Morgunblaðið - 16.10.1996, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996 C 7
>
i
>
I
I
Sk
J
53
GREINAR
Fjarskiptamál
sjómanna
ÉG VIL byija á að
þakka Árna Bjarnasyni
á Akureyrinni EA 110
góð orð í garð starfs-
manna strandarstöðva
Pósts og síma í grein
sinni sem birtist í
Morgunbiaðinu þann
11. sept. sl. undir fyrir-
sögninni: „Ófremdar-
ástand ríkir nú í ij'ar-
skiptamálum“. Það er
alltaf ánægjulegt og
nauðsynlegt að menn
tjái sig og vekji til
umraeðu ýmis málefni
sem þeir telji að betur
megi fara, og ekki síð-
ur það sem vel er gert.
Sjómenn sem aðrir mættu gera
meira af því. Tjáskipti og umræður
er vænlegasta leiðin til að nálgast
skynsamlegar niðurstöður.
Með takmörkunum á fiskveiðum
á heimamiðum hefur færst í aukana
að íslensk fiskiskip sæki dýpra en
áður, og á íjarlæg mið til úthafs-
veiða, þó einkum í Smuguna, á
Reykjaneshrygginn og á Flæmska
hattinn. Þessi sóknarbreyting hefur
valdið aukningu í fjarskiptum við
þessi skip, sérstaklega á stuttbylgj-
utíðnisviðinu vegna fjarskiptavega-
lengdar. Afgreiðsla símtala um ís-
lenskar strandarstöðvar til og frá
skipum á þessum úthafsveiðisvæð-
um fer fyrst og fremst fram á stutt-
bylgjum um Reykjavíkurrad-
íó/TFA, þó einnig sé stundum sam-
band við þessi skip á millibylgjum
(MB), og einnig þá t.d. um strandar-
stöðvamar Siglufjarðar-radíó/TFX
í Smuguna og Vestmannaeyja-rad-
íó/TFV á Flæmska hattinn, yfir
vetrartímann þegar dimmt er orðið,
fyrir áhrif jónalaganna. Fréttir frá
fréttastofu RÚV eru einnig sendar
á stuttbylgjum til sjómanna og ís-
lendinga erlendis 5 sinnum á sólar-
hring frá Reykjavík-radíó.
Bœtt við sendum
Vegna aukningar á símtala-
afgreiðslu við skip á stuttbylgju var
bætt við einum stuttbylgjusendi á
Reykjavíkurradíó snemma á þessu
ári og annar er væntanlegur í gagn-
ið innan tíðar, þannig að þá hefur
stöðin yfir að ráða sjö stuttbylgju-
sendum. Þess má geta að allur
tækjabúnaður stöðvarinnar var
endurnýjaður árið 1993. Til að
bæta enn sambandsmöguleika er
stöðin búin bæði stefnuvirkum og
óstefnuvirkum sendi- og viðtöku-
loftnetum. Sókn í Smuguna og á
önnur úthafsveiðisvæði hefur að
mestu verið árstíðabundin, þ.e.a.s.
að íslenski fiskiskipaflotinn sem
stundað hefur þar veiðar gerir það
ekki samfellt árið um
kring. Á sumum þess-
ara svæða eru engin
eða fá skip ákveðinn
hluta árs, en í annan
tíma ijöldi skipa.
Eftirspurnin eftir
samtölum á stuttbylgj-
um er því sveiflukennd,
stundum mjög mikil og
stundum minni þannig
að nóg er þá af lausum
ijarskiptarásum. Eftir-
spurnin er ekki síður
sveiflukennd eftir tíma
dags. Mest er eftir-
spurn eftir símtölum
um strandarstöðvarnar
eftir vaktaskipti um
borð í skipunum, en vaktaskiptin
eru á svipuðum eða sama tíma sól-
arhringsins hjá flestum þeirra m/v
staðartíma skipsins (skipstíma). Á
þeim tíma óska flestir um borð eft-
ir símtali, þannig að stundum getur
einhver bið orðið eftir því að fjar-
skiptarás losni.
