Morgunblaðið - 25.10.1996, Page 27
26 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
fllrogiiiftlafrife
STOFNAÐ 1913
Tvær ijúpnaskyttur fundust síðdegis í gær eftir víðtæka leit björgunarsveita á Suðvestur-
landi. Mennimir ætluðu að fara stutta veiðiferð, en villtust í þoku, illa búnir og án fjarskipta-
búnaðar. Þeir segja að þeir hefðu betur haft fjarskiptatæki meðferðis og skilið eftir ferðaáætlun.
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
LEIÐTOGASKIPTI
í NOREGI
STJÓRNARSKIPTI verða í Noregi í dag, en þá lætur Gro
Harlem Brundtland af embætti forsætisráðherra, en við
tekur Thorbjörn Jagland, sem verið hefur formaður Verka-
mannaflokksins frá 1992. Þessi tíðindi boða mikil umskipti í
norskum stjórnmálum, því Gro hefur verið sterkasti forystu-
maður norskra jafnaðarmanna allt frá dögum Einars Ger-
hardsens. Hún er fyrsta konan, sem gegnt hefur starfi forsæt-
isráðherra í landi sínu, og hefur notið mikilla vinsælda landa
sinna og mikils álits á alþjóðavettvangi.
Gro Harlem Brundtland varð umhverfisráðherra í ríkis-
stjórn Trygve Brattelis árið 1974, var kjörin á þing árið 1977,
en árið 1981 tók hún við starfi forsætisráðherra af Odvar
Nordli og einnig sem formaður Verkamannaflokksins. Átta
mánuðum síðar vék stjórn hennar fyrir hægristjórn Kaare
Willoch eftir tap í þingkosningum. Árið 1986 myndaði hún
minnihlutastjórn, sem sat til 1989, þegar hægristjórn Jan P.
Syse tók við. Sú stjórn sat til 1990, þegar Gro myndaði á
ný minnihlutastjórn Verkamannaflokksins. Frá þeim tíma
hefur Gro Harlem Brundtland gegnt starfi forsætisráðherra,
en árið 1992 lét hún af störfum formanns flokksins í kjölfar
harmleiks í fjölskyldu hennar. Þótt Jagland hafi þá tekið við
flokksformennskunni hefur Gro samt verið óumdeildur leið-
' togi jafnaðarmanna.
Norðmenn gengu árið 1994 til kosninga í annað sinn um
aðild að Evrópusambandinu og höfnuðu henni. Gro beitti sér
af hörku fyrir aðildinni og voru úrslitin mikið áfall fyrir hana.
Frá þeim tíma hefur verið búizt við því, að hún drægi sig í
hlé, þótt ákvörðun hennar nú kæmi á óvart. Hún segir nauð-
synlegt, að nýr flokksleiðtogi hafi tíma til að festa sig í sessi
fyrir þingkosningarnar á næsta ári.
Gro Harlem Brundtland hefur á undanförnum árum verið
sterkasti pólitíski talsmaður Norðurlandaþjóðanna á alþjóða-
vettvangi og verið í hópi þeirra stjórnmálaleiðtoga á Vestur-
löndum, sem mestrar virðingar hafa notið.
MÁ ALDREIGLEYMAST
UNGVERJAR minntust þess í fyrradag að fjörutíu ár eru
liðin frá innrás Sovétríkjanna - og uppreisn ungversku
þjóðarinnar gegn sovézkum yfirráðum. Augu alls mannkyns
beindust að Ungverjum þessa októberdaga fyrir fjörutíu árum,
enda óvíst að aðrir atburðir þess tíma hafi haft meiri áhrif
og eftirmál.
Hrun Sovétríkjanna og þeirrar alræðis- og yfirgangsstefnu,
sem þau voru reist á, var að vísu vafið úr fleiri þáttum en
þeim ungverska. Atburðirnir í Ungveijalandi voru samt sem
áður veigamikill hluti upphafsins að hruni kommúnismans í
Austur-Evrópu. Þeir höfðu og afgerandi áhrif á skoðanamynd-
un fólks hvarvetna í veröldinni.
