Morgunblaðið - 25.10.1996, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996 39
BISKUPSHJÓNIN dr. Sigurbjörn Einarsson
og Magnea Þorkelsdóttir.
Fræðsluerindi
í Safnaðarheimili
Hafnarfjarðarkirkju
DR. SIGURBJÖRN Einarsson bisk-
up mun næstu þrjá laugardags-
morgna, 26. október og 2. og 9.
nóvember flyta röð þriggja fræðslu-
erinda um guðrækni, tilbeiðslu og
kristna íhugun í Strandbergi, Safn-
aðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, og
hefjast þau kl. 11. Eftir erindin er
þátttakendum boðið upp á léttan
hádegisverð.
í fréttatilkynningur segir m.a.:
„Guðrækni snertir lífsháttu kristinna
manna og iðkun trúar frá degi til
dags og kristin íhugun er henni við-
komandi. Hún var iðkuð í fornkirkj-
unni og ávallt hefur hennar gætt í
tilbeiðsluháttum kristni en minna
seinni aldir en fyrr. En nú í spennu,
hávaða og hraðri ferð samtímans er
aftur að vakna áhugi fyrir henni,
innri hvíld hennar og svölun. Slík
íhugun kemur til móts við þörf
manna fyrir innri næringu og frið
og leitar mót þeim uppsrettulindum
lífs og sálar er Kristur sem frelsari
veitir aðgang að og opnar vitund og
veru fyrir likn hans og elsku.
Það er fágætt sem hér býðst að
hlýða á dr. Sigurbjörn Einarsson
biskup flytja um svo innihaldsríkt
efni. Hann hefur öðrum fremur náð
eyrum þjóðarinnar með lífssannindi
og auðlegð kristinnar trúar og mun
enn gera.“
Miðnæturtón-
leikar SOMA
í kvöld
HLJÓMSVEITIN SOMA heldur
miðnæturtónleika í Rósenbergkjall-
aránum í kvöld, föstudaginn 26.
október, þar sem leikin verður
blanda af eigin lagasmíðum og
þeim dægurflugum sem hæst ber
í hugum sveitarmeðlima, en þær
eru flestar með fersku pönkívafi.
SOMA hefur verið að undirbúa
útgáfumál sín að undanförnu og
verður gestum í kvöld gefinn for-
smekkur að framtíð hljómsveitar-
innar að þessu leyti, en reiknað er
með að hljómsveitin leiki af krafti
þangað til yfír lýkur á skemmti-
staðnum.
Hljómsveitin lék seinast á tón-
leikum á veitingastaðnum 22 síð-
asta þriðjudag og hyggst staðfast-
lega koma fram á stórtónleikum í
Tjarnarbíói á morgun, laugardag,
og er öflugt tónleikahald liður í að
slípa af alla hugsanlega vankanta
áður en endanlegri mynd lagasmíða
verður komið á stafrænt form.
SOMA skipa þeir Guðmundur
Annas, söngvari, Halldór Sölvi, gít-
arleikari, Jónas, trommuleikari,
Kristinn, bassaleikari, Snorri,
gítarleikari og Þorri hljómborðs-
leikari og bakrödd.
Sjálfstæðar
konur halda
fund um jafn-
réttismál
SJÁLFSTÆÐAR konur standa fyr-
ir opnum fundi um jafnréttismál
föstudagskvöldið 25. október kl. 21
á efri hæð Sólon íslandus. Fundur-
inn ber yfirskriftina: Er jafnrétti
pólitískt mál?
Á fundinum munu Mörður Árna-
son íslenskufræðingur, Hannes
Hólmsteinn Gissurarson dósent og
Áslaug Magnúsdóttir lögfræðingur
flytja framsögur en fundarstjóri og
stjórnandi umræðna er Ásdís Halla
Bragadóttir stjómmálafræðingur.
Fundurinn er öllum opinn og að-
gangur er ókeypis.
Dansleikur
fyrir fatlaða
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Ársel
v/Rofabæ stendur fyrir dansleik
fyrir fatlaða laugardaginn 26. októ-
ber kl. 20-23.
