Morgunblaðið - 16.10.1996, Page 8

Morgunblaðið - 16.10.1996, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER1996 FRÁ undirritun samninga Athygli ehf. og Fiskifélags íslands um útgáfu Sjómannaalmanaks og Ægis. Frá vinstri: Einar K. Guðfinnsson formaður Fiskifélagsins, Bjarni Kr. Grímsson fiskimálasljóri, Omar Valdimars- son og Valþór Hlöðversson frá Athygli ehf. Athygli tekur við Ægi og Sjómannaalmanakinu Ægi áfram til að koma á framfæri við sjómenn og annað starfsfólk í sjávarút- vegi upplýsingum um það sem helst er á döfinni í greininni, starfsemi á vegum Fiskifélagsins, þróun í fiskvinnslu og veiðum og nýjungar á því sviði og draga fram það sem vel er gert í þessum at- vinnuvegi. Sjómannaalmanak Fiskifélags íslands, sem nú kemur út í 72. sinn, verður hins- vegar unnið í Reykjavík og prentað hjá prentsmiðjunni Odda. Sérstaða Sjó- mannaalmanaks Fiskifélagsins felst ekki síst í því að það er keypt í öll íslensk skip yfír tólf metrum á lengd og í því er nýjasta uppfærða skipaskrá félagsins sem tekur til allra skipa sem gerð eru út á Islandi, annarra en opinna vélbáta, en hana er ekki að finna annars staðar. FJOLMIÐLAFYRIRTÆKIÐ Athygli ehf. í Reykjavík hefur tekið að sér að annast útgáfumál fyrir Fiskifé- lag íslands. Felur það í sér að Athygli annast útgáfu á Sjómannaalmanakinu, sjómannablaðinu Ægi og fylgiriti þess, Útvegstölum. og ársritinu Útvegi. Samn- ingar um þetta voru undirritaðir í vikunni. Sjómannaalmanakið, sem út hefur komið á vegum Fiskifélagsins í rúm 70 ár, kemur út fyrir áramót en samningarn- ir um umsjón Athygli með Ægi og Útvegstölum gilda frá næstu áramótum. Ritstjórnin flyst norður Athygli mun flytja ritstjórn Ægis og Útvegstalna til Akureyrar og hefur Jó- hann Ólafur Halldórsson, fyrrum rit- stjóri á Degi, verið ráðinn daglegur rit- stjóri blaðanna. Fiskifélag íslands verður áfram formlegur útgefandi blaðanna og fiskimálastjóri ritstjóri þeirra og ábyrgð- armaður. Ægir og Útvegstölur verða prentuð hjá Asprent/POB ehf. á Akur- eyri og dreift þaðan. Með því að færa vinnslu blaðsins að miklu leyti norður í land telja Fiskifélag- ið og Athygli að nýir möguleikar opnist til efnisöflunar og efnistaka enda er Akureyri með stærstu útgerðarstöðum á landinu og útgerð og fiskvinnsla í fjórðungnum með miklum myndarskap. Ægir verður þó áfram landstímarit, sem áfram mun leita efnisfanga í ölium landshornum. Keppst verður við að nýta Unnið að söguskráningu N or ður-Atlantshafsins SOGUSAMTOK Norður,Atlantshafsins, NAFHA, hafa geflð út fyrsta hefti ritraðarinnar Studia Atl- antica, en samtökin stefna einnig að útgáfu heildar- sögu hafsvæðisins á næstu árum. Að samtökunum standa allar Norðurlandaþjóðirnar nema Finnland, þ.m.t. Grænland og Færeyjar auk Bretlands, Þýskalands, Hollands, Spánar og Kanada. Jón Þ. Þór, sagnfræðingur, segir að hér sé um mjög stórt verkefni að ræða og væntir þess að afraksturinn líti dagsins ljós eftir þijú til ijögur ár. Fjölþjóðlegt risaverkefni The North Atlantic Fish- eries History Association eru samtök sagnfræðinga sem skrifa