Morgunblaðið - 25.10.1996, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996 37
MINNINGAR
var í Rauðagerði 22 mátti jafnan
eiga von á að þar væru fyrir gestir
af ýmsu þjóðerni — Englendingar,
Norðurlandabúar, Ástralir — sem
sumir þáðu þar gistingu í lengri eða
skemmri tíma. Einkum voru Gu-
ernsey, Norfolk og Portsmouth á
S-Englandi þeim kærir sumardval-
arstaðir hin síðari árin. Þá heim-
sóttu þau tíðum vinafólk sem þau
áttu í Leeds og í Yorkshire.
En „sorgin gleymir engum,“ eins
og í kvæðinu segir og hið misfellu-
lausa og ástríka hjónaband Kallýar
og Eyjólfs beið sín þungu áföll.
Árið 1953, þegar Kallý var aðeins
23 ára gömul, varð hún fyrir því
slysi að strætisvagn sem hún hafði
tekið sér far með fór á hliðina við
gamla íþróttahúsið að Hálogalandi
og margir hlutu alvarleg meiðsl.
Hún var þá vanfær að fyrsta barni
þeirra hjónanna og fæddist það
andvana fyrir afleiðingar slyssins.
Þá var það árið 1984 að hún
greindist með krabbamein sem þeg-
ar var komið á afar hættulegt stig,
en hún eigi að síður lifði af með
undursamlegum hætti — og þá ekki
síst að mati lækna hennar - þótt
hún biði verulegt heilsutjón. Þá kom
kjarkur og staðfesta hennar í ljós
sem aldrei fyrr, því það eru ekki
miklar ýkjur þótt sagt sé að allir
hafi verið skelfingu lostnir — nema
hún. Enn þann dag í dag minnist
eldra starfsfólk krabbameinsdeildar
Borgarspítalans þessarar einstöku
konu sem þvertók fyrir að ganga í
neinslags þeim klæðum sem sjúkra-
hús ætla sjúklingum sínum, heldur
skrýddist dýrindis silkisloppum
þeim sem hún átti marga, vendilega
snyrt, greidd og ilmborin af stakri
smekkvísi, eins og hefðarkonu
sæmdi — sem bar tvö keisaraynju-
nöfn, Katrín og Dagmar. Þannig
kom einnig fram í þungum veikind-
um sú ríka sjálfsvirðing sem hún
átti og einkenndi hana allt fram til
hinstu stundar. Geta má um að þar
naut hún ríkulega umhyggju vin-
konu sinnar Svövu Guðmannsdóttur
hárgreiðslukonu. Á sjúkrahúsinu
hélst Kallý heldur ekki lengur við
en ströngustu kröfur lækna hennar
heimtuðu — þá var hún farin heim.
En meira að segja konu sem henni
hefði ekki verið slíkt unnt án óþreyt-
andi umhyggju og ástúðar eigin-
mannsins sem engin byrði var of
þung að bera þegar elskuleg konan
hans átti í hlut.
Árið 1957 var mikið gæfuár í
lífi þeirra hjónanna, því 26. desem-
ber það ár fæddist þeim dóttirin
Berglind, sem alla tíð síðan hefur
verið gleði og stolt foreldra sinna.
Berglind gerðist lögregluþjónn eins
og faðir hennar og er gift Jóni Otta
Gíslasyni lögregluvarðstjóra. Þau
hafa lengst af búið í húsinu að
Rauðagerði 22 — í íbúðinni fýrir
I neðan íbúð foreldra sinna og
tengdaforeldra. Þau eiga tvö börn,
Katrínu Dagmar 13 ára og Eyjólf
Jónsson 7 ára. Ekki þarf að eyða
orðum að hvílíkur sá missir er sem
I
I
I
I
I
I
I
þeim hefur nú borið að höndum —
og þá ekki síst börnunum tveimur
sem bera nafn afa og ömmu. Sú
er þó bót í máli að það athvarf sem
þau eiga hjá afa sínum er betra en
ekkert!
Kallý frænka var með afbrigðum
vinföst og til marks um það er vin-
átta þeirra Erlu Kristjánsdóttir frá
Vonarlandi í Sogamýri sem rætur
átti að rekja allt til bernskuáranna
og vinátta hennar við þær Vilborgu
Benediktsdóttir og Katrínu Björg-
vinsdóttur sem varði allt frá ungl-
ingsárunum. Þá var áratuga vinátta
með þeim Kallý og mæðgunum
Þóru Stefánsdóttur og Ester Guð-
mundsdóttur — og fleiri mætti
nefna því vinmörg var Kallý um
leið og hún var vinföst. Því olli
ekki síst alúð hennar, glaðværð og
jafnaðargeð, og sá var einn fágætra
mannkosta hennar að aldrei lagði
hún misjafnt orð til nokkurs manns.
