Morgunblaðið - 16.10.1996, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996 11
AKUREYRI
SÉBLEYFISí
Morgunblaðið/Kristján
Nýja dráttarvélin
sett beint í sandburð
AKUREYRARBÆR hefur fjárfest
í nýrri og öflugri dráttarvél af
gerðinni Valmet 6400. Vélin er
með ýmsum sérútbúnaði og eftir
að hún var afhent nýjum eigendum
sl. föstudag, var hún sett í fulla
vinnu við sandburð í snjókomunni
en auk þess er snjótönn framan á
vélinni. Véladeild bæjarins hefur
yfir dráttarvélinni að ráða yfir
vetrartímann en í sumar fær um-
hverfisdeild bæjarins vélina til af-
nota og er þetta í fyrsta sinn sem
tæki eru samnýtt milli deilda bæj-
Mývatnssveit - Miklar vegafram-
kvæmdir voru hér í Mývatnssveit í
sumar. Nýlokið er við að byggja upp
rúmlega 4 kílómetra langan veg aust-
an Mývatns, frá Kambabrekku og
suður Garðsgrundir og sett á hann
bundið slitlag.
Klæðning hf. vann þetta verk en
fyrirtækið vann einnig við endurbæt-
ur á veginum frá Geiteyjarströnd upp
að Dimmuborgum og við stækkun á
bílaplani á Borgarási, án útboðs. Enn-
fremur fékk Klæðning vinnu í Reykja-
hverfi, milli Bláhvamms og Klambra-
sels, einnig án útboðs, Kísilveg.
arkerfisins á þennan hátt.
Dráttarvélin er þeim eiginleik-
um búin að hægt er að aka henni
í báðar áttir, þ.e. að vélin er með
stýri og önnur stjórntæki bæði að
framan og aftan og aðeins þarf
að snúa sætinu til að skipta um
framenda.
Á myndinni eru f.h. Þorgeir Örn
Elíasson, frá Bújöfri, umboðsaðila
Valmet á íslandi, Hilmar Gíslason,
bæjarverkstjóri á Akureyri, og
Jónas Marinósson, vélamaður, við
nýju dráttarvélina.
Nýbúið er að breikka brúna yfir
Helluvaðsá. Enn er eftir að byggja
upp veg norðan Mývatns, frá Belgj-
arbáru í Grímsstaði. Þess er vænst
að hægt verði á næsta ári að ljúka
við að byggja upp fullkominn veg
umhverfis Mývatn.
Fyrir nokkru var lokið við að setja
bundið slitlag á flugvöllinn hjá
Reykjahlíð, sem er 1.020 metra lang-
ur. Samið var við Malarvinnsluna á
Egilsstöðum sem átti lægsta tilboð í
verkið. Áður var búið að lengja völl-
inn. Talið er að árlega fari 3.500-
4.000 farþegar um flugvöllinn.
Styrkir atvinnu-
málanefndar
Þrettán
sóttu um
ALLS bárust 13 umsóknir um
styrk sem atvinnumálanefnd Akur-
eyrarbæjar auglýsti en skilafrestur
rann út fyrir nokkru. Bæði fyrir-
tæki og einstaklingar sóttu um
styrkina.
Þeir sem sóttu um eru: Hand-
verks- og tómstundamiðstöðin
Punkturinn, Icemount, Keramik-
loftið, Komið-fjölhagi, Matur og
mörk, Purity Herbs snyrtivörur,
Tindafell, Vindorka, Kristján Jó-
hannsson, Lúðvík R. Jónsson, Ní-
els J. Erlingsson, Sigrún Ingibjörg
Arnardóttir og Svandís Þórodds-
dóttir.
-----"4-------
Iðja, félag-
verksmiðjufólks
Aukin fram-
lög í starfs-
fræðslu
FÉLAGSFUNDUR Iðju, félags
verksmiðjufólks á Akureyri og ná-
grenni, skorar á stjórnvöld að stór-
auka fjárframlög til starfsfræðslu-
námskeiða iðnverkafólks.
„Fundurinn ótta'st að það fjár-
magn sem til þessara mála er ætl-
að fari minnkandi og að sú upphæð
sem nú er ætluð sé falin í öðrum
útgjaldaliðum í fjárlagafrumvarp-
inu. Einnig lýsir fundurinn furðu
á því að verðbætur og vextir þurfi
að hækka án nokkurra sjáanlegra
ástæðna.
Miklar vegaframkvæmd-
ir í Mývatnssveit
Kaffí-
menning
á Dalvík
NÝTT kaffihús, Kaffi menn-
ing, var opnað á Dalvík í síð-
ustu viku. Kaffi menning er í
eigu Friðriks Gígja og verður
opið frá fimmtudegi til sunnu-
dags frá kl. 16. í tilefni opnun-
arinnar verða myndir eftir
Örnu Valsdóttur til sýnis á
Kaffi menningu. Þetta er
fyrsta einkasýning hennar hér
á landi, en áður hefur hún
sýnt ein í Belgíu auk þess sem
hún hefur tekið þátt í nokkr-
um samsýningum. Sýning
Örnu á Kaffi menningu nefn-
ist „Samsýning með sjálfri
mér“.
a/Hi
/o. o/{(óf>e/' /<196'
Af því tilefni bjóðum við
næstu daga 10-30% afslátt
afýmsum hljóðfærum og
hljóðfæramögnurum.
TÓNAbúðin Akureyri, sími 462 1415
Laugavegi 163, sími 552 4515
Hvað mundir þú gera
ef þú ynnir lOO milljónir
á miðvikudaginn?
LðTTt
7)7 mikils að vinna!
Getspá
Alla miðvikudaga fyrirkl 16,00.
TVÖFALDUR
pohur