Síðari tíma kynslóðir horfa ekki til blóðbaðsins í Ungveija-
landi með sömu augum og þær, sem lifðu þessa tíma. Mikil-
vægt er engu að síður að þessir atburðir gleymist ekki. Við
getum ekki varast vítin nema að þekkja þau. Aðgangur fræði-
manna að fyrrum leyndarskjölum í Kreml, sem m.a. var sagt
frá í Morgunblaðinu sl. sunnudag, auðveldar okkur og að
draga rétta lærdóma af biturri reynslu Austur-Evrópuþjóða
á sovéttímanum.
* *
HÁMARKSHRAÐI
SEX stjórnarþingmenn hafa lagt fram á Alþingi tillögu um
að hámarkshraði á bundnu slitlagi utan þéttbýlis verði
110 kílómetrar á klukkustund í stað 90 km.
Flutningsmenn segja í greinargerð, að 90 kílómetra há-
markshraði sé „barn síns tíma“ og vegakerfið hafi stórum
batnað frá því er þessi hraðatakmörk voru sett.
Á það má benda, að núgildandi hámarkshraði er 2 km
meiri en hámarkshraði í sumum ríkjum Bandaríkjanna, þar
sem vegfarendur mæta aldrei bifreið á sömu braut. 110 km
hámarkshraði er hins vegar 6 km meiri en þar sem hámarks-
hraði er mestur í Bandaríkjunum.
Á íslandi er allt þjóðvegakerfið einfalt og nánd við bifreið,
sem kemur á móti mikil. Þótt hámarkshraði í Bandaríkjunum
miðað við fyrsta flokks vegakerfi sé ekki hár, þá sýnir reynsl-
an, að hraðinn í reynd er 10 til 20 km meiri, end$ segir
Iöggæzlan ekki ýkja mikið við þeim hraða. Sama er að segja
um íslenzkan veruleika. Hækkun hámarkshraða í 110 km á
klukkustund, þýddi hraða í raun á bilinu 120 til 130. Spurn-
ing er, hvort veikburða íslenzkt vegakerfi þoli slíkan hraða,
þrátt fyrir framfarir í vegagerð á undanförnum árum. Og
varla yrði hann til þess að draga úr slysum, en á því þurfum
við fyrst og fremst að halda.
Morgunblaðið/Golli
ARNÞÓR og Guðlaugur Pálssynir við Vogsós í gær, skömmu eft-
ir að tilkynnt var að þeir væru komnir fram heilir á húfi.
TÝNDUM
ÁTTUMÍ
ÞOKUNNI
Tvær rjúpnaskyttur héldu til
veiða á miðvikudag og lögðu
bíl sínum við Bláfjallaveg
undir Grindaskörðum
Kbngsfell
Heigáfell
Grindá-
skorb
Brenni
stems-
fjöfl/
Krísuvík
Geitahlíö
Herdísarvíi?
isosar
"Strandakirkja
Hafnarfjörður
Heibin há
Um miðjan dag a fimmtudag
komu skytturnar fram í Selvogi
5 km
BRÆÐURNIR Guðlaugur
og Arnþór Pálssynir, sem
villtust á ijúpnaskytteríi
og fundust eftir fimmtán
klukkustunda leit, voru glaðir í
bragði þegar þeir komu á slysa-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur síð-
degis í gær. „Auðvitað er maður
glaður að sleppa heill úr svona
hrakningum,“ segja þeir.
