Morgunblaðið - 17.10.1996, Side 1

Morgunblaðið - 17.10.1996, Side 1
fNftrgnttMafrife B 1996 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER BLAÐ KNATTSPYRNA Leikmenn Man. Utd. urðu fýrir aðkasti ÆSTIR og tapsárir stuðningsmenn Fener- bahce réðust að langferðabifreið þeirri sem flutti leikmenn Manchester United af leikveUi til flugvallarins í Istanbúl, eftir tap heima- manna, 0:2, í Meistaradeild Evrópu. Það mun- aði ekki miklu að fjórir af ungu leikmönnum United slösuðust, því að tyrknesku knatt- spyrnubullurnar brutu hliðarrúður í bifreið- inni, þannig að glerbrotum rigndi yfir þá Phil og Gary Neville, Paul Scholes og Ben Thornley. „Þetta var mikið áfall, en sem bet- ur fer meiddist enginn okkar,“ sagði Phil NeviUe. „Ég fékk nokkur glerbrot upp í munn- inn, og spýtti þeim út. Þetta var áfall fyrir okkur, sem betur fer lét þjálfari okkar ekki stöðva bifreiðina." Atvikið átti sér stað á brúnni yfir Bosporus-sund. ■ Leikirnir / B8 Rcuter Kristinn Björnsson skrifar undir samning við Leiftur Spennandi og krefj- andi verkefni Kristinn Björnsson undirritaði í gær samning við Leiftur í Ólafsfirði og gerir hann ráð fyrir að stjórna fyrstu æfingunni um mánaðamótin. „Þetta er spennandi og krefjandi verkefni,“ sagði Kristinn við Morg- unblaðið í gær en hann hætti sem landsliðsþjálfari kvenna fyrir skömmu. Hann hefur þjálfað í rúman áratug, síðast í 1. deild í fyrra. Þá var útlitið svart hjá Val en Kristinn tók við stjórninni síð- sumars og hélt liðinu uppi. „Það er alltaf skemmtilegt að þjálfa í 1. deildinni _þó því geti fylgt ýmsar þrautir. Ég þekki það að vera með lið í toppbaráttu og eins hef ég átt fótum mínum fjör að launa í deild- inni en það tilheyrir starfinu að vera í öfgunum - vel má vera að í mér leynist spennufíkill." Leiftursmenn hafa misst Gunnar Oddsson frá liðnu tímabili og Bald- ur Bragason hefur hug á að kom- ast í atvinnumennsku en að sögn Þorsteins Þorvaldssonar, formanns knattspyrnudeildar, verða aðrir Juventus tapaði stigi íVínarborg JUVENTUS frá Ítalíu varð að sætta sig við 1:1 jafntefli í bráð- skemmtilegum leik gegn Rapid í Vín í gærkvöldi. Þar með tapaði Juventus fyrsta stiginu í Meistara- deild Evrópukeppninnar en er samt í efsta sæti C-riðiIs og allt bendir til að liðið fari áfram í átta liða úrslitin. Á myndinni dett- ur Christian Prosenik úr Rapid yfir herðar Vladimirs Jugovic úr Juventus. Sænska liðið IFK frá Gautaborg kom skemmilega á óvart með því að sigra AC Milan 2:1 á heima- velli og svo gæti farið að Milan kæmist ekki áfram í keppninni. Orn Ævar bestur í Frakklandi ÖRN Ævar HjaiTarson úr Golfklúbbi Suður- nesja, hefur fjögurra högga forystu eftir tveggja daga keppni á árlegu unglingamóti í Frakklandi. Keppt er á velli sem heitír Mak- ila og er 6.176 metra langur, par 72. Örn Ævar lék fyrri hringinn á parinu en síðari hringinn á þremur undir pari, 69 höggum og er því á 141 höggi eftír tvo hringi. 24 þjóðir senda keppendur í mótið og eru þrír aðrir ungir islenskir kylfingar meðal keppenda, þeir Birgir Haraldsson, Þorkell Snorri Sigurðsson og Pétur Óskar Sigurðs- son. Birgir lék á 76-77=153 höggum, Þorkell Snorri á 77-79=156 og Pétur Oskar á 81-88= 169. í gær æfðu strákarnir á velli sem nefnist Biurritz, en þar verða síðustu tveir hringirnir leiknir, í dag og á morgun. leikmenn áfram auk þess sem verið er að vinna í því að styrkja hópinn enn frekar. „Það er margt spennandi við Leiftur," sagði Kristinn. „Ég kom úr námi 1984 og byijaði hjá Leiftri sem spilandi þjálfari. Þá var liðið í 3. deild og fór í 2. deild og síðan hefur það smátt og smátt verið að fikra sig upp á við. Nú var Leiftur í 3. sæti í 1. deild og vill vera í hópi þeirra stóru. Ljóst er að ef lið í 3. til 5. sæti stefna hærra verða þau að styrkja sig eins og tvö efstu liðin gera og hugur er í Leiftursmönn- um í þá átt. Fylla þarf skarðið sem Gunnar skilur eftir sig og það má gera með tvennum hætti. í fyrsta lagi með því að fá nýja leik- menn og í öðru lagi með því að hinir taki á sig meiri ábyrgð, því þótt vilji sé til að fá menn er ekki víst að það takist." Kristinn Björnsson KAPPAKSTUR: HILL ÓK MEÐ GLÆSIBRAG ÚT ÚR SKUGGA FÖDUR SÍNS / B6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.