Morgunblaðið - 10.10.1996, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
Þvert
á vilja
skálds-
ins
ÓSKIR skáldsins hefðu vart
getað verið skýrari. „Ég bið þig
einlæglega að að halda þeim
fyrir þig og sjá til þess að þau
verði aldrei birt.“ Þetta var
árið 1922 og skáldið var T.S.
Eliot sem seldi kunningja sín-
um bók með ljóðum sem höfðu
aldrei birst. Nú, 74 árum síðar,
eru ljóðin komin fyrir almenn-
ingssjónir en ekki eru allir á
eitt sáttir um útgáfuna, sem
hlýtur að teljast þvert á vilja
skáldsins, sem lést árið 1964.
Eliot hefur
líklega litið á
ljóðin sem
nokkurs kon-
ar bemsku-
brek, en þau
eru af ýmsum
toga. Nokkur
þeirra eru
klámfengin,
m.a. berorðar lýsingar á sjó-
ferðum Kristófers Kólumbusar,
í öðrum fer skáldið niðrandi
orðum um svertingja. Tvö ljóð-
anna eru á frönsku, í sumum
tilfellum er aðeins um brot úr
ljóðum að ræða og einnig er
að finna uppkast að nokkrum
af þekktustu ljóðum hans, t.d.
„Ástarsöng J. Alfred
Prufrock". Áhugamenn um ljóð
Eliots munu einnig þekkja ein-
staka setningar úr seinni ljóð-
um skáldsins. Ljóðin eru um
fjörutíu talsins, samin á árun-
um 1909-1917.
Ósk Eliots um að ljóðin yrðu
ekki birt var að mestu leyti
virt í sjö áratugi. Handritið að
ljóðunum skaut upp kollinum á
bókasafni í New York seint á
sjöunda áratugnum. Frá þeim
tíma hefur fræðimönnum verið
heimilt að lesa ljóðin og vísa
til þeirra en ekki að vitna beint
í þau.
„Ekki þess virði að
lesa þau“
Ýmsir hafa lýst óánægju
sinni með útgáfu ljóða Eliots.
Einn þeirra er Anthony Julius,
sem nýverið gaf út ævisögu
Eliots, þar sem hann segir
skáldið hafa verið gyðingahat-
ara. Julius segir ljóðin ekki
þess virði að lesa þau, þau „ýti
á afar barnalegan hátt undir
hugmyndir kynþáttahatara um
kynferðislega yfirburði
svartra."
Skáldið Craig Raine segir
hins vegar enga ástæðu til að
kippa sér upp við útgáfuna.
Fólk sem sé uppi á tímum kvik-
mynda Tarantinos eigi ekki að
þykjast hneyksiað á fáeinum
klúrum ljóðum. Þau dragi ein-
faldlega fram mannlega hlið
Eiiots.
Christopher Ricks, gagnrýn-
andi og prófessor í ensku við
háskólann í Boston, sem rit-
stýrði útgáfunni, bendir enn-
fremur á að oft hafi ljóð og
önnur verk skálda og rithöf-
unda, sem aldrei hafí verið
ætluð til birtingar, verið gefin
út að þeim látnum. Vilji skáld
ekki að verk þeirra verði birt,
eyðileggi þeir þau. Þá hefur
verið bent á að Valerie, ekkja
Eliots, sem hefur látið sig allar
útgáfur og smábreytingar á
verkum hans varða, gaf leyfí
fyrir þessari útgáfu fyrir
nokkrum árum.
Byggt á International Herald
Tribune.
T.S. Eliot
LISTIR_________
Ormstunga vekur
áhuga erlendis
LEIKVERKIÐ Ormstunga, sem
sýnt hefur verið í Skemmtihúsinu
undanfama tvo mánuði, hefur
vakið áhuga erlendis.
í frétt frá Skemmtihúsinu segir,
að réttur til uppsetningar á verk-
inu hafi verið seldur til Svíþjóðar,
fyrirspumir hafí borizt frá norska
ríkissjónvarpinu og í Japan er
áhugi á að sýna verkið á víkinga-
hátíð, sem haldin verður næsta
sumar í tilefni af opnun Disney-
heims skemmtigarðs í Tokyo.
Skemmtihús Brynju Benedikts-
dóttur og Erlings Gíslasonar var
vígt í júlílok með tveggja manna
spunaverki unnu upp úr Gunn-
laugs sögu Ormstungu og flutt af
Benedikt Erlingssyni og Halldóru
Geirharðsdóttur í leikstjóm Peter
Engkvist.
Ormstunga hefur verið sýnt við
mjög góða aðsókn og er 26. sýn-
ingin á föstudaginn.
FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1996 27
Kynnum
haustlitina
í dag og d
morgun.
Glæsileg snyrtitaska
ásamt vöru fylgir
þegar keyptir eru 2
eða fleiri hlutir af
haustlitunum.
Fjöldi annarra
tilboða.
Hamraborg 16 Kóp, sími 564 2011
GE ÞVOTTAVÉL 800 snúninaa kostar kr. 67.900.- TILBOÐ Kr. 54.900.-
GE ÞVOTTAVÉL 1000 snúninqa kostar kr. 74.500.- TILBOÐ Kr. 59.000.
GE ÞVOTTAVÉL 1200 snúninqa kostar kr. 79.900.- TILBOÐ Kr. 65.000.-
GE SAMB. ÞVOTTAVÉL OG ÞURRKARI kostar kr. 103.000.- TILBOÐ Kr. 85,000.-
GE ÞURRKARI 3 kq kostar kr. 29.900.- TILBOÐ Kr. 25.900,-
GE ÞURRKARI 5 ka kostar kr. 43.000.- TILBOÐ Kr. 35,000.-
GE ÞURRKARIÖkq kostar kr. 45.000.- TILBOÐ Kr. 37.000.-
I
/
1 ■ ■
s .