Bræðurnir segjast hafa lagt af
stað úr Reykjavík um hálfþijúleyt-
ið á miðvikudag. „Við ætluðum að
leggja upp úr Grindarbotnum, vera
tvo til tvo og hálfan tíma og vera
komnir inn í bíl löngu fyrir myrk-
ur,“ segir Guðlaugur. „Þegar upp
eftir var komið skall á þoka eftir
svo sem klukkutíma. Það var mik-
ill eltingaleikur við ijúpuna, enda
var mikið af henni. Við vissum allt-
af hvar við vorum þangað til við
gengum bak við eitt barð; þá týnd-
um við gersamlega áttum. Við
rembdumst við að komast aftur að
bílnum, enda vorum við báðir orðn-
ir anzi blautir. Við vorum illa bún-
ir, í gallabuxum en góðum jökkum,
enda ætluðum við ekki að vera
lengi.“
Skiptumst á að sofa
standandi undir hraunkambi
„Við gengum til klukkan tíu um
kvöldið, líkast til í eintóma hringi.
Við rákumst hins vegar á vörðu
og gátum fylgt leiðinni tvær eða
þijár vörður í viðbót, en þá var
komið svartamyrkur og enn meiri
þoka. Þá ákváðum við að stanza.
Við vorum um nóttina við dálít-
inn hraunkamb, skammt frá vörð-
unni, skiptumst á að sofa stand-
andi hálftíma í senn og hrópa og
kalla til að reyna að vekja athygli
á okkur. Við skutum líka upp í
loftið á um það bil hálftíma fresti
eða þangað til við vorum orðnir
skotlitlir.
Um morguninn ákváðum við svo
að vera um kyrrt ef hjálparsveitirn-
ar kynnu að vera búnar að átta
sig á staðnum, en leggja af stað
um hádegi ef hjálp hefði ekki bor-
izt. Klukkan tólf lögðum við svo
af stað og fylgdum vörðunum, sem
við höfðum fundið kvöldið áður.
Við vorum búnir að átta okkur á
að þær lágu beint á móti rokinu,
sem við töldum vera úr suðri eða
suðvestri. Við gengum þess vegna
á móti vindi og hellirigningu. Við
þorðum ekki að fara í hina áttina,
Á TÓLFTA tímanum í fyrra-
kvöld var lögreglu í Reykjavík
tilkynnt að tveggja rjúpnaskytta
væri saknað. Um miðnætti voru
fyrstu björgunarsveitir kallaðar
út og var farið að grennslast
fyrir um ferðir mannanna. Óljóst
var hvert mennirnir hefðu haldið
til veiða en vitað var að þeir
höfðu farið að heiman snemma
á miðvikudag og ekki ætlað sér
að vera lengi. Vegna þess var
ekki unnt að afmarka eiginlegt
leitarsvæði og einbeittu björg-
unarmenn sér að því að finna
bílinn sem skytturnar voru á,
hvítan Ford Econoline-sendibíl.
Leit að bílnum var haldið
áfram í gærmorgun og náði hún
þá yfir þijú leitarsvæði; höfuð-
borgarsvæðið, Suðurnes og
svæðið fyrir austan fjall. Flestar
eða allar björgunarsveitir á
svæðunum þremur tóku þátt í
ieitinni og óku alla þá vegi og
slóða þar sem talið var hugsan-
legt að menn á leið til ijúþna
gætu farið um á svæðinu milli
Hvalfjarðar og Reykjaness. Jafn-
framt leitaði þyrla Landhelgis-
gæslunnar úr Iofti.
Um klukkan 13 í gær fannst
bíll mannanna svo á veginum í
Grindarskörðum, sem eru við
vegna þess að þá hefðum við getað
lent upp í Bláfjöllum og villzt þar.
Við þekkjum okkur betur á þessum
slóðum.
Eftir þriggja tíma göngu, þegar
við komum niður Hlíðarskarðið,
sáum við Strandarkirkju. Þegar við
nýja veginn frá Krýsuvíkurvegi
í Bláfjöll. Þar hafði honum verið
ekið inn á jeppaslóða við Selvogs-
götu, gamla varðaða leið.
