Morgunblaðið - 27.10.1996, Side 13

Morgunblaðið - 27.10.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1996 E 13 INNAN VEGGJA HEIMILISINS SVIPMYNDIR af stofu og baðherbergi. GANGURINN hefur tekið al- gerum stakkaskiptum frá því sem hér sést. ALLIR þröskuldar voru teknir af gólfum þar sem í húsinu býr fjölfatlað barn. margar íbúðir í blokkum eða rað- húsum eru fullbúnar þegar þeim er skilað, sem ekki er mjög gott fyrir okkar stétt. Þetta kemur auð- vitað verðinu niður en þýðir að við erum komin út í þetta Evróblokk- ar-fyrirkomulag þar sem allt er eins og minni möguleikar fyrir fólk að leika sér svolítið. Mér finnst þetta synd því það stöðvar þróun- ina og ég hefði viljað að stærri byggingaraðilar væru í farar- broddi, þróuðu eitthvað nýtt og kæmu með aðrar lausnir og ný byggingarform. Ég sá sýningu í Danmörku í tengslum við menning- arborgina sem hét „Búið í borg“. Þar voru sýndar nokkur þúsund íbúðir í nýju hverfi í Kaupmanna- höfn þar sem bólaði á nýjum gerð- um og nýrri hugsun. Þessa hef ég saknað hér í tengslum við hönnun- ar- og byggingardaga en bygging- ardagar hér eru ekkert annað en söludagar fyrir byggingariðnað- inn.“ - Hvemig er hönnun hér frá- brugðin? „Efnisvalið hjá okkur er hlýlegra en sunnar í álfunni þar sem lofthit- inn kallar á kaldari liti. Fólk kynd- ir til dæmis herbergi sem málað er rautt eða appelsínugult minna en blátt herbergi. Við þurfum aðra liti hér og margir sem hafa málað með bláu að sumri til vakna upp við vondan draum í janúar. Ef maður vill hafa svalt í svefnher- bergi er allt í lagi að mála það blátt en öðru gegnir til dæmis um stofu. Þetta fer síðan líka eftir tísku og hvítu tímabilin vara alltaf miklu lengur er þau skrautlegu. Jarðlitir eru dálítið í tísku núna, gulur, rauð- ur litur og þessi gamli flösku- græni, ekki síst á innréttingum, því hann er svo dimmur." - Hvað með brúna litinn? „Það er langt síðan hann var í tísku, kannski 15-20 ár, og kaffi- brúnir, hraunaðir veggir voru út um allt. Guði sé lof að það er búið. Núna felst grófa áferðin meira í steypu-brútalisma sem gilti í nokk- ur ár. Fólk skildi húsin eftir ópúss- uð og mótaförin áttu að sjást. Þetta hentar voðalega fáum auk þess sem ekki er gott fyrir húsin að vera ópússuð vegna rakadrægni. Hins vegar er þetta í sjálfu sér mjög fiott og ef fólk vill yfirfæra þennan stíl á heimili þarf húsnæðið að vera mjög stórt og hátt til lofts, til dæm- is með tveggja hæða glugga í stof- unni. Síðan má nota gamalt skatt- hol og persneskt teppi til að gera hlýlegra.“ - Hvaða litur er uppáhalds litur- inn þinn? „I raun og veru er hvítt í mestu uppáhaldi hjá mér. Maður verður leiður á hinu og hlutir eins og málverk njóta sín langbest á mjög ljósum grunni. En þegar ég vel liti á herbergi hjá fólki tek ég mið af þeim hlutum sem það á. Maður lendir eiginlega aldrei í því að fá alveg nýtt hús og fara með kúnnanum út að kaupa húsgögn. Það hefur kannski gerst tvisvar eða þrisvar en hættan er sú að innbúið verði örlítið sterílt og stemmningin meira eins og í hús- gagnaverslun. Það vantar per- sónulega hluti og þá þróun sem verður þegar dóti er safnað í mörg ár. Annars er til umboð fyrir allan fjandann hér en það sem er til á lager er kannski dálítið einhæft." - Hvað er efst á baugi núna? „Það er ekkert nýtt undir sól- inni. Byltingar verða mjög sjaldan og þá helst í kringum nýja tækni eða nýtt efni, samanber plastið sem kom fram á sjöunda áratugn- um. Þá var það nýtt að geta steypt húsgögn úr plasti og allir voru í því að teikna plasthúsgögn. Þetta var mjög frjótt tímabil. Núna er meira um hægfara þróun að ræða og alls engin bylting. Náttúruvæni stíllinn er talsvert áberandi og kemur fram á ýmsan hátt. Nátt- úrulínan byrjaði í gólfefnum fyrir fimm til sex árum. Þá varð aftur- hvarf til linoleum-dúks og parket- ið byrjaði að vera olíuborið, svo dæmi séu tekin. Þjóðfélagsum- ræðan hefur mikil áhrif á hönnun almennt, hvort um er að ræða iðnhönnun eða innanhússhönnun. Innanhússhönnun er 90% handverk og 10% list og listin verður alltaf fyrir áhrifum af umræðunni. Þegar náttúruvemd og endurvinnsla kem- ur til umræðu sýnir það sig í hönn- uninni, þótt stundum sé um plat að ræða. - Veistu hvað þú ert búinn að vera með marga kúnna frá því þú byrjaðir? „Nei, guð minn góður. Núna er ég að vinna við verk númer 728 en ég byrjaði ekki að númera verk- efnin fyrr en ég var búinn að starfa í 5-6 ár. Það segir heldur ekki allt því sumt er minni háttar og annað getur tekið hálft ár. Ég hef því ekki hugmynd.