Morgunblaðið - 16.10.1996, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Samvinnulífeyrissjóðurinn og Landsbanki Islands
leysa til sín fasteign Kaupfélags Isfirðinga
Eignin verður boðin
til sölu á næstunni
VIÐSKIPTI
ísafirði - Á fimmtudag í síðustu
viku var ákveðið að Landsbanki
íslands og Samvinnulífeyrissjóður-
inn myndu leysa til sín fasteign
Kaupfélags ísfirðinga á Austur-
vegi 2 en sem kunnugt er var fyrir-
tækið tekið til gjaldþrotaskipta
fyrir stuttu. Landsbankinn og
Samvinnulífeyrissjóðurinn eru á
meðal stærstu veðhafa í kaupfé-
laginu og er það því í höndum
stjórnenda þeirra að ákveða hvað
verður um fasteignina. Skipaður
bústjóri Kaupfélags ísfirðinga á
eftir að afsala stofnunum tveimur
fasteigninni og um leið og gengið
hefur verið frá því verða þær boðn-
ar til sölu.
„Það er rétt að þessir tveir aðil-
ar hafa leyst til sín fasteign Kaup-
félags ísfirðinga sem veðhafar.
Hvað verður um hana er því í hönd-
um þessara tveggja aðila. Bústjóri
kaupfélagsins á eftir að afsala
okkur eigninni formlega og um
leið og gengið hefur verið frá því
munum við bjóða hana til sölu.
Hagstæðasta tilboðinu mun verða
tekið og getur því sá sem á það
tilboð ákveðið hvaða rekstur verður
í húsnæðinu og hvenær sá rekstur
hefst. Komi aftur á móti upp sú
staða að enginn vilji kaupa fast-
eignina verður hún væntanlega
boðin til leigu,“ sagði Brynjólfur
Þór Brynjólfsson, svæðisstjóri
Landsbanka íslands á ísafirði, í
samtali við blaðið.
Brynjólfur Þór sagði ómögulegt
að segja um á þessari stundu hve-
nær rekstur gæti hafist í húsnæði
kaupfélagsins, það færi allt eftir
viðbrögðum væntanlegra kaup-
enda eða leigjenda. Ljóst er því
að' einhver tími mun líða þar til
nýr aðili hefur rekstur í húsnæðinu
og þá er einnig óvíst hvers konar
rekstur þar verður í framtíðinni.
Eins og komið hefur fram í fréttum
hafa tveir aðilar lýst áhuga á að
heíja rekstur í húsnæðinu, þ.e.
Kaupfélag Suðurnesja annars veg-
ar og Björnsbúð og Sandfell hf.
hins vegar.
Vaxandi
áhugi fyrir
textíliðju
Húsavík - Safnahúsið á Húsavík
hefur undanfarin ár gengist fyrir
flutningi ýmissa fræðsluerinda og
um síðustu helgi
flutti Elsa B. Guð-
jónsson fróðlegt
erindi sem hún
nefndi: Hefðbund-
in íslensk text-
íliðja - frá land-
námi til loka 19.
aldar.
Elsa fræddi sér-
staklega um
vinnuaðferðir á hinum ýmsu tímum
við vinnu úr íslensku ullinni og
sagði frá tækjum sem notuð hafa
verið frá fornu fari til vorra daga
og sýndi litskyggnur máli sínu til
skýringar.
Fyrr á öldum var íslenskur vefn-
aður stór hluti útflutningsvara og
mun meiri en hann er í dag.
Áheyrendur gerðu góðan róm
að erindi Elsu en hér í héraði er
vaxandi áhugi fyrir ýmiskonar
textíliðju.
Elsa E.
Guðjónsson
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
EIGENDUR Fjarðarbrauðs f.v.: Karl Ragnarsson, Bjarni Frey-
steinsson og Kristinn Hannesson.
Ný brauðbúð
á Neskaupstað
Neskaupstað - Ný brauðbúð var
opnuð í Neskaupstað fyrir
skömmu. Það er bakaríið Fjarð-
arbrauð sem á og rekur brauð-
búðina.
Nýja búðin sem er mjög vist-
leg er til húsa þar sem kaupfé-
lagið rak áður vefnaðarvöru-
verslun og þar geta nú viðskipta-
vinir sest niður og fengið sér
kaffisopa með nýbökuðu brauði.
Um þrír áratugir eru síðan sér-
verslun með brauð lagðist af
hér.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
BÍLLINN sem piltarnir tóku ófrjálsri hendi.
Okuferð
sem endaði
utan vegar
Neskaupstað - Ökuferð tveggja
ungra manna sem tóku bíl ófijálsri
hendi nú um helgina varð heldur
endaslepp því þeir komust aðeins
nokkur hundruð metra og enduðu
á hvolfi utan vegar.
Ekki varð piltunum meint af en
bíllinn er fnikið skemmdur. Mikil
hálka var og má því segja að þeim
hafi orðið hált á svellinu.
Mjög hált
á Egils-
stöðum
FYRSTI snjórinn féll á
Egilsstöðum fyrir helgina
og voru ekki allir viðbúnir
þeirri hálku sem honum
fylgdi. Bílstjóri þessa bíls
áttaði sig ekki á aðstæð-
um í tíma og því fór sem
fór.
Methækkun hlutabréfa á Wall Street þrýsti verði bréfa
í London og Frankfurt upp í nýtt hámark í gær, þriðjudag.
