Morgunblaðið - 09.10.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.10.1996, Qupperneq 1
1996 fUinrgtmMg&fö ■ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER BLAÐ Logi undirfeldi - á meðan leikmenn hans fóru jil að sjá Djöflaeyjuna LOGI Olafsson, landsliðsþjálfari í knatt- spyrnu, lá undir feldi í gærkvöldi, á sama tíma og leikmenn hans brugöu sér í kvik- myndahús í boði Friðriks Þórs Friðriks- sonar til að sjá Djöflaeyjuna. Logi var ekki endanlega búinn að gera upp við sig hvaða ellefu leikmönnum hann myndi tefla fram í byrjun gegn Rúmeníu. Litlar líkur eru á að Arnór Guðjohnsen geti leik- ið, þar sem hann er meiddur á ökkla. Logi mun tilkynna leikmönnum sínum hvaða ellefu leikmenn byrja leikinn, á fundi fyrir hádegi í dag. Leikurinn gegn Rúmeníu hefst kl. 19 á Laugardalsvellin- um. Útlendingaskipti í Grindavík Myers ístað Jackson GRINDVÍKINGAK hafa ákveð- ið að láta erlenda leikmanninn sinn, John Jackson, sem hefur leikið með þeim að undan- ■■■■ förnu, taka pok- Frímann ann sinn og leik- Ólafsson ur hann ekki skríiar fré meira með þeim Gnndavik að þessu sinni. Þessi ákvörðun var tekin eftir leik Islandsmeistaranna við Keflvíkinga á sunnudaginn var. Þar þótti Jackson ekki standa sig sem skyldi og sú ákvörðun var tekin að láta hannfara. Grindvíkingar hafa þegar tryggt sér leikmann í staðinn og er það enginn annar en Herman Myers sem lék með þeim á siðasta tímabili allt þar til hann meiddist í janúar á þessu ári og varð að hverfa heim. Unnendur körfuknatt- leiks muna að Rodney Dobard leysti hann af hólmi og lék eftirminnilega í úrslitakeppn- inni með Gríndvikingum. „Við höfum verið í sambandi við Myers að undanförnu og þegar ákvörðun var tekin um að láta Jackson fara var hann tilbúinn að koma. Við vorum nýög ánægðir með hann þegar hann var hérna síðast og þótt hann væri ekki með sýningar í leikj- um skilaði hann góðum leik þegar hann náði að komast í æfingu. Með honum vitum við að hveiju við göngum og losn- um við að leita að útlendingi með misjöfnum árangri og að öllu óbreyttu leikur hann með okkur á móti Þór annað kvöld,“ sagði Ólafur Þór Jóhannsson varaformaður körfuknattleiks- deildar Grindavikur. Bayless tilÍA SKAGAMENN hafa fengið bakvörðinn Roland Bayless, sem lék með Val í fyrra, til liðs við sig. Hann kemur í stað Rússans Andre Bondarenko, sem fer á ný heim. KNATTSPYRNA Manchester UnHted fylgist með Lárusi Orra ALEX Ferguson, knattspyrnu- stjóri ensku meistaranna í Man- chester United, hefur látið fylgj- ast með íslenska landsliðsmannin- um Lárusi Orra Sigurðssyni und- anfarið. Ferguson er að leita að vamarmanni og Islendingurinn er einn þeirra sem koma til greina að félagið vilji kaupa. Útsendari frá Manchester United verður meðal áhorfenda á landsleik ís- lands og Rúmeníu í heimsmeist- arakeppninni á Laugardalsvelli í kvöld. Haft er eftir Ferguson á upplýs- ingalínu 1. deildarliðs Stoke City, sem Lárus Orri leikur nú með, að eftir að United hóf leit að sterk- um varnarmanni hafi Ferguson heyrt vel látið af Lárusi Orra og látið fylgjast með honum í tveim- ur síðustu leilqum liðs hans. Á upplýsingalínu Stoke er í gær greint frá óstaðfestum fréttum um söluverð á Lárusi Orra, verði hann seldur. Þar er rætt um allt frá 1 milljón punda til 2,5 milljóna punda; um 100 til 250 milljóna króna. Eins og menn muna þá hafði Newcastle augastað á Lámsi Orra á dögunum. HANDKNATTLEIKUR Félögin