Morgunblaðið - 27.10.1996, Blaðsíða 4
4 D SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Þorkell
FORD Fiesta er nú kominn til landsins í nýrri og breyttri mynd og er sýndur um helgina lyá umboðinu, Brimborgu, í Reykjavík.
NÝR OG SNAGGAR
LEGUR FORD FliSTA
FORD Fiesta er nú aftur fáan-
legur á íslandi eftir alllangt hlé
og nú í nýrri og gjörbreyttri
mynd. Fiesta er áhugaverður
smábíll, framdrifínn og fimm
manna, með rúmlega 1.200
rúmsentimetra og 75 hestafla
vél, skemmtilegur í útliti, ekki
síst að innan, fáanlegur þriggja
eða fímm hurða og með hand-
skiptingu eða beinskiptingu.
Verðið er ekki síður áhugavert
því ódýrasta gerðin kostar rétt
innan við eina milljón króna. Það
er því nokkuð ljóst að Fiesta mun
koma sterkur til leiks í sam-
keppnina hér á þessum markaði
smábíla.
Fiesta er_ laglega hannaður
bíll í útliti. Útlínur eru verulega
ávalar orðnar, framendinn kúpt-
ur, afturendinn líka rúnnaður og
allir gluggar eru nokkuð stórir.
Stuðarar eru áberandi og miklir
um sig en hjólin fremur lítil.
Hliðamar eru bogadregnar og
fínlegur listi á þeim miðjum. Fi-
esta virðist ekki stór bíll enda í
flokki minni bíla en lengdin er
3,83 m og hjólhafið 2,44 m.
Smekklegt mœlaborð
Að innan ræður sama kúpta
eða ávala línan ríkjum hvert sem
litið er. Sætin hafa þetta yfir-
bragð, klæðning og stuðningur
við handleggi í hurðum, sætin
fyrir hurðahúna að innan og
handföngin sjálf og síðan mæla-
borðið og er það mjög smekklega
úr garði gert. Aðalmælar eru
undir bogadreginni línu sem nær
yfír rúmlega mitt borðið og um-
lykur þessi lína einnig miðstöðv-
ar- og útvarpsstillingamar.
Hanskahólf er fremur neðarlega
framan við farþegasætið en ofan
við það er gert ráð fyrir líknar-
belg sem er aukabúnaður. Opin
fyrir miðstöðvarútblástur eru með
þessu sama sporöskulaga eða
bogadregna sniði og má endur-
taka að þessi samræming og út-
lit er vel heppnað og skemmtilegt.
MÆLABORÐIÐ er mjög skemmtilega
úr garði gert.
FRAMSÆTIN styðja vel við bak og hliðar og
þar er rými ágætt.
FARANGURSRÝMI tekur 250 1. er er stækkanlegt í 625 1.
Framsætin eru góð, styðja
ágætlega við hliðar og bak en
hafa aðeins hefðbundnar stilling-
ar og þá er heldur ekki veltistýri
en annað hvort mætti vera til
að sem flestir geti lagað sig vel
að stjórn bílsins. Rými í aftur-
sætum er tæpast nógu mikið og
vantar ekki síst uppá höfuðrými
og má segja þetta eina galla bíls-
ins. Umgangur og rými er þar
heldur af skornum skammti.
Skottrými er hins vegar þokka-
lega gott og yfírleitt er ágætt
að meðhöndla bílinn og umgang-
ast hann.
Hljóðlát vél
Vélin er 1.242 rúmsentimetr-
ar, fjögurra strokka, 16 ventla
og 75 hestafla. Þetta verður eina
vélin í boði og er hún merkilega
spræk miðað við stærð. Hún tog-
ar 110 Nm miðað við 4.000 snún-
inga. Eyðslan er 8 lítrar í bæja-
rakstri en 5 lítrar á jöfnum 90
km hraða. Hámarkshraðinn er
172 km/klst. og viðbragðið úr
kyrrstöðu í 100 km hraða tekur
12,2 sekúndur. Hún er einnig
ágætlega hljóðlát.
