Morgunblaðið - 08.10.1996, Side 1

Morgunblaðið - 08.10.1996, Side 1
_____ . ______ • MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 8. október 1996 Blað C Gamlir torfbæir Ekki er ýkja langt síðan hætt var að búa í torfbæjum hér á landi. Þá lagðist af merkur kafli húsagerðar hér, segir Bjarni Olafsson í þættinum Smiðjan, en þar fjallar hann m. a. um gamla bæinn á Glaumbæ í Skagafirði. / 13 ► Eftirlit og viðhald LAGNAKERFI margra húsa, sem eru orðin 20-30 ára, hafa aldrei verið yfirfarin, segir Sig- urður Grétar Guðmundsson í þættinuin Lagnafréttir. Margir gera sér ekki grein fyrir, að eftirlit og viðhald eru bezta for- vörnin. / 20 ► Borgar- kringlan breytist UMFANGSMIKLAR breytingar standa nú yfír á Borgarkringl- unni. Byggð verður 7000 rúm- metra viðbýgging fyrir kvik- myndahús með þremur sýning- arsölum og sætaplássi fyrir 700 manns. Öll ásýnd hússins breytist og Borgarkringlan hættir að vera sjálfstæð bygging, en verður hluti af Kringlunni og opnast bæði til austurs og norðurs fyrir fólksumferð það- an. Ný klæðning verður sett á bygginguna að utan og þar valin sömu efni og litir og not- aðir eru í Kringlunni. Nýr að- alinngangur verður settur á norðurhliðina, en inngangur- inn á vesturhliðinni hverfur. Um leið verða gerðar mikl- ar breytingar á innganginum, sein snýr út að torginu á milli Borgarkringlunnar og Kringl- unnar, en þar eiga bygging- arnar að tengjast saman undir yfirbyggðu þaki. Bflastæði Borgarkringlunn- ar verða sameinuð bflastæðum Kringlunnar og miklar breyt- ingar verða einnig á bygg- ingunni að innan. Skipt verður um gólfefni og efri hæðin verður aðallega afþreyingar- hæð. Mikill hraði einkennir þess- ar framkvæmdir, en áformað er að taka bygginguna í notk- un á ný í næsta mánuði og opna bíóið með sýningu á ann- aníjólum. /16^ Vaxandi hlutverk Rannsóknastofnunar hyggingariðnaðarins ÓVÍÐA skiptir byggingariðnaðurinn jafn miklu máli og hér á landi og þá ekki sízt vegna þess, að hér hefur allt þurft að byggja nánast frá grunni á þessari öld og þó einkum og sér í lagi eftir síðustu heimsstyrjöld. Þannig eru um 80% af öllum húsum í landinu byggð á seinni hluta þessarar aldar. Sem frekari kennitölur um mikil- vægi byggingariðnaðarins hér á landi má nefna, að um um 80% af þjóðarauðnum liggja í mannvirkjum. Ai'leg fjármunamyndun hér á landi er um 50 milljarðar kr., þar af eru 20 milljarðar í húsum og yfir 60% af ár- legri fjárfestingu er í mannvirkja- gerð. Af þessum tölum má sjá, að byggingariðnaðurinn hefur afger- andi áhrif á lífskjör og afkomu fólks í landinu. Til þess að annast rannsóknir á þessu mikilvæga sviði, var Rann- sóknastofnun byggingariðnaðarins sett á fót 1965 og var hún því þrítug á síðasta ári. Stofnuninni hefur vax- ið fiskur um hrygg. I byrjun störf- uðu hjá henni 3 menn, en nú eru þeir 45. Kröfur til stofnunarinnar hafa aukizt verulega, ekki sízt vegna þess, að hún hefur skilað mikilvægum ár- angi'i í starfsemi sinni. Rannsókna- verkefni eru um það bil 30% af starf- seminni og kröfur eru gerðar um, að þær séu að verulegu leyti fjármagn- aðar af utanaðkomandi aðilum. A stöplaritinu hér til hliðar má sjá þróunina í rekstri stofnunarinnar sl. 10 ár. Þar sést hvernig fjárveitingar til hennar á fjárlögum hafa lækkað frá 1988, en sértekjur aukizt, þannig að unnt hefur verið að reka öfluga rannsóknastarfsemi, þrátt fyrir lægi'i fjárveitingar. A síðasta ári var eigið afiafé tæp- lega 70% af veltu, en fjái'veitingar um 30% og tókst að reka stofnuna á sléttu. Rannsóknastofnun /^/^ byggingariðnaðarins Rekstrartölur 1986-1995 Uppreiknaðar með vísitölu vöru og þjónustu, ársmeðaltal 1995 = 438,1 stig □ Gjöld ■ Par af stofnkostnaður D Fjárveiting Miiiiónir ® Sértekjur króna «s^HIutfall sértekna (án stofnkostn.) af veltu /o VIL.TU SKULDBREYTA EÐA STÆKKA VIO ÞIG? Byggðu á Fasteignaláni Skandia Kostir Fasteignalána Skandia Dæmi um mánaðarlegar aíborganir af l .000.000 kr. Fasteignaláni Skandia* Lánstími allt að 25 ár. M‘xtir(%) 10ár 15 ár 25 ár Hagstæð vaxtakjör. 7,0 11.610 8.990 7.070 7,5 11.900 9.270 7.500 Minni greiðslubyrði. 8,0 12.100 9.560 7.700 Stuttur svartími á umsókn. Miðað er við jafngrciðslulán. *Auk vcrðbóta Skandia

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.