Morgunblaðið - 19.10.1996, Síða 15

Morgunblaðið - 19.10.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996 15 AKUREYRI Gylfi Þór Magnússon á árs afmæli skrifstofu SH á Akureyri Kom á óvart hve margt starfsfólk vildi norður Morgunblaðið/Kristján STARFSMENN SH-skrifstofunnar gerðu sér dagamun í tilefni af ársafmæli starfseminnar á Akur- eyri. Á myndinni er hluti starfsfólks að gæða sér á bakkelsi í kaffitímanum í gær. Á MORGUN, sunnudag, er liðið eitt ár frá því að Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna tók formlega í notk- un nýja aðalskrifstofu sína á Akur- eyri. Ákvörðun um að flytja þriðj- ung af starfsemi SH í Reykjavík var tekin í tengslum við baráttu SH og íslenskra sjáyarafurða um sölu á afurðum Útgerðarfélags Akureyringa hf., eins og reyndar marg- oft hefur komið fram. Þver- skurður af starfsemi SH var fluttur til Akureyrar og á skrifstofu fyrir- tækisns þar starfa um 30 manns. Flestir starfsmennirnir störfuðu áður á skrifstofu SH í Reykjavík en aðrir starfsmenn eru heima- menn. Gylfi Þór Magnússon, fram- kvæmdastjóri markaðsdeildar SH, var ráðinn til að veita skrifstofunni á Akureyri forstöðu. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að eftir að ákvörðun um flutning lá fyrir hafi stjórnendur fyrirtækisins stað- ið frammi fyrir gífurlegu, verkefni, bæði stjórnunar- og tæknilega og eins varðandi starfsmannamál. „Það má skipta þessu verkefni í Ijögur stig. Fyrsta stigið er undir- búningurinn og þessi fyrirkomu- lagsatriði, síðan var það flutningur- inn sjálfur, sem var mikið rask bæði fyrir starfsmenn og fjölskyld- ur þeirra og fyrirtækið sjálft. Þriðja stigið sneri að því að hefja starfíð formlega og sýna mönnum fram á það, framleiðendum, sölumönnum og öðrum að fyrirtækið væri að minnsta kosti jafn gott starfandi á tveimur stöðum og það tókst alveg fullkomlega. Fjórða stigið er svo framhaldið og áframhaldandi sókn fyrirtækisins." Gífurleg framleiðsluaukning Gylfi Þór segir að hjá SH hafi orðið gífurleg framleiðsluaukning á liðnum árum, bæði innanlands og erlendis og að halda þurfí sóknar- kraftinum áfram, ekki bara á Akur- eyri heldur i fyrirtækinu öllu. Fyrstu 9 mánuði þessa árs hefur orðið 20% framleiðsluaukning mið- að við sama tímabil í fyrra. Ef síld og loðna eru undanskildar er fram- leiðsluaukningin 8% á þessu tíma- bili. Aukningin hjá innlendum fram- leiðendum er um 5% og hjá erlend- um framleiðendum um 20%. Heild- arframleiðlan á þessu 9 mánaða tímabili er orðin 96 þúsund tonn en var allt árið í fyrra um 109 þús- und tonn. „Sóknarkrafturinn liggur bæði í því að ákveðnir framleiðendur ná framleiðsluaukningu og einnig er framleiðendum hjá SH að fjölga. Árið 1994 voru 90 framleiðendur með samning við Sölumiðstöðina, i fyrra þeir um 100 og á þessu ári hefur þeim enn fjölgað, bæði inn- lendum og erlendum. Hins vegar eru eigendur fyrirtækisins innan við 40, sem sýnir að margir framleið- endur sem ekki eru eignaraðilar að SH sjá sér hag í því að skipta við fyrirtækið. Þetta er það sem mér finnst standa upp úr á 1 árs af- mæli skrifstofunnar á Akureyri, að fyrirtækið sem heild er enn sterk- ara enn áður.“ Um 100 manns flutti norður Gylfi Þór segir að það hafi kom- ið stjórnendum SH mjög á óvart hversu margir starfsmenn voru til- búnir að taka sig upp og flytja með fyrirtækinu til Akureyrar á síðasta ári. Alls 22 starfsmenn SH fóru þá norður og segir Gylfí Þór að það hafí gert flutningana mun auðveld- ari, þar sem starfsmenn voru svo jákvæðir. „Hingað komu því vanir starfsmenn í upphafi og til viðbótar voru heimamenn ráðnir til fyrirtæk- isins. Nær undantekningarlaust kom íjölskyldufólk að sunnan, alls um 100 manns og hefur því tekist mjög vel að aðlaga sig á nýjum stað.