Fiesta vinnur merkilega vel
og er snaggaraleg í viðbragði
með þessari léttbyggðu vél sem
er ný af nálinni. Fimm gíra hand-
skiptingin er liðug og mjúkleg
og er auðvelt að skipta hratt og
vel milli gíra þegar menn vilja
fá hámarksviðbragð. Vinnslan
er ágæt og vélin bregst ágætlega
vel við kröfum um hröðun vegna
framúraksturs en það verður
hins vegar ekki gert nema í
fjórða gír, sá fímmti er aðeins
fyrir jafnan og þægilegan akstur
á þjóðvegi. Tekið var aðeins í
bílinn með sjálfskiptingu og
verður að segja að þar er við-
bragð orðið heldur slakara og
er óhætt að ráða mönnum frá
þeirri útgáfu nema þeir kjósi ein-
dregið þægindi sjálfskiptingar
og séu tilbúnir að sjá af snagg-
aralegum töktum handskipta
bílsins.
Finnst lltló
fyrlr hraöa
í borgarumferðinni er Fiesta
léttur og skemmtilegur bíll, lipur
í öllum meðförum og allur hinn
snaggaralegasti og fljóttekinn í
viðkynningu. Á þjóðvegi kemur
hann á óvart þar sem hann virk-
ar mun stærri en hann í raun-
inni er, þ.e. hreyfíngar og fjöðrun
eru líkari því sem búast má við
í bíl af millistærð. Bíllinn er sér-
lega rásfastur, er næstum límdur
Fjöðrun
Útlh
Vinnsla
Rými
í afftur-
sætum
Ford Fiesta
Flair í
hnotskurn
Vél: 1.242 rúmsentimetrar,
4 strokkar, 16 ventlar, 76
hestöfl.
Framdrifinn - fimm manna.
Aflstýri.
Flmm gíra handskipting.
Rafstilling hliðarspegia.
Lengd: 3,82 m. Breidd: 1,63
m. Hæö: 1,32 m.
HJólahaf: 2,44 m.
Þvermál beygjuhrings: 9,9
m.
Þyngd: 992 kg.
Hámarkshraði: 172 km/klst.
VlSbragð í 100 km hraða
úr kyrrstöðu: 12,2 sek.
Eyðsla: 8 lítrar í þéttbýli, 6
Iftrar é þjóðvegi.
Staðgrelðsluverð kr.:
1.058.000.
Umboð: Brimborg hf.,
Reykjavík.
við veginn þrátt fyrir holur og
ber ekki á að hann hafí í frammi
óvæntar hreyfmgar. í lausamöl
þarf hins vegar eins og alltaf að
sýna ákveðna varkámi.
Það sem er kannski galli við
bílinn er að Fiesta hagar sér eins
og stærri bíll, þ.e. að lítið fínnst
fyrir hraða í bílnum og er öku-
maður óðar en varir kominn á
hraðamörk á þjóðvegi - og jafn-
vel kominn á þann hraða sem
nokkrir þingmenn leggja til sem
hámarkshraða ef ekki er gætt
að sér. Fiesta er kjörinn bíll til
ferðalaga, að minnsta kosti ef
ekki ferðast fleiri en kannski
þrír fullorðnir með nauðsynlegan
farangur, fjórir gæti gengið en
þá væri gott að hafa áfanga
ekki of langa. Annað sem
kannski þreytir helst í akstri er
að stuðningur við bensínfót er
ekki þægilegur, miðjubrettið
kemur óþægilega við kálfann og
getur tekið tíma að venjast góðri
stellingu í þessum efnum.
Eln grunnútgáfa
Ford Fiesta verður boðinn í
einni grunnútgáfu, Flair. Til er
ódýrari útgáfa, Focus, en þar er
innrétting heldur einfaldari í
sniðum og verður hún ekki fáan-
leg hérlendis. Flair hefur flest
það til að bera sem hægt er að
kjósa sér nema helst samlæsingu
og þyrftu kaupendur trúlega að
velta alvarlega fyrir sér hvort
ekki væri rétt að bæta henni
við. Verðið á Fiesta er ódýrast
998.000 og er þá átt við þriggja
hurða bílinn með handskiptingu.
Sé hann tekinn fímm hurða er
verðið komið í 1.058.000 og ef
bætt er við samlæsingu sem eig-
inlega er nauðsynleg er verðið
um 1.080.000 krónur og þar með
er kominn eigulegur gripur.
Þeir sem vilja sjálfskiptingu
þurfa að greiða 130 þúsund
krónur til viðbótar og má endur-
taka að það er vafasamur kost-
ur, þ.e. þá eru menn að velja á
milli þæginda sjálfskiptingarinn-
ar og þess að taka dálítið af
snerpunni sem handskipti bíllinn
hefur. ■
Jóhannes Tómasson