Morgunblaðið - 19.10.1996, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996 49
BREF TIL BLAÐSINS
Þ AÐ er mikilvægt að losa beltin á réttan hátt eftir að bíll hefur lent
á hvolfi.Ýtum hendinni fyrst í toppinn og losum svo beltið.
Hvernig væri að draga
úr umferðarhraðamim?
MESSUR A MORGUN
Frá Sjóvá-Almennum:
VIÐ ERUM tveir hópar sem voru
á námskeiði fyrir unga ökumenn
hjá Sjóvá-Almennum. Við vorum
óheppin í umferðinni og lentum í
tjóni. Fyrri hópurinn var á nám-
skeiði í Reykjavík en hinn á Akra-
nesi. Við viljum miðla ykkur af
okkar reynslu og þekkingu sem við
fengum á námskeiðunum.
Inngangur
Hluti okkar lenti í árekstri á
gatnamótum og viljum við benda
ykkur á góðar og gildar reglur sem
draga úr hættu á slíkum óhöppum:
Stundum er útsýni á gatnamótum
slæmt. Tré og önnur utanaðkom-
andi umferð geta truflað. Sýnum
því sérstaka aðgæslu við slíkar að-
stæður. Hægjum á okkur hvort sem
við eigum forgang eða ekki. Miðum
akstur við aðstæður. Lítum tvisvar
áður en við leggjum af stað yfir
gatnamót og þegar tekin er vinstri
beygja skulum við fylgjast með
umferð á móti. Hún nálgast oft
mjög hratt. Stundum geta aðrir
bílstjórar gert mistök, verum viðbú-
in slíku og tökum ekki óþarfa
áhættu. Fylgjumst vel með umferð-
armerkjum og umferðarljósum.
Ekið aftan á
Sá hluti hópsins sem lenti í að
aka aftan á bíl var stærstur enda
algengasta óhappið hjá ungum öku-
mönnum. Við verðum að fækka
aftanákeyrslum. Við getum gert
það meðal annars með því að: Aka
hægar og hafa vakandi auga með
umferðinni. Hafa nógu mikið bil á
milli bíla. Ekki bara fylgjast með
næsta bíl fyrir framan heldur þá
sem eru fyrir framan þá. Fylgjast
með umferð fyrir aftan okkur.
Reyna að komast hjá að stoppa
mjög snögglega. Einbeitum okkur
að akstrinum. Fólk gefi til kynna
hvert það ætlar að fara, með því
að nota stefnuljósin. Fara sérlega
gætilega í hálku og slæmu skyggni.
Höfum hemlaljós í afturrúðu.
Bakkað á
Þó það séu ekki alvarleg tjón
þegar við bökkum á, þá eru þau
næstalgengustu tjón í okkar aldurs-
hópi. Höfum því eftirfarandi þætti
í huga þegar við bökkum: Treystum
ekki bara á það að farþegamir segi
okkur til. Lítum vel í speglana og
í kringum okkur áður en við leggj-
um af stað. Fylgjumst líka með
framenda bílsins þegar við bökkum.
Höfum afturrúðuna hreina til að sjá
vel út. Verum vakandi yfir „dauða
svæðinu", þ.e. það sem við sjáum
ekki í speglinum eða út um aftur-
rúðuna. Höfum ekki drasl fyrir aft-
urrúðunni. Hugum að því hvort
aðrir bílar séu ekki að fara af stað
á sama tíma. Bökkum í stæði, þá
vitum við betur hvemig umhverfið
er og minni hætta á að móða eða
snjór sé á rúðum.
Akreinaskipti
Nokkur okkar lentu í árekstri
þegar við skiptum um akrein. Við
viljum minna ykkur á eftirfarandi:
Gefa alltaf stefnuljós þegar skipt
er um akrein. Þegar taka skal fram-
úr bíl þarf að gæta þess að nóg
pláss sé fyrir hendi til að geta kom-
ist framúr á löglegum hraða. Líta
í spegilinn til að vera viss um að
aðrir bílar séu ekki að fara framúr.
Fara helst ekki framúr í slæmu
skyggni, hálku, miklum vindi og
þess háttar aðstæðum. Varast
framúrakstur þegar við erum illa
upplögð. Vera örugg um að við
treystum okkur til að aka örugglega
framúr. Varast að fara framúr í
mikilli umferð, því að tímasparnað-
ur er lítill með framúrakstri. Taka
aldrei framúr þar sem er heil óbrot-
in lína. Aldrei taka framúr á blind-
hæð. Fara út í kant til að auðvelda
öðrum framúrakstur og gefa öðrum
það til kynna með stefnuljósi. Ekki
taka framúr ef okkar bíll er með
aftanívagn. Aldrei taka framúr
hægra megin þar sem ein akrein er
í hvora átt.
