Morgunblaðið - 22.10.1996, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
PlUÐ.JUl)AG\5K'22. OKTÓBER 1996 ' 47
Vitund Grænlendinga
um þjóðerni og kynþátt
KAREN Langgárd, dósent í græn-
lenskum fræðum við háskólann í
Nuuk á Grænlandi, flytur opinberan
fyrirlestur í boði Heimspekideildar
Háskóla íslands fímmtudaginn 24.
október kl. 17:15 í stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn nefnist: „Gron-
landsk bevidsthed om etnicitet og
nationalitet set gennem tekster skre-
vet af gronlendere 1860-1920“.
Fyrirlesturinn fjailar um grænlenska
félagsvitund á seinni hluta síðustu
aldar og í upphafi þessarar, einkum
þróun grænlenskrar vitundar um
þjóðerni og kynþátt. Unnt er að rann-
saka þetta efni aftur í tímann með
því að athuga skrif á grænlensku í
dagblöðum allt aftur til 1861. Þessir
grænlensku textar eru einstakar
heimildir um menningarheim inúita
og gefa jafnframt glögga og athygl-
isverða hugmynd um þróun græn-
iensk ritmáls.
Karen Langgárd er dósent í græn-
lenskum fræðum við Grænlandshá-
skóla í Nuuk á Grænlandi (Institut
for Gronlandsk Sprog og Literatur,
Gronlands Universitet, Ilisimatusarf-
ik, Nuuk). Hún lauk cand.mag.-prófí
í eskimóískum fræðum frá Kaup-
mannahafnarháskóla árið 1985 og
hefur síðan starfað við Ilisimatusarf-
ik. Hún er nú Nordplus-þennari við
heimspekideild Háskóla Islands.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
dönsku og er öllum opinn.
FRÉTTIR
Starfsmenn
SS vinna til
verðlauna
ALÞJÓÐLEG fagkeppni kjöt-
iðnaðarmanna var haídin í lok
september í Herning í Dan-
mörku. Keppni þessi er haldin
annað hvert ár og eru þátttak-
endur frá öllum helstu löndum
Evrópu, þó aðallega frá Norður-
löndunum.
Þetta er í annað sinn sem kjöt-
iðnaðarmenn frá Sláturfélagi
Suðurlands taka þátt í keppn-
inni. Kjötiðnaðarmenn SS sendu
frá sér 9 vörutegundir og hlutu
verðlaun fyrir þær allar, 3 gull,
4 silfur og 2 brons.
VERÐLAUNAHAFARNIR f.v.: Ingólfur Baldvinsson, silfur fyrir þurrkað hangikjöt, Ragnhild-
ur Jónsdóttir, silfur fyrir grafinn lambavöðva, Sverrir Guðfinnsson, gull fyrir danskar pylsur,
Hlynur Gylfason, gull fyrir svínarúllupylsur, Oddur Árnason, brons fyrir grísasultu, Leifur
Þórsson, silfur fyrir spægipylsu og Gunnlaugur Reynisson, brons fyrir sýrópssoðinn grísa-
hrygg. Sitjandi: Öskar Harðarsson, gull fyrir kálfapaté með blábeijahlaupi. Á myndina vantar
Steinar Þórarinsson sem hlaut silfur fyrir hangiálegg.
Upplýsinga-
þjónusta við
aðstandendur
ÚTFARARSTOFA Kirkjugarðanna
hefur gefið út þjónustumöppu og
þjónustubók fyrir aðstandendur.
Með gerð kynningarefnis er verið
að sinna upplýsingaskyldu til að-
standenda í samræmi við kröfur
Norræna útfararstofusambandsins
er Útafararstofa Kirkjugarðanna er
aukaaðili að því.
„Þeir aðstandendur, sem koma á
skrifstofu útfararstjóra, fá nú þjón-
ustumöppuna í hendur, en í henni
eru upplýsingar um þá þjónustu sem
veitt er og þá hluti sem eru til sölu.
Einnig er þar að fínna upplýsingar
um söngfólk og tónlistarmenn, lista
yfir blómasala, lýsingu á útfararlið-
um og verðdæmi. Þjónustumappan á
að auðvelda allt skipulag, auk þess
sem hægt er að fá kostnaðaráætlun.