standa öll við gerðan samning Morgunblaðið/Golli GUÐMUNDUR Ingvarsson, formaður HSÍ, tekur á móti KA-mönnunum Sigurði Sigurðssyni og Páli Alfreðssyni er þelr komu til fundar í gær út af sjónvarpsmálinu. Formenn allra 1. deildarliðanna tólf mættu til fundar sem HSÍ boðaði til í gær vegna deilna sem risið hafa upp vegna sjónvarpssamn- inga þriggja félaga, Vals, KA og Aftureldingar, við Stöð 2, eftir að HSÍ og Samtök 1. deildarliðanna höfðu gert sjónvarpssamning við RÚV og Stöð 3 um einkarétt stöðv- anna á sýningu frá leikjum allra fé- laga í 1. deild til fjögurra ára. Niður- staða fundarins í gær var sú að umrædd félög samþykktu að standa við samning HSÍ og félaganna við RÚV og Stöð 3. Guðmundur Ingvars- son, formaður HSÍ, sagði við Morg- unblaðið eftir fundinn að ekki væri ástæða til að ætla annað en félögin standi öll við þann samning. Guðmundur sagðist ánægður með niðurstöðu fundarins. „Ég er ánægð- ur með að það skuli vera komin niður- staða í þessu máli og það var ekki annað að sjá en að allir væru sáttir. Nú þurfa menn bara að einbeita sér að því að spila handbolta og hafa gaman af því og vonandi fara fjöl- miðlar að flytja jákvæðar fréttir af handboltanum. Það er búið að þyrla upp nógu miklu ryki í kringum þetta mál.“ Formaður HSÍ sagðist ekki vita hvemig félögin þrjú, sem skrifuðu undir sjónvarpssamninginn við Stöð 2, kæmu til með að rifta honum. „Það er ekki okkar mál og við viljum helst ekkert vita af þeim sjónvarps- samningi. Félögin verða að leysa það sjálf." Eftir að sættir náðust á fundinum í gær var farið í að ákveða skipting- una á þeim fjármunum sem fást fyr- ir samninginn við RÚV og Stöð 3. Skiptingin verður með hefðbundnum hætti og er tengd árangri liðanna. Þau lið sem komast í 8-liða úrslit fá ákveðna upphæð og eins þau lið sem komast í 4-liða úrslit og svo framveg- is, en alls greiða RÚV og Stöð 3 um 13 milljónir króna á samningstíman- um, sem er fjögur ár. Því er um að ræða rúmar 3 milljónir króna á ári. Brynjar Harðarson, formaður handknattleiksdeildar Vals, sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að félögin þijú hefðu í raun ekki átt annan valkost en að samþykkja að standa að baki samningi HSÍ og Samtaka 1. deildarliðanna. „Samkvæmt regl- um HSÍ geta félögin ekki ein og sér gert sjónvarpssamning frá leikjum í Islandsmótinu. Menn gerðu sér ekki grein fyrir þessu þegar gengið var til samninga við Stöð 2. Liðin þrjú höfðu öll ákveðna ástæðu til að leita annað. Við vorum óánægðir með þá skiptingu sem stefndi í og því var farið í að semja við Stöð 2,“ sagði Brynjar. Forráðamenn Vals, KA og Aftur- eldingar funduðu í gær með fulltrú- um Stöðvar 2 og Sýnar um riftun samningsins sem þeir gerðu við þau fyrirtæki. Ekki náðist endanleg nið- urstaða og þyí óljóst hvert framhald- ið verður varðandi samning félag- anna við stöðvamar. Valtýr Björn Valtýsson, íþróttastjóri á Stöð 2, sagðist ekki reikna með að íslenska útvarpsfélagið setti félögunum stól- inn fyrir dyrnar varðandi samninginn sem gerður var. „Við ætluðum með þessum samningi að koma með nýja vídd inn í handboltann. Við viljum veg handboltans sem mestan og þetta var leið til þess. Félögin verða að ráða því hvað þau gera. Það er nokkuð ljóst að samningarnir geta ekki gengið báðir á sama tíma,“ sagði Valtýr Björn. VIÐTÖLVIÐ RÚMEIMSKU STJÖRIMURIMAR HAGIOG POPESCU / D2f D3

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.