Morgunblaðið - 10.10.1996, Page 1

Morgunblaðið - 10.10.1996, Page 1
ÚTFLUTNINGUR Hvaö er fémætt í framtíöinni?/4 rAðstefnur Fjórðungs fjölgun á gestum /4 JNtagtuiMiiMfe FfARSKIPTl Tangarsókn hjá Telenor/6 VIDSKIPn ATVINNiniF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1996 BLAÐ Bankar AFKOMA viðskiptabanka og sparisjóða varð mun betri á árinu 1995, en árið á undan sem skýr- ist einvörðungu af minni afskrift- um. Hagnaður eftir skatta nam 1.270 milljónum eða 6,4% af eig- in fé. Afskriftir hafa numið sam- tals 32,7 milljörðum á sl. níu ár á verðlagi ársins 1995. 2 Fróði hf. Tap hefur verið á rekstri útgáfu- félagsins Fróða hf. undanfarin fimm ár, að því er fram kemur í íslensku atvinnulífi. Frá árslok- um 1991 hefur eigið fé félagsins lækkað úr 167 milljónum í 74 milljónir. 2 Vatn Islensk fyrirtæki hafa á undan- förnum fimm árum flutt út tæp- lega 19 milljónir lítra af vatni fyrir um 550 milljónir að nú- virði. Áætlað er að á sama tíma nemi heildarkostnaður þeirra vegna taprekstrar, gjaldþrota, markaðs- og kynningarkostnað- ar um 1,9 milljörðum á núvirði, skv. nýrri skýrslu Aflvaka hf. 2 SÖLUGENGI DOLLARS Nokkrar kennitölur lífeyrissjóðanna 1995 t**l Lífeyrissjóður Hrein raun- ávöxtun Höfuðstóll 31.12.95 millj. kr. Kostnaður í % af iðgjöldum Lrfeyris- byrði Lífeyrissj. Arkitektafélags ísl. 9,13 242 9,13 17,10 L. Hlífar og Framtíðarinnar 8,03 3.484 6,74 54,40 Lífeyrissjóður Vesturlands 7,71 3.765 6,92 46,60 L Flugvirkjafélags íslands 7,68 1.258 6,59 76,80 Sameinaði lífeyrissjóðurinn 7,67 17.650 6,51 54,80 Lífeyrissjóður Austuriands 7,33 7.139 7,95 29,00 Lífeyrissjóðurinn Hlíf 7,26 1.379 12,44 37,60 Lífeyrissjóður Norðurlands 7,14 9.492 3,87 39,70 L. Dagsbrúnar og Framsóknar 7,06 11.827 7,51 74,50 Eftirl.sj. slökkviliðsm. á Keflav.v. 7,06 880 1,47 24,70 Lífeyrissjóður verkstjóra 7,05 3.427 4,41 64,20 Lífeyrissjóður matreiðslumanna 6,99 1.114 5,04 17,20 Eftirt.sj. starfsm. Olíuv. ísl. 6,99 498 Lífeyrissjóður K.E.A. 6,97 1.911 1,74 78,50 Alm. lífeyrissj. iðnaðarmanna 6,94 1.328 5,55 36,20 Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 6,84 10.107 3,69 9,60 Lífeyrissjóður Vestfirðinga 6,83 6.738 4,66 27,50 Lífeyrissjóður Suðurnesja 6,80 5.637 5,42 49,20 Lífeyrissj. framreiðslumanna 6,80 340 7,94 11,10 Eftiri.sj. Fél. ísl. atvinnuflugm. 6,71 3.897 5,57 60,40 Lífeyrissjóður verksmiðjufólks 6,67 3.518 4,93 79,40 Lífeyrissjóður verslunarmanna 6,63 39.595 2,22 30,80 Lífeyrissjóður lækna 6,62 5.358 2,88 13,10 Lífeyrissjóður sjómanna 6,61 22.370 2,58 42,90 L. Mjólkursamsölunnar 6,50 775 3,44 60,60 Lífeyrissjóður blaðamanna 6,43 864 4,49 17,70 Lífeyrissjóður Sóknar 6,40 4.873 3,83 64,90 Samvinnulífeyrissjóðurinn 6,25 8.847 4,88 112,30 L. verkalýðsfélaga á Suðurlandi 6,25 2.658 6,61 35,10 Lífeyrissjóður Bolungarvíkur 6,09 1.212 6,57 38,60 Lífeyrissj. rafiðnaðarmanna 6,03 5.737 4,05 12,80 Lífeyrissj. verkaf. í Grindavík 5,90 592 6,99 39,20 Lífeyrissj. Vestmannaeyinga 5,72 5.330 6,02 35,60 L. verkalýðsfélaga á Norðurl.v. 5,72 1.830 5,79 47,80 L. Fél. starfsf. í veitingah. 5,71 1.220 9,08 29,30 Lífeyrissj. iðnaðarm.fél. Suðum. 