Morgunblaðið - 26.10.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 26.10.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1996 JHtntgtittMttStííþ ■ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER BLAD HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Þorkell Stjarnan í 2. sætið STJARNAN sigraði ÍBV með fjögurra marka mun í Garðabæ í gærkvöldi og er í öðru sæti 1. delldar karla f handknattleik eftlr sex umferðir. Hér skorar Sigurður Viðarsson fyrir helmamenn en Gunnar Berg Vlktorsson til vinstri og Guðfinnur Kristmannsson koma engum vörnum við. Lelkurinn/C4. Rúnar áfram hjá Örgryte í Svíþjóð RÚNAK Kristinsson, landsliðsmaður í knatt- spyrnu, gerir fastlega ráð fyrir að gera nýjan samning við Örgryte sem gildir til eins árs. „Gagnkvæmur vilji er að halda samstarfinu áfram,“ sagði Rúnar við Morgunblaðið í gær. „Ég fékk tilboð þar að lútandi en félagið er að skoða nokkur atriði nánar. Þ6 mér líði vel hérna hef ég áhuga á að breyta til og komi eitthvað spenn- andi upp er gert ráð fyrir því í þessum samn- ingi að ég geti farið.“ Sfðasta umferð sænsku deildarinnar verður í dag og mætir Örgryte Trelleborg á heimavelli en bæði liðin þurfa á stigunum að halda. Með sigri tryggir Örgryte veruna f deildinni en tapi Umeá f Malmö skipta úrslitin f Örgryte engu máli. Herbert skoraði sigurkörfu Donar LANDSLIÐSMAÐURINN Herbert Arnarson byrjaði vel í hollensku deildinni f körfuknattleik og gerði m.a. sigurkörfuna í fyrsta leik sfnum með Donar sem vann Ide Trading 74:73 í fyrra- kvöld. „Ég byrjaði ekki vel en úr rættist í seinni hálfleik og þá skoraði ég 10 stig,“ sagði Herbert við Morgunblaðið en alls var hann með 11 stig í leiknum, átti þrjár stoðsendingar, tók tvö frá- köst og „stal“ boltanum einu sinni. Hann var ekki í byijunarliðinu en kom inná þegar stundar- fjórðungur var liðinn af viðureigninni og gerði út um leikinn átta sekúndum fyrir leikslok. Donar er í Groningen og leika þrfr bandarfsk- ir leikmenn með liðinu. Herbert fór út sl. þriðju- dag og náði einni æfingu fyrir leikinn en sagðist strax hafa komist inn f kerfin. „Ég lærði þau fþ'ótt en sjálfsagt tekur einhvern tíma að ná málinu." Ungur markvörður valinn í 16. sætið ÞORBJÖRN Jensson, landsliðsþjálfari í hand- knattleik, ætlar að tilkynna 16. leikmanninn í landsliðshópinn vegna landsleikjanna gegn Eist- lendingum eftir helgina. í gær valdi hann 15 manna hóp til leikjanna tveggja um næstu helgi. „Ég tilkynni um sextánda manninn á mánudag- inn. Það verður ungur og efnilegur markvörð- ur,“ sagði Þorbjörn og var ófáanlegur til að nefna nafn. Hann sagðist vijja huga að framtf ð- inni, og leyfa yngri manni að fá nasaþefinn. ■ Landsliöshópurinn/C4 ÍÞRÓTTAÞING ÍSÍ Fulltrúar héraðssambanda og sérsambanda leggja fram nýja tillögu Samkomulag um aðstefna að sameiningu ISÍ og Óí innan árs ÍÞRÓTTAÞING íþróttasam- bands íslands verður sett klukkan 10 fyrir hádegi í dag í íþróttamiðstöðinni á Jaðars- bökkum á Akranesi. Fyrir þinginu liggur m.a. tillaga um sameiningu ÍSÍ og Ólympíu- nefndar íslands í ein heildar- samtök en breiðfylking full- trúa héraðs- og sérsamband- anna hefur náð samkomulagi um að leggja fram nýja tillögu sem gengur út frá því að sam- eining verði í síðasta lagi 1. nóvember á næsta ári. Eins og margoft hefur komið fram hefur verið unnið að samein- ingu undanfarin misseri og hafa drög að „nýjum“ samtökum legið fyrir síðan í vor. Mikil vinna hefur átt sér stað í félögum, sérsambönd- um, íþróttabandalögum_ og héraðs- samböndum til að fara yfir drögin og móta stefnu sem allir geta sætt sig við með sameiningu í huga. Að undanförnu hefur færst aukinn þungi í þessar viðræður með for- mannafundum sérsambanda, íþróttabandalaga og héraðassam- banda þar sem fyrmefnd drög hafa verið tekin fyrir og ræddar leiðir til lausnar vandanum. Afraksturinn er þessi nýja tillaga. Fresta verður íþróttaþingi og aðalfundi Óí Samkvæmt tillögunni er laga- nefnd þingsins falið að hafa umsjón , með gerð tillagna að þeim breyting- um sem gera þarf á lögum ISÍ til að sameiningin geti orðið að veru- leika og á hún að vinna að fram- gangi málsins í samvinnu við fram- kvæmdastjóm ÍSÍ samkvæmt verká- ætlun sem fylgir tillögunni. Lagabreytingar í áætlun um samrunann kemur fram að nauðsynlegt sé að sam- þykkja lagabreytingu um heimild til frestunar á íþróttaþingum og liggur fyrir tillaga þess efnis en lagt er til að þingi verði frestað og framhalds- þing verði í siðasta lagi 1. október 1997. Gert er ráð fyrir að aðalfund- ur Óí verði um miðjan janúar á næsta ári og á þeim fundi verði lög- um Óí breytt í sama tilgangi og lög- um ÍSÍ. Ennfremur er gengið út frá því að aðalfundur Óí samþykki að stefna að sameiningunni á grund- velli undirbúningsvinnu laganefnd- arinnar og að fundinum verði frestað á sama hátt og íþróttaþingi ÍSÍ. Sambandsstjóm ÍSÍ á að fjalla um og samþykkja lagabreytingar sem laganefndin leggur til fyrir 21. febrúar og Óí á að staðfesta sam- þykki sitt fyrir 2. mars. Kynningu endanlegra tillagna meðal aðila ISÍ og Óí á að vera lokið 1. apríl og umsögn Alþjóða ólympíunefndarinn- ar á að liggja fyrir ekki síðar en 1. maí. íþróttaþingi ÍSÍ og aðalfundi Óí verði framhaldið sama dag og ekki síðar en 1. október og íþrótta- þing ÍSÍ, sem verður fyrsti fundur sameinaðra samtaka, verði ekki síð- ar en 1. nóvember. Mjög stór áfangi Ellert B. Schram, forseti ISÍ, sagði við Morgunblaðið í gær að með þessari nýju tillögu væri stórt skref stigið. „Deilt hefur verið um hvort eigi að sameina ÍSÍ og Óí eða ekki, en nú liggur fyrir tillaga frá fulltrúum sérsambanda og héraðs- sambanda um sameiningu. Spurning- in er ekki hvort heldur hvenær og því er þetta mjög stór áfangi. Mestu máli skiptir að þingið taki grundvall- arákvörðun um sameiningu en þar sem aðalfundur Óí verður ekki fyrr en eftir áramót er eðlilegt að gefa ákveðinn aðlögunartíma." AMERÍSKIFÓTBOLTINN: ÓLÝSANLEG STEMMNING / C2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.