“ - Koma einhveijir aftur? „Sem betur fer gera einhveijir það og það hefur komið fyrir að ég hafi teiknað fyrir sama fólkið, jafnvel þrisvar. Maður fylgir því frá fyrstu íbúðinni í stóra einbýlishúsið og þaðan aftur í blokk þegar fjöl- skyldan minnkar aftur.“ - Hvað fer mest í taugarnar á þér? „Það sem kreppan hefur eyðilagt mest er gæðaskyn okkar á öllum sviðum. Það er alltaf verið að leita tilboða og pína niður verð en i raun er verið að bera saman epli og app- elsínur. Verkkunnáttan hefur því farið niður á við. Ég held að við verðum mörg ár að jafna okkur á þessu. Þetta gildir til dæmis um smíði innréttinga og þú sérð ekki það sama í dag og fyrir tíu ámm hvað varðar frágang því margir era orðnir samdauna þessari spam- aðarhugsun. Kúnninn veit oft ekki betur. Menn gera lág tilboð til þess að fá verkin en skila síðan mis- jafnri vinnu og þetta gildir jafnvel í sérsmíðuðum íbúðum. Þess vegna finnst mér frábært að fá til mín fólk sem strýkur hendinni bakvið og undir kanta og segir: Nei, þetta er ekki í Iagi.“ Sœtir sófar d óviðjafnanlegu verði HÚSGAGNALAGERINN Smiðjuvegi 9 (gul gata)-Kópavogi-simi 564 1475 Opið mán.- fös. 10-18, lau. 11-14. D SEVERIN CAFE CAPRICE kqffivélin sýður vatnið jyrir uppáhellingu. Hefur hlotið ótal viðurkenningar Lagar 8 stóra bolla eða 12 litla. Vapotronic suðukerfi. Innbyggð snúrugeymsla. 1400 W. Sér rofi fyrir hitaplötu. Dropastoppari. Yfirhitavörn. Glæsileg nútímahönnun - engri lík. Tilboðsverð nú aðeins kr. 9.975 stgr. REYKJAVÍKURSVÆÐI: Byggt og búið, Rafha, Suðuriandsbraut, H.G. Guðjónsson, Suðurveri, Húsasmiðjan, Skútuvogi, Glóey, Ármúla 19, Rafbúðin, Álfaskeiði 31, Hafnarf., Miðvangur, Hafnarfirði. SUÐURNES: Staðafell hf. Keflavik, Samkaup, Keflavík, Rafborg, Grindavik. VESTURLAND: Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi, Trésmiðjan Akur, Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgamesi, Blómsturvellir, Hellissandi, Versl. Hamar, Grundarfirði, Versl. E. Stefánssonar, Búðardal. VESTFIRÐIR: Kf. Króksfjarðar, Króksfjarðamesi, Skandi hf., Tálknafirði, Kf. Dýrfirðinga, Þingeyri, Laufið, Bolungarvík, Húsgangaloftið ísafirði, Straumur hf., ísafirði, Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík. NORÐURLAND: Kf. Hnitfirðinga, Borðeyri, Kf. V-Húnvetinga, Hvammstanga, Kf. Húnvetninga, Blönduósi, Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki, KEA, Akureyri, og útibú á Norðuriandi, Kf. Þingeyinga, Húsavík, Kf. Langnesinga, Þórshöfn. AUSTURLAND: Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði, Kf. Héraðsbúa, Seyðisfirði, Kf. Héraðsbúa, Egilsstöðum, Rafalda, Neskaupstað, Kf. Héraðsbúa, Reyðarfirði, Kf. Fáskrúðsfjarðar, Kf. A-Skaftfellinga, Djúpavogi, Kf. A-Skaftfelinga, Höfn. SUÐURLAND: Kf. Árnesinga, Vik, Kf. Rangæinga, Hvolsvelli, Kf. Rangæinga, Ruðalæk, Versl. Mosfell, Hellu, Reynistaður, Vestmannaeyjum, Kf. Ámesinga, Selfossi. Einar Farestveit&Co.hf. Borgartúni 28, símar 562-2901 og 562-2900. Þvottavél og þurrkari. Heildarbrelidd 80 cm - Báðarvélar geta unniö samtímis. Samstæða kr. 69.900 slgr. j Purrkari Tekur 4,5 kg af þvotti. Veltir fram og aftur. Tvöföld hitaeinangrun. Forritanlegur tímastillir. Topphlaöin/Hámarksending. Þvottavél 800 snúninga vinda tekur 5 kg af þvotti. 18 þvottakerfi. Stiglaus hitastilling. Sérstakt uilarþvottakerfi. Stiglaus vinda 400- 1000 sn. Topphlaðin, 2 öxlar við vindu sem tryggja hámarksendingu. IfW kr. 76.600 stgr. \ wmmmmmmmmmmmmm^ Þvottavél til innbyggingar 1000 snúninga vinda tekur 5 kg af þvotti 18 þvottakerfi. Þvottavél og sambyggöur þurrkari. Þvottavél tekur 5 kg af þvotti 1200 snúninga vinda, 14 þvottakerfi.Stilling fyrir samfelldan þvott og þurrkun. 2 ára ábyrgð á TEKA heimilistækjum 1000 sn. Verslun fyrir alla kr. 47.700 stgr. j Þvottavél 1000 snúninga vinda tekur 5 kg af þvotti. 18 þvottakerfi. Stiglaus hitastilling. Stiglaus vinda 400-1000 sn. Rafmagnsvatns- öryggi. Sérstakt ullarþvottakerfi. Topphlaðin. 2 öxlar við vindu sem tryggja hámarksendingu. H 85 B 40 D 60 cm. Síöumúla 34 (Fellsmúlamegin). S. 588 7332. OPIÐ: MANUD. - FOSTUD. 9-18. LAUGARD. 10-14

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.