Morgunblaðið - 10.10.1996, Side 1

Morgunblaðið - 10.10.1996, Side 1
80 SIÐUR B/C 231. TBL. 84. ÁRG. FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS John Bruton, forsætisráðherra Ir- lands, fordæmir tilræði IRA Árásinni líkt við aðferðir nasista Sögð hafa verið tilraun til fjöldamorðs Belfast. Reuter. JOHN Bruton, forsætisráðherra írlands, fór í gær hörðum orðum um írska lýðveldisherinn (IRA) og líkti sprengjutiiræðinu á Norður- írlandi á mánudag við aðferðir nasista og fasista fyrir síðari heimsstyijöldina. Bruton lýsti tilræði IRA í breskri herstöð í Lisburn, nálægt Belfast, sem „napurlegum svikum af hálfu IRA við friðarferlið“. „Þetta er í samræmi við hefð- bundnar aðferðir þjóðernissósíal- ista og fasista á þriðja og fjórða áratugnum." írski lýðveldisherinn lýsti til- ræðinu á hendur sér og krafðist þess að Bretar féllust á að Sinn Fein, stjómmálaflokkur IRA, fengi að taka þátt í friðarviðræðum í Belfast án þess skilyrðis að sam- tökin samþykktu afvopnun eða lýstu yfir vopnahléi. Þetta var fyrsta sprengjutilræði IRA á Norð- ur-írlandi í tvö ár og óttast er að árásin leiði til vítahrings hryðju- verka grípi sambandssinnar úr röðum mótmælenda til hefndarað- gerða. „Tilraun til fjöldamorðs“ Derek Martindale, rannsóknar- lögreglustjóri í Belfast, sagði að IRA hefði líklega hafið skipulagn- ingu tilræðisins fyrir a.m.k. fjórum mánuðum, þegar friðarviðræðurn- ar voru að hefjast að tilhlutan stjómvalda í Bretlandi og á ír- landi. „í mínum huga leikur eng- inn vafi á því að þetta var vísvit- andi tilraun til fjöldamorðs." Sprengjur sprungu í tveimur bílum í herstöðinni með 20 mín- 'útna millibili og síðari sprengjunni virtist hafa verið ætlað að springa meðan verið væri að flytja hina særðu á sjúkrahús. „Þeir lögðu bílunum þannig að sprengjurnar yllu sem mestu manntjóni,“ bætti Martindale við. Reuter DEREK Martindale, rannsóknarlögreglustjóri í Belfast, heldur á mynd af manni sem grunaður er um að hafa tekið þátt í sprengjutilræðinu í Lisbum. Breski Ihalds- flokkurinn Þrengt að verkaiýðs- félögnm Bournemouth. Reuter. IAN Lang, viðskipta- og iðnað- arráðherra Bretlands, tilkynnti í gær, að sett yrðu lög, sem heimila fólki, sem verður fyrir skaða af völdum verkfalla, að höfða skaðabótamál á hendur viðkomandi verkalýðsfélagi. Það er þó háð því, að viðkom- andi verkalýðsfélag hafi einka- rétt á sínu sviði og á því fyrst og fremst við ýmis félög opin- berra starfsmanna. „Ef verkalýðsfélög hyggjast fara út fyrir það, sem kallast má eðlileg mótmæli, og beita fyrir sig einkarétti á viðkom- andi starfssviði, þá verða þau látin svara til saka,“ sagði Lang á þingi breska íhaldsflokksins í Bournemouth í gær. Alan Johnson, formaður í félagi starfsmanna í fjarskipta- iðnaði, sagði í gær í viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC, að ríkisstjórnin stefndi augljóslega að því að útmála ákveðnar starfsstéttir sem þjóðaróvini í augum almennings. Með fyrir- huguðum lögum væri einfald- lega verið að banna verkföll í mikilvægum, opinberum þjón- ustugreinum. Johnson hefur hvatt til nokkurra eins dags verkfalla á þessu ári. ■ Major á flokksþingi/22 Liðsmenn Talebana hörfa fyrir Masood Kabúl. Reuter. TALSMENN Taleban-hreyfmgar- innar í Afganistan sögðu í gær, að tekist hefði að stöðva gagnsókn Ahmad Shah Masoods og hermanna hans en ljóst virðist, að Talebanar hafa orðið