Morgunblaðið - 24.10.1996, Page 1
SJÓNVARP
Verslunargluggi
framtíðarinnar/4
FYRIRTÆIII
Loðskinn nýtir
góðærið/6
ÚTFLUTNINGUR
Þekking flutt út
til Víetnam/8
JMtogtuiIftiftifr
Verðbréf
ÞREFALT meira hlutafé hefur
verið boðið út í almennum hlutafj-
árútboðum það sem af er þessu
ári en seldist í slíkum útboðum
allt árið í fyrra. Mest hefur verið
selt af nýju hlutafé í sjávarútvegs-
fyrirtækjum og nemur sala á hlut-
afé í þeim um tveimur þriðju hlut-
um heildarsölunnar til þessa á
árinu. /2
Mannaskipti
STJÓRN Eignarhaldsfélagsins
Alþýðubankans hf. hefur sam-
þykkt að ráða Gylfa Arnbjörnsson
hagfræðing, framkvæmdastjóra
félagsins frá 1. febrúar 1997.
Félagið hefur jafnframt ráðið
Sigurð Smára Gylfason viðskipta-
fræðing til starfa hjá félaginu. /2
Flugleiðir
FLUGLEIÐIR hafa til athugunar
að nýta sér heimild aðalfundar
félagsins til að bjóða út nýtt hluta-
fé á almennum markaði. Heimild-
in gerir ráð fyrir að selt verði
nýtt hlutafé að nafnvirði 250
milljónir. Miðað við núverandi
gengi í viðskiptum á Verðbréfa-
þingi, 3,0, yrði söluandvirði bréf-
anna 750 milljónir miðað við að
heimildin verði nýtt að fullu./3
SÖLUGENGIDOLLARS
Kr. 70,00 69.50 69,00 68.50 68,00 67.50 67,00' 66.50 66,00 65.50 65,00! 18. s Síðustu fjórar vikur i
'' 67,07 3.
1 1 1 1 ;ept. 25. 2. okt. 16. 2
Bjart framundan í rekstri Vinnslustöðvarínnar hf. í Vestmannaeyjum
Eiginfjárstaðan hefnr styrkst
um 1 milljarð á einu ári
HAGNAÐUR Vinnslustöðvarinnar hf. í Vest-
mannaeyjum af reglulegri starfsemi nam alls um
83 milljónum króna á síðasta reikningsári félags-
ins sem lauk þann 31. ágúst sl. Þetta er mikill
bati frá fyrra rekstrarári þegar tap af reglulegri
starfsemi nam um 123 milijónum króna.
Þegar tekið hefur verið tillit til óregiulegra
gjalda og tekna nam heildarhagnaður tæpum 598
milljónum, borið saman við 92 milljóna tap á fyrra
rekstrarári.
Bókfært eigið fé Vinnslustöðvarinnar nam alls
1.289 milljónum í lok ágúst borið saman við 317
milijónir á sama tíma í fyrra. Það hefur því auk-
ist um tæpan 1 milljarð á einu ári, að hluta tii
vegna hlutaflárútboðs fyrr á árinu.
Meðal óreglulegra Iiða í rekstrarreikningi eru
hlutdeild í hagnaði sölusamtaka, hagnaður af sölu
fiskiskips, fasteigna, hlutabréfa í öðrum félögum
og af sölu aflaheimilda, en félagið breytti samsetn-
ingu aflaheimilda sinna nokkuð á tímabilinu, án
þess að aflahlutdeildin rýrnaði, að því er fram
kemur í frétt frá Vinnslustöðinni.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagns-
gjöld nam 488 milljónum eða 15,5% af tekjum
samanborið við 14,7% á fyrra ári. Afskriftir námu
nú 288 milljónum og þar af námu afskriftir afla-
heimilda 61 milljón. Afskriftir námu 259 milljónum
á fyrra ári. Fjármagnsgjöld að teknu tillit til verð-
lagsbreytinga voru alls 117 milljónir, samanborið
við 293 milljónir á fyrra ári.
Heildartekjur félagsins námu alls 3.649 milljón-
um á tímabilinu, en voru 2.983 milljónir árið á
undan og hafa því aukist um 22% milli ára.
Stefnt að enn betri árangri
í vinnslu uppsjávarfiska
Afkoma Vinnslustöðvarinnar af veiðum og
vinnslu á ioðnu og síld var vel viðunandi á tímabil-
inu. Afkoma boifiskvinnslunnar var hins vegar
slæm og er stefnt að því að breyta verulega
áherslum í veiðum og vinnslu á bolfiski á nýbyij-
uðu rekstrarári fyrirtækisins. Nú í október tók
fyrirtækið í notkun nýja vinnslusali fyrir síld og
loðnu og hefur vinnslan farið vel af stað, segir
ennfremur í frétt fyrirtækisins. Með fjárfesting-
unni-er stefnt að því að ná enn betri árangri í
vinnslu uppsjávarfiska auk þess sem rekstrar-
kostnaður mun lækka umtalsvert frá því sem ver-
ið hefur. Jafnframt hefur verið tekinn í notkun
nýr búnaður í botnfiskdeild. Þar er um að ræða
lausfrysti, samvals- og pökkunarbúnað. Lausfryst-
irinn getur fryst um 1.200 kíló af flökum á klukku-
stund. Hönnun og smíði búnaðarins er alísiensk.
Með tilkomu búnaðarins mun arðsemi iandfryst-
ingar aukast frá því sem verið hefur.
Að mati forráðamanna Vinnslustöðvarinnar er
rekstrarútlit gott, þar sem bæði loðnu- og síldar-
stofnarnir séu sterkir auk þess sem þorskstofninn
sé að styrkjast. Arðsemi nýju flárfestinganna skili
sér í bættri afkomu þegar líða taki á rekstrarárið.
Nafnávöxtun sl. 10 daga 5,07%
Nafnávöxtun sl. 20 daga 6,16%
Nafnávöxtun sl. 1 mán. 6,23%
Nafnávöxtun sl. 2 mán. 5,88%
Nafnávöxtun sl. 3 mán. 5,65%
Peningabréf eru kjörin leið fyrir þá sem vilja festa fé til skamms tíma, s.s. fyrirtæki, sjóði,
sveitarfélög, tryggingarfélög og einstaklinga. Sjóðurinn fjárfestir einungis í traustustu tegundum
verðbréfa á markaðnum, einkum skammtímaverðbréfum ríkissjóðs og bankastofnana.
Peningabréf eru laus til útborgunar án kostnaðar þegar 3 dagar eru liðnir frá kaupunum.
Hvenær sem er eftir það er hægt að leysa bréfin út samdægurs með einu símtali.
. LANPSBRÉF HF.
Hringdu eða komdu... og nýttu þér ráðgjafaþjónustu okkar og umboðsmanna okkar -7^4*/*. -
í öllum útibúum Landsbanka íslands. L6ggii,verðbré...yr,rtœki.
Aðili að Verðbréfaþingi íslands.