fiskveiðisögu Norður-Atlantshafs og er ætlunin að skrifa sögu haf- svæðisins í þremur áföng- um. í fyrsta lagi verður skrifuð heildarsga Norður- Atlantshafsins og verður hún væntanlega í 3-5 stór- um bindum og skrifuð á ensku. Jón segir að þegar sé hafín vinna við þetta verkefni. Það sé mjög við- amikið, enn sé langt í land og ekki megi vænta út- komu sögunnar fyrir en að Jón Þ. Þór minnsta kosti 3-4 árum liðnum. Þá er áætlað að annar hlutinn verði fiskveiðisög- ur einstakra landa og skrifaðar á þjóðtungunum og segir Jón að hverri þjóð sé það í sjálfsvald sett hve stór saga hennar verður. Þekkingarstaðan kortlögð Þriðji hlutinn er síðan ritröðin Studia Atlantica og hefur nú nýverið komið út fyrsta bindi ritraðarinn- ar. í því eru fyrirlestrar sem haldnir voru á stofn- fundi félagsins í Vestmannaeyjum á síðasta ári. Þar er fjallað um Norður- Atlantshafið sem sameiginlega auðlind og segir Jón að markmiðið með ráð- stefnunni í Vestmannaeyjum liafi verið að kortleggja þekkingarstöðunna, hve mikið hafi verið rannsakað í þessari sögu. „Menn voru því fyrst og fremst að flytja fyrirlestra um stöðu rannsókna í hveiju landi. Þannig að þetta fyrsta bindi gengur að mestu út á það hvað búið er að gera og hvað á eftir að gera,“ segir Jón. Jón segir að væntaniega verði annað bindið helgað fyrirlestrum sem haldnir voru á ráðstefnu á Grænlandi síðastlið- ið sumar og vonast hann til að það komi út fljótlega eftir áramót. Þriðja bindið verði síðan lagt undir fyrirlestra sem félagið hélt í Færeyjum í síðasta mánuði. „Þá er einnig möguleiki á að einstök bindi í þessari ritröð verði vett- vangur fræðimanna til að koma á fram- færi stórum ritgerðum sem fýlla heila bók. Þannig að við hugsum okkur að ritröðin geti haldið áfram að koma út löngu eftir að sjálf fiskveiðisagan kem- ur út,“ segir Jón. ÆT FOLK Simonsen svipt- ur réttindum • TOR Arne Simonsen, þekktur lögfræðingur í Tromse í Noregi, var nýlega sviptur starfsréttindum og væri það ekki í frásögur fær- andi hér uppi á íslandi nema vegna þess, að Simonsen þessi er stjórnarformaður Troms- fisk, fyrirtækisins, sem tog- ast nú á við SÍF, Sölusam- band íslenskra fiskfram- leiðenda, um spænska fyrir- tækið La Bacaladera. Það var norska dómsmálaráðu- neytið, sem svipti Simonsen lögfræðiréttindum, en opin- bert eftirlitsráð, sem fylgist með starfsemi lögfræðinga, hafði ýmislegt við umsvif hans að athuga. Hafði það sent Simonsen bréf og beðið hann að svara ýmsum spurn- ingum en hann lét aldrei svo lítið að ansa þeim. Simonsen hefur ítök í fleiri fyrirtækjum en Tromsfisk og sagt er, að hann ætli að hafa lifibrauð sitt af þeim og hyggist ekki reyna að fá lögfræðiréttindin aftur. Sjóminjasafnið stækkað • Toghleraframleiðandinn Jósafat Hinriksson hefur opn- að 320 fermetra viðbótarsal við Sjóminjasafn sitt í Súðar- vogi 4 og fá nú ýmsir mun- ir að njóta sín betur en áður. Salurinn var opnaður í boði sem Jósafat og Útflutnings- ráð héldu saman þann 19. sept- ember sl., eða á meðan á ís- lensku sjávarútvegssýning- unni stóð. 600 manns mættu í teitið og bárust