Morgunblaðið - 22.10.1996, Side 1
112 SÍÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
241. TBL. 84.ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þingkosningarnar í Litháen
Hægrimenn
sigruðu með
yfirburðum
Vilnius. Reuter.
Reuter
Kohl kjörinn í 13. sinn
VYTAUTAS Landsbergis, leiðtogi
Litháa í sjálfstæðisbaráttunni gegn
Sovétmönnum, vann mikinn sigur
í fyrri umferð þingkosninganna á
sunnudag. Var fiokkur hans, Föð-
urlandsflokkurinn, með 29% at-
kvæða er búið var að telja í 1.495
af rúmlega 2.037 kjördæmum síð-
degis í gær en stjórnarflokkur fyrr-
verandi kommúnista, Lýðræðislegi
verkamannaflokkurinn, sem Alg-
irdas Brazauskas forseti styður,
með tæp 10%. Kjörsókn var aðeins
um 55% en er síðast var kosið árið
1992 var hún 75%.
Talsmenn stjórnarflokksins
sögðust myndu una úrslitunum og
er gert ráð fyrir að Gedminas
Vagnorius, fyrrverandi forsætis-
ráðherra í valdatíð Landsbergis,
myndi nýja ríkisstjórn með fullt-
ingi Kristilegra demókrata.
Þingsætin eru 141. Hlutfalls-
kosning eftir flokkslistum er í 70
kjördæmum í fyrri umferðinni en
flokkur verður að fá minnst 5%
fylgi í þeim til að hljóta þingsæti.
Allt benti til þess að aðeins fimm
flokkar kæmust yfir þann
þröskuld; Föðurlandsflokkurinn,
fyrrverandi kommúnistar, sósíal-
demókratar, Miðjusambandið og
Kristilegir demókratar.
Kosið er milli einstaklinga í 71
kjördæmi og verður í síðari um-
ferð valið þar milli tveggja efstu
hafi enginn náð hreinum meiri-
hluta í hinni fyrri. Ljóst þykir að
kjósa verði aftur í þeim flestum.
Landsbergis sagði að sam-
kvæmt þeim úrslitum sem birt
hefðu verið hefði flokkur hans
fengið 32 af þingsætunum 70.
Ólíklegt væri að vaidahlutföll á
þingi breyttust mjög þegar endan-
leg niðurstaða fengist í öllum kjör-
dæmunum.
„Frambjóðandi okkar í embætti
forsætisráðherra verður Gedimin-
as Vagnorius. Við vonum að for-
setinn muni ekki reyna að hindra
það með neinum hætti“.
Vonsviknir kjósendur
Landsbergis og hægrimenn
hans guldu afhroð í kosningunum
1992 og var því kennt um að al-
menningur væri búinn að fá nóg
af efnahagsþrengingum sem
fylgdu í kjölfar sjálfstæðisins.
Stjórnvöld fyrrverandi komm-
únista hafa átt gott samstarf við
alþjóðlegar fjármálastofnanir en
hafa iegið undir ámæli vegna spill-
ingar, einnig finnst mörgum kjós-
endum sem ekki hafi verið staðið
við loforð um að draga úr þjáning-
um sem fylgdu umskiptum til
markaðsbúskapar.
Leiðtogar Föðurlandsflokksins
heita því að útrýma spillingunni.
„Stjórn fyrrverandi kommúnista
var ekki frábrugðin stjórn komm-
únista,“ sagði Landsbergis í gær.
■ Landsbergis í náðinni/21
HELMUT Kohl var kjörinn for-
maður flokks kristilegra demó-
krata (CDU) í Þýskalandi í 13. sinn
í gær, „rússneskri kosningu". Eft-
ir kjörið fagnaði hann eins og
hnefaleikamaður unnum bardaga
þótt enginn væri mótherjinn. Hef-
ur hann verið flokksformaður
undanfarin 23 ár, þar af 14 sem
kanslari. Á flokksþinginu, en
myndin var tekin við upphaf þess
í gær, kvaðst Kohl vonast til þess
að kjörtímabil sljórnar CDU og
fijálsra demókrata (FDP) yrði
framlengt um fjögur ár í þing-
kosningunum 1998. Á þinginu var
ákveðið, að konur skyldu skipa
a.m.k. þriðjung embætta sem
flokkurinn kýs til. Þó gæti raunin
orðið önnur, því verði að kjósa
öðru sinni tii embætta, ef konur
hafa ekki náð sínum hlut í fyrstu
umferð, skulu úrslit seinni at-
kvæðagreiðslu verða endanleg
þótt konur nái þar ekki þriðjungs-
hlut.
Eldar
eira
engu
Los Angeles. Reuter.
SKÓGAR- og kjarreldar eyði-
lögðu fjölda húsa í Orange-
og Los Angeles-sýslum í Kali-
forníu í gær. Skraufþurrir
Santa Ana-vindarnir al-
ræmdu hleyptu miklu lífi í
eldana, sem eirðu engu er
fyrir varð.
