Morgunblaðið - 10.10.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA
LANDSMANNA
1996
JHÞrgttttMi&fö
■ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER
BLAÐ
Verðum að lag-
færa hlutina fyrir
næsta leik
„ÞAÐ er lítið hægt að segja um fjögnrra marka tap
á heimavelli, það er augljóslega ekki nógu gott,“
sagði Guðni Bergsson fyrirliði eftir tapið gegn Rúm-
enum í gær. „En hvað er til ráða, ætli það verði ekki
að taka upp gamla máltækið um að taka sig saman
í andlitinu og gera betur, sérstaklega varnarlega því
það er ekki gott afspumar að fá á sig JQögur mörk
á heimavelli. Sýndum þokkalegt spil á köflum þó að
við höfum ekki skapað okkur færi og þeir refsa okk-
ur síðan þegar við ætlum að leggja allt í sölumar
eftir að staðan var tvö mörk gegn engu. Við komum
vel innstilltir og stemmningin var góð, það er ekkert
út á það að setja. Þetta var áfall, við getum verið
fyrstir til að viðurkenna að hlutimir hafa ekki geng-
ið eins og ætlast var til.Nú verðum við að sýna mann-
dóm og lagfæra hlutina fyrir næsta leik.“
KNATTSPYRNA
Rúmenargjörsigruðu slakt íslenskt landslið í undankeppni heimsmeistaramótsins
Mikil
von-
brigði
Formaður KSÍ ekki
ánægður með
landsliðið
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, sagði að íslenska lands-
liðið hefði valdið sér miklum von-
brigðum í gærkvöldi. „Það er ljóst
að við þurfum að bretta upp erm-
arnar og taka okkur verulega á.
Þessi úrslit eru vissulega áhyggju-
efni fyrir okkur. Þetta var ekki
nægilega gott. Það voru ýmsir leik-
menn sem vom ekki að spila eins
og þeir geta best. Við þurfum að
sýna okkar allra besta til að ná
hagstæðum úrslitum á móti svona
góðum liðum eins og Rúmeníu. Það
er lykilatriði að allir leikmennimir
leggi sig 100 prósent fram ef við
eigum að ná árangri í svona
keppni," sagði Eggert.
Hvað er til ráða?
„Við erum að reyna að byggja
upp unglingaliðin okkar og þau
hafa staðið sig vel. Við verðum að
leggja áherslu á að skapa betra
A-landslið hægt og rólega. Það
þarf að skoða þessi mál vandlega
og taka á þeim. Ég vil ekki lýsa
því yfir á þessari stundu hvað verð-
ur gert því ég vil aðeins fá að
hugsa málið og reyna að komast
að því hvar við getum bætt okkur.
Við hljótum að geta gert betur en
liðið sýndi í þessum leik. Leikurinn
olli mér vonbrigðum. Þó svo að
rúmenska liðið sé mjög sterkt held
að þetta sé ekki munurinn á liðun-
um.
Ég trúi því ekki að íslensku leik-
mennimir hafi borið of mikla virð-
ingu fyrir þeim rúmensku. Hins
vegar snerist leikurinn okkur í
óhag strax eftir að við töldum
okkur eiga að fá vítaspyrnu. Upp
úr því atviki fengum við á okkur
fyrsta markið þar sem tveir varn-
armenn áttu möguleika á að
hreinsa boltann í burtu.“
Morgunblaðið/Golli
ÞÓRÐUR Guðjónsson, bestl maður íslands, að sleppa í gegn ð hœgrl kantinum í fyrri hðlfleiknum. Mlðvörðurinn Anton Dopos
felldl hann og hlaut gula spjaldlð að launum. Þórður var góður í lelknum og sð elnl sem ógnaði Rúmenum að rðði.
„Fyrri hálfleikur í lagi“
„ÉG er hundóánægður með þessi
úrslit því stemmningin fyrir leikinn
var í góðu lagi og eins og sást var
fyrri hálfleikurinn í fullkomnu lagi
hjá okkur,“ sagði Logi Olafsson
landsliðsþjálfari eftir leikinn.
„Við viljum meina að við hefðum
átt að fá vítaspyrnu en fáum þess
í stað á okkur mark og að lenda
undir á móti svona liði er mjög erf-
itt, það vissum við. Það segir sig
sjálft því þeir eru nokkrum tugum
sæta fyrir ofan okkur á styrkleiká-
listanum. Þó var ekki loku fyrir það
skotið að ná að jafna leikinn en
þegar við nánast gefum þeim annað
markið vissu þeir að við færum
framar á völlinn og að það byði upp
á ákveðna möguleika fyrir þá til
að sækja. Eftir annað markið
breytti ég skipulaginu til að freista
þess að jafna leikinn því það skipti
ekki meginmáli hvort við myndum
tapa með tveimur mörkum eða fleir-
um, við hefðum hugsanlega líka
getað haldið okkur til baka og reynt
að tapa aðeins með einu eða tveim-
ur mörkum en ég tók þessa ákvörð-
un um að breyta liðinu og fá nýja
menn inn í sóknarleikinn því við
vorum að skapa okkur tækifæri.
Við uppskerum hins vegar tvö mörk
frá þeim svo að við tókum áhættu
sem gekk ekki upp.
Okkur kom geta þeirra ekkert á
óvart. Við vitum að þeir spila góða
knattspyrnu og gekk illa í Evrópu-
keppninni í sumar þar sem þeir
fóru heim með sárt ennið svo að
þeir voru ákveðnir í að gera betur
nú og sanna sig á ný. _Næst hjá
okkur er útileikur gegn írum, sem
eru með gott lið og það þýðir ekki
að gráta Björn bónda, heldur safna
liði og standa okkur í þeim leik,“
sagði Logi.
■ Lýst er eftir / C4
KIMATTSPYRNA: LEIKURINIM SEM ALDREIFOR FRAM VAKTIMESTA ATHYGLI / C8