safninu margir merkir munir. Nefna má logg- klukku, vélarrúmsstiga, teppa- bankara, plottara, radar, málm- deiglu úr grafíti, steinolíublúss- lampa, bensínlóðbolta, miðunar- tæki, handfæraballans, síldar- háf, bátamótor, sperrufestingar, lás, ljósmynd, peningakassa með gamalli smámynt, veggklukku, pottsleifar, suðupott auk ýmissa annarra verkfæra. Einn merk- asti hluturinn, sem safninu barst, að mati Jósafats, er Haslev-orgel Guðmundar „fimmfalda" Guðmundssonar frá Neskaupstað, en viðumefnið mun Guðmundur hafa fengið vegna þess hve mikill snillingur hann var á fímmfalda harmon- íku. Tækifæri til að stríða Norðmönnum LOK ársfunda Alþjóðahaf- rannsóknaráðsins hefur sú venja skapast að heiðra þá sérstaklega sem flytja skemmtilegustu ræðurnar. Á fundi ráðsins í Reykjavík á dögunum kom þessi viður- kenning í hlut okkar manns, Jakobs Jakobssonar, for- stjóra Hafrannsóknastofnun- ar, en hann þótti flytja afar skemmtilegt erindi um síldar- göngur á tímabilinu frá 1950- 1970. Jakob var að vonum ánægður með viðurkenn- inguna, inn- rammað heið- ursskjal og viskíflösku, sagðist reyndar nota Jakob Jakobsson hvert tilefni, sem gæfist, til að stríða Norðmönnum eilítið í síldarmálunum. Barbeque-grillað laxafiðrildi með paprikusósu VEITINGAHÚSIÐ Astro, sem er til húsa í Austurstræti 22, ætlar að bjóða nýjan matseðil frá og með morgundeg- ; - inuin. Á matseðlinum er blanda bæði af ■ WéÁHiUúlÚ léttum og þyngri réttum, kjöti, fiski og pasta auk girnilegrar sjávarréttasúpu, að sögn Auðuns Valssonar, kokks á Astro, sem brást vel við þegar Verið falaðist eftir fiskréttaruppskrift að hætti hússins. Fyrir valinu var barbequegrillað laxafiðrildi með paprikusósu. Þess má geta að Astro er aðeins opið á kvöldin frá kl. 18.00 til 23.00 á virkum dögum og 18.00 til 24.00 á föstu- dags- og laugardagskvöldum. í réttinn þarf: 720 g laxafiök 4 msk. barbeque-sósa salt og pipar olía Beinhreinsið laxaflakið og skerið i um það bil fjögurra cm þykkar sneiðar. Skerið svo skurð í miðja sneiðina inn að roðinu. Leggið roðið saman svo að stykkið myndi fiðr- ildi. Penslið stykkin með olíu og kryddið með salti og pipar. GriIIið laxinn á vel heitu grilÚ í tvær mínútur á hvorri hlið. Rétt áður en iaxinn er fulleldaður er hann penslaður með barbeque-sósunni. Sósan 4 rauðar paprikur 1 græn paprika 1 msk. paprikuduft 2 saxaðir hvítlauksgeirar 1 tsk. fiskikraftur salt og pipar olía 400 ml vatn Skerið rauðu paprikumar í sundur og fjarlægið fræin og stilkinn út. Saxið gróft og svitið I olíunni. Setjið hvít- laukinn út í ásamt paprikudufti og kryddið til með salti og pipar. Hellið vatninu saman við og sjóðið rólega í 15-20 minútur. Maukið síðan í matvinnsluvél og sigtið maukið aftur í pottinn. Látið sjóða og þykkið sósuna með maisenamjöli ef með þarf og kryddið með fiskkrafti. Skerið grænu paprikuna í teninga og stcikið stutta stund í örlittu af olíu. Bætið síðan i sósuna og framreiðið. Setj- ið laxastykkin á diska eða fat og framreiðið með sósunni ásamt hrísgtjónum og salati.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.