Óttast var að eldur, sem
logaði í nágrenni Calabasas,
útborgar 40 km norður af Los
Angeles, næði alla leið til
sjávar eða 20 km leið og legði
allt í rúst sem fyrir yrði, gróð-
ur og byggingar. Reykjar-
bólstrar frá eldinum stigu allt
að 8.000 fet í loft upp og dró
mjög úr birtu.
Vegna vinds breiddist
eldurinn hratt út og logaði á
rúmlega 600 hektara svæði í
gærkvöldi. Felmtri slegnir
íbúar yfirgáfu hundruð húsa
sem talin voru í hættu. Fjór-
um skólum var lokað og nem-
endur fluttir á brott.
Eldurinn við Calabasas
stefndi í gær í átt til Malibu,
en þar eyðilögðust um 1.000
hús i miklum skógar- og
kjarreldum 1993.
Talið er að lítill eldur, sem
kviknaði á húslóð í ríkra
manna í bænum Tustin í Or-
ange-sýslu hafi með hjálp
vindanna, sem blesu á 80 km
hraða, orðið að 300 hektara
báli á nokkrum mínútum.
Eyðilögðust a.m.k. 12 lúxus-
hús 50 km suðaustur af Los
Angeles og 8 skemmdust
mikið. Slökkviliðsmenn náðu
tökum á eldinum eftir þriggja
stunda viðureign.
Reuter
Alemán sigurreifur
Kvartmilljón
hútúmanna á
flótta í Zaire
Kigali. Reuter.
Afganistan
Óljóst um
vopnahlé
Kabul. Reutcr.
TALEBAN-hreyfingin í Afganistan
og andstæðingar hennar kváðust til-
búin til þess í gær að fallast á vopna-
hlé fyrir milligöngu Pakistana en
með ýmsum skilyrðum. Bardagar
héldu því áfram og fór tvennum
sögum af stöðunni á vígvellinum
fyrir norðan Kabul.
Vopnahlé átti að taka gildi í gær-
morgun en upplýsingamálaráðherra
Taleban-stjórnarinnar í Kabul sagði,
að hún setti það skilyrði, að skipst
yrði á föngum. Talsmaður Ahmad
Shah Masoods, yfirmanns hers fyrr-
verandi stjórnvalda, fullyrti aftur á
móti, að vopnahlésviðræðurnar
hefðu farið út um þúfur.
Staðan á vígvellinum fyrir norðan
Kabul virðist óljós en líklega óbreytt
að mestu leyti. Er barist um bæi og
þorp meðfram þjóðleiðinni fyrir
norðan höfuðborgina og flestir íbúar
á þeim slóðum hafa orðið að flýja
heimili sín.
HÆGRIMAÐURINN Arnoldo
Alemán, forsetaefni Frjáls-
lynda bandalagsins, flytur sig-
urræðu í veislu með stuðnings-
mönnum í höfuðstöðvum sínum
eftir forsetakosningarnar í Nic-
aragua á sunnudag. Hann
kvaðst sannfærður um að hann
fengi meira en 45% atkvæð-
anna, sem nægir til að ná kjöri,
en helsti andstæðingur hans,
Daniel Ortega, leiðtogi sandin-
ista, kvað of snemmt að fullyrða
nokkuð um úrslitin.
■ Alemán lýsir yfir sigri/23
UM fjórðungur milljónar flótta-
manna af þjóð hútúa frá Rúanda
og Búrundí hafa yfirgefið búðir
sínar umhverfis borgina Uvira í
austurhluta Zaire og stefnt til
fjalla vegna átaka stjórnarhersins
og uppreisnarmanna úr röðum
tútsa.
Alþjóðlegar hjálparstofnanir
byijuðu í gær að flytja starfsfólk
sitt á brott frá austurhluta Zaire
og Einingarsamtök Afríkuríkja
(OAU) lýstu miklum áhyggjum
vegna ástandsins.
Hermt var að 4-5.000 manna
liðsauki uppreisnarmanna, bany-
amulenge-tútsar, hefðu komið til
Zaire frá Rúanda í skjóli myrkurs
aðfaranótt mánudags. Því vísaði
stjórnarher Rúanda á bug, en hann
hefur séð banyamulenge-liðum
fyrir vopnum og afleiðing þess er,
að upplausnarástand ríkir í austur-
hluta Zaire og sér ekki fyrir end-
ann á því. Skyldleiki er með túts-
um í Rúanda og Zaire því bany-
amulengemenn eru af þjóð tútsa
sem fluttist frá Rúanda og settist
að í Zaire í lok 18. aldar.
Átök banyamulenge-liða og
stjórnarhers Zaire hörðnuðu í gær
og var m.a. barist inni í borginni
Uvira og umhverfis hana. Enn-
fremur réðust uppreisnarmenn á
stöðvar hersins skammt frá flótta-
mannabúðum við borgina Goma.