Morgunblaðið - 12.10.1996, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C
233. TBL. 84. ÁRG.
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Biskup og andspyrnuleiðtogi frá Austur-Tímor fá friðarverðlaun Nóbels
Malan
sýknaður
Mandela hvetur
til stillingar
Höfðaborg, Durban. Reuter.
NELSON Mandela, forseti Suður-
Afríku, hvatti landsmenn sína í gær
til að virða úrskurð dómara, sem
sýknaði Magnus Malan, fyrrver-
andi varnarmálaráðherra, en hann
var sakaður um að hafa borið
ábyrgð á morðum 13 blökkumanna.
Malan var sakaður um að hafa
skipulagt morðin og fengið dauða-
sveit, blökkumenn úr röðum Ink-
atha-hreyfíngar Zulumanna, til að
fremja þau. Attu þau sér stað árið
1987 í KwaMakhuta.
Auk Malans voru sýknaðir í
þessu máli þrír hershöfðingjar, fjór-
ir aðrir yfirmenn í hernum, hátt-
settur maður í Inkatha-hreyfíng-
unni og sex lögreglumenn, sem
talið var að hefðu framið morðin.
Hafði því verið spáð, að yrði Malan
sýknaður myndi það valda ólgu í
landinu en Mandela lagði áherslu
á, að hann bæri fullt traust til dóm-
stóla í landinu.
Malan hafði stutt leynilega áætl-
un um.að þjálfa 206 Zulumenn að
beiðni leiðtoga Inkatha, Mangosut-
hu Buthelezis, til að veija Kwa-
Zulu, heimaland Zulumanna, fyrir
keppinautum hans, Afríska þjóðar-
ráðinu. Dómarinn taldi hins vegar
ósannað, að Malan og aðrir, sem
ákærðir voru, hefðu borið ábyrgð
á morðunum.
Malan sagði í gær, að úrskurður-
inn væri „sigur réttlætisins" og
F.W. de Klerk, fyrrverandi forseti,
sagði, að aldrei hefði átt að ákæra
Malan. Talsmaður Afríska þjóð-
arráðsins, Johnny de Lange, kvaðst
hins vegar óttast hörð viðbrögð við
sýknudómnum.
Indónesar bregðast illir
við vali Nóbelsnefndar
Ósló. Reuter.
NORSK nóbelsverðlaunanefnd vakti
í gær athygli á átökunum á Austur-
Tímor með því að tilkynna að ka-
þólskur biskup og útlægur and-
spyrnuleiðtogi frá portúgölsku ný-
lendunni fyrrverandi fengju frið-
arverðlaun Nóbels í ár. Ákvörðunin
mæltist vel fyrir meðal ráðamanna
víða um heim en Indónesar urðu
ókvæða við.
Biskupinn Carlos Belo og and-
spyrnuleiðtoginn Jose Ramos-Horta
fá friðarverðlaunin í ár og nefndin
sagði að með þessu vali vildi hún
vekja athygli á „gleymdu stríði“ á
Austur-Tímor. Hún gagnrýndi
mannréttindabrot Indónesa, sem
gerðu innrás á Austur-Tímor 1975.
Ali Alatas, utanríkisráðherra Ind-
ónesíu, kvaðst „furðu lostinn" yfir
því að Ramos-Horta skyldi fá verð-
launin og lýsti honum sem „pólitísk-
um hentistefnumanni" sem hefði
kynt undir átökum á Austur-Tímor
í þágu eigin hagsmuna. Ráðherrann
minntist hins vegar ekki á biskupinn.
Óttast herferð gegn andófi
Bandaríkjastjórn og Boutros
Boutros-Ghali, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, fögnuðu
ákvörðuninni og sögðust vona að
hún stuðlaði að friðsamlegri lausn
deilunnar um Austur-Tímor. Stjórn
Portúgals var ánægð með valið og
sagði að verðlaunin gætu knúið In-
dónesa til að slaka á klónni í portúg-
ölsku nýlendunni fyrrverandi.