Dow Jones-iðnaðarvísitalan fór í fyrsta sinn yfir 6.000 stig á mánudaginn
vegna væntinga um batnandi efnahag í Bandaríkjunum og hækkunar
olíuverðs, sem leiddi til hækkunar hlutabréfa í olíuiðnaði.
4100 FTSE-100 í lok dags
4050 4000 fs- -J
3950 P \ j 4061,8 \ fS
3900 y / *
3850 /
2. sepl. - 15. okt., 1996
HLUTABREFAMARKAÐIR
FRÁ VERÐFALLINU
ÁRIÐ 1987
-6000
DowJones 5.882,17
FTSE-100 3.953,70
DAX 2.651,85
u
stig
-5000
Svarti
miðvikudagurinn
DJI
FTSE-100
DAX
-4000
-3000
-2000
-1000
1987
1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996
- 500
REUTERS
British Airways
býður í Air Liberté
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
París. Reuter.
BREZKA flugfélagið British Airwa-
ys hefur boðið 25 milljónir franka,
eða 4.82 milljónir dollara, í greiðslu-
þrota, franskt flugfélag, Air Li-
berté, þrátt fyrir fréttir um að ólík-
legt sé að Frakkar taki erlent tilboði.
Brezka félagið kvaðst telja sig
geta endurlífgað Air Liberté með
því að sameina það félag frönsku
dótturfélagi sínu, TAT.
Air Libeté og TAT fljúga yfirleitt
ekki á sömu leiðum og fengju til
samans 22% markaðshlutdeild í
Frakklandi, en öflugasti aðilinn þar
er Air France Europe — innanlands-
armur ríkisflugfélagsins Air France.
Frestur til að skila tilboðum í Air
Liberté rann út á mánudag. Félagið
var tekið til skiptameðferðar 26.
september.
Jacques Maillot, forstjóri franska
ferðafélagsins Nouvelles Frontieres
og leiguflugfélagsins Corsair, sagði
í síðustu viku hann hygðist bjóða í
bæði Air Liberté og flugfélagið
AOM.
AOM hét áður Air Outre-Mer og
er ein eigna ríkisbankans Crédit
Lyonnais, sem á að selja samkvæmt
áætlun ríkisins um að bjarga bank-
anum.
British Airways hefur beðið ESB
að koma í veg fyrir að AOM bjóði
í Air Liberté, þar sem slíkt tilboð
mundi jafngilda ólöglegri beitingu
ríkisaðstoðar. Borið hefur verið til
baka að AOM muni gera tilboð.
Háttsettur starfsmaður Virgin-
fyrirtækis Richards Bransons hefur
sagt blaðinu Le Monde að það sé
ekki visst um að tilboð í Air Liberté
sé bezta leiðin til að auka umsvif
Virgin Express flugfélagsins í
Frakklandi.
Stjórnarformaður TAT, Marc
Rochet, sagði á blaðamannafundi í
París að samkvæmt áætlun BA um
Air Liberté væri gert ráð fyrir að
varðveita 1250 störf af um 2.150.
Haldið yrði áfram áætlunarferðum
á öllum innanlandsleiðum og til
Frönsku Vestur-Indía og Réunion.
Sjónvarp vinsælla
en bíó í Evrópu
Briissel. Rcuter.
BORGARAR Evrópusambands-
landa vilja heldur horfa á sjónvarp
eða myndband en fara í bíó sam-
kvæmt nýrri skýrslu ESB.
„Sjónvarp og myndbönd ráða
lögum og lofum á skemmtana-
markaði ESB, enda hefur úrvalið
stóraukizt á síðustu 10 árum,“
segir í tilkynningu frá tölfræði-
stofnuninni Eurostat.
Árið 1994 voru að minnsta kosti
eitt sjónvarpstæki á 95,7% heimila
í ESB-löndum, myndbandstæki
voru á 58,6% heimila, 21,6% heim-
ila voru áskrifendur að kaplasjón-
varpi og 10,1% voru tengd við
geryihnattadiska.
Árið 1981 fóru ESB-borgarar í
bíó þrisvar sinnum á ári að meðal-
tali, en aðeins 1,8 sinni árið 1994.
Ándvirði af sölu og leigu mynd-
banda nam 4,7 milljörðum ecu, eða
5,6 milljörðum dollara, en andvirði
seldra aðgöngumiða að kvik-
myndahúsum nam aðeins þremur
milljörðum ecu eða 3,6 milljörðum
dollara.
Árið 1994 fækkaði kvikmyndum
framleiddum í aðildarlöndum ESB
í 519, sem er lægsta tala frá 1983
þegar þær voru 583.
I skýrslunni segir að útlitið sé
ekki að öllu leyti slæmt í kvik-
myndaiðnaðinum. Þrátt fyrir hnign-
un hafi vinsældir kvikmynda aukizt
síðan í byijun áratugarins. Eurostat
segir að vinsældir sjónvarps hafi
aukizt vegna aukins úrvals efnis.
Sjónvarpsrásum í ESB-löndum
fjölgaði í 88 úr 47 1988-1994.
Kaplasjónvarp nýtur síaukinna
vinsælda, en hefur sáralitla út-
breiðslu í Suður-Evrópulöndum
eins og Portúgal, Italíu og Grikk-
landi. Þar eru innan við 1% heim-
ila áskrifendur að því. í Belgíu og
Hollandi hafa hins vegar rúmlega
90% heimila gerzt áskrifendur.