Náðu miði frá sendum í
GSM-sima
Að sögn Þórs Sigurðssonar í
svæðisstjórn björgunarsveita í
Reykjavík gerðist það um svipað
leyti að boð komu frá leitar-
mönnum um að bíllinn væri fund-
inn og starfsmönnum fjarskipta-
deildar Pósts og síma tókst að
miða með talsverðri nákvæmni
út staðsetningu bílsins með því
að ná miði frá tveimur sendum
í GSM-síma mannanna, sem var
í bílnum. Þetta mun vera í fyrsta
skipti sem þetta tekst við leit hér
á landi.
Að svo komnu var leitarliði
stefnt að Bláfjallasvæðinu og
yfir í Selvog. Skömmu siðar, um
klukkan 15.10, sá bóndinn á
bænum Vogsósum II til mann-
anna tveggja á leið niður brekku
ofan við bæinn ofan í Selvoginn
og fór hann á móti þeim og skaut
yfir þá skjólshúsi. Þeir voru að
sögn vel á sig komnir og höfðu
verið á gangi eftir að hafa villst
í þoku en höfðu haldið kyrru
fyrir um nóttina.
komum niður skarðið sá bóndinn á
Vogsósum tii okkar og snaraði
okkur beint í kaffi og lét okkur
hafa ný föt. Við fengum frábærar
viðtökur hjá honum.“
Fjarskiptatæki og
ferðaáætlun nauðsynleg
Bræðurnir voru matarlausir á
göngunni, enda höfðu þeir skilið
nesti sitt eftir í bílnum. Heimilis-
hundurinn, sem fylgdi þeim, var
örmagna eftir svaðilförina og lá
kylliflatur í bíl við slysadeild Borg-
arspítalans á meðan Morgunblaðið
ræddi við bræðurna.
Aðspurðir segjast þeir ekki hafa
haft nein fjarskiptatæki meðferðis.
„Við töldum það óþarfa, þar sem
við ætluðum að vera í svona stuttan
tíma. Þetta sannar hins vegar að
þess þarf. Við gerðum grein fyrir
því á tveimur stöðum, hjá vinum
og kunningjum, hvert við ætluðum,
en fyrir einhvern misskilning hefur
það ekki komizt til skila til björgun-
arsveitanna. Við sjáum núna að
vissulega hefðum við átt að skilja
eftir ferðaáætlun,“ segir Guðlaugur.
Aðspurðir hvort þeir eigi ráð til
rjúpnaskyttanna, sem nú flykkjast
upp um fjöll og firnindi í leit að
jólamat, segja bræðurnir: „Að passa
sig á þokunni, vera í ullarbuxunum
og láta vita af sér.“
Ekki hræddur
með stóra bróður
Voru þeir ekkert hræddir? „Auð-
vitað verður maður dálítið hrædd-
ur,“ segir Guðlaugur. „Ég varð ekki
hræddur fyrst stóri bróðir var með,“
segir Arnþór. Bræðurnir segja að
þetta sé í fyrsta sinn sem þeir fari
saman til ijúpna. „Litli bróðir ætl-
aði að sýna mér nýtt svæði,“ segir
Guðlaugur.
Þeir bræður vildu koma á fram-
færi þakklæti til allra, sem tóku
þátt í leitinni að þeim. Þeir segjast
ekki hafa orðið varir við björgunar-
menn eða þyrlu Landhelgisgæzl-
unnar. „Við heyrðum hins vegar
fjórum sinnum í flugvél og þá skut-
um við á fullu upp í loftið,“ segir
Arnþór.
Póstur og sími
miðaði bílinn út
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996 27
GREIÐSLUVANDI HEIMILANNA
Endurskoðun lána-
markaðarins aðkallandi
LÁNVEITINGAR með ábyrgð
þriðja aðila eru dæmi um
ógætilega lánastarfsemi,
sem eiga dijúgan þátt í að
fjöldi einstaklinga leiðist út í lántökur
umfram greiðslugetu og ber þannig
ábyrgð á hluta þess mikla vanda, sem
skuldasöfnun heimilanna er. Þessi
áfellisdómur yfir ríkjandi fyrirkomu-
lagi ábyrgðartrygginga á lánveiting-
um íslenzkra lánastofnana er meðal
niðurstaðna fyrstu áfangaskýrslu
Ráðgjafarstofu um fjármál heimil-
anna, sem Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra kynnti ásamt öðrum að-
standendum og forsvarsmönnum Ráð-
gjafarstofu í gær. Þar lýsti ráðherra
því meðal annars yfir, að þörf væri á
nýrri stefnumörkun í málefnum lána-
markaðarins.
