Morgunblaðið - 27.10.1996, Blaðsíða 21
vjs/vjoisvDNBAionv on t «h
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1996 B 21
ATVINNIi/tí /< '4 YSINGAR
Spennandi
- tækifæri hjá EJS
Vegna aukinna umsvifa opnast enn ný og spennandi
tækifæri hjá EJS. Um er að ræða störf á sviði
nýjustu upplýsingatækni hjá framsæknu fyrirtæki.
(Microsoft Solution Framework)
er deild innan hugbúnaðarsviðs EJS. Hún veitir þjónustu
í formi ráðgjafar, hönnunar og hugbúnaðarsmíði,
sem felst í því að nýta grunnhugbúnaðinn frá Microsoft
(Office og BackOffice) til uppbyggingar upplýsingakerfa
viðskiptavina.
http://www.ejs.is/msf.
• Hugbúnaðarsérfræðingar - MSF lausnir:
Leitað er að hugbúnaðarmönnum til þróunar á
lausnum fyrir Microsoft Windows NT og BackOffice,
áhugasömum einstaklingum sem eiga auðvelt með
hópvinnu og hafa brennandi áhuga á nýjustu
hugbúnaðartækni, s.s. ActiveX, Java og OLE.
Unnið er í Visual Basic, Visual C++, Java og
SQL Server.
• Þjónustusérfræðingur - MSF lausnir:
Leitað er að áhugasömum einstaklingi sem
á auðvelt með hópvinnu, hefur mikla þjónustulund
og brennandi áhuga á nýjustu tækni í Microsoft
Windows NT og BackOffice.
Upplýsingar um störfin veitirÁsgrímur Skarphéðinsson,
deildarstjóri MSF lausna. Umsóknir berist EJS fyrir
1. nóvember merktar: Starfsumsókn - MSF lausnir.
JlElfl
annast þjónustu, ráðgjöf og
uppsetningu á tölvunetum, vélbúnaði og hugbúnaði,
auk þjónustu við Microsoft notendahugbúnað fyrir mörg
af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Um er
að ræða Windows NT netkerfi ásamt, Microsoft
BackOffice lausnum, Internettengingum, samskiptum
við önnurtölvuumhverfi o.fl.
• Sérfræðingar í netþjónustu:
Leitað er að einstaklingum sem tilbúnir eru til að
takastá við það nýjasta ítölvuheiminum. Menntun
t.d. í tölvunarfræði, kerfisfræði, verkfræði eða
tæknifræði er æskileg. Þekking á Microsoft
hugbúnaði og uppbyggingu netkerfa einnig æskileg.
Upplýsingar um störfin veitir Helgi Þór Guðmundsson,
framkvæmdastjóri þjónustusviðs.
Umsóknir berist EJS fyrir 1. nóvember, merktar
Starfsumsókn - Netþjónusta.
EJS er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviöi
upplýsingatækni. Þjónusta EJS nærtil flestra hliða
nútíma upplýsinga- og samskiptatækni, alltfrá sölu og
þjónustu á heimsþekktum vél- og hugbúnaði, til nýsmíða
og þróunar á hugbúnaði og lausnum fyrir atvinnulífið,
hér á landi sem í útlöndum.
EJS leggur metnað sinn í að bjóða starfsöryggi, jafnrétti,
sanngjörn laun og jákvætt, gefandi starfsumhverfi.
Áhersla er lögð á fræðslu og þjálfun starfsfólks,
sjálfstæði og hópvinnu.
Sérfræðingar EJS
netþjónustu og MSF lausna
sækja Microsoft námskeið
og gangast undir próf sem
veita réttindin "Microsoft
Certified Professional" (MCP).
EINAR J. SKULASON HF
Crensásvegi 10, sími 563 3000
8
Sími 563 3000 • Fax 568 8487
http://www.ejs.is
UNW KERFISSTJÖRN
Traust þjónustustofnun óskar að ráða starfsmann
með UNIX stýrikerfi sem sérsvið.
Starfið
• Uppsetning og þróun UNIX kerfa.
• Kerfisaðlögun.
• Skipulagning og vandamálagreining.
• Rekstur og eftirlit.
Hæfniskröfur
• Reynsla af UNIX stýrikerfi.
• Hæfileiki til að leysa flókin tæknileg
viðfangsefni.
í boði er áhugavert starf þar sem sjálfstæði og
frumkvæði fá að njóta sín, ásamt tækifæri til
fagmenntunar í starfi.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon hjá
Ráðgarði frá kl. 9-12 í síma 533-1800.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: “Unix-Kerfisstjórn ” fyrir
2. nóvember nk.
RÁÐGAJRÐUR hf
SIJÓRíÆINAR(XjREKSIRARRÁEXJJÖF
Furugisríl S 108 Reykjavik Slml S33 1800
Fax: 833 1808 Natfang: r9mldlunOtraknat.lt
Haimatfdax http://www.traknal.la/radgardur
Við leitum að fólki sem
hefur gaman að því að tala
í síma og vill fá borgað
fyrir það góð laun.
