Morgunblaðið - 16.10.1996, Qupperneq 34
34 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Októbertilboð
Fyrir aðeins
4000 kr.
færðu myndatöku af börnúnum
þínum og eina stækkun 40 x 50
sentimetra innrammaða.
Að auki færðu að velja úr 10-
20 öðrum myndum af börn-
unum og þær færðu með 50%
afslætti frá gildandi verðskrá ef
þú pantar strax.
ÚRVALS JÓLAGJÖF
Hringdu og láttu senda þér
frekari upplýsingar, en bíddu
ekki of lengi, tilboðið gildir
aðeins í ákveðinn tíma.
Ljósmyndastofa Kópavogs,
sími 554 3020.
- kjarni málsins!
URTE PENSIL
Propolis - Sólhattur
Virkni þeirra þekkja flestir
en saman er árangurinn enn
betri. Auk þess 4 steinefnaríkar
jurtir sem eru styrkjandi og
stuðla að betri líðan.
Önnur heilsuefni
frá NaturDrogeriet:
BIO-SILICA
Gott fyrir hárið,
neglurnar, beinin,
bandvefi og yngir
húðina.
JÁRN í melassa
og sojaolíu
virkar vel.
SKALLIN PLUS
vinur magans,
hreinsandi og
grennandi.
Fræhýði af Ispaghúla
-náttúrulegur fiber.
Fæst hjá: Árbæjar Apóteki, Breiðholts Apóteki,
Grafarvogs Apótcki, Laugavegs Apóteki,
Kópavogs Apótcki, Mosfells Apóteki, Apótcki
Suðurnesja, Hraunbcrgs Apóteki, Blómavali,
Fjarðarkaupum, Hcilsuhúsinu Kringiunni og
Skólavörðustíg, Heilsuhorninu Akureyri,
Heilsuvali, versl. Hollt og gott Skagaströnd,
Heilsukofanum Akranesi, Ingólfsapóteki og
Sjúkranuddstofu Silju.
BÍÓ-SELEN UMB..SÍMI 557 B610
PCIlúnogfuguefni
T Q
T LL >
IU1 feii IILUU muuu
je: \ j[ XL EL xu
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
Eg þakka innilega öllum þeim, sem glöddu
mig meÖ nœrveru sinni, b/ómum, gjöfum og
heillaóskum á 90 ára afmœlisdaginn þann
8. október síðastliðinn.
Sérstakar þakkir tilfólksins í Hallgrímskirkju.
GuÖ blessi ykkur.
Hansína Jónsdóttir,
Bollagötu 16,
Reykjavík.
Gífurlegt úrval köflóttra
efna í barnakjóla,
Abútasaum, gardínur
9a og föndur.
ffl\ Sendum í póstkröfu.
VIRKA
Mörkinni 3, s. 568 7477.
<3!>3 ■?i
'2
; s ; s « ' a * ■ 191 tm
Z-WiA.Í m
Kínaklúbbi
tii PERU
QíjL^ I
Nú fer að verða hver siðastur að skrá
sig í 24 daga langt ferðalag til Perú,
en ferðin hefst þann 21. nóv. með því
að flogið verður til Lima via New York.
Síðan verður ferðast til Cuzco, Machu
Picchu, Juliaca, Titicacavatnsins, Arequipa,
Nazca, Ica og Paracas.
Eftir að Perúferðinni lýkur, er hægt
að dvelja nokkra daga í New York,
áðuren haldiðer heim.
Verð á mann, fyrir þessa fróðleiks-
og skemmtiförtil Perú (vorhiti þar)(
er 275 þús.
Upplýsingar gefur Unnur Guðjónsdóttir
í síma 551 2596.
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Snjór í Esjunni
FYRIR nokkru var spurt í
Velvakanda hvort Esjan
hefði orðið alveg snjólaus
í sumar. Nokkrir höfðu
samband vegna þessa og
þeirra á meðal var Reynir
Eyjólfsson lyfjafræðingur.
Hann fór þama upp og
sagði að fannir hefðu verið
í Gunnlaugsskarði, líklega
um 300 fm að stærð, eða
um 130 tonn af ís. Síðan
fyldist hann með þessu í
sjónauka fram til 4. októ-
ber en þá voru fannimar
ekki horfnar og virtust
ekkert hafa minnkað frá
29. september. En frá
fyrstu viku í október hefur
verið svalt þarna uppi,
þannig að þær hafa lítið
minnkað.
Esjan hefur því ekki orð-
ið alveg snjólaus þetta árið,
en Reynir taldi að ef næsta
sumar yrði hlýtt myndu
þær líklega hverfa.
Proderm
ÞAR SEM svo margir eiga
við húðvandamál að stríða
vil ég segja frá reynslu
minni af Proderm-húðvöm,
sem er froða á brúsa, ef
það gæti orðið öðmm til
sama gagns og mér. Eftir
að hafa reynt ótal húðvarn-
ir verð ég að segja að
árangur af Proderm er í
algjörum sérflokki. Ég hef
notað það við fjölmörgu,
m.a. óþoli fyrir hráum fiski
og kjöti og er árangurinn
skjótur og frábær. Eg hef
brennt mig við eldhússtörf
og notað Proderm á bmna-
sárin og það ótrúlega er
að brunasviðinn hverfur
algjörlega á örfáum mínút-
um. Ég starfa sem dag-
móðir og eitt bamanna
hefur liðið af exemi á hönd-
um, fótum, baki og andliti,
kinnar bamsins þoldu illa
kulda og vom stöðugt rauð-
ar og spmngnar. Ég bar
Proderm á barnið í nokkra
daga, tvisvar á dag og áður
en það fór heim. Að nokkr-
um dögum liðnum var allt
gróið og húðin slétt og fín.
A bieiuofnæmi, sviða,
kláða, þurra húð, saxa á
höndum og fótum, hefur
Proderm virkað jafn vel í
öllum tilvikum. Það er til
mikilla þæginda að vömin
smitar ekki í matvæli eða
fatnað og þolir núning og
þvott.
Að endingu, enginn í
fjölskyldunni hefur fengið
sveppasýkingu á sund- og
íþróttastöðum eftir að við
fórum að bera Proderm á
fæturna áður og eftir að
farið er á þessa staði. Þessi
húðvörn fæst í öllum apó-
tekum.
Guðrún Tómasdóttir
dagmóðir.
Merkið
hlífðarfötín
PABBI sex uppkominna
barna með ijölskyldur og
enn fleiri bamabörn
hringdi og sagði að konan
hans, Laufey, hefði tvíveg-
is gengið fram á vandaða
krakkaúlpu í Vesturbæn-
um. Hún tók úlpuna upp í
seinna skiptið og sá að hún
var merkt með símanúmeri
sem var í Fossvoginum.
Þangað hringdi hún og
úlpan góða var sótt og
vermir nú eigandanum.
Foreldrar, merkið hlífð-
arföt barna ykkar.
Tapað/fundið
Trúlofunarhringur
tapaist
TRÚLOFUNARHRING-
UR tapaðist í miðbænum
sl. helgi. Innan í hringnum
stóð Þín Asta. Hafi einhver
fundið hringinn er hann
beðinn að hringja í síma
555-1491.
Úlpa tapaðist í
Breiðholtskirkju
NÝ SVÖRT unglingaúlpa
úr gúmmíkenndu efni með
gráu fóðri tapaðist úr fata-
hengi í Breiðholtskirkju.
Hún var merkt Oasis og
fæst ekki á Islandi.
Finnandi er vinsamlega
beðinn að hringja í síma
565-1688.
Veski tapaðist
SVART seðlaveski með
skilríkjum og peningum
tapaðist í strætisvagni, leið
14, frá Hlemmi upp á Ár-
túnshöfða fyrir u.þ.b.
tveimur vikum. Finnandi
er vinsamlega beðinn að
hafa samband í síma
566-8810 eða 566-8812.
Finnur Jóhannsson.
Gleraugu fundust
FUNDIST hafa vönduð
gleraugu. Upplýsingar í
síma 551-0985.
Gæludýr
Týnd læða
SVÖRT læða með gyllta
hálsól hvarf að heiman úr
Gígjulundi, Garðabæ, 18.
september sl. Hún svarar
nafninu Dimma og á það
til að fara inn í bílskúra
og lokast þar inni. Ef ein-
hver hefur orðið var við
Dimmu er hann vinsam-
lega beðinn að hafa sam-
band við Sigrúnu B. í síma
565-8686 eða í vinnusíma
551-5055.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pctursson
STAÐAN kom upp á
Ólympíumótinu í Jerevan í
viðureign tveggja stór-
meistara. Magem Badals
(2.570), Spáni, var með
hvítt og átti leik, en Zolt-
an Almasi (2.655), Ung-
veijalandi, hafði svart.
21. Bxc7! — 0—0 (Auðvitað
ekki 21. - Hxc7? 22. Hd8
mát) 22. Rd8! (Vinnur
skiptamun, því svarta
drottningin á engan reit til
að víkja sér undan á) 22. —
Hcxd8 23. Hxd8 - Hxd8
24. Bxd8 - Bg6 25. Bc7
HVITUR leikur og vinnur.
— h5 26. b3 - b5 27. Hdl
og þar sem svartur hefur
engar bætur fyrir liðstapið
gafst hann upp.
Haustmót TR. Umferð í
kvöld í öllum flokkum. Al-
þjóðamótið hefst kl. 18, en
í hinum kl. 19.30.
HÚN Sigga mín hefur náð
ótrúlegum árangi-i í
píanónáminu. Kennarinn
hennar er hættur að setja
eyrnatappa í eyrun þegar
hún kemur í tíma.
Víkverji skrifar...
AÐ hefur verið heldur óvenju-
legt andrúm í þjóðfélaginu að
undanfömu, því segja má að þjóðin
hafi beðið með öndina í hálsinum í
hálfan mánuð eftir að flóð úr Gríms-
vötnum hlaupi fram Skeiðarársand.
Það var strax sólarhring eftir að
gosið hófst í vestanverðum Vatna-
jökli sem vísindamenn sögðu það
nánast öruggt að hlaup yrði á næstu
24 tímum. Svona hefur það gengið
síðan, en menn eru þó hættir að
vera með svo nákvæmar tímasetn-
ingar og raunar virðast margir ef-
ast um að hlaup verði í bráð. Þótt
íslendingar eigi jarðfræðinga, jarð-
eðlisfræðinga, jarðskjálftafræðinga
og jöklafræðinga í fremstu röð á
heimsmælikvarða sýnir ástand það,
sem skapast hefur undir jökli við
gosið, okkur að enn er langt í land
að þekking vísindamanna á iðrum
jarðar og hvað þar gerist í raun og
veru við eldsumbrot og jarðhrær-
ingar sé tæmandi. Ef marka má
orð sérfræðinganna, þá virðist fátt
vera hefðbundið í þeim umbrotum
sem nú eiga sér stað fyrir austan.
EKKI þarf að koma á óvart
þótt athygli umheimsins hafi
verið vakin á hamförunum fyrir
austan. Fjölmargir fréttamenn
komu til landsins og sjónvarps-
stöðvar sendu hingað tökulið sem
beið í viðbragðsstellingum, rétt eins
’og íslenskir kollegar þeirra. Þær
kvikmyndir sem sjónvarpið sendi til
erlendra fréttastofa og ljósmyndir,
sem Morgunblaðið sendi víða um
heim, eiga ekki minnstan þátt í að
hafa vakið athygli umheimsins.
Enda voru kvikmyndirnar og ljós-
myndirnar svo stórbrotnar, að ekki
var unnt annað en hrífast af þeim
kynngikrafti sem braut sér leið í
gengum nokkur hundruð metra ís-
hellu og út í andrúmsloftið.
XXX
SVO mjög tókst landanum að
komast á kortið í þessari at-
rennu, að The Times helgaði ís-
landi leiðara sinn í síðustu viku,
þann 8. október, þar sem stríð nátt-
úruöfl á og við Island eru tíunduð
með dramatískum hætti. Leiðara-
höfundur segir Alþingi geta gert
kröfu til þess að vera nefnt vagga
lýðræðisins, jafnframt því sem hann
lýsir því með hvaða hætti þjóðin
standi vörð um tungu sína og menn-
ingu. Hann segir hlutfall læsi hvergi
vera hærra í heiminum, árlega sé
hér gefinn út óheyrilegur fjöldi bóka,
á Islandi sé sinfóníuhljómsveit, ball-
ett, ópera og fjórar sjónvarpsstöðv-
ar. Islendingar séu öfundsverðir af
góðum lífskjörum, sem þeir byggi á
ríkulegum þorskafla. Þeir sem flykk-
ist til íslanas, til þess að fylgjast
með ógnum náttúruaflanna, geti
ekki annað en fyllst aðdáun á þjóð
sem búi sér siðmenntað þjóðfélag í
landi sem sé á mörkum hins byggi-
lega heims. Sennilega myndi enginn
ferðabæklingur frá Ferðamálaráði
eða íslenskum ferðaskrifstofum lýsa
þjóðinni á jafn jákvæðan og róman-
tískan hátt og leiðarahöfundur The
Times gerir.