fyrir miklu mannfalli. Forseti Afganistans, sem flúði Kabúl þegar Talebanar tóku borgina, hvatti í gær til, að stríðandi fylkingar í FYRSTU 250 bandarísku her- mennirnir fóru frá Bosníu í gær eftir að hafa verið þar við friðar- gæslu í tæpt ár. Verða þeir flutt- ir burt í flokkum á tveggja eða þriggja daga fresti en alls eru bandarísku hermennirnir í Bosn- landinu settust að samningaborði. Vestrænir hjálparstarfsmenn hafa það eftir vitnum, að Talebanar hafi flutt hundruð líka frá vígvellin- um í Salang-skarði en einn herfor- ingja Masoods hefur gert árásir á Talebanaherinn frá landsvæði, sem herstjórinn Abdul Rashid Dostum ræður. Virðist það benda til, að íu 15.000 talsins. Umboð IFOR eða alþjóðlega gæsluliðsins í land- inu rennur út 20. desember en NATO vinnur að því, að þar verði haldið uppi gæslu áfram. Hér er hluti liðsins að fara yfir brú á landamærum Bosníu og Króatíu. Masood og Dostum hafi snúið bök- um saman gegn Taleban. Yirmaður Talebanahersins í Sal- ang-skarði sagði í gær, að hann hefði haldið velli þrátt fyrir ákafa bardaga en höfuðstöðvar hersins eru þó 20 km sunnar en þegar sóknin gegn Masood hófst. Bandalag Dostums og Masoods Dostum, sem ræður sex af 33 héruðum Afganistans, sagði í gær, að Masood kæmi til fundar við sig síðar þá um daginn eða í dag og er búist við, að þeir muni standa saman gegn Taleban-hreyfíngunni þótt þeir hafi áður verið fjandmenn.' Burhanuddin Rabbani, forseti Afg- anistans, skoraði í gær á fjand- mannafylkingarnar í landinu að setjast að samningaborði og stingur það í stúf við herskáar yfirlýsingar hans á mánudag. Talið er, að ástæð- an sé sú, að Dostum telji sig ekki hafa neina þörf fyrir Rabbani. Stjórn Talebana í Kabúl, sem hefur verið fordæmd víða fyrir kúg- un sína á konum, tilkynnti í gær, að nefnd manna yrði send til ná- grannaríkjanna og til Vesturlanda til að eyða þeim misskilningi, að Talebanar træðu á réttindum kvenna. Talsmaður Alþjóða Rauða krossins sagði í gær, að hermenn Talebana hefðu ráðist á fulltrúa samtakanna í Kabúl aðfaranótt þriðjudagsins. Hefði hann verið bar- inn og síðan fangelsaður en látinn laus daginn eftir illa á sig kominn. Burt frá Bosníu Reuter Deilt um Hebron Vilja land- nemaburt Ramallah, Jerúsalem. Reuter. AÐ ALS AMNIN G AM AÐUR Pal- estínumanna í samningaviðræðum við ísraela, sagði í gær að þeir síðarnefndu gætu leyst þann hnút sem umræður um brottflutning ísraelska hersins frá Hebron væru komnar f, með því að fallast á að flytja um 400 landnema frá borg- inni og til nálægrar landnema- byggðar. Benjamin Netanyahu forsætis- ráðherra hefur enn ekki svarað þessum tilmælum Palestínumanna en talið er fullvíst að hann sé þeim andvígur. Hann heldur því fram að gyðingar hafi sögulegan rétt til að búa í Hebron því að þar hafi Abraham hafi verið borinn til graf- ar og þar hafi elsta gyðingasamfé- lag heims verið. Mordechai varar Sýrlendinga við Varnarmálaráðherra ísraels, Yitzhak Mordechai, varaði Sýr- lendinga í gær við því að hefja stríð á hendur ísrael en ráðherrann lét þessi orð falla í heimsókn sinni til stöðva ísraelshers við Gólan- hæðir. Sýrlendingar hafa krafist þess að Israelar láti hæðirnar eftir og kalli herlið sitt þaðan. Stjórn Net- anyahus hefur hins vegar þvertek- ið fyrir að semja um frið gegn því að láta land af hendi. ■ Sharon segir/20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.