Morgunblaðið - 20.10.1996, Side 1

Morgunblaðið - 20.10.1996, Side 1
NÝ GERÐ VEiRARHJÓLBARÐA - RANGE ROVER MEÐ BENSÍNVÉL - MITSUBISHIMEÐ VÉL NÆSTU ALDAR - NÝR OG LÉTTARIFORD MONDEO Renault Mégane. Þegar þú gerir miklar kröfur til öryggis, búnaóarog þæginda. rœ->TTN PEUGEOT 406 TI M A M O T A B I L L Komdu og reynsluaktu. Verð frá. 1.480.000 kr. PEUGEOT - þekktur fyrlr þeeglndl i » « t - i » t « Nýbýlavegi 2 Sími 554 2600 m SUÐUR-kóreski framleiðandinn Daewoo hefur náð sterkri markaðsstöðu í Bretlandi og hyggst setja þennan hugmyndabíl í fjöldaframleiðslu. SPÁ UM BÍLASÖLU í EVRÓPU TIL ALDAMÓTA Áætluð sala í milljónum 0 0.5 1.0 1.5 2.0 2.5 Daewoo Mya DAEWOO heiðrar Englendinga með því að frumsýna á bílasýn- ingunni í Birmingham hug- myndabílinn Mya. Þetta er fyrsti hugmyndabíllinn sem Daewoo hannar í tæknimiðstöð sinni í Worthing í Englandi. Mya er fjögurra sæta sportbíll og ipjög líklegrt er talið að hann verði settur í framleiðslu. Mya er með 2,0 litra, 16 ventla vél sem skilar 130 hestöflum. Hann er 4,28 m á lengd og situr á einkar lágum, 18 tommu sport- dekkjum. Hurðirnar þylga mjög sérstæð smíði því þær opnast fyrst fram og lyftast síðan upp til þess að gera allan aðgang að bilnum sem auðveldastan. Aftur- sætisfarþegar geta drepið tím- ann á ferðalögum með því að leika tölvuleiki á myndbandsskjá sem þar er fyrir komið. ■ Stýripinni í stað stýris BILLINN hefur ekkert stýrishjól og engin fótstig. Ökumaður og farþegi geta skipst á að aka án þess að skipta um sæti. Þessi byltingarkenndi bíll er Mercedes-Benz F200 Imagination hugmyndabíllinn sem var afhjúpaður í París á dögunum. Það er í raun töiva sem ákveður hvort bíllinn beygir í þá átt sem öku- maðurinn hefur gefið til kynna að hann vilji beygja. Mercedes-Benz hefur sagt að fyrirtækinu sé alvara með að bjóða slíka bíltölvu í bílum fyrirtækisins. Þegar bíllinn var afhjúpaður á bíla- sýningunni í París í byijun október sagði Dieter Zetsche, sem á sæti í stjórn Mercedes-Benz, að meirihluti þeirra tækninýjunga sem væri að finna í F200 Imagination yrði í fram- leiðslubílum fyrirtækisins á þessum áratug. Hins vegar yrði sjálfur hug- myndabíllinn ekki framleiddur. Það sem mest vakti athygli í F200 var ökumannsrýmið og stjórnrofam- ir þar sem minntu helst á flug- stjórnarklefa. A miðjustokki er stýripinni sem kemur í stað hefð- bundins stýris og stjórnar hröðun bílsins, stýrir honum og hemlar. Zetsche sagði að stýripinninn væri þó ekki hugsaður í bíla fyrirtækisins á þessum áratug en hins vegar væri ekki fjarri lagi að ætla að slík- ur búnaður yrði tekinn í notkun á fyrsta áratug næstu aldar. Með stýripinna opnast nýir möguleikar í hönnun innanrýmis bíla. Ungmenni vön stýrlpinnum Þar sem stýripinninn er fyrir miðju getur hvort sem er ökumaður eða farþegi í framsæti stjórnað bílnum. Yfirmaður tækniþróunardeildar Mercedes-Benz í Japan, Olivier Bo- ulay, sagði að ungt fólk væri vant því að nota stýripinna til þess að stjórna tölvum og í tölvuleikjum. Hann sagði að í þeirra huga væri stýripinni mun eðlilegri hlutur til að handfjatla en stýri. Mercedes-Benz gerði prófanir á stýripinnanum með aðstoð 18 ára gamals Þjóðveija sem aldrei hafði áður ekið bíl. Niðurstöð- urnar sýndu að ökumenn ná auðveld- lega tökum á stýripinnanum sem stjórntæki bifreiðar. ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.