Það er ekki óvanalegt að getið
sé um hjónabandsfarsæld í minn-
ingarorðum — sem vel fer á þar sem
það á við. En fátítt mun að geta
megi um slíkt lífslán af jafn fölskva-
lausri sannfæringu og þegar við
leiðum hugann að 43 ára hjóna-
bandi Katrínar Dagmarar og Eyj-
ólfs Jónssonar. Hjónaband þeirra
var sjaldgæflega gott og megi lýsa
því með tveimur orðum öðum frem-
ur þá er það gagnkvæm virðing og
vinátta.
Eftir hin alvarlegu veikindi
Kallýar 1984 sem hún lifði af með
svo undraverðum hætti gafst þeim
Eyjólfi að njóta samvistanna í tólf
hamingjusöm ár, sem þau sannar-
lega nýttu til fullnustu. En á sl.
hausti tók sjúkdómurinn sig upp
að nýju. Enn mætti Kallý — aðeins
66 ára gömul — hörðum örlögum
af sama æðruleysinu og forðum. í
hljóði dáðumst við sem til þekktum
að órofa ást og tryggð Eyjólfs sem
ekki vék frá sjúkrabeði konu sinnar
dag né nótt síðustu þijár vikurnar.
Við aðstandendur hennar viljum
nota þetta tækifæri til þess að færa
Jóni Vilberg Högnasyni lækni, öðr-
um læknum og hjúkrunarliði á deild
A-7 Borgarspítalans þakkir fyrir
þeirra góðu aðhlynningu og hjúkrun
sem frænka okkar naut þar síðustu
ævidagana.
Komið er að kveðjustund. Minn-
ingarnar þyrpast að: Hvað nú um
jóladagsheimboðin í Rauðagerði 22
sem voru fastur punktur í tilver-
unni svo langt aftur sem við flest
okkar systkina munum? Hvar er
hún hlýja höndin og þessi glaði og
innilegi hlátur sem jafnan kvað við
og brá ljóma á alla samfundi okkar
ættmennanna? Svo mætti áfram
telja. Skarð er höggvið í fámenna
ijölskyldu — tilveran er ekki lengur
sú hin sama og hún var.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Systurbörn.
Það er komið haust, sumarið
hefur kvatt okkur og laufin falla
af trjánum. í dag kveðjum við mikla
heiðurskonUj Katrinu Dagmar Ein-
arsdóttur. Á kveðjustund leita á
hugann minningaperlur liðinna ára.
Það eru næstum tuttugu ár síðan
við hittumst fyrst, konurnar í B-
vaktarklúbbnum. Olíkar konur sem
þá áttu það sameiginlegt að menn-
irnir þeirra unnu á sömu vakt í
lögreglunni í Reykjavík. Kallý var
ein af þessum konum.
Allar götur síðan höfum við hist
reglulega og átt saman margar
ógleymanlegar stundir. Við höfum
farið í leikhús, spilað, föndrað og
margt fleira en þó fyrst og fremst
átt saman notalegar stundir á
heimilum okkar. Það var alltaf
gaman að koma á fallega heimilið
þeirra hjóna í Rauðagerðinu. Kallý
var á margan hátt sérstök kona.
Hún var víðsýn og mikil heims-
kona. Henni var einkar lagið að
skapa notalega stemmningu, hvort
sem það var „brunch" í hádeginu
eða kvöldstund við kertaljós.
Við kveðjum Kallý með söknuði
og virðingu og þökkum fyrir dýr-
mætar samverustundir. Saman eig-
um við minninguna um jákvæða
og heilsteypta konu, minningu sem
mun lifa.
Við vottum Eyjólfi, Berglind og
fyölskyldu okkar dýpstu samúð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
B-vaktarklúbburinn
og eiginmenn.
Elsku Kallý.
Þakka þér fyrir
allt og allt,
alla hlýjuna,
umhyggjuna,
og vináttuna,
við mig og mína,
alltaf,
þín
Halla.