Aðstandendur fá einnig í hendur
þjónustubók sem þeir geta tekið með
sér heim. í henni eru ráðleggingar
og upplýsingar varðandi skipulag
útfarar. I þjónustubókinni er að fínna
samantekt á öllum þeim fjölmörgu
atriðum sem huga þarf að eftir að
útför lýkur. Bæklingur þessi ber yfir-
skriftina Þegar andlát ber að hönd-
um.
Skrifstofa Útfararstofu Kirkju-
garðanna hefur tekið á leigu allt
húsið í Kirkjuhvoli 1 í Fossvogi en
var áður með starfsemi sína í hluta
þess. Við breytinguna skapast gott
rými fyrir móttöku aðstandenda og
þjónusta við þá m.a. með sérstöku
viðtalsherbergi, biðstofu og sýnis-
rými. Vinnuaðstaða útfararstjóra og
skrifstofufólks hefur einnig verið
bætt til muna,“ segir í tilkynningu
Útfararstofunnar.
Námskeið
í listmeðferð
SIGRÍÐUR Björnsdóttir, löggiltur
listmeðferðarfræðingur og mynd-
listarkennari, verður með námskeið
í listmeðferð (myndþerapíu) sem
hefst fimmtudaginn 7. nóvember á
Brekkustíg 8.
„Námskeiðið er verklegt og hefur
það að markmiði að kynna aðferðir
í listmeðferð og losa um spennu,
leysa úr læðingi eigin sköpunar-
mátt og tjáningarhæfni, vinna með
eigið innsæi og ímyndunarafl og
nota eigin myndverk sem lykil að
tilfínningum og hugarheimi og efla
þannig meðvitund og sinn innri
mann.
Námskeiðið er aðallega ætlað
starfsmönnum sjúkrahúsa, vist-
heimila, kennurum á öllum stigum,
þroskaþjálfum og ráðgjöfum," segir
í fréttatilkynningu.
Aðalfundur
Evrópusamtak-
anna
AÐALFUNDUR Evrópusamtak-
anna verður haldinn annað kvöld,
miðvikudagskvöldið 23. október,
kl. 20.30 á Kornhlöðuloftinu við
Lækjargötu.
Á dagskrá eru venjuleg aðal-
fundarstörf, að því er segir í frétta-
tilkynningu, þar á meðal kjör
stjórnar og tuttugu manna í full-
trúaráð samtakanna.
Fundur um
heyrnar-
og talmein
HEILBRIGÐISTÆKNIFÉLAG
íslands stendur fyrir fundi mið-
vikudaginn 23. október frá kl 16
til 18.30 í sal A1 að Hótel Sögu.
Fundurinn ber yfirskriftina
„Heyrnar- og talmein. Tækni til
greiningar og úrlausnar."
Aðgangur er ókeypis og heimill
öllum sem skrá sig í síðasta lagi
mánudaginn 21. október.
Stjórnmála-
fræðinemar
funda um for-
setakosningar
í KVÖLD, þriðjudaginn 22. október,
hafa stjómmálafræðinemar við Há-
skóla íslands ákveðið að halda opinn
fund á Sóloni Islandusi. Yfírskrift
fundarins er forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum 1996.
Fundurinn hefst kl. 20 á efri hæð
Sólons Islandusar. Framsögumenn
verða: Michael Hammer úr banda-
ríska sendiráðinu, dr. Ólafur Þ. Harð-
arson dósent í Háskóla íslands og
Karl Blöndal blaðamaður.
Eftir framsöguerindi verða um-
ræður.
Kynningar-
fundur
um ITC
ITC deildin Melkorka heldur kynn-
ingarfund í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi 23. október nk. og hefst
hann kl. 20 stundvíslega. „Á dagskrá
fundarins er m.a. kynning, Hvað er
ITC? Stef fundarins er: Leggðu rækt
við sjálfan þig, þú ert allt sem þú
átt,“ segir í fréttatilkynningu.
