Morgunblaðið - 16.10.1996, Side 44
'UYUNDAI
HÁTÆKNI TIL FRAMFARA
M Tækni val
SKEIFUNNI 17
SlMI 550-4000 ■ FAX 550-4001
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Fáskrúðsfjörður
Hoffell
selt til
Namibíu
15 skipverjar
missa vinnuna
KAUPFÉLAG Fáskrúðsfirð-
inga hefur gert bráðabirgða-
sölusamning um sölu á togar-
anum Hoffelli til Namibíu.
Eftir að Hoffell fer úr landi
verður aðeins systurskip Hof-
fells, Ljósafell, eftir á Fá-
skrúðsfírði. Fimmtán manna
áhöfn Hoffells hefur verið
sagt upp störfum.
Eiríkur Ólafsson, útgerðar-
stjóri, sagði að ástæðan fyrir
því að skipið væri selt væri
að lítill kvóti væri fyrir tvö
skip, þ.e. Hoffellið og Ljósa-
fellið, og afkoma í fiskvinnsl-
unni væri mjög léleg. í fram-
haldi af því væri áhugi á að
fara meira yfir í uppsjávar-
fisk.
„Við erum að aðlaga fyrir-
tækið breyttum aðstæðum og
allt kemur til greina sem get-
ur styrkt stöðu fyrirtækisins
hérna á staðnum," sagði
hann. Hann sagði að ýmislegt
kæmi til greina varðandi ann-
að skip. „Hvort sem um yrði
að ræða bein kaup, eignar-
aðild eða eitthvað annað,“
sagði hann.
Hann sagði að Hoffelið
yrði afhent í næstu viku.
Kaupverð fékkst ekki upp-
gefið.
Hálfslegnir
Högni Skaptason, skip-
stjóri á Hoffellinu, sagði að
þrátt fyrir að lengi hefði leg-
ið í loftinu að skipið yrði selt
hefðu skipveijar ekki átt von
á því að nýlokin veiðiferð yrði
sú síðasta. Skipveijarnir
fimmtán frá Fáskrúðsfírði
væru því óneitanlega hálf-
slegnir og tryðu því ekki að
óreyndu að fyrirtækið leitaði
ekki allra leiða til að útvega
önnur störf.
Fuglaþing
á Tjörninni
ÍSSKÁN hefur myndast á
Tjörninni og hafa fuglar hóp-
ast að henni svo ásýndum er
þetta eins og fugláþing.
Fíkniefni í skólum
'Þvagsýni
tekið ef
grunur er
um neyslu
DÆMI eru um að grunnskólar í
Reykjavík hafí látið taka þvagsýni
úr börnum og unglingum, til að
kanna hvort grunur um fíkniefna-
neyslu sé á rökum reistur. Þetta
__ hefur verið gert í samráði við for-
eldra barnanna.
Kristín A. Árnadóttir, aðstoðar-
maður borgarstjóra og formaður
vímuvarnanefndar Reykjavíkur,
segir að rætt hafi verið um að
grípa í auknum mæli til slíkra
ráða, rétt eins og bílstjórum sé
gert að blása í blöðru, leiki grunur
á ölvun þeirra undir stýri.
Vímulaust ísland árið 2002
Reykjavík tekur þátt í sam-
starfí 200 evrópskra borga sem
* gegn fíkniefnum. Nýlega
Vvar ákveðið að borgirnar myndu
styðja íslensk stjórnvöld og stefna
að fíkniefnalausu íslandi árið
2002. Evrópsku borgirnar bjóða
fram alla sérfræðiaðstoð sem Is-
lendingar vilja. Kristín kveðst von-
ast til að hægt sé að grípa þetta
einstaka tækifæri.