Meðal niðurstaðna áfangaskýrsl-
unnar er að lánveitingar með ábyrgð
þriðja aðila séu varasamar fyrir aila
aðila, lánveitanda, lántaka og
ábyrgðaraðila. Framkvæmdastjóm
Ráðgjafarstofu leggur til, að unnið
verði að því að hætta alfarið lánveit-
ingum með ábyrgð þriðja aðila og
hvetur til að sett verði löggjöf um
faglega ábyrgð íjármálastofnana á
lánveitingum til einstaklinga og upp-
lýsingaskyldu lánastofnana til þeirra
sem ábyrgjast lán. Hér á landi hefur
uppáskrift þriðja aðila verið algeng-
asta form ábyrgðartryggingar við lán-
veitingar; um 72% allra veittra lána
hér á landi eru ábyrgðartryggð á
þennan hátt, á meðan þetta hlutfall
er aðeins um 10% í Svíþjóð t.d.
Bráðamóttaka fólks í
greiðsluerfiðleikum
Ráðgjafarstofan var sett á laggirn-
ar fyrir réttum átta mánuðum sem
eins konar „bráðamóttaka fólks í al-
varlegum greiðsiuerfiðleikum“, eins
og félagsmálaráðherra tók til orða.
Hún var hugsuð sem tilraunaverkefni
til tveggja ára með þátttöku 16 aðila
undir forystu félagsmálaráðuneytis-
ins, en hún gegnir því hlutverki fyrst
og fremst að hjálpa fólki sem komið
er í þrot með fjármál sín með því að
veita því ráðgjöf - endurgjaldslaust
- um hvemig það getur öðlazt yfirsýn
yfir fjármál sín, gert greiðsluáætianir,
valið úrræði og samið við lánar-
drottna. Á vegum Ráðgjafarstofu er
einnig unnið að fræðslu um málefni
sem snerta flármál heimilanna.
Áfangaskýrslan, sem kynnt var í
gær, er sú fyrsta sem framkvæmda-
stjóm Ráðgjafarstofu stendur skil á
um starfsemina, en ætlazt er til að
slíkar skýrslur séu gerðar fyrir hvert
hálfs árs tímabil, með það að mark-
miði að miðla upplýsingum til stjórn-
valda, lánastofnana og almennings í
þeim tilgangi að unnt verði að sækja
þekkingu og reynslu í starf Ráðgjafar-
stofu til að móta úrræði og aðgerðir
til lausnar á skuldavanda heimilanna
í framtíðinni.
Að mati félagsmálaráðherra hefur
starfsemi Ráðgjafarstofu tekizt vel;
reynslan hafí sýnt, að sönn þörf hefði
verið á þjónustu Ráðgjafarstofu. Tek-
izt hafi að liðsinna fjölmörgum.
Auðveldari aðgangur að
lánsfé viðsjárverður
Að sögn Elínar Sigrúnar Jónsdótt-
ur, forstöðumanns Ráðgjafarstofu,
hefur það komið skýrt í -----------
Ijós með reynslu undanfar-
inna mánaða, að hið stór-
aukna framboð á og auð-
veldaða aðgengi að lánsfé
sé ein helzta ástæða þess
að sífellt fleiri lendi í
greiðsluerfiðleikum. Heim-
ilin standi frammi fyrir
gegndarlausum tilboðum um að eign-
ast skuldir. Þannig sé lánamarkaður-
inn orðinn, með þeirri miklu flölgun
lánastofnana (trygginga- og verð-
bréfafélög meðtalin) og lánamögu-
leika (s.s. hjá bílaumboðum og í
Áfangaskýrsla Ráðgjafarstofu um fjár-
hagsvanda heimilanna kom út í gær.