LEIÐRÉTT
Rangt föðurnafn
Föðurnafn greinarhöfundar í Lesbók
misritaðist, þar sem Valdimar Jó-
hannesson var réttilega sagður Jó-
hannesson í kynningu undir grein-
inni, en ranglega Jóhannsson í höf-
undarkynningu fremst. Beðist er af-
sökunar á þessum mistökum.
Sonja Hulda í Fjarðarnesti
Sagt var í blaðinu á föstudag að
Sonja Hulda Einarsdóttir sýndi olíu-
og vatnslitamyndir í í Fjarðarnesi í
Hafnarfírði, það er ekki rétt, heldur
Fjarðamesti. Er beðist velvirðingar
á þessari prentvillu.
L_ Úr dagbók lögreglunnar 1
Ovenju mörg innbrot
tilkynnt til lögreglu
18.-21. okt.
UM helgina voru 52 ökumenn
kærðir fyrir of hraðan akstur.
Væntanleg útgjöld þeirra af því
tilefni verða líklega samanlagt
u.þ.b. ein milljón króna. Lög-
reglumenn þurftu að hafa af-
skipti af 52 einstaklingum vegna
ölvunar og háttsemi ölvaðs fólks.
31 þurfti að vista í fangageymsl-
unum. Tilkynnt var um óvenju-
mörg innbrot, eða 26 talsins, 14
þjófnaði, 6 líkamsmeiðingar og
14 eignaspjöll. Eitt alvarlegt slys
og þijú minniháttar urðu í um-
ferðinni, en auk þess var tilkynnt
um 33 önnur umferðaróhöpp til
lögreglunnar um helgina.
Síðdegis á laugardag hlaut
kona skurð á andliti á veitinga-
stað ofarlega við Laugaveg. Sá
sem það gerði fór af vettvangi.
Vitað er hver átti þar hlut að
máli. Á sunnudagsmorgun var
tilkynnt um mann sem brotið
hafði spegla á nokkrum bifreið-
um við Bræðraborgarstíg. Mað-
urinn fannst inni í bifreið í ná-
grenninu.
Sá, sem eftirlýstur var fyrir
hugsanlega aðild að ráni í sölut-
urni í Breiðholti fyrir skömmu,
var handtekinn um helgina og
færður til yfirheyrslu hjá RLR.
Klám og vændi
Ábendingar hafa komið fram
um að klámsýningar tíðkist á
tilteknum veitingastöðum í
Reykjavík og erlendar stúlkur
taki þátt í slíkum sýningum. Þá
hefur því verið haldið fram að
hérlendar stúlkur og erlendar
bjóði blíðu sína á veitingastöðum
og að komið hafí verið upp
möguleika til skyndikynna með
tilstuðlan símaþjónustu. Auk
þess hefur verið kvartað yfir því
að yngra fólk en 18 ára hafi
aðgang að eða geti fengið keypt
klámblöð á blaðsölustöðum þrátt
fyrir bannákvæði laga þar að
lútandi.
Lögreglan hefur i framhaldi
af þessum ábendingum m.a.
reynt að vekja athygli blaðasala
erlendra tímarita á gildandi
ákvæði hegningarlaga þar sem
segir að það varði refsingu að
láta af hendi við unglinga yngn
en 18 ára, klámrit, klámmyndir
eða aðra slíka hluti. Hún hefur
látið athuga með svonefndar
„erótískar" sýningar tiltekinna
skemmtistaða og er eitt slíkt mál
nú í athugun hjá embætti ríkis-
saksóknara. Þá hefur verið fylgst
með starfsemi innfluttra „dans-
meyja“ hjá útlendingaeftirlitinu,
en nefnda símaþjónustu þyrfti að
skoða nánar, enda um nýbreytni
að ræða.
I gildandi hegningarlögum
segir að hver sem stundi vændi
sér til framfærslu skuli sæta
fangelsi allt að 2 árum og hver
sá sem hafi atvinnu eða viður-
væri sitt af lauslæti annarra skuli
sæta fangelsi allt að 4 árum.
Sömu refsingu varðar það að
ginna, hvetja eða aðstoða ung-
menni, yngra en 18 ára, til þess
að hafa viðurværi sitt af lauslæti.