5,41 103 4,30 58,30 Lífeyrissjóður Rangæinga 5,34 989 8,41 24,30 Lífeyrissjóður Neskaupstaðar 5,27 133 6,77 84,00 Lífeyrissjóður. bænda 5,21 7.415 7,05 100,90 L byggingariðn.m. í Hafnarfirði 4,98 431 9,86 53,20 Lífeyrissj. Verkfræðifélag ísl. 4,07 4.297 5,19 8,20 í skýrslu bankaeftirlits Seðlabanka íslands um iífeyrissjóðina er reiknuð út raunávöxtun miðað við neysluverðsvísitölu þar sem rekstrarkostnaður er dreginn frá fjármunatekjum. Hér að ofan má einnig sjá kostnað (rekstrargjöld - rekstrartekjur) sem hlutfall af iðgjöldum, og lífeyrisbyrði sem eru lífeyrisgreiðslur sem hlutfall af iðgjöldum. Ekki voru teknir með í þennan samanburð sjóðir sem njóta ábyrgðar ríkis eða sveitarfélaga og séreignasjóðir. Lífeyrissjóðunum hefur veríð raðað upp með tillit til raunávöxtunar. Skýrsla bankaeftirlits um lífeyrissjóðina Sameignarsjóð- um án ábyrgðar fækkar um 40% EIGNIR lífeyrissjóðanna í landinu jukust um 28,4 milljarða króna á árinu 1995 og námu í árslok 262,6 milljörðum króna. Aukningin á árinu er 12,1% sem samsvarar 10,3% raun- aukningu miðað við hækkun neyslu- verðsvísitölu. Raunávöxtun eigna allra sjóðanna var að meðaltali 6,88%, sem er nokkuð lægra en árið áður þegar ávöxtun eignanna nam 7,07%. Hrein raunávöxtun, þ.e. ávöxtun að frádregnum kostnaði reyndist vera 6,58% samanborið við 6,75% árið áður og kostnaður við rekstur sjóðanna, þ.e. rekstrargjöld að frádregnum rekstrartekjum, reyndist vera 691 milljón króna í fyrra samanborið við 652 milljónir króna 1994. Þetta kemur meðal annars fram í nýútkominni skýrslu bankaeftirlits Seðlabanka íslands um starfsemi líf- eyrissjóða á árinu 1995. Þá í árslok reyndust lífeyrissjóðir vera 75 talsins og hafði fækkað um fjóra á árinu. 63 teljast vera sameignarsjóðir og 12 séreignasjóðir. Fimm af sameign- arsjóðunum eru með ábyrgð ríkis- sjóðs, 9 með ábyrgð sveitarfélaga, 2 með ábyrgð ríkisbanka, 3 með ábyrgð hlutafélaga og 44 án ábyrgð- ar annarra. Níu lífeyrissjóðir taka ekki lengur við iðgjöldum, þannig að fullstarfandi lífeyrissjóðir voru 66 um áramótin. Frá árinu 1991 hefur lífeyrissjóð- um fækkað um 13, úr 88 í 75, og til viðbótar er fyrirsjáanleg fækkun um tíu lífeyrissjóði í viðbót í ár og á árinu 1997. I inngangi að skýrsl- unni kemur fram að fækkun lífeyr- issjóða hafi nær eingöngu orðið á meðal sameignarsjóða án ábyrgðar annarra. Þeim hafi nú þegar fækkað um 12 sjóði og fyrirsjáanleg sé fækk- un um níu í viðbót. Þessum sjóðum hafi þá fækkað úr 56 í 35 á nokk- urra ára bili eða um nálægt 40%. Ef litið er til eigna lífeyrissjóðanna kemur fram að þær hafa vaxið um 105 milljarða króna á fjögurra ára tímabili. Á sama tíma hefur kostnað- ur sem hlutfall af eignum lækkað úr 0,41% á árinu 1991 í 0,28% í fyrra, sem er svipað hlutfall og árið áður þegar kostnaður var 0,29%. Ráðstöfunarfé í fyrra nam 46,8 millj- örðum króna og óx um tæpa þijá milljarða frá árinu áður. Þar af námu iðgjöld 17 milljörðum króna saman- borið við 15,7 milljarða árið 1994. Gjaldfærður lífeyrir nam 8,4 millj- örðum kr. samanborið við 7,5 millj- arða árið á undan og lífeyririnn skiptist þannig að ellilífeyrir nam 59,6%, örorkulífeyrir 19,4%, maka- lífeyrir 19,1% og barnalífeyrir 1,9%. Hlutabréfaeign 7,3 milljarðar Hlutabréfaeign lífeyrissjóðanna nam samtals 7,3 milljörðum króna um áramótin síðustu eða 2,79% af heildareignum þeirra. Þar af nam erlend hlutabréfaeign 377 milljónum króna eða 0,14% af heildareignum. Þá kemur fram í skýrslunni að hafa verði fyrirvara um samanburð á milli einstakra lífeyrissjóða hvað varðar fjárhagsstöðu, ávöxtun og ýmislegt annað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.