Allir 13 ára og eldri eru velkomn-
ir og er aðgangseyrir 300 kr. Veit-
ingasala. Húsið er hannað þannig
að hjólastólar eiga greiða leið um
það.
FRÉTTIR
Rúmantsévmál-
ið í bíósal MÍR
RÚMLEGA 40 ára gömul kvik-
mynd (gerð í Moskvu 1955) verður
sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10,
sunnudaginn 27. október kl. 16.
Mynd þessi nefnist Rúmantsévmál-
ið (Delo Rúmantséva), leikstjóri er
Iosif Kheifits sem einnig samdi
tökuritið ásamt rithöfundinum
Júríj German.
Alexei Batalov (lék annað aðai-
hlutverkið í Trönumar fljúga) leik-
ur vörubílstjóra sem flækist í saka-
mál þegar hann flytur þýfi á bíl
sínum án þess að vita hvernig
farmurinn er til komin, lendir í
slysi og er fluttur á sjúkrahús.
Hefst þá lögreglurannsókn. Skýr-
ingar með myndinni eru á ensku.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
K A kynnir
sunnlenska
framleiðslu
VERSLANIR KÁ, sem eru 11 tals-
ins á Suðurlandi og í Vestmanna-
eyjum, taka dagana 23.-30. októ-
ber þátt í átakinu íslenskt,já takk.
Verslanir KÁ leggja þessa daga
áherslu á sunnlenska framleiðslu.
Námstefna
Sljórnunar-
félagsins
NÆSTA námstefna Stjórnunarfé-
lagsins verður haldin miðvikudag-
inn 30. október kl. 9-17 á Scandic
Hótel Loftleiðum. Námstefnan ber
yfirskriftina Árangursríkur stjórn-
andi sér sjálfan sig á sama hátt
og samtarfsmennirnir og er leið-
beinandi dr. Gerald Kushel frá
Bandaríkjunum.
Kushel er höfundur bókanna
„The Fully Effective Executive" og
„Reaching the Peak Performance
Zone“, sem er nýjasta bók hans
og hefur Kushel hlotið mikið lof
fyrir nýstárlega hugmyndafræði og
framsetningu í þeirri bók, segir í
fréttatilkynningur. Hann er sál-
fræðimenntaður frá Columbia Uni-
versity í Bandaríkjunum og starf-
aði um tíma sem prófessor við Long
Island University í New York en
rekur nú ráðgjafarfyrirtæki.
Það hvernig Kushel nálgast við-
fangsefnið byggist á að árangurs-
ríkur stjórnandi þarf að sjá sjálfan
sig á sama hátt og starfsmenn
hans sjá hann. Þannig skapar hann
mesta möguleika á árangursríku
samstarfi. Námstefnan miðar að
því að sérhver stjórnandi geti unn-
ið á sinn eigin hátt að því að styrkja
sig eftir að honum eru ljósir eigin
veikleikar og styrkleikar.
Skráning á námstefnurnar fer
fram hjá Stjórnunarfélagi íslands.
RAGNHEIÐUR Thorarensen,
umboðsmaður Georg Jensen
Damask á Islandi.
Sýning á dam-
askdúkum
RAGNHEIÐUR Thorarensen, um-
boðsmaður Georg Jensen Damask,
heldur sýningu á damaskdúkum um
helgina og næstu helgi, laugardag
og sunnudag, frá kl. 13-18 i Safa-
mýri 91.
í fréttatilkynningu segir að Ge-
org Jensen Damask sé rótgróið
vefnaðarfyrirtæki sem hafi ofið
damaskvefnað í um 130 ár og að
fyrirtækið leggi áherslu á listræna
framleiðslu með mikið notagildi.
Vörurnar séu hannaðar af viður-
kenndum textílhönnuðum. Þar segir
einnig að árlega komi fram ný
mynstur og litir sem m.a. hafi fært
þeim ótal verðlaun og viðurkenning-
ar. Jóladúkurinn hafi alls staðar
vakið verðskuldaða athygli svo og
það nýjasta, ævintýradúkurinn með
myndum úr ævintýrum H.C. And-
ersens.