“ Gylfi Þór segir að auk þess að flytja hluta af skrifstofu SH norð- ur, hafi fyrirtækið farið í stórfelldar aðgerðir, sem tengist því að skapa 80 störf í bænum, samkvæmt samn- ingi við Akureyrarbæ. „Stofnkostn- aður við allan pakkann er í kringum 130-140 milljónir króna, sem eru miklir peningar en við finnum að það sem við höfum verið að gera er metið á Akureyri. Sölumiðstöðin hefur tengst mörgum fyrirtækum í bænum, sem um leið hafa eflst og styrkst og einnig Háskólanum, með því að greiða þar eina stöðu prófess- ors. SH kom inn í rekstur Akó- plasts í samvinnu við Plastprent í Reykjavík, við leggjum til ákveðin atriði í minni fyrirtæki eins og yörumiða. Við keyptum fyrirtækið Ópal og seldum það aftur Nóa Sír- íusi, sem í framhaldinu flutti mikla starfsemi til Akureyrar. Þá er SH hluthafí í nýrri kexverksmiðju sem hér er að fara af stað.“ Kann vel við sig á Akureyri Þessu til viðbótar hefur SH hlut- ast til um að ákveðnir fjárfestar í Reykjavík komu inn í rekstur Slipp- stöðvarinnar og þá tengdist SH rekstri Foldu um tíma. „Einnig má nefna að Akureyri er nú útflutn- ingshöfn, þar sem Eimskip hefur eflt mjög starfsemi sína, að tilstuðl- an Sölumiðstöðvarinnar, og þjónar um leið fiskiðnaðinum betur. Allt hefur þetta kostað mikla peninga en við ætlum að láta þá skila sér til baka á annan hátt.“ Sjálfur segist Gylfí Þór kunna mjög vel við sig á Akureyri, enda sé auðvelt að flytja sig á milli staða í skemmtilegri vinnu, eins og hann orðar það. Kona hans Sigríður Dóra Jóhannsdóttir er frá Akureyri. „Eig- inkonan á hér stóran frændsystkina- hóp, sem við höfum reyndar alltaf verið í góðu sambandi við, þannig að þetta er nánast eins og flytja sig á milli hverfa í Reykjavík. Það er gott að búa á Akureyri, samfélagið er afslappað og þægilegt og ég hetd að það taki aðrir starfsmenn fí/rir- tækisins undir,“ sagði Gylfí Þór. íþróttahöllin á Akureyri Minningartónleikar um Ingimar Eydal MINNINGARTÓNLEIKAR um Ingimar Eydal verða haldnir í íþróttahöllinni á Akureyri á morg- un, sunnudag, kl. 17. Ingimar hefði orðið sextugur á morgun, 20. októ- ber, en hann lést sem kunnugt er í ársbyijun 1993. Yfirskrift tónleikanna er „Kvöld- ið er okkar“ og auk þess sem Ingi- mars verður minnst í tali og tónum er tilgangur tónleikanna að safna fé í minningarsjóð um hann. Sjóðinn á að nota til að kaupa vandaðan konsertflygil handa Akureyringum, en lengi hefur vantað slíkt hljóðfæri í bæinn. Sjóðurinn og síðan flygillinn verður í vörslu Tónlistarfélags Akur- eyrar. Á tónleikunum munu fjölmargir listamenn koma fram og verður megináhersla lögð á þá tónlist sem Ingimar hafði mest dálæti á og þá sem hann lék sjálfur. Að tónleikun- um koma hátt í 200 manns með einum eða öðrum hætti og gefa allir vinnu sína. Nýr geisladiskur Þennan sama dag kemur út á vegum útgáfufyrirtækisins SPOR geisladiskurinn „Kvöldið er okkar“, sem inniheldur úrval laga með hljómsveit Ingimars Eydal. Ágóði þeirra diska sem seljast á tónleik- unum mun renna í minningarsjóð- inn. TIL SOLL húseignin Hafnarbraut 14, Dalvík, (Sæiuhúsið). Húsið selst með öllum þeim búnaði til veitingareksturs sem til staðar er. Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Sólnes hrl. Lögmamisstofuii ehf., síini 461 1200 «g HNTKIli.yÁ4U.\ Símar líY(itil) 462 1744 og 462 1820. BREKKllGðU' 4 - AKl'REUU Fax 462 7746. - kjarni málsins! Alvöru leikhúsveisla! Sigrún Ástrós LEIKFÉLAG AKUREYRAR „Leikskáldið Willy Russell virðist semja leikverk sem eru landanum að skapi." Mbl. 28. sept. „Sýningin er vel unnin undir vandaðri leikstjórn Þráins Karlssonar." DV. 30. sept. „Það geislar af Sunnu Borg í þessu hlutverki, þar sem henni gefst færi á að slá á þá mörgu strengi sem byggja upp samhljóm einnar persónu." Mbl. 28. sept. „Sigrún Ástrós verður Ijóslifandi í meðförum Sunnu og hún ratar vel veg hins yfirvegaða leiks, jafnt í gleði sem sorg." RÚV. 30. sept. Miðasala opin alla daga frá kl. 13 - 18 nema mánudaga. Miðapantanlr í síma 46S 1400.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.