Þá liggur einnig sama refsing
við því að stuðla að því að nokk-
ur maður flytji úr landi eða til
landsins í því skyni að hafa
viðurværi sitt af lauslæti ef við-
komandi er yngri en 21 árs. Auk
þessa varðar það allt að 4 ára
fangelsi að stuðla að því með
ginningum, hvatningum eða
milligöngu að aðrir hafí holdlegt
samræði eða önnur kynferðism-
ök gegn greiðslu eða að gera sér
lauslæti annarra að tekjulind,
s.s. með útleigu húsnæðis eða
öðru slíku.
Bann til að stunda vændi eða
klámsýningar, t.d. í listrænum
tilgangi, er ekki skilyrðislaust
og þarf lögreglan því að hafa
framangreind ákvæði til hlið-
sjónar þegar hún hefur afskipti
af tengdum málum.
Vændi utan skilgreiningar
laganna virðist fram að þessu
einungis hafa verið stundað í litl-
um mæli hér á landi og þá helst
af einstaka „heimavinnandi" eða
til að greiða fyrir eða fjármagna
vímuefnaneyslu viðkomandi.
Miðborgin að næturlagi
um helgar
Fremur rólegt var í miðborg-
inni að næturlagi um helgina.
Börn undir 16 ára aldri sáust
þar ekki á ferli, en talsverð ölvun
var á meðal hinna fullorðnu. Lít-
ið var um meiðingar og skemmd-
arverk.
Miðborgin hefur verið undir
smásjá í langan tíma. Lögreglan
hefur látið gera úttekt á málum
þar með ákv. millibili í gegnum
árin, lagt fram tillögur til úr- •
bóta, en of sjaldan uppskorið j
laun erfiðis síns.
Mikilvægt er að fólk geri sér |
grein fyrir því að leyfí hafa ver-
ið gefín fyrir um 80 vínveitinga- \
stöðum á svæðinu á milli '
Rauðarárstígs og Garðastrætis.
Leyfilegur gestafjöldi á þeim er
nálægt 10.000 manns ef allir
staðirnir væru fullnýttir. Innan
dyra má í mörgum tilvikum vera
fólk eldra en 18 ára, þó ekki
megi veita þar öðrum áfengi en
þeim sem náð hefur 20 ára aldri.
Það er því eðlilegt að margt fólk
sé á ferli þarna á svæðinu á
opnunartíma vínveitingahús-
anna.
Á venjulegu föstudagskvöldi í
miðborginni eru þar utan dyra
um 100-200 manns fram að
miðnætti. Um miðnætti eykst '»
fjöldinn lítillega eða upp í um
500. Eftir að öllum stöðunum
hefur verið lokað á sama tíma
safnast saman á mjög lítið svæði
um 2500-5000 manns. Þá eru
flestir á aldrinum frá 18-25 ára.
Börn og unglingar undir 16
ára aldri eru nú að mestu horfn-
ir úr miðborginni. Eftir að lög-
reglan og félagsmálayfirvöld í
samvinnu við foreldra og ungl-
ingana sjálfa gerðu samræmt
átak í því að koma börnunum
frá svæðinu og hvetja til hertrar
eftirfylgju reglna um útivistar-
tíma hefur ástandið hvað þann
aldurshóp snertir gerbreyst í
miðborginni.
Aldurshópurinn 16-19 ára er
og hefur verið vandamál í mið-
borginni. Þess ber þó að geta
þegar talað er um vandamál að
það lýtur aðeins að tiltölulega
fáum einstaklingum sem eru á
svæðinu.
Helsta vandamál þessa
samansafnaðar er áfengis-
drykkjan. Allt of margir drekka
illa og eru afleiðingarnar eftir
því. Mikið hefur verið rætt og
ritað um áfengisneyslu íslenskra
unglinga en meiri samstöðu og
þátttöku hinna fullorðnu virðist
vanta inn í þá baráttu. Og hvern-
ig á unga fólkið að taka varnað-
arorð fullorðinna góð og gild ef
fordæmi þeirra sömu er síðan á
annan veg?