Sígur á seinni hlut-
ann í undankeppninni
BRIPS
Ródos, Gri kklandi
ÓLYMPÍUMÓTIÐ
Ólympíumótið í brids er haldið dag-
ana 19. október til 2. nóvember.
Upplýsingar um árangur íslenska
liðsins eru í textavarpi Sjónvarpsins,
bls. 246, og á heimasíðu Bridgesam-
bands Islands: http://www.is-
landia.is/* isbridge/ Einnig eru
upplýsingar um mótið á heimasíðu
Álþjóðabridssambandsins:
http://wbf.bridge.gr/Rhodes.
96/rhodes.htm
ÍSLENSKA liðið á Ólympíumót-
inu á Ródos heldur sér meðal efstu
þjóða í sínum riðli nú þegar riðla-
keppnin er liðlega hálfnuð. Enn eiga
íslendingamir eftir að spila við 16
þjóðir áður en í ljós kemur hvort
þeir sleppa gegnum nálaraugað og
inn í úrslitakeppnina sem hefst á
þriðjudag í næstu viku.
Af þessum sextán þjóðum sem
eftir eru hafa sex meira en meðal-
skor, en 10 eru undir meðalskor.
Ef lögð eru saman stig þeirra and-
stæðinga, sem liðin í 10 efstu sæt-
um riðilsins hafa mætt til þessa,
þá er stigatala íslendinga hæst, en
Norðmanna lægst. Það þýðir að
íslendingar hafa til þessa mætt erf-
iðustu andstæðingunum en Norð-
menn þeim léttustu.
íslendingar mættu Tævanbúum
í 15. umferð á miðvikudag. Á mót-
um Alþjóðabridssambandsins er
Tævan raunar skráð undir nafninu
Kínverska Taipei af pólitískum
ástæðum en Kínverjar viðurkenna
ekki Tævanstjóm. Hins vegar er
Taipei höfuðborg Tævan.
I rúman aldarfjórðung hafa spil-
arar frá Tævan verið í fremstu röð
í heiminum, eða frá því þeir kom-
ust tvívegis í úrslitaleik um
Bermúdaskálina með Presision-
sagnkerfið að vopni. Þeirra þekkt-
asti spilari er Patrick Huang.
Aðalsteinn Jörgensen, Matthías
Þorvaldsson, Jón Baldursson og
Sævar Þorbjömsson spiluðu leikinn
við Tævan. Andstæðingarnir gáfu
ekkert eftir og unnu leikinn að lok-
um 19-11 (35-16).
Lokaleikurinn á miðvikudags-
kvöld var gegn Portúgölum, sem
hafa oft verið Islendingum erfiðir á
Evrópumótum. Guðmundur Páll
Arnarson og Þorlákur Jónsson
komu inn fyrir Aðalstein og Matthí-
as og í þetta sinn vann íslenska lið-
ið nauman sigur, 16-14 (42-35).
Fyrsti leikurinn í gærmorgun var
gegn Túnis, og að venju spiluðu
Aðalsteinn, Matthías, Jón og Sævar
morgunleikinn. Það vannst öraggur
sigur, 25-5 (66-24)
í 18. umferð spilaði ísland við
Venezuela sem hefur á að skipa
mjög reyndum spiluram á borð við
Steve Hamaoui og Carlo Caboni.
Þeim hefur þó ekki gengið sem
best á Ródos og lutu einnig í lægra
haldi fyrir íslendingunum, sem
unnu 21-9 (36-9). Guðmundur og
Þorlákur leystu Aðalstein og Matt-
hías af.
Aftur í 3. sæti
Eftir 18 umferðir var íslenska
liðið aftur komið í 3. sæti í B-riðli
eftir smá viðkomu í því 4. umferð-
irnar á undan. ísland hafði 349 stig
en ítalir voru efstir með 258 stig
og Israelsmenn vora í 2. sæti með
256,5 stig. í 4. sæti var Tævan
með 348,5, Rússar í 5. sæti með
334, Norðmenn í 6. með 326, Bret-
ar í 7. sæti með 321 og Ástralía í
8. sæti með 321.
í A-riðli vora Frakkar með ör-
ugga forastu, 373 stig. Næstir
komu Spánveijar með 348, þá Pól-
veijar með 346 og Indónesar voru
í 4. sæti með 343,5 stig.
I kvennaflokki voru Svíþjóð, Suð-
ur-Afríka, Þýskaland og Kína efst
í A-riðli og ísrael, Austurríki,
Bandaríkin og Kanada efst í B-riðli
eftir 11 umferðir af 21.