■ Mætum neikvæðri/7
Morgunblaðið/Kristinn
Flugleiðir panta nýja
Boeing 757 flugvél
FLUGLEIÐIR hf. hafa ákveðið að
ganga til samninga við Boeing-verk-
smiðjurnar í Bandaríkjunum um
kaup á nýrri Boeing 757-200 þotu
sem verður afhent í nóvember á
næsta ári. Jafnframt verður samið
um kauprétt á annarri flugvél sömu
tegundar sem bætist í flotann í apríl
1999. Þetta var samþykkt á stjórn-
arfundi Flugleiða í gær. Verðmæti
tveggja nýrra Boeing 757-200 véla
er nú um 7 milljarðar króna.
Jafnframt samþykkti stjóm félags-
ins að stefnt skyldi að því að selja
og leigja aftur af kaupendum eina
af eldri Boeing 757 þotum fyrirtækis-
ins síðar á þessu ári. Með þessu leys-
ir félagið til sín töluverða dulda eign
í flugvélinni því markaðsverð Boeing
Samið um kaup-
rétt á annarri vél -
Heildarverð
7 milljarðar
757-200 flugvéla nú er töluvert hærra
en bókfært verð. Afkoman og eigin-
fjárstaðan batnar sem því nemur.
Félagið tók á leigu nýja Boeing
757-200 vél síðastliðið vor til sex
ára, þannig að það mun hafa yfir
að ráða níu millilandaflugvélum í lok
næsta árs. Sú tíunda bætist við í
apríl 1999 þegar kauprétturinn verð-
ur nýttur.
Einar Sigurðsson, aðstoðarmaður
forstjóra, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að vöxtur hefði verið hjá félag-
inu undanfarin ár og fyrirsjáanlegt
að sá vöxtur héldi áfram. „Það er
stefnt að því að auka og styrkja
markaðsstarf félagsins og að því
hefur verið unnið undanfarið. Við
gerum ráð fyrir að nýja vélin verði
notuð til að auka tíðni og þjónustu
á meginleiðum okkar bæði til Evrópu
og Bandaríkjanna."
Einar sagði að kaup á nýju vélinni
á næsta ári hefðu í för með sér ráðn-
ingu 50-60 flugfreyja og flugmanna.
Ekki þyrfti að bæta hlutfallslega
jafnmiklu við af fólki annars staðar
í fyrirtækinu þannig að betri nýting
næðist fram á öðrum sviðum.
■ Samið um kaup/13
Leitin að skip-
verjum á Jonnu
enn árangurslaus
LEIT að skipveijum af Jonnu SF
frá Höfn sem fórst á sunnudags-
kvöld var haldið áfram í gær og
leituðu á sjötta tug manna. Leitin
hefur engan árangur borið.
Leitarmenn gerðu hlé á eftir-
grennslan um miðjg,n dag í gær
en síðan var leitað fram í myrk-
ur. Menn gengu fjörur frá Eld-
vatnsósi vestur að Sólheimasandi,
sem er ríflega hundrað kílómetra
langt svæði að sögn Agnars
Davíðssonar hjá björgunarsveit-
inni Kyndli á Kirkjubæjarklaustri,
auk þess sem notast var við fjór-
hjól og bifreiðar.
Framhald næstu daga
Leitarsvæðið var ekki ýkja erf-
itt yfírferðar og viðraði sæmilega
til leitar, að sögn Agnars. Lítils-
háttar brak barst á land í gær, til
viðbótar við það sem hefur þegar
rekið á fjörur. Búist er við að leit
verði haldið áfram með einhveijum
hætti næstu daga.
Þeirra er saknað
MENNIRNIR, sem saknað er eftir barna faðir. Vignir Högnason, vél-
að vélbáturinn Jonna SF 12 fórst, stjóri, 32 ára. Vignir er í sambúð og
heita: Jón Gunnar Helgason, skip- á tvö börn og tvö fósturbörn. Guðjón
stjóri, 41 árs, kvæntur og fjögurra Kjartan Viggósson, 18 ára, háseti.
Jón Gunnar
Helgason
Guðjón Kjartan
Viggósson
Vignir
Högnason