Hún hefur að geyma athyglisverða innsýn
í stöðu skuldugra heimila í landinu, sem
draga má ýmsar ályktanir af. Auðunn
Arnórsson las skýrsluna.
Skuldir og vanskil umsækjenda, skipt eftir búsetu
Reykjavík
Nágrannab. R.víkur
Suðurnes
Vesturland
Vestfirðir
Norðurland vestra
Norðurland eystra
Austurland
Suðurland
10 mllljónir
króna
Skipting skulda umsækjenda á helstu lánadrottna
Bankar og sparisj.
Háusnæðisstofnun
Lífeyrissjóðir
Lánasj. ísl. námsm.
Innh.st. sveitarfél.
Opinber gjöld
Greiðslukort p28,8
200 400 600 800 milljónir
króna
Landsbanki
Búnaðarbanki
íslandsbanki
Sparisjððir
Morgunblaðið/Golli
ÞÓRUNN K. Þorsteinsdóttir, ein sex starfsmanna Ráðgjafarstofu
um fjármál heimilanna, að ráðgjafarstörfum í húsnæði Ráðgjafar-
stofunnar í Lækjargötu 4.
Heildar-
skuldir 317
umsækjenda
2,1 millj-
aröur kr.
greiðslukortaviðskiptum), sem orðið
hafí á undanförnum árum.
Þó ástandið væri alvarlegt og eins
og tölumar sýndu væri langt í frá að
vandi skuldugra heimila væri leystur,
segir Elín Sigrún reynsluna hafa sýnt
að þeir aðilar sem sótt hefðu um að-
stoð Rágjafarstofu hafi verið duglegir
að taka sig á og vinna að lausn sinna
-------- mála, sem í mörgum tilvik-
um vom komin í algjörar
ógöngur. Mörg dæmi séu
um að fólk, sem jafnvel
hafi tekjur vel yfir með-
allagi, standi frammi fyrir
umsömdum afborgunum
ii — lána sem nemi meiru en
100% ráðstöfunartekna.
Helztu orsakir greiðsluerfiðleika
umsækjenda em margs konar, og að
sögn Elínar Sigrúnar oft sambland
fleiri þátta. Lántaka umfram greiðslu-
getu, tekjulækkun, veikindi, atvinnu-
leysi, óráðsía og ábyrgðaskuldbind-
ingar eru helztu þættir, sem til em
tíndir.
Meðalvanskil umsækjenda
ein og hálf milljón
Á þessum fyrstu mánuðum starf-
rækslu Ráðgjafarstofunnar hafa hátt
í 500 umsækjendur, bæði einstakling-
ar og pör, leitað til hennar um að-
stoð, og hefur nú þegar ___________
vinnslu 400 mála verið lok-
ið. Heildarskuldir 317 um-
sækjenda nema rúmum 2,1
milljarði króna, sem gefur
stærð vandans skýrt til
kynna. Meðalfjölskyldu-
stærð umsækjenda er 3,1,
þannig að greinilegt er að
vandinn er ekki mestur hjá bammörg-
um fjöskyldum. Meðalráðstöfunar-
tekjur umsækjenda á mánuði em rúm-
ar 146 þúsund kr. Umsækjendur í
hópi hinna tekjulægstu em í miklum
minnihluta; flestir þeirra hafa tekjur
í góðu meðallagi. Meðalvanskil um-
sækjenda em rúmlega 1,5 milljónir
kr., en mörg dæmi em um að fjöl-
skyldur séu með milli tvær og þijár
milljónir í vanskilaskuldum.
Langflestir umsækjenda búa á höf-
uðborgarsvæðinu, eða 76% og því
aðeins 24% á landsbyggðinni. Þetia'
ber að hafa í huga við lestur meðfylgj-
andi yfirlitsmyndar um skuldir og
vanskil umsækjenda, skipt eftir bú-
setu.
