Morgunblaðið - 08.10.1996, Blaðsíða 1
Vinningar
Vinníngar
3 af 6
+ bónus
Samtals:
KNATTSPYRNA
UPPLÝSINGAR
*Fyrsti vírmmgar í íotícmu g UwgattS&Q-
' mn va/ sefdur ? Soíutu-mmöin Qrtá-f-'
víð Snorra'oratíí > Re/<:s . •>-. Bonas--
vinnmgarnir voru seitíir á e-ft;rfsfanc::
stöðum: Á stC'ðinr.: vió <-•*
veg í Hafnarfíróí, Aóalsíöðmn ;
Grindayík. Happahúsinu. Kr]ngPjr/r;l
Sofutumínum í Gtæ-si-bæ og. 'Sö&tfvm-
tmjfn Hó-igggrð-' > Bs,yy >.&• .'•>.
1996
ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER
BLAÐ
Lærum
vonandi
af mis-
tökunum
j íVilníus
Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari,
segir að eftir tapið í Litháen
á laugardag verði leikmenn að snúa
bökum saman og læra af mistökun-
um í Vilníus. „Eg trúi ekki öðru
■y en að leikmenn taki sig saman í
andlitinu og geri betur á móti Rúm-
enum. Það sem skiptir máli er að
læra af því sem aflaga fór á móti
Litháen og að við snúum okkur að
því sem framundan er. Það vita
allir að Rúmenar eru með mjög
sterkt lið - valinn maður í hverri
stöðu. Leikmenn sem eru að spila
í bestu liðum Evrópu og því verður
þetta erfiður leikur.“
„Það hefur oft hentað okkur
p betur að sækja gegn sterkari liðum
! - komast upp að marki andstæð-
’ inganna í fáum sendingum. Við
j komum til með að vetjast aftarlega
á vellinum, á þröngu svæði þannig
að hlaupleiðir leikmanna verði
stuttar. Við þurfum að ráðast á þá
inni á miðjunni og reyna að vinna
boltann og reyna síðan að beita
skyndisóknum. Það er nokkuð ljóst
að við munum ekki beita „há-
pressu" á Rúmena."
„Við sofnuðum á verðinum á
móti Litháen og okkur var refsað
með mörkum. Við létum dæma á
okkur víti þegar engin hætta var
á ferðum og síðan gleymdist að
„dekka“ í hornspyrnu þar sem leik-
maður fékk frían skalla. Meðan lið
eins og Litháen refsar okkur með
tveimur mörkum eftir einbeitingar-
leysi, hvað gera þá Rúmenar?11
„Við förum í leikinn á móti Rúm-
enum af mikilli hörku og ákveðni
og það eru allir staðráðnir í að rétta
úr kútnum og beita til þess öllum
tiltækum ráðum. í öllum þeim
landsleikjum sem ég hef stjórnað
höfum við alltaf skapað okkur færi.
Þetta er því spurning um að nýta
þau færi sem við fáum. Við getum
ekki leyft okkur einbeitingarleysi í
eina einustu mínútu inni á vellin-
um,“ sagði Logi í gær.
■ Vonbrigði / B4
HANDKNATTLEIKUR: ÍSLAND GERÐIJAFNTEFLI í AÞENU / B3
Ekkert hægt að
bóka fyrirfram
Gheorghe Hagi, fyrirliði Rúmena ervarkár
Gheorghe Hagi, einn besti leik-
maður Evrópu, segir að það
sé ekki sjálfgefið að sigra íslend-
inga er þjóðirnar mætast á Laugar-
dalsvelli í undankeppni HM annað
kvöld. Hagi hefur leikið 101 lands-
leik og er fyrirliði liðsins.
„Við getum ekki leyft okkur að
vanmeta íslendinga. Við töpuðum
2:1 á heimavelli fyrir liði Sameinuðu
arabísku furstadæmanna í æfinga-
leik fyrir þremur vikum og þau
úrslit segja okkur að ekkert er
hægt að bóka fyrirfram í knatt-
spyrnunni. Þessi leikur á móti ís-
lendingum er mjög mikilvægur og
ef við ætlum okkur áfram í keppn-
inni þá verðum við að gefa okkur
í verkefnið af fullum krafti. Við
mætum því einbeittir til leiks og
spilum af krafti í 90 mínútur," sagði
Hagi. Leikmenn rúmenska lands-
liðsins neituðu allir sem einn að
ræða við íslenska blaðamenn eftir
æfingu liðsins á Laugardalsvelli í
gærkvöldi, en ummælin að framan
lét Hagi falla við rúmenska blaða-
menn, í flugvél liðsins á leið til
landsins í gærdag. Það kom í beinu
leiguflugi frá Búkarest til Keflavík-
ur.
Gheorghe Popescu, sem leikur
Morgunb!aðið/Ásdís
Kuldalegir í Laugardal
RÚMENSKA landsllðlö æfði í nepjunnl á Laugardalsvelll síðdegis í gær. Gheorghe Hagi, hlnn
frábærl fyrlrliðl llðsins og frægasti leikmaður þess, er lengst til vinstri á myndinni. Til hægri
er llie Dumltrescu, framherjinn snjalli sem leikur nú með West Ham í ensku úrvalsdeildinnl.
með Barcelona, stjórnar varnarleik
liðsins. Hann sagði að öll lið í und-
ankeppni HM væru erfið viðfangs.
„Við erum með gott og reynslumik-
ið lið, en það segir ekki allt ef leik-
menn eru ekki tilbúnir að gefa allt
sitt í leikinn. íslendingar hafa náð
góðum úrslitum á móti sterkum lið-
um og því þurfum við að taka þá
alvarlega. Þetta verður leikur
tveggja liða sem hafa ólíkan leik-
stíl. Islendingar eru líkamlega
sterkir og baráttuglaðir en við erum
aftur á móti með leikmenn sem
hafa meiri tækni og léttleika," sagði
Popescu, á leiðinni til íslands.
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
05.10.1996
Fjöldi
vinninga
Vinnings-
upphæð
18.016.290
235.040
254
7.980
8.632
540
8.892
25.879.690
02.10.1996
L2J
bónus
Fjöldi
vinninga
265
746
1.016
Vinnings-
upphæð
44.580.000
596.746
61.940
1.480
220
45.980.826
Vertu viðbúín(n) vinningi
m/klís að=
1. vinningur «r áætlaður 40 milijonir kr
I-