Útafakstur
Eitt af alvarlegustu umferðar-
óhöppunum hjá okkur ungu öku-
mönnunum eru útafakstrar. Oft
erum við á mikilli ferð og jafnvel
ekki með bílbeltin spennt. Því viljum
við íhuga þessa punkta: Ekki reyna
að aka bíl sem við höfum ekki
hæfileika til að aka. Rétt væri að
í ökuprófi væri skylt að aka á malar-
vegi. Alltaf vera í bílbeltum þegar
ekið er. Haga akstri eftir aðstæð-
um.
Að lokum viljum við geta þess
að hraði á mjög oft þátt í hversu
alvarleg óhöppin verða. Því leggjum
við til að þið akið alltaf á löglegum
hraða.
Með kveðju frá hópi 19 og 20
hjá Sjóvá-Almennum.
Guðspjall dagsins:
Brúðkaupsklæðin.
(Matt. 22.)
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Aðalfund-
ur safnaðarins eftir messu. Árni
Bergur Sigurþjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Foreldrar hvattir til þátttöku
með börnunum. Guðsþjónusta kl.
14. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson. Barna-
samkoma kl. 13 í kirkjunni. Bæna
guðsþjónusta kl. 14. Sr. Hjalti Guð-
mundsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Magnús Guðjóns-
son Organisti Kjartan Ólafsson.
Félag fyrrverandi sóknarpresta.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma
kl. 11. Messa kl. 14. Altarisganga.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Org-
anisti Árni Arinþjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslu-
morgunn kl. 10. Kennimenn í Hall-
grímskirkju: sr. Sigurjón Þ. Árna-
son, dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson.
Barnasamkoma og messa kl. 11.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Messa kl. 14. Organ-
isti Pavel Manasek. Sr. Helga Soff-
ía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Tómas Guðmunds-
son. Organisti Jón Guðmundsson.
Fermingarbörn aðstoða. Gradua-
le-kór Langholtskirkju syngur.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra
hvött til að mæta. Kaffisopi eftir
messu.
LAUGARNESKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Væntanleg
fermingarbörn og forráðamenn
þeirra hvött til að mæta. Guðsþjón-
usta kl. 14. Bjarni Ólafsson fv.
kennari prédikar. Kór Laugarnes-
kirkju syngur. Organisti Astríður
Haraldsdóttir. Kaffisala Kvenfé-
lagsins að lokinni guðsþjónustu.
Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Barnastarf kl. 11.
Opið hús frá kl. 10. Sr. Frank M.
Halldórsson. Frostaskjól: Barna-
starf kl. 11. Húsið opnar kl. 10.30.
Sr. Halldór Reynisson. Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Reynir Jón-
asson. Sr. Halldór Reynisson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr. Gylfi Jónsson.
Organisti Violeta Smid. Barnastarf
á sama tíma í umsjá Hildar Sigurð-
ardóttur, Erlu Karlsdóttur og Bene-
dikts Hermannssonar.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Organleikari Violeta Smid.
Skaftfellingakórinn syngur f guðs-
þjónustunni. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta á
sama tíma. Barnakórinn syngur.
Samkoma Ungs fólks með hlutverk
kl. 20. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Barnaguðsþjónusta á
sama tíma. Organisti Sigríður Sól-
veig Einarsdóttir. Sóknarprestur.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Sr. Kjart-
an Jónsson prédikar. Organisti
Lenka Mátéová. Barnaguðsþjón-
usta kl. 11 í umsjón Ragnars
Schram. Kirkjurútan gengur eins
og venjulega. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11 og kl. 12.30 f
Rimaskóla í umsjón Hjartar, Rúnu
og Valgerðar. Guðsþjónusta kl. 14.
Guðsþjónusta kl. 15.30 í hjúkrunar-
heimilinu Eir. Organisti Hörður
Bragason. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Kór kirkjunnar syngur. Barna-
guðsþjónusta kl. 13 í umsjá Irisar
Kristjánsdóttur. Organisti Oddný J.
