré-
ir, fyrir þa sem hafa hug
á aó sjá kappleiki, eóa
þásemeru aéfarai
keppnis- og
æfiwgaferðir.
Hópferð til Dublin: Irland - Island 10. nóvember