Morgunblaðið - 16.10.1996, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
í
___________________________________MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996 5 ,
FRÉTTIR
Bæjarráð vill ekki að hlutur
bæjarins verði seldur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Risalax á vegginn
„ÉG HEF verið að fara með við-
skiptavini á bak við og sýna
þeim tröllið og menn reka bara
upp öskur þegar þejr sjá það,“
segir Steingrímur Ólason fisk-
sali í Fiskbúðinni v/Sundlaug-
arveg, en í vikubyrjun barst
honum 56 punda lax úr sjókvía-
eldi Rifsóss í Kelduhverfi.
Laxinn er ekki heppilegur til
manneldis, að mati Steingríms,
og verður þess í stað stoppaður
upp og hengdur á vegg fisk-
búðarinnar. Þar verður hann í
góðum félagsskap, því fyrir er
næststærsti hlýri sem veiðst hef-
ur á íslandsmiðum að sögn Stein-
gríms, 25 kg fiskur, 180 senti-
metra langur. Að sögn Steingríms
er laxinn hrygna af norskum
stofni, svokölluðum Mowi-stofni.
Hún er 125,5 sentimetra löng.
AGREININGUR er á milli stjórn-
enda Gunnvarar hf. á ísafirði og
meirihluta ísafjarðarbæjar um með-
ferð á eignarhlut sveitarfélagsins í
Togaraútgerð ísafjarðar hf. vegna
fyrirhugaðrar sameiningar sjávar-
útvegsfyrirtækja á Vestíjörðum.
Gunnvör hf. er næststærsti hluthaf-
inn í Togaraútgerð ísafjarðar og
bærinn er þriðji stærsti hluthafínn.
Hafa stjórnendur Gunnvarar óskað
eftir að kaupa hlutafé bæjarins,
skv. upplýsingum Sigurðar R. Ól-
afssonar, formanns bæjarráðs.
Unnið hefur verið að sameiningu
Togaraútgerðar ísafjarðar, Bása-
fells hf., Rits hf. og Sléttaness hf.
um nokkurt skeið og ákveðið hefur
verið að Hraðfrystihúsið Norður-
tangi hf. á Isafirði sameinist hinu
nýja fyrirtæki.
Sigurður sagðist telja að stjórn-
endur Gunnvarar væru ekki sáttir
við mat hlutabréfa í Togaraútgerð
ísafjarðar í tengslum við samein-
inguna, en fylgja þyrfti ákveðnum
formúlum við mat þegar um sam-
einingu fyrirtækja væri að ræða.
Sl. mánudag átti stjórn Gunnvar-
ar fund með bæjarráði, en stjórn-
endur félagsins vildu ekki tjá sig
um málið við íjölmiðla. Bæjarráð
ísafjarðarbæjar samþykkti að
leggja til við bæjarstjórn að hlutur
sveitarfélagsins í Togaraútgerð ísa-
fjarðar hf. verði ekki seldur heldur
notaður til að stuðla að sameiningu
sjávarútvegsfyrirtækja í Isafjarð-
arbæ.
Ágreiningur um málsmeðferð
og atvinnumál á svæðinu
Skv. heimildum Morgunblaðsins
líta forsvarsmenn Gunnvarar svo á
að ágreiningur sé á.milli Gunnvarar
og bæjarstjórnar um málsmeðferð
vegna fyrirhugaðrar sameiningar.
Jafnframt séu skiptar skoðanir um
viðhorf til atvinnumála á svæðinu
en Gunnvararmenn líta svo á að
það beri að stefna að því að halda
yfirráðum yfir atvinnufyrirtækjum
heima í héraði en telja hins vegar
að bærinn hafi aðra skoðun og hafi
fært viðamikil atvinnutækifæri í
hendur aðila í Reykjavík.
Hlutafélag skipar ekki
sveitarstjórn fyrir
Sigurður R. Ólafsson sagði að
enginn ágreiningur væri uppi um
þetta mál. „Þetta er fijálst og opið
hlutafélag og þetta er kjörin sveit-
arstjórn og hún hlýtur að ráða
hvernig hún fer með það hlutafé
sem henni er treyst fyrir. Það kem-
ur ekki eitthvað hlutafélag utan úr
bæ og skipar sveitarstjórn fyrir,“
sagði hann.
Bæjarastjórnarfundur verður
haldinn 24. október. Ganga á end-
anlega frá sameiningu sjávarút-
vegsfyrirtækjanna á hluthafafund-
um í næsta mánuði.
Tæplega fjórðungur fylgdist með
stefnuræðu forsætisráðherra
___ Morgunblaðið/Gestur Traustason
HALLGRÍMUR Geirsson, framkvæmdastjóri Morgunblaðsins, Örn Jóhannsson skrifstofusljóri
og Guðbrandur Magnússon framleiðslustjóri veittu verðlaunum Morgunblaðsins frá „IFRA
Color Quality Club“ viðtöku.
Morgunblaðið eitt best
prentuðu blaða heims
SAMKVÆMT niðurstöðum skoð-
anakönnunar, sem Gallup gerði
fyrir Alþingi, horfði tæplega fjórð-
ungur landsmanna á aldrinum
18-75 ára eitthvað á útsendingu
frá umræðu um stefnuræðu for-
sætisráðherra í Ríkissjónvarpinu
2. október sl., en aðeins 2% frá
upphafi til enda. Ólafur G. Einars-
son, forseti Alþingis, segir rót-
tækra breytinga þörf á skipulagi
þingumræðna sem sjónvarpa skal
beint.
