Morgunblaðið - 25.10.1996, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996 5
FRÉTTIR
Operukjallarinn verður opnaður aftur um miðjan nóvember
Dans o g lifandi tónlist
UM ÞRJÁTÍU manns vinna nú við
framkvæmdir á skemmtistaðnum
Óperukjallaranum við Hverfísgötu
8-10, sem verður opnaður snemma
í nóvember. Ingi Þór Jónsson hef-
ur tekið að sér rekstur staðarins
og segir hann markmiðið að sjá
fólki 25 ára og eldra fyrir dans-
stað með lifandi tónlist.
Skemmtistaður með sama nafni
var rekinn í húsinu þegar rekstur
veitingahússins Amarhóls lagðist
af og að því búnu var dansstaður-
inn Ingólfscafé opnaður á sama
stað, að sögn Inga Þórs. Nú hefur
verið afráðið að opna Óperukjall-
arann aftur og segir hann búið
að stækka húsið mikið. „Það vant-
ar dansstað fyrir fólk á þessum
aldri sem vill skemmta sér undir
leik lifandi tónlistar," segir hann.
Ingi Þór segir búið að fara þess
á leit að Egill Ólafsson, Björgvin
Halldórsson og Þórir Baldursson
sjái um danstónlistina og að við-
ræður séu á lokastigi.
Hann segir mikið af nýtilegum
innréttingum í húsinu sem tengst
hafi rekstri Arnarhóls og Óperu-
kjallarans sem var og að stíllinn
verði með „heldrimanna blæ“ eins
og tekið var til orða.
Ingi Þór starfaði á skemmti-
staðnum Ömmu Lú í fjögur ár og
tengdist jafnframt rekstri Astró.
Björn Leifsson er eigandi
skemmtistaðarins, en hann rekur
jafnframt Leikhúskjallarann og
segir Ingi Þór að Jóhannes Bald-
ursson, sem var á Café Óperu, og
Brynja Gunnarsdóttir muni að-
stoða hann við reksturinn.
iviurguuumuiu/ t'urRuu
UM ÞRJÁTIU manns vlnna nú að endurbótum á Óperukjallaran-
um sem verður opnaður aftur snemma í nóvember.
Félagsdómur um
orlof dómara
Ekki for-
dæmi fyrir
aðra hópa
LAUNASKRIFSTOFA íjármálaráðu-
neytisins telur að sá úrskurður Fé-
lagsdóms, að dómarar eigi að fá
greitt orlof af yfirvinnu, hafí ekki
fordæmisgildi fyrir aðrar stéttir. Að
sögn Birgis Guðjónssonar, skrifstofu-
stjóra, hafa engir aðrir hópar haft
samband við skrifstofuna og krafíst
þess að úrskurðurinn taki til þeirra.
Félagsdómur gekk að þeirri kröfu
Dómarafélags íslands að dómarar
fái greitt orlof af yfírvinnu og eiga
þeir rétt á orlofsgreiðslum frá
ákveðnum tíma, eða um þijú ár aft-
ur í tímann. Dómarar, sem úrskurð-
urinn nær til, eru um 50 og þarf
ríkissjóður að greiða um 14-15
milljónir króna vegna þessa.
Greitt út í nóvember
„Við höfum skoðað forsendur Fé-
lagsdóms og komist að þeirri niður-
stöðu að úrskurðurinn hafí ekki áhrif
á aðra hópa, enda engir hópar að
fullu sambærilegir við dómara að
þessu leyti,“ sagði Birgir Guðjónsson
í samtali við Morgunblaðið.
Birgir sagði að verið væri að
reikna út hvað hveijum dómara
bæri, en líklega næðist ekki að
ganga frá greiðslum fyrir mánaða-
mót. „Ég reikna með að við höfum
aukaútborgun vegna þessa, þar sem
sérstaklega stendur á, og dómurum
berist greiðslan ekki síðar en í miðj-
um nóvember."
-----» ♦ ♦-----
Ekki sameig-
inlegur listi
FELIX Valsson læknir á Sahl-
grenska-sjúkrahúsinu í Gautaborg
segir það alrangt sem fram hefur
komið hjá Sigurði Thorlacius trygg-
ingayfirlækni að biðlisti eftir líffær-
um sé sameiginlegur fyrir Norður-
löndin öll.
„Þessi listi er ekki sameiginlegur,
heldur er starfandi samskiptakeðja
sem kallast Scandia Transplants sem
sér til þess að líffæri fari ekki for-
görðum. Geti eitthvert ríkjanna ekki
notfært sér líffæri sem býðst þar,
fer það á lista hjá þessu fyrirtæki,"
segir Felix.
-----♦.♦.♦-----
Lýst eftir bíl
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir
bifreið sem stolið var frá húsi við
Tjarnarból á Seltjarnarnesi, á tíma-
biiinu frá kl. 19.30, þriðjudagskvöld-
ið 22. október, til kl. 7.30 morguninn
eftir.
Bifreiðin er af gerðinni Saab 99.
Hún er ljósblá, 2ja dyra, árgerð 1982,
með skráningamúmerið GN 822.
Þeir sem gætu gefið upplýsingar um
málið eru vinsamlegast beðnir um
að láta lögregluna í Reykjavík vita.
BÓKMENNT A V ERÐLAUN HALLDÓRS LAXNESS
S
!
í umsögn dómnefndar kemur m.a. fram:
„Lífsklukkan tifar er einkar vel saman
sett verk sem ber vott um hæfileika-
ríízan höfund. Sttll verlzsins er látlaus
og hnitmiðaður en á jafnframt ríkan
þátt í þvi hvernig sögurnar
enduróma hver í annarri og í huga
lesandans. “
Vaka-Helgafell færir Sktila Birni
Gunnarssyni innilegar hamingju-
óskir og árnar honum heilla á
rithöfundarbrautinni.
Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness voru
afhent í fyrsta sinn 22. október 1996.
Verðlaunin hlaut Skúli Björn Gunnarsson.
Hann er 26 ára bókmenntafræðingur og er
þetta fyrsta bók hans.
VAKA-HELGAFELL
LÍFSKLUKKAN TIFAR E R NÚ FÁANLEG í ÖLLUM B Ó KAVE RS LU N UM .