Staðartími færður til
Mér hefur verið tjáð að um borð
í flestum íslensku skipunum sem
stunda veiðar t.d. i Smugunni, sé
Ekki dugir eingöngu
að strandarstöðvarnar
séu búnar fullkomnum
tækjakosti, skrifar
Lárus Jóhannsson,
heldur þurfa skipin
einnig að vera búin
nauðsynlegum og góð-
um fjarskiptatækjum.
notaður íslenskur staðartími (UTC)
sem skipstími, en tímasvæðið i
Smugunni er u.þ.b. 3 tímum á und-
an íslenskum staðartíma. Ef skip-
stjórar breyttu staðartíma skips,
þ.e. skipstíma um borð, á því út-
hafsveiðisvæði sem þeir eru staddir
á hveiju sinni eitthvað í átt að tíma-
svæði úthafsveiðisvæðisins, en ekki
allir jafnmikið, á þann veg að það
munaði e.t.v. 1 til 3 klst. á skips-
tíma milli skipa eða hóps skipa á
sama úthafsveiðisvæði, þannig að
vaktaskipti í skipunum væru ekki
á sama tíma um borð í þeim öllum,
mætti draga úr og jafna út þeim
stóru álagspunktum sem koma upp
á vaktaskiptatímanum í stutt-
Lárus Jóhannsson
^S^SIMRAD
Anritsu
smábátaradar
• 24mílna
• Þrívíddarmynd
• Hagstætt verð
Friðrik A. Jónsson
Fiskislóð 90, Reykjavík,
sími 552 2111.
Tsurumi
SLÓGDÆLUR
Öflugt og
opið dælu-
hjól með
karbíthnífum
Vönduð
kapalþétting
Yfirhitavörn
Níösterkur
rafmótor
3 x 380 volt
3 x 220 volt
Tvöföldþétt-
ing með sili-
koni á
snertiflötum
V Skútuvogi 12a, 104 Rvk. tr 581 2530
bylgju-afgreiðslu símtala. Slíkt fyr-
irkomulag gæti orðið til bóta fyrir
sjómenn á þessum slóðum, a.m.k.
hvað varðar símtala-afgreiðsluna,
þannig að bið myndaðist síður á
mestu álagstímunum, og strandar-
stöðvarnar gætu veitt sjómönnun-
um betri þjónustu sem vissulega er
ávallt þeirra markmið.
Að sjálfsögðu væri gott að geta
bætt þjónustuna við sjómenn enn
frekar þannig að álagspunktar
mynduðust ekki, en í þessari þjón-
ustu sem annarri er það alltaf
spurningin um peninga. En ekki
dugir það eingöngu til að strandar-
stöðvamar séu búnar meiri og full-
komnari tækjakosti, heldur þurfa
skipin einnig að vera búin nauðsyn-
legum og góðum fjarskiptatækjum.
Nú var það svo því miður, a.m.k. í
byijun, að sum þeirra skipa sem
fóru til úthafsveiða á fjarlæg mið
voru ekki búin fullnægjandi stutt-
bylgjustöðvum til að halda uppi
stuttbylgjusambandi fyrir símtöl,
miðað við fjarlægð þeirra frá ís-
landi, þ.e.a.s. stuttbylgjustöðvum
sem gátu unnið a.m.k. á tíðnisviðinu
frá 4 Mhz til 16 Mhz. Þessi um-
ræddu skip voru búin millibylgju-
stöðvum fyrir tíðnisviðið frá 1,6
Mhz til 4 Mhz sem að öllu jöfnu
dugir ekki yfír svo miklar fjarlægð-
ir.
Ódýrasta þjónustan
íslensku strandarstöðvarnar
bjóða í dag upp á ódýrustu verðin
fyrir þjónustu sína í samanburði við
flestar strandarstöðvar í Evrópu og
þó víðar væri leitað, munurinn er
margfaldur miðað við sambærilega
þjónustu erlendra strandarstöðva.
Símtalagjöld um íslenskar strandar-
stöðvar hafa því verið afar hag-
stæð. í samanburði við símtala-
afgreiðslu um gervihnetti er 7-11
sinnum ódýrara að tala frá íslensku
skipi gegnum íslenska strandarstöð
en um gervihnattasambönd.