Fjölskyldudag-
ur í Gjábakka
ELDRI borgarar í Kópavogi geta
boðið niðjum sínum til fagnaðar i
Gjábakka, sem er félags- og þjón-
ustumiðstöð þeirra í Fannborg 8,
laugardaginn 26. október sem er
fyrsti vetrardagur.
Fólk á öllum aldri kemur fram
og meðal efnis er einsöngur, flautu-
leikur, uppslestur, dans og einnig
ætlar barnakór og kór aldraðra í
Kópavogi að syngja lög sem allir
kunna. Dagskráin, sem öllum er
velkomið að njóta, hefst kl. 14.
Gamalt verður
semnýtt
ÝMSIR búa svo vel að eiga gamla
ruggustóla sem mætti laga til og
jafnvel gera sem nýja. Þessi ruggu-
stóll hefur fengið meðhöndlun,
kannski þykir einhveijum hann full
skrautlegur en slíkt getur fólk haft
i hendi sér.
Hjúkrunarþing
í Gullhömrum
ANNAÐ hjúkrunarþing Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga verður
haldið föstudaginn 25. október nk.
í Gullhömrum, Húsi iðnaðarins að
Hallveigarstig 1, kl. 9-16.
Samkvæmt lögum Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga skal
hjúkrunarþing haldið annað hvert
ár og vera vettvangur fyrir stefnu-
mótun félagsins í faglegum málefn-
um hjúkrunar. Að þessu sinni verð-
ur þingið um stefnumótun í hjúkr-
unar- og heilbrigðismálum en Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur
unnið markvisst að því málefni frá
stofnun félagsins 15. janúar 1994.
Flutt verða 7 erindi fyrir hádegi
en eftir hádegi verður fjallað um
efnið frá mismunandi sjónarhornum
í umræðuhópum. í umræðuhópun-
um verður t.d. tekið fyrir hvernig
standa eigi að forgangsröðun í is-
lenskum heilbrigðismálum ef fjár-
magn heldur áfram að vera tak-
markandi þáttur og um ábyrgð
hjúkrunarfræðinga í stefnumótun í
heilbrigðisþjónustu.
Stefnt er að því að leggja drög
að stefnumótun og hugmyndafræði
Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga í hjúkrunar- og heilbrigðismál-
um fram á næsta Fulltrúaþingi fé-
lagsins (aðalfundi) til samþykktar,
en það verður haldið í maí á næsta ■
ári.
Námskeið um
slys á börnum
o g forvarnir
SLYS á börnum - forvarnir og
skyndihjálp er námskeið sem verður
haldið dagana 28. og 29. október
nk. hjá Reykjavíkurdeild RKÍ.
Námskeiðið er ætlað foreldrum
og öðrum þeim er annast börn.
Markmið námskeiðsins er að vekja
athygli á algengustu slysum á böm-
um, hvernig má reyna að koma i
veg fyrir þau, hvernig á að bregð-
ast við slysum og veita fyrstu hjálp.
Ennfremur er rætt um þroska barna
og getu þeirra og umhverfið innan
og utan heimilisins.
Háskólahátíð
á laugardag
HÁSKÓLAHÁTÍÐ þ.e. brautskrán-
ing kandidata verður haldin í Há-
skólabíói laugardaginn 26. október
nk. kl. 14. Symon Kuran og Reynir
Jónasson leika létta tónlist í and-
dyri frá kl. 13.15.
Hátíðin hefst á leik strengjasveit-
ar Tónlistarskólans í Reykjavík.
Háskólarektor, Sveinbjörn Bjöms-
son, ávarpar kandídata og ræðir
málefni Háskólans og síðan afhenda
deildarforsetar prófskírteini. Að
lokum syngur Háskólakórinn nokk-
ur lög undir stjórn Hákonar Leifs-
sonar.
ÞOitPin
vid
Bjóðum 2ja daga tilboð
á gallabuxum 25. og 26. okt.
3 gallabuxur á kr. l.OOO,-
St. 31-32-33-34
ullu virka daga
kl. 12-18.
Laugardaga
frá kl. 11-15.
l’OKPIl)
Laugaveg 59 (Kjörgarður)