Morgunblaðið - 27.10.1996, Síða 11

Morgunblaðið - 27.10.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1996 E 11 INNAN VEGGJA HEIMILISINS Nútímaeldhúsið SILFURBÚÐIN Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066 - Parfœrðu gjöfina - Vantarbara vél til að leggjaáborð BRAUÐVÉLIN hefur staðið í ströngu síðustu tvo tímana og nú lætur hún vita með suði að bakstri sé lokið. Steikin er tilbúin á borð- inu og bakaraofninn í óðaönn að þrífa sig sjálfur eftir eldamennsk- una. Eldavélin sá um að sjóða kartöflurnar á mettíma og spara orku í leiðini. Hún gætti þess sjálf að hitastigið væri mátulegt á kart- öflunum og hringdi bjöllu til að láta vita að þær væru soðnar. Heimilisfólkið þurfti að vísu að skola af agúrkunum, kálinu og tómötunum og setja í matvinnslu- vélina en þessi hljóðláta og vand- virka vél sá svo um að saxa græn- metið niður í nákvæmlega jafnar ræmur í salatið. Ekki er enn komin á markað vél sem leggur á borð en eftir matinn tók uppþvottavélin við óhreina leirtauinu og skilaði því skínandi hreinu. Matreiðslan var einföld og samkvæmt áætlun úti- vinnandi fólks tók hún skamman tíma. Fægið plöturnar með þurrum, fínum sandi Tímarnir breytast og eldhúsin með ef svo má að orði komast. Nútímafólki fallast eflaust hendur þegar það flettir í gegnum kvenna- fræðarann sem var gefinn út árið 1911. Höfundur bókarinnar Elín Jónsson sem er að ráðleggja hús- mæðrum með þrif og eldamennsku segir: „Torfgólf skal sópa og suðu- vélar skal hreinsa með jöfnu milli- bili. Þegar þær eru hreinsaðar skal gjöra það vel pg skafa sótið af hveijum hring. Á hveijum degi þegar búið er að elda skal þvo vel af suðuvélinni og bursta hana úr ofnsvertu einu sinni í viku. Pípurn- ar skulu burstaðar úr ofnsvertu en séu þær málaðar er aðeins þurrkað af þeim. Áður en lagt er að á morgnana skal taka öskuna vel... Plötur og skúffur úr bakara- Morgunblaðið/Halldór LEIÐA til að létta fólki heim- ilisstörfin er sífellt Ieitað. aðeins pottar. Eldunartíminn er skemmri og hitastillingin nákvæm. Eini gallinn er að þessar hellur hafa verið fremur dýrar fram til þessa. Flokkun á heimilissorpi Ein nýjung i eldhúsum undan- farið er kannski ekki tímasparandi fljótt á.litið en kemur til með að vera það í framtíðinni. Þetta er flokkunarkerfi á heimilissorpi sem æ fleiri taka í notkun. Sérstakar fötur eru þá hafðar fyrir lífrænan úrgang, pappír, einnota umbúðir og svo framvegis í stað þess að henda öllu í eitt og sama ílátið. Að sögn Erlings Friðrikssonar eig- anda Eldaskálans fannst fólki flokkun á sorpi fráleit fyrir nokkr- um árum. „Núna telja allir sjálf- sagt að taka flokkun á sorpi með í reikninginn þegar nýtt eldhús er skipulagt. ofni skal fægja úr þurrum, fínum sandi." ískyggilegar drunur í ísskápum Útlit innréttinga breytist frá ári til árs, stundum eru þær gamaldags, stundum framúrstefnulegar og allur gangur á hvaða viður, litir og eftn er í tísku hveiju sinni. Á hvaða veg sem útlitið er miðast þó allar tækninýjungar í eldhúsinu við að létta fólki störfin. Rafmagnseldavélin leysti kolaeldavélina af hólmi og eftir árið 1950 fóru ísskápar að verða al- menningseign. Þeir voru stórir og plássfrekir og heyrðust reglulega ískyggilegar drunur í mörgum þeirra. Þá bættist það við heimilis- störfin að affrysta ís- skápinn en það þótti húsmæðrum í þá daga lítið mál miðað við þau þægindi sem hann bauð uppá. Örbylgjuofninn markaði síðustu tímamót „Fyrir um það bil ellefu eða tólf árum fór ég að kenna á ör- bylgjuofn en ég hafði kynnst þeirri nýjung í Bretlandi. Líklega er ör- bylgjuofninn síðasta tækninýjung- in í eldhúsi sem hefur markað tímamót. Örbylgjuofninn gjör- breytti eldamennsku hvað varðar tímasparnað segir Dröfn Farest- veit hússtjórnarkennari sem rekur heimilistækjaverslunina Einar Farestveit með fjölskyldu sinni. „Öldruð kona sótti hjá mér nám- skeið og hún sagði að þetta væri sú nýjung sem kæmist næst því þegar rafmagnseldavélin leysti kolavélina af hólmi. Ég varð sjálf gagntekin af örbylgjuofninum á sínum tíma og enn í dag nota ég NÚ ER hægt að fá skúffur með margvíslegum fötum í svo auðveldara sé að flokka heimilissorplð. hann mjög mikið við matreiðslu", segir Dröfn. Bakaraofnarnir með sj álfhr einsibú naði Dröfn bendir á að alltaf sé ver- ið að leita leiða til að létta fólki eldhússtörfin. „Það er stefna fram- leiðenda að hafa heimilistæki stíl- hrein þannig að þrifnaður sé sem auðveldastur og í dag eru margir ofnar búnir sjálfhreinsibúnaði." Margir eru farnir að blanda saman venjulegum hellum og gashellum. Kannski eru svokallaðar span- suðuhellur það sem koma skal. Þá er segulkraftur notaður sem hitagjafi, suðufletir hitna ekki, NYIR TIMAR NÝ FORM NÝR MYNDALISTI HAUST 0G VETUR. GÓÐ HÖNNUN OG HAGKVÆMNI. habitat Laugavegi 13 Slmi 562 5870 Opið lau. 10-16 kaffikönnum CaféRoma _ HD 7256 Vonduð kanna með leka loka. Slekkur á sér sjálfkrafa. Café Master Þægileg, einföld og ódýr. HD7412 3.390 kr. Café Gourmet HD 5400 Falleg kaffivél sem sýöur vatniö áður en hún hellir upp á. Auðvelt er að færa hana til og hitahellan heldur kaffinu Café Roma Tiierm Hellir upp á ilmandi kaffi HD 7262 beint í hitabrúsann. L Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500 Umboðsmenn um land allt. ©

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.