Hvað varðar aldursskiptingu um-
sækjenda vekur athygli, að nærri tveir
þriðju þeirra eru fæddir á tímabilinu
1950 til 1969, en mest eru vanskilin
hjá þeim umsækjendum sem fæddir
em á ámnum 1940-1949, eða um 1,8
milljónir kr. Einnig vekur athygii, að
eigendur félagslegra íbúða em hátt í
fjórðungur umsækjenda, 23%, en það
er óvenju hátt hlutfall með tillití til
þess að heildarhlutfall félagslegra
eignaríbúða er innan við 10%.
Langflestir umsækjenda em pör í
sambúð eða hjón, en rúmur fjórðung1
ur em einstaklingar. Alláberandi
munur er á þessum tveimur hópum
ef litið er til þess hvaða starfsstéttum
umsækjendur teljast til. Í einstakl-
ingahópnum em yfir 40% atvinnulaus-
ir, öryrkjar og ellilífeyrisþegar, en í
parahópnum er hlutfall þessara hópa
helmingi minna. Að öðm leyti dreifast
umsælqendur á flestar stéttir; verka-
menn, iðnaðarmenn, sjómenn, skrif-
stofumenn, opinberir starfsmenn, há-
skólamenntaðir og húsmæður, svo
dæmi séu nefnd.
Brautryðjendastarf með
nýju greiðslumati
Elín Sigrún segir brautiyðjenda-
starf hafa verið unnið með því
greiðslumati sem þróað hafi verið á
Ráðgjafarstofunni þar sem útgjöld
fjölskyldunnar til hreinnar framfærslu
eru lögð til gmndvallar. Á það er lögð
áherzla, að það sé lykilatriði, að fram-
færslukostnaður íjölskyldunnar sé
þekktur. Tekjumar segja ekki alla
söguna, ef ekki er vitað hve margir
þurfa að lifa af þeim. Þetta atriði er
að mati Elínar veiki punkturinn i
greiðslumati Húsnæðisstofnunar, sem
miðist við „flatan prósentureikning“.
Skuldbreytingar sem „lengja
í hengingarólinni“
Félagsmálaráðherra vakti athygli
á, að áberandi væri hve seint fólk,
sem svo alvarlega væri komið fyrir,
gripi til aðgerða til lausnar vanda sín-
um. Miklum þjáningum væri hægt að
afstýra, ef fyrr yrði gripið í taumana
hjá fólki sem lendir í slíkum aðstæð-
um. Ráðherra tók ennfremur undir
gagniýni Ríkisendurskoðunar á
vinnubrögð Húsnæðisstofnunar í
tengslum við húsbréfalán, sem komið
hefði fram í stjómsýsluendurskoðun
þeirri sem framkvæmd var á árinu
hjá stofnuninni, en niðurstöður hennar
voru kynntar fyrr í mánuðinum. Hús-
næðisstofnun er langstærsti lánar-
drottinn umsækjenda um aðstoð Ráð-
gjafarstofu.
Greiðsluerfiðleikalán, sem nokkrar
vonir hefðu verið bundnar við til að
létta á vanda skuldugra heimila, hafa
að mati ráðherrans ekki staðið undir
þeim væntingum sem sumir bundu
við þau. Dæmi væm um, að þessi
---------- skuldbreytingarlán hefðu
beinlínis leitt til frekari
ógæfu og aðeins „lengt í
hengingarólinni" hjá þeim
verst settu.
Allt kalli þetta á breytta
lánastefnu. Að matí ráð-
■ iii herrans er aðgengi að lánsfé
orðið of auðvelt. Ríkjandi
ábyrgðarmannakerfí í lánveitingum
væri afar misheppnað; því verði að
breyta. Stjómvöld og lánastofnanir
verði að taka sig saman um að marka
affarasælli stefnu í málefnum lána-
markaðarins.
MeðalráA-
stöfunar-
tekjur
146.000 kr.
á mánuöi