Alls sögðust 24,1 af hundraði
hafa fylgst eitthvað með útsend-
ingunni. Alls horfðu 5,5 af hund-
raði landsmanna að mestu eða öllu
leyti á umræðuna, 2% að öllu leyti
en 3,5% að mestu leyti.
Meðal áhorfendanna voru karl-
menn í nokkrum meirihluta, fleira
eldra fólk en yngra og þeir sem
eingöngu höfðu aðgang að RÚV
horfðu meira en þeir sem hafa
aðgang að öðrum sjónvarpsstöðv-
um. Enginn marktækur munur var
mcrkjanlegur eftir búsetu, tekjum
Frumvarp lagl fram
um ný sóttvarnalög
Ráðinn
verði sótt-
eða starfi þeirra sem svöruðu, en
þeir voru 1.077 manns úr 1.500
manna slembiúrtaki úr þjóðskrá.
Þátttakendur voru á aldrinum 18
til 75 ára af öllu landinu. Könnun-
in var gerð dagana 4.-11. október
sl.
Hæpið sjónvarpsefni
Ólafur G. Einarsson, forseti
Alþingis, segir niðurstöður áhorfs-
könnunarinnar sýna það sem þing-
menn vissu fyrir, að fyrirkomulag-
ið á sjónvarpsumræðum um
stefnuræðu forsætisráðherra eins
og það var nú og hefur verið und-
anfarin ár sé hæpið sjónvarpsefni
en þetta eigi einnig við um aðrar
umræður í þinginu. Ólafur segir
allan þingheim vera fullan áhuga
um að vinna að samkomulagi um
breytt form, sem bjóða myndi upp
á styttri ræður og snarpari um-
ræður, sem áhugaverðara væri til
að horfa á en sá „upplestur á heim-
astílum" sem tíðkazt hefði hingað
til. Ólafur segist vonast til að
umræður um stefnuræðu forsætis-
ráðherra geti orðið vettvangur fyr-
ir snörp skoðanaskipti flokksleið-
toga; slíkt sé t.d. venja orðin í
Danmörku. Forsætisnefnd Alþing-
is mun að sögn Ólafs starfa að
þessum umbótum áfram í sam-
starfí við þingflokkana.
MORGUNBLAÐIÐ er eitt 26
dagblaða sem hlutu verðlaun í
samkeppninni „IFRA Color Qua-
lity Club“; samkeppni um best
prentuðu blöð heims sem 71 dag-
blað frá 20 löndum tók þátt í.
Keppni þessi var nú haldin í ann-
að skipti og voru verðlaun veitt
í Genf í gær.
í keppninni fyrir tveimur árum
tóku 72 blöð þátt og 16 þeirra,
þar á meðal Morgunblaðið, hlutu
verðlaun.
Samkeppnin fer þannig fram
að dæmd eru 10 eintök af fjórum
tölublöðum, sem prentuð voru í
ágústmánuði. Blöðin sem tóku
þátt í keppninni birtu í einu tölu-
blaðanna fjögurra sömu litljós-
myndina og einnig mynd með
mismunandi litaflötum sem reyna
á alla þætti myndvinnslu og
prentunar.
IFRA eru alþjóðleg samtök
dagblaða og á vegum þeirra er
rekið rannsóknarstarf, endur-
menntun og ráðgjöf.
> > /
Agreiningur Gunnvarar hf. og Isafjarðarbæjar um Togaraútgerð Isafjarðar hf.
Tveir af hundr-
aði horfðu á alla
útsendinguna
Forseti Alþingis segir róttækra
breytinga þörf á umræðum
varna-
læknir
INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigðis-
og tryggingaráðherra mun á næstu
dögum leggja fram á Alþingi frum-
varp til sóttvarnalaga. Frumvarpið
felur í sér rammalöggjöf þar sem
fyrirkomulag sóttvarna er fært til
nútímahorfs og löggjöf á þessu sviði
samræmd þannig að unnt sé að sinna
sóttvörnum með fullnægjandi hætti.
Sóttvarnalögum er ætiað að leysa
af hólmi berklavarnarlög frá árinu
1939, lög um ráðstafanir til vamar
gegn fýlasótt frá árinu 1940, sótt-
varnalög frá árinu 1954, farsóttalög
frá árinu 1958 og lög um vamir gegn
kynsjúkdómum frá árinu 1978. Mörg
þessara gömlu laga fjalla um sérstak-
ar sóttkveikjur og aðstæður sem áður
vom fyrir hendi en eiga ekki við nú.
Frumvarpinu er m.a. ætlað að
tryggja að unnt sé að bregðast við
nýjum aðstæðum og nýjum sóttum.
Einnig er því ætlað að tryggja heild-
aryfirsýn yfir smitsjúkdóma á land-
inu og að brugðist sé við með sam-
ræmdum aðgerðum. Þess vegna ger-
ir frumvarpið ráð fyrir að ráðinn
verði sérmenntaður sóttvarnalæknir
við embætti landlæknis, sem m.a.
fylgist með útbreiðslu farsótta,
skipuleggi aðgerðir gegn þeim, m.a.
með ónæmisaðgerðum og fylgist með
árangri þeirra, en búist er við miklum
breytingum á fyrirkomulagi ónæmis-
aðgerða á komandi árum. Aðrar
Norðurlandaþjóðir og flestar ná-
grannaþjóðir okkar eru með starf-
andi sérstaka sóttvarnalækna.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að sér-
stök göngudeildarstarfsemi verði
styrkt m.a. til að hafa eftirlit með
fólki sem sækir um dvalarleyfi hér
á landi, en talið er að nokkur mis-
brestur sé á því.