Ertu tdl?
Finnst þér gaman að tala við fólk í síma?
Ert þú dnfandi og opinn persónuleiki?
Ef svarið er já
Þá skalt þú endilega ganga til liðs við
okkar nýja fyrirtæki sem býður upp á
nýja ferðamöguleika sem gerir fólki
kleift að ferðast um allan heim.
Við bjóðum upp á mjög góða frama- og
ferðamöguleika fyrir rétt fólk.
Umsækjendur verða að vera tilbúnir að
vinna eftir a.m.k. einni eftirfarandi vakt.
10.00-13.00
14.00-17.00
18.30-21.30
Upplagt tækifæri fyrir stúdenta og heimavinnandi
fólk sem vill drýgja tekjumar.
Reynsla er ekki áskilin því viðkomandi
aðilar munu fá fulla þjálfun.
Nánari upplýsingar veita Gylfi Dalmann og
Arna María hjá Hagvangi hf. í síma 581 3666.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
Skeifunni 19, 108 Reykjavík
merktar “Aukavinna” fyrir 7. nóvember n.k.
GGI
luarketmg
lceland
Associated offices in:
Australia Singapore
Hong Kong Taiwan
Spain Thailand
Móttökuritari læknis
50% starf frá kl. 12-16. Fjölbreytt starf sem
krefst sjálfstæðis, góðrar tölvukunnáttu, að-
alaðandi framkomu og þjónustulundar.
Einnig léttar ræstingar.
Umsóknir berist til afgreiðslu Mbl., merktar:
„Móttökuritari - 4062“.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ ÁISAFIRÐI
FSÍ óskar að ráða
Iðjuþjálfa
í 50% stöðu í iðjuþjálfun. Iðjuþjálfi er starfs-
maður endurhæfingardeildar FSÍ og mun
aðallega vinna á endurhæfingardeild og á
legudeildum.
Leiðbeinanda
í 50% stöðu umsjónarmanns föndurs og
annarrar dægradvalar sjúklinga á spítalan-
um. Föndrið er liður í iðju- og endurhæfingar-
meðferð sjúklinga. Leiðbeinandi er starfs-
maður endurhæfingardeildar FSÍ.
Leitað er að starfsmanni með reynslu í al-
hliða föndurvinnu (hannyrðum, léttum vefn-
aði, málun, mótun úr leir, o.þ.h.).
Leiðbeinandinn þarf að eiga auðvelt með að
vinna með sjúkum og öldruðum og hafa til
að bera frjótt ímyndunaráfl varðandi margvís-
lega dægradvöl sjúklinga.
Umsóknarfrestur er til 8. nóvember 1996.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, eða yfir-
sjúkraþjálfi í síma 458 4500.
FSÍ er nýtt sjúkrahús, mjög vel búðið tækjum, með fyrsta flokks vinnu-
aðstöðu. Spítalinn þjónar norðanverðum Vestfjörðum. Við veitum
skjólstæðingum okkar alla almenna þjónustu á sviði skurð- og lyf-
lækninga, fæðingarhjálpar, öldrunarlækninga, slysa- og áfallahjálpar
og endurhæfingar. Starfsemin hefur verið í örum vexti á undanförn-
um árum. Er það fyrst og fremst að þakka metnaðarfullu starfs-
fólki, nýjum og góðum tækjabúnaði, fyrirmyndar vinnuaðstöðu og
ánægðum viöskiptavinum. Starfsmenn FSÍ eru rúmlega 100 talsins.
TÖLVUNARFRÆÐINGAR
GOn TÆKIFÆRI
Traust fyrirtæki óskar eftir að ráða tölvunarfræðing
í áhugavert og krefjandi starf.
Upplýsingakerfi fyrirtækisins samanstendur af
þrískiptu Novell neti sem tengt er með
víðnetstengingum ásamt tveimur UNIX
gagnagrunnsþjónum.
Starfssvið
Forritun og hönnunarvinna (:
• ORACLE Designer/2000 hönnunartólum.
• ORACLE Developer/2000 forritunartólum.
• Borland Delphi þýðandi sem aðal biðlara
þróunarumhverfi.
Hæfniskröfur
• Tölvunarfræði eða sambærileg menntun.
• Gagnagrunnshönnun og forritun í ORACLE/
Informix ásamt reynslu í hönnun og forritun á
biðlara/miðlara kerfum æskileg.
í boði er gott spennandi starf.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon hjá
Ráðgarði í síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar viðkomandi starfi fyrir
2. nóvember nk.
RÁÐGARÐURhf
STJCM4UNAROGREKSIRARRÁÐGJÖF
FnrugtrAl S 10« Rtyk|«vik Slml 833 1800
Fax: 633 1808 Nitfangi rgmldlun9trAknat.il
HalmaiIAn http://www.trmknat.la/rmd9ardur