Stjórnarerindrekar sögðu þó að
erfítt yrði fyrir Indónesa að sætta
TVEIR ferðalangar, t.h., virða fyrir sér Austur-Tímor á korti í Lissabon.
sig við ákvörðunina og hún gæti
jafnvel orðið til þess að tefja fyrir
friðarumleitunum. Mannréttinda-
samtökin Amnesty International
sögðu að þjóðir heims þyrftu að
tryggja að Indónesar hæfu ekki nýja
herferð til að kveða niður andóf á
Austur-Tímor. „Mannréttinda-
ástandið á Austur-Tímor er enn
mjög slæmt.“
■ Heiðraðir fyrir baráttu/20
Gíslataka
Jeltsín boðar endurbætur í skattheimtu en rússneska þingið lítt hrifið
Reuter
RÚSSNESKUR sérsveitarmaður kannar skilríki vegfaranda á
götum Moskvuborgar í gær. Eftirlit var hert mjög í borginni
eftir að óstaðfestar fregnir bárust um að tsjetsjenskir aðskilnað-
arsinnar væru að flytja mikið magn sprengiefnis þangað.
Ljóst þykir að Korzhakov hafí
einkum átt við Tsjúbajs með um-
mælum sínum. Hinn fyrrnefndi
hefur á hinn bóginn vingast við
Lebed og er rætt um að þeir muni
vinna saman að því að tryggja
Lebed aukin völd' í Kreml. Korz-
hakov er sagður vel að sér í bak-
tjaldamakkinu þar á bæ og þykir
einnig hafa auðgast vel í embætti.
Fjárlagatillög-
ur kolfelldar
Moskvu. Reuter.
í Þýska-
landi
Bonn. Reuter.
MAÐUR um þrítugt tók í gær
sex manns í gíslingu í banka
í Þýskalandi og hótaði að
myrða fólkið ef ekki yrði greitt
fyrir það lausnargjald, 5 millj-
ónir marka, rúmar 220 millj-
ónir ísl. kr.
Gíslatakan átti sér stað í
bænum Neuenstein, skammt
frá Heidelberg. Talið er að
maðurinn hafi ætlað að ræna
bankann en mistekist og því
hafi hann gripið til þessa ör-
þrifaráðs. Auk fjárins hefur
hann krafíst þess að fá bíl til
að komast undan í.
í gærkvöldi rann út sá frest-
ur sem hann hafði gefið lög-
reglu til að útvega féð, en
hann hótaði að taka gísl af
lífi á klukkutíma fresti til að
leggja áherslu á kröfur sínar.
Sagði lögregla að maðurinn
hefði fallist á að hún þyrfti
lengri tíma til að verða við
kröfum hans.
NEÐRI deild rússneska þingsins,
Dúman, felldi í gær með 280 at-
kvæðum gegn 33 fjárlagatillögur
ríkisstjórnar Víktors Tsjernomyrd-
íns og voru jafnvel margir stuðn-
ingsmenn stjórnvalda á móti tillög-
unum. Var vinnuhóp þingsins falið
að kanna hvort reyna bæri að finna
málamiðlun eða vísa hugmyndun-
um endanlega á bug. Borís Jeltsín
forseti skipaði í gær Tsjernomyrdín
formann nýrrar nefndar sem á að
bæta skattheimtu. Skrifstofustjóri
Jeltsíns, Anatolí Tsjúbajs, verður
varaformaður.
Mörg stórfyrirtæki, þ.á m. oliu-
fyrirtækið Gazprom, skulda stórfé
í skatta en segja að ástæðan sé
vanskil viðskiptavinanna.
„Ég veit að skattar eru núna
háir í Rússlandi en eina leiðin til
að lækka þá er að sjá til þess að
farið sé eftir skattalögum,“ sagði
forsetinn sem nú dvelst á heilsu-
hæli skammt frá Moskvu og bíður
þess að fara í hjartaaðgerð. Fjöl-
margir lífeyrisþegar og ríkisstarfs-
menn hafa ekki fengið laun greidd
um langt skeið og sagði Jeltsín að
ríkisvaldið gæti aðeins náð í meira
fé með bættri skattheimtu.
Refskák í Kreml
Fyrrverandi yfirmaður lífvarðar
Jeltsíns, Alexander Korzhakov,
sem var rekinn úr embætti eftir
forsetakosningarnar að tilstuðlan
Tsjúbajs og Alexanders Lebeds,
yfírmanns öryggisráðsins, hélt í
gær fréttamannafund. Fullyrti
Korzhakov að sumir af núverandi
ráðgjöfum Jeltsíns hefðu af ásettu
ráði látið hann leggja svo hart að
sér í kosningabaráttunni að heilsan
hlyti að bila, þá gætu þeir stjórnað
að tjaldabaki.