Árið 1995 voru afgreidd um
Reykjavík-radíó 22 neyðartilvik, 75
háskatilvik, 40 aðstoðarbeiðnir
vegna vélarbilana, og 52 beiðnir
vegna læknisaðstoðar. Ekki eru þá
meðtalin þau tilvik sem fóru um
hinar 4 íslensku strandarstöðvarn-
ar. Öll neyðartilvik, háskatilvik og
beiðnir vegna læknisaðstoðar, og
önnur tilvik þar sem hætta steðjar
að, hafa forgang fram yfir alla
aðra almenna afgreiðslu um strand-
arstöðvarnar. Ef nota þarf rásir
strandarstöðvanna fyrir einhveija
slíka þjónustu eru þær tafarlaust
teknar til slíkrar afgreiðslu, þó svo
að þær séu í notkun fyrir almenna
eða forgangsminni þjónustu.
Læknisbeiðnir
hafa forgang
Til upplýsinga fyrir skipstjórnar-
menn og sjómenn, þá hafa beiðnir
um læknisaðstoð forgang yfir alla
almenna afgreiðslu í fjarskiptum.
Uppköll vegna slíkra tilfella skulu
hefjast á orðinu „MEDICO“ og síð-
an kall til (nafn) þeirrar strandar-
stöðvar sem kalla á upp og síðan
nafn og kallmerki skipsins. Einnig
má nota alþjóða háskamerkið „PAN
PAN“ kallað þrisvar sinnum, í al-
varlegum tilfellum og ef líf liggur
við, og orðið „MEDICO“ á eftir,
síðan nafn strandarstöðvarinnar
sem kalla á upp, og svo nafn og
kallmerki skipsins. Einnig má gera
kall til allra stöðva („ALL STAT-
IONS“) með sama hættí. Ef ekki
næst samband á kall- eða neyðar-
rásum má nota hvaða fjarskiptarás
sem er, sem ekki er þegar upptekin
í neyðar- og háskafjarskiptum til
að koma slíku uppkalli á framfæri,
þ.m.t. vinnurásir, þó svo þær séu
uppteknar eða í notkun.
Höfundur er yfirdeildarstjóri
Reykjavíkurradíós.
ATVINNA ÍBOM
Mgsp
YFIRVÉLSTIðRI
VÉISTIÓRAR
Traust útgerðafyrirtæki óskar eftir að ráða
yfirvélstjóra með VF-1 réttindi og vélstjóra helst
með 4. stigs réttindi.
Vélastærð skipanna er 1325 kw og 1766 kw.
Um er að ræða góð störf á frystitogurum.
Það er um að gera að kanna málið og sjá hvað
er í boði.
Með umsóknir og fýrirspurnir verður farið sem
trúnaðarmál.
Allar nánari upplýsingar veita Torfi Markússon og
Jón Birgir Guðmundsson í síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: viðkomandi störfum fyrir
25. október nk.
RÁÐGARÐURhf
SI]C®NUNAROGREKSIRARRÁÐGJÖF
FurugarSI 5 108 Rtykjavik Sfml 533 1800
Fax: 833 1808 Nvtfang: rgmldlun©trekn«t.l*
Hðinttlftai http://www.trekn9t.ls/rndaar8ur
Traust viðskipti
Óska eftir föstum viðskiptum á ufsa.
Getum gert upp eftir hverja vigtun.
Áhugasamir leggi inn svör á afgreiðslu Mbl.,
merkt: „T - 1456“.
KVáéðTABANKiNN
Karfi til leigu. Þorskur til sölu.
Sími 565 6412, fax565 6372, Jón Karlsson.
Fiskiskip og kvóti til sölu
Vélskipið Trausti ÁR-313, skipaskrárnr.
1156, sem er 149 brl. stálskip, smíðað á
Akureyri 1971 og yfirbyggt 1987, er til sölu.
Skipið er útbúið á línu-, neta- og togveiðar.
Veiðarfæri fylgja. Skipið selst með veiðileyfi
og eftirtöldum aflahlutdeildum og nánast
óskertu aflamarki 1996/1997:
Þorskur 117.700 kg. Ýsa 64.000 kg.
Ufsi 10.000 kg. Karfi 8.600 kg.
Skarkoli 46.700 kg. Steinbítur 62.800 kg.
Úthafsrækja 19.200 kg.
Skipasalan Eignahöllin,
Hverfisgötu 76, 101 Reykjavík,
sími 552 8850, fax 552 7533.