Þorsteinsdóttir. Kristján Einar Þor-
varðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Börn í barna-
starfi kirkjunnar úr skólakór Kárs-
nesskóla syngja undir stjórn Þór-
unnar Björnsdóttur kórstjóra. Org-
anisti Örn Falkner. Ægir Fr. Sigur-
geirsson.
SEUAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Ágúst Einarsson, sjúkrahúsprestur
prédikar. Organisti Kjartan Sigur-
jónsson. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: í dag, laugar-
dag, hádegisverðarfundur Bræðra-
félagsins í safnaðarheimilinu kl. 12.
Ólafur Hannibalsson, blaðamaður
flytur erindið: „Trúarbrögðin dafna
líka á frjálsum markaði". Sunnudag
kl. 11.15 barnaguðsþjónusta.
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Pav-
el Smid. Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Laug-
ardag: Messa kl. 8 og kl. 14. Sunnu-
dag: Hámessa kl. 10.30, messa kl.
14, messa á ensku kl. 20. Mánu-
daga til föstudaga: messur kl. 8
og kl. 18. Rósakransþæn kl. 17.30.
KFUM og KFUK, v/Holtaveg: Al-
menn samkoma á morgun kl. 17.
Ræðumaður: Skúli Svavarsson.
Barnasamverur á sama tíma. Fyrir-
bæn og matsala eftir samkomuna.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11 á sunnudögum.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelffa:
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Hafliði Kristinsson. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Ræðumaður Samú-
el Ingimarsson. Allir velkomnir.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl.
20. Altarisganga öll sunnudags-
kvöld. Prestur sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
HIRÐIRINN, Dalvegi 24, Kópavogi:
Samkoma sunnudag kl. 20. Lof-
gjörð og fyrirbænir. Allir hjart-
anlega velkomnir.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al-
menn samkoma kl. 11. Ræðumað-
ur Ásmundur Magnússon. Fyrir-
bænaþjónusta/bænaklútar. Allir
hjartanlega velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIM-
ILIÐ: Samkoma á morgun kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Helgun-
arsamkoma kl. 11. Sunnudagaskóli
kl. 14. Samkoma fyrir hermenn og
samherja kl. 17. Hjálpræðissam-
koma kl. 20. Ofurstarnir Inger og
Einar Höyland, frá Noregi, major-
arnir Turid og Knut Gamst, ásamt
foringjum frá Færeyjum og Reykja-
vík, tala, syngja og vitna á sam-
komunum.
MOSFELLSPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Lágafellskirkju kl. 14.
Prestur sr. María Ágústsdóttir.
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl.
11. Bíll frá Mosfellsleið fer venju-
legan hring. Jón Þorsteinsson.
VÍDALÍNSKIRJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sunnudagaskóli í safnaðar-
heimilinu kl. 11 og Hofstaðaskóla
kl. 13. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl..
14. Fermdur verður Gísli Þór Við-
arsson, Hraunþrún 26, Hafnarfirði.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Munið kirkjubflinn.
Leiðbeinendur sr. Þórhildur Ólafs,
Natalía Chow og Katrín Sveinsdótt-
ir. Sunnudagaskóli í Hvaleyrarskóla
kl. 11. Leiðbeinendur sr. Þórhallur
Heimisson og Ingunn Hildur Hauks-
dóttir. Risamýslurnar Mísla, Tísla,
Túsla og Tasla koma í heimsókn.
Messa kl. 14, altarisganga. Safn-
aðarheimsókn frá Akranesi. Sr.
Björn Jónsson prédikar ásamt sr.
Þórhildi Ólafs. Kirkjukórar Akranes-
kirkju og Hafnarfjarðarkirkju leiða
söng undir stjórn organista sinna
Katalin Lörincz og Natalíu Chow.
Kirkjukaffi eftir messu í Strand-
bergi. Tónlistarguðsþjónusta kl. 18.
Nemendur úr Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar leika lög eftir Vivaldi og
Albinoni. Prestur sr. Þórhallur Hei-
misson. Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Guðmundur Óskar Ólafs-
son prédikar. Barnakór kirkjunnar
syngur undir stjórn Sigríðar Ásu
Sigurðardóttur. Kirkjukór kirkjunn-
ar leiðir söng. Organisti Þóra Guð-
mundsdóttir. Að lokinni guðsþjón-
ustu verður kaffisala Kvenfélags-
ins í Álfafelli, sal íþróttahússins
v/Strandgötu. Einar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
INNRI-NJARÐVIKURKIRKJA.
Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjukórinn
leiðir almennan söng undir stjórn
organistans Steinars Guðmunds-
sonar. Fermingarbörn og foreldrar
þeirra hvött til að mæta. Sunudaga-
skóli kl. 11 sem fram fer í Ytri-
Njarðvíkurkirkju. Börn sótt að safn-
aðarheimilinu kl. 10.45. Baldur
Rafn Sigurðsson.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Baldur Rafn
Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Munið skólabílinn.
Messa kl. 14, altarisganga. Prestur
sr. Ólafur Oddur Jónsson. Kvenfé-
lagskonur fjölmenna til kirkju og
lesa lestra dagsins. Kór Keflavíkur-
kirkju syngur Ave Verum Corpus
eftir Elgar. Organisti og stjórnandi
Einar Örn Einarsson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavik:
Messa kl. 14.
HVERAGERÐISKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Friðrik
Hilmarsson, kristniboði, kynnir
starf Kristniboðssambands ís-
lands. Jón Ragnarsson.
KOTSTRAN DARKIRKJ A: Guðs-
þjónusta kl. 14. Aðalsafnaðarfund-
ur Kotstrandarsóknar að guðsþjón-
ustu lokinni. Jón Ragnarsson.
SELFOSSKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa sunnudag kl. 14.
Sóknarprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Svavar Stefánsson.
HJALLAKIRKJA, Ölfusi: Messa kl.
14. Svavar Stefánsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Úlfar Guð-
mundsson.
GAULVERJABÆJARKIRKJA:
Messa kl. 14. Úlfar Guðmundsson.
STÓRA-NÚPSPRESTAKALL: Á
sunnudag verður messað í báðum
kirkjunum kl. 11 á Stóra-Núpi og
kl. 14 á Ólafsvöllum. Fermingar-
börn ársins 1997 hefja undirbúning
sinn og taka á móti Biblíum sem
söfnuðirnir gefa þeim. Messað
verður einnig á Blesastöðum.
Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Sunnudagaskóli kl. 11. Almenn
guðsþjónusta kl. 14. Barnakórinn
„Litlir lærisveinar" tekur lagið.
Barnasamvera meðan á prédikun
stendur. Unglingar í KFUM og K
sýna myndir og segja frá helgarferð
í Vindáshlíð í messukaffinu. Al-
menn guðsþjónusta kl. 15.15 á
■ Hraunbúðum.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Messa kl. 14. Sóknar-
prestur.
HOLTSPRESTAKALL, Önundar-
firði: Barnaguðsþjónusta í Flateyr-
arkirkju kl. 11.15. Nýtt fræðsluefni.
Afmælisbörn fá glaðning. Messa í
Flateyrarkirkju kl. 14. Kyrrðar- og
bænastundir eru í Flateyrarkirkju
miðvikudaga kl. 18.30 og í Holts-
kirkju fimmtudaga kl. 18.30. Sókn-
arprestur.
AKRANESKIRKJA: í dag laugardag
barnaguðsþjónusta kl. 11 og TTT
samvera í safnaðarheimilinu kl. 13
í umsjá Sigurðar Grétars Sigurðs-
sonar. Messa fellur niður sunnu-
dag vegna safnaðarferðar til Hafn-
arfjarðar. Þátttaka i messu í Hafn-
arfjarðarkirkju kl. 14. Björn Jóns-
son.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta verður í Borgarnes-
kirkju kl. 11.15. Þorbjörn Hlynur
Árnason.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík
í dag, laugardag, hádegisveröarfundur Bræðrafélagsins í Safnaðarheimilinu kl. 12. Ólafur Hannibalsson, blaðamaður: Trúarbrögðin dafna líka á frjálsum markaði. Sunnudag kl. 11.15 barnaguðsþjónusta, I kl. 14.00 I' guðsþjónusta. (r I f I
í
QJ ® ffi® ffið ffið ðffi ffiffi ffiffi ðð I
úh (lli dh iTh dfi (lli — rfTl ull ull tllj rTrj rtt1 nn — rm tm uU luj cxxj uxt uIj o il
EINAR GUÐMUNDSSON,
fræðslustjóri Sjóvá-Almennra.
« 'ÆS TBS^ffill : 33
:S8TV»8! r«S - BS ’
SS ': SE .
■f
ÍGífurlegt úrval köflóttra^/
efna í barnakjóla,
bútasaum, gardínur
og föndur.
Sendum i póstkröfu.
ZWIRKA
’ W Mörkinni 3, s. 568 7477.