Ungir ísraelsmenn
Árangur ísraelsmanna í opna
flokknum vekur athygii því liðið er
skipað mjög ungum spilurum, sem
flestir tóku þátt í Evrópumóti yngri
spilara í sumar. Akkerispar liðsins
mynda bræðumir Ilan og Ofir
Herbst sem eru báðir innan við
þrítugt.
ísrael vann Bandaríkin 20-10 í
viðureign þessara þjóða á Ródos og
stærsta sveiflan til ísraelsmanna
kom í þessu spili:
Suður gefur, allir á hættu
Norður
♦ Á7
¥103
„ ♦ K108754
+K103
♦ 10963
¥2
♦ Á
♦ ÁD87542
Suður
♦ KD
¥ KD54
♦ DG96
*G96
Við annað borðið sátu Banda-
ríkjamennirnir Goldfein og Robbins
AV og ísraelsmennirnir Tur og
Greenberg NS:
Vestur Norður Austur Suður
Goldf. Tur Robbins Greenb.
1 tfgull
2 lauf 3 lauf 3 hjörtu pass
4 lauf 4 tfglar//
Vestur spilaði út hjartaeinspilinu
og fékk hjartastungu til baka. Síðan
tók hann laufás og gaf austri laufa-
stungu svo spilið fór 1 niður.
En við hitt borðið höfðu Herbst-
bræðurnir engan áhuga á að sitja
í vörn. Þeir sátu AV en Caravelli
og Cohler NS:
Vestur Norður Austur Suður
1 tígijll
2 lauf 3 lauf 3 hjörtu dobl
3 spaðar 3 grönd 4 spaðar dobl//
Norður fann besta útspilið,
spaðaás og meiri spaða en 4 spaðar
vora jafn óhnekkjandi fyrir því þótt
hápunktarnir væra ekki margir í
AV. 790 til ísraels og 12 impar.
Guðm. Sv. Hermannson
Austur
♦ G8542
¥ ÁG9876
♦ 32
♦ -
ÍIAPPDRÆTTI
ae
Vinningaskrá
23.útdráttur 24.okt.1996
Bifreiðarvinningur
Kr. 2.000.000_______Kr. 4.000.000 (tvðfaldur)
34465
Ferðavinningar
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvðfaldur)
38646
47660
58268
66413
Kr. 50.000
Ferðavinningar
5820 9885 15446 17140 44832 64149
8858 12345 15450 35518 47704 65412
Húsbúnaðarvinningar
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvó faldur
387 9092 18384 29304 42294 51861 63047 73508
568 9126 18416 29311 42435 51946 63085 73550
611 9326 18723 30342 42969 52613 63297 73660
678 9695 19123 30354 43136 53006 64404 73761
1059 10577 19509 30680 43313 53373 64843 73835
1180 10851 19747 32218 43536 53466 64914 73933
2213 10960 20262 32505 43626 53477 65132 74547
2536 11025 21265 32658 44657 53605 65434 74885
2681 11136 21277 33609 44694 53869 65645 74940
3132 11335 21327 33936 44792 53888 66111 74975
3356 11390 21407 34734 45012 55904 66185 75104
3547 11452 21412 35194 45402 57282 67165 75209
3612 11691 21491 35774 45416 57303 67174 75388
3849 11742 21653 35881 45805 57573 67937 75555
3897 11747 22036 36007 46282 57762 68681 76120
3929 11783 22037 36613 46373 58378 68817 76675
3988 11819 22540 37012 47314 58574 69398 76877
4037 11839 23204 37450 47388 58758 69913 76974
4374 12012 23512 37701 47956 58941 70560 77137
4803 12443 24959 37896 48012 59248 70576 77690
5070 12595 25113 38220 48030 60113 70747 77933
5182 12969 25170 38285 49274 60490 70876 78018
5319 13436 25357 38437 49617 60608 71306 78075
5565 14917 25817 38926 50127 60612 71790 78670
6114 14948 26064 39476 50258 60876 72040 78866
6170 15374 26665 39910 50483 61121 72077 79174
6752 16519 27156 39987 50520 61804 72107 79249
7614 17207 27401 41074 50642 62080 72850 79517
8732 18008 27456 41148 51390 62220 73154
8984 18312 27559 41571 51664 62347 73177
Heimasiða á intemeti: Http//www.itn.is/das/