Morgunblaðið - 25.10.1996, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996 17
ERLENT
Hrundi ofan á íbúðahverfi
Reuter
BJÖRGUNARMENN leita í rústum húsa í út-
hverfi borgarinnar Manta í Ecuador í gær. í
fyrrakvöld hrundi Iogandi brak úr bandarískri
flutningaþotu af gerðinni Boeing-707 niður á
hverfið með þeim afleiðingum, að 24 a.m.k. biðu
bana og 60 slösuðust. Þotan sprakk skömmu eft-
ir flugtak í Manta og fórst fjögurra manna áhöfn
hennar.
Israelar minnast morðsins á Yitzhak Rabin
Morðið talið hafa
skerpt andstæðurnar
isalem. Reuter.
ÍSRAELAR minntust þess í gær að
samkvæmt tímatali gyðinga er ár
liðið frá morðinu á Yitzhak Rabin,
fyrrverandi forsætisráðherra. Deilur
um hvernig ætti að minnast hans
þykja til marks um að morðið hafí
ekki orðið til þess að draga úr póli-
tískri sundrung í landinu og jafnve!
skerpt andstæðurnar.
Þúsundir manna söfnuðust saman
á torgi í Tel Aviv, þar sem hægrisinn-
aður gyðingur myrti Rabin á friðar-
fundi fyrir tæpu ári, og skólaböm
minntust hans með þögn.
Israelska dagblaðið Haaretz sagði
í forystugrein að morðið hefði ekki
orðið til þess að þjappa Ísraelum
saman. „Þvert á móti hefur það
skerpt andstæðurnar“.
ísraelska ríkissjónvarpið sagði að
tugum þingmanna hefði verið hótað
lífláti, þeirra á meðal Shimon Peres,
eftirmanni Rabins, og Benjamin Net-
anyahu, forsætisráðherra og leiðtoga
hægrimanna í Likud-flokknum.
Morðið olli miklum óhug meðal
ísraela en tæpu ári síðar hafa vinstri-
og hægriflokkamir ekki einu sinni
getað komið sér saman um hvernig
eigi að minnast tilræðisins. Israelsk-
ur dómstóll hafnaði í gær beiðni um
að morðdagurinn yrði lýstur sorgar-
dagur til minningar um Rabin og
áður höfðu hægrimenn á þinginu
hafnað þeirri hugmynd. Þeir líta á
tillöguna sem tilraun af hálfu Verka-
mannaflokksins til að notfæra sér
morðið í pólitískum tilgangi.
Félagar í ungmennahreyfmgum
hægrimanna og heittrúaðra gyðinga
hafa neitað að syngja „Friðarsöng-
inn“, sem Rabin söng áður en hann
var myrtur, við minningarathöfn sem
ráðgerð er á sunnudag. í söngnum,
sem er orðin að nokkurs konar helgi-
söng vinstrimanna, eru ísraelar
hvattir til að gleyma styijöldum for-
tíðarinnar og fagna friðartímum sem
færu í hönd.
„Við viljum ekki taka allt hug-
myndakerfi vinstrimanna gott og
gilt aðeins vegna þess að forsætis-
ráðherrann, megi hann hvíla í friði,
var myrtur," sagði Eldad Halahmi,
leiðtogi Betar, ungliðahreyfingar
hægrimanna.
Stjómmálamenn og fjölskylda
Rabins voru viðstödd minningarat-
höfn við gröf hans í Jerúsalem. Ekkja
hans, Leah Rabin, sagði þar að
vinstrimenn væru alltaf fórnarlömb
pólitísks ofbeldis í ísrael og hægri-
menn alltaf sökudólgamir. „Aldrei
nokkurn tíma hefur verið skotið frá
vinstrivængnum á hinn hægri. Þegar
skotum hefur verið hleypt af hafa
þau komið frá hægrimönnum og
hæft vinstrimenn."
Aður hafði Zevulun Hammer
menntamálaráðherra sagt að rangt
væri að kenna öllum hægrimönnum
um morðið á Rabin. Pólitískt ofbeldi
einskorðaðist ekki við hægrimenn.
Rabin var myrtur 4. nóvember
samkvæmt okkar tímatali, en tímatal
gyðinga er mun flóknara. Samkvæmt
því eru yfirleitt 354 dagar í árinu,
en stundum 353 eða 355. í hlaup-
ári, sem verður sjö sinnum á 19
árum, eru hins vegar 383, 384 eða
385 dagar.
Frelsi til fóstureyðinga sam-
þykkt 1 Póllandi
Páfagarður
gagnrýnir
pólska þingið
Rómaborg, Varsjá. Reuter.
PÁFAGARÐUR mótmælti harð-
lega í gær þeirri ákvörðun pólska
þingsins að samþykkja lög um
frelsi til fóstureyðinga. Sagði í
yfirlýsingu, sem birtist í málgagni
Vatikansins, L’Osservatore Rom-
ano, að Pólverjar hefðu valið „leið
dauðans“.
í blaðinu var getið ítrekaðra
tilmæla Jóhannesar Páls páfa til
samlanda sinna um að hafna fóst-
ureyðingu. „Með því að gefa fóst-
ureyðingar fijálsar hafa Pólveijar
stigið afdráttarlaust skref til
menningar dauðans," sagði blað-
ið.
Notaði blaðið þar með hugtak,
sem páfa hefur verið tamt í
munni, þegar hann hefur gagn-
rýnt ríki, sem aukið hafa frelsi
til fóstureyðinga. Er páfi bað sam-
landa sína nýlega að leggjast á
bæn gegn fóstureyðingum talaði
hann tæpitungulaust. „íjóð sem
drepur bömin sín á sér enga fram-
tíð“, sagði páfí.
Neðri deild pólska þingsins,
Sejm, hnekkti í gær neitunar-
valdi, sem efri deild þingsins hafði
beitt gegn fóstureyðingarfrum-
varpinu. Verður það því að lögum
og hefur Aleksander Kwasn-
iewski, forseti, heitið því, að stað-
festa lögin við fyrsta tækifæri.
Samkvæmt lögunum geta kon-
ur fengið fóstri eytt fram að 12.
viku meðgöngu eigi þær við fjár-
hagsleg eða ánnur persónuleg
vandamál að stríða. Lög, sem
samþykkt vom 1993, heimiluðu
fóstureyðingu einungis ef þung-
unin ógnaði lífí eða heilsu konunn-
ar, ef ljóst þætti að bamið fædd-
ist verulega vanskapað, eða þegar
þungun stafaði af völdum nauðg-
unar eða siíjaspella.
FJfiLBRAUTASXÚUNN
BREIÐHOLTi
RAF VIRKJUN
Fjölbrautaskólinn Breiðholti
Innritun á vorönn 1997
lýkur 1. nóvember.
Frá rafiðnadeild FB hafa 255
nemendur útskrifast til sveinsprófs í
rafvirkjun frá árinu 1975.
FB þegar þú velur rafvirkjun.
McDonald’s og KSÍ bjóða hejopnum
vinningshafa á leik Islands og Irlands
á Irlandi þann 10. nóvember nk.
Getraunaseðlar fylgja með Stjörnumáltíðum
og landsleikstilboði hjá McDonald’s
til 27. október.
VILTU VINNA
FERÐ TIL
ÍRLANDS?