Morgunblaðið - 16.10.1996, Page 40
- 40 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ATH! Djöflaeyjan í Stjörnubíói er sýnd í A-sal á öllum sýningum.
SYNÐ I A-SAL KL. 5, 7, 9 og 11 í THX
Far- eöa Gullkortshafar VISA og Námu- og Gengismeð-
limir Landsbanka fá 25% AFSLÁTT. Gildir fyrir tvo.
MARGFALDUR
Sýnd kl. 7.10 og
9.10.
SUNSET PARK LIÐIÐ
Sýnd kl. 5.10
Suðupottur í Suðurríkjum
KVIKMYNPIR
Bíóborgin, Bíóhöilin
DAUÐASÖK „A TIME TO
KILL“ ★ ★ ★
DAUÐASÖK eða „A Time to
Kill“ eftir Joel Schumacher sem
byggist á fyrstu skáldsögu John
Grishams hefur allt sem voldugt
og spennandi suðurríkjadrama
með réttlætið sér við hlið getur
haft uppá að bjóða. Svívirðilegan
glæp sem fær kynþáttahatur milli
hvítra og svartra til að blossa upp
á yfirborðið, hefndarmorð, kyn-
þáttaóeirðir á götum úti, þjóð-
■ varðlið í viðbragðsstöðu, logandi
krossa Ku Klux Klan, leyniskytt-
ur, og réttarhöld sem stefna hvít-
um og svörtum hveijum gegn
öðrum. Og hún hefur persónugall-
i erí við hæfi; ungt fórnarlamb alls
: hins versta og skelfilegasta sem
í hinum öfgafullu, hvítu Suðurríkj-
< um býr, svarta föðurinn sem tekur
| lögin í sínar eigin hendur og drep-
i ^ ur hvítu mennina tvo er nauðguðu
, og reyndu að drepa tíu ára gamla
i dóttur hans, ungan hvítan lög-
mann sem tekur að sér að verja
' svertingjann, harðsvíraðan sækj-
i anda sem beitir öllum ráðum til
, að fá svertingjann dæmdan fyrir
morð og dómara sem virðist
standa með honum svo aðeins
nokkrir séu nefndir.
Við höfum áður séð hatrið milli
hvítra og svartra á þessum slóðum
fært upp í góðum kvikmyndum,
„To Kill a Mockingbird" og „Miss-
issippi Burning" svo aðeins tvö
dæmi séu tekin, og þótt Joel
Schumacher sé enginn listamaður
og nái ekki dýpt þeirra mynda er
hann skelfing góður fagmaður í
anda t.d. Ron Howards og gerir
magnaða mynd eftir sögunni þar
sem spurningin í réttarsalnum
snýst ekki um sekt eða sakleysi
heldur réttlæti. Schumacher er
allan tímann með myndina á suðu-
punkti og gerir Dauðasök að stór-
góðri skemmtun sem setur upp
athyglisverða spumingu um
hefndarrétt í spennandi og óhugn-
anlegum réttarhöldum. Myndin
er byggð á sterkri sögu sem gott
handrit hefur verið gert eftir og
hún er mjög vel leikin. Þetta er
suðurríkjadrama sem er eins heitt
og þau heitust geta orðið.
Hér er valinn maður í hveiju
rúmi og Dauðasök er einmitt gott
dæmi um það þegar Hollywood
flaggar öllu besta hæfileikafólki
sínu. Samuel L. Jackson er faðir-
inn og Jackson sýnir hann í sam-
úðarfullu ljósi án þess að gefa
tommu eftir sem stoltur fjöl-
skyldumaður er finnst hann hafa
gert skyldu sína, Patrick McGoo-
han, sem lék Játvarð kóng svo
eftirminnilega í „Braveheart“, rík-
ir yfir dómsalnum eins og mið-
aldalénsherra, Kevin Spacey er
saksóknarinn glettilega lymsku-
legur, Kiefer Sutherland er hat-
ursfullur fulltrúi öfgastefnu hvíta
mannsins og Kurtwood Smith
Leikstjóri: Joel Schumacher. Hand-
rit: Akiva Goldsman. Kvikmynda-
taka: Peter Menzies, jr. Framleið-
endur: Arnon Milchan, Michael
Nathanson og John Grisham. Aðal-
hlutverk: Sandra Bullock, Matthew
McConaughey, Samuel L. Jackson,
Kevin Spacey, Brenda Fricker, Oli-
ver Platt, Donald Sutherland, As-
hley Judd og Patrick McGoohan.
■ Wamer Bros. 1996
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
j LÉTTKLÆDD stúlka í fangi eins gests
á forsýningu á „Striptease".
kemur fram í litlu hlutverki erki-
dreka KKK-reglunnar. Oliver
Platt er skilnaðarlögfræðingur á
eilífðarfylliríi með úrelta Elvis-
barta, jafnvel Brenda Fricker er
kölluð frá írlandi í litla rullu og
Donald Sutherland er sem oftar
í seinni tíð í lítt skilgreindu huldu-
hlutverki. Allt eykur þetta lið á
vikt og virkt myndarinnar.
Sandra Bullock leikur aðstoðar-
konu lögfræðingsins en vand-
ræðalegt sambandið á milli hennar
og nýstirnisins Matthew McCon-
aughey er einmitt veikasti hlekkur
myndarinnar. Bullock gerir lítið
annað en flissa við nýstirninu sem
er svona sambland af Jeff Bridges
og Woody Harrelson og stendur
sig prýðilega. Hann hefur alla
burði til að halda uppi stórmynd
á borð við þessa og stefnir í að
vera aðeins meira en venjulegur
túttukjaftur frá draumaborginni.
Joel tók áhættu þegar hann setti
hann í aðalhlutverkið í stórmynd
sem Dauðasök en hún borgaði sig.
Fyrir utan að standa sig í stykkinu
er eitthvað ferskt við nýjan leikara
eins og hann. En Schumacher
ræður ekki við efnasambandið á
milli þeirra Bullocks og McCon-
aughey, sá þáttur er einfaldlega
hallærislega gegnsær.
Honum gengur mun betur að
fá adrenalín áhorfenda til að
flæða og maga til að herpast sam-
an af óhugnaði sögunnar og
spennunnar í réttarsalnum án allt-
of mikillar sýndarmennsku. Hann
nær að skapa af kostgæfni and-
rúmsloft haturs og óhugnaðar,
trúr kjarna sögunnar sem fjallar
um réttlæti og ranglæti fremur
en sök eða sakleysi.
Arnaldur Indriðason
Léttklæddar
í Regnboga
KVIKMYNDIN „Striptease", með
Demi Moore og Burt Reynolds í
aðalhlutverkum var forsýnd í
Regnboganum um helgina. Af því
tilefni mættu léttklæddar stúlkur
á staðinn og dreifðu auglýsingum
fyrir nýjasta fatafellustaðinn í
bænum, Erotic Club Oðal, fyrir
sýningu en sem kunnugt er fjallar
myndin um konu sem fellir föt til
að ala önn fyrir sér og börnum
sinum.
ciccec
t>Sk-0
SNORRABRAUT 37, SÍMI 552 5211 OC 551 1384
NETFANG: http://www.islandia. is/sambioin
DAUÐASOK
FYRIRBÆRIÐ
Sýnd kl. 4.45.
ÍSLENSKT TAL
A4MBIO
Sannkölluð stórmynd gerð eftir samnefndri metsölubók John
Grisham (The Client, Pelican Brief, The Firm). Faðir tekur lögin í
sínar hendur þegar illmenni ráðast á dóttur hans. Saksóknarinn
krefst þyngstu refsingar og réttarhöldin snúast upp í
fjölmiðlasirkus. Frábærir leikarar í öllum hlutverkum.
Samuel L. Jackson (Pulp Fiction), Sandra Bullock (While You
Were Sleeping), Matthew McConaughey, Oliver Platt (Flatliners),
Brenda Fricker (My Left Foot).
Leíkstjóri: Joel Schumacher (The Client, Batman Forever, Falling
Down, Flatliners).
RÍKHARÐUR Bjarki Guðmundsson